Morgunblaðið - 22.10.2002, Page 40
MINNINGAR
40 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Er hægt að sætta sig
við alla hluti? Þegar
læknarnir og prestur-
inn voru að spyrja mig
hvort það væri eitthvað
sem ég vildi vita var
svarið alltaf það sama,
það sem ég vil fá að vita, því getur
enginn svarað. Pálmi var ekki bara
bróðir, mágur og frændi, hann var
hluti af manni sjálfum. Allir leituðu til
hans, hvort sem það voru flutningar,
bilaður bíll eða að skrifa upp á víxil,
alltaf var sama svarið, já. Ég er viss
um að hann sagði ekki oft nei, frekar
við skulum „athuga málið“ eða „við
sjáum til“. Hann var fallegur að utan
en hann var ennþá fallegri að innan
og hafði alltaf heimsins mesta tíma
fyrir mann og aldrei var hægt að
merkja að eitthvað annað biði hans.
Við töluðumst við að minnsta kosti
einu sinni í viku og við gátum talað
saman í meira en einn tíma í senn, eða
þar til við vorum farin að fá augnagot-
ur frá mökum okkar. Hann hlúði svo
vel að Jóhönnu og börnunum að aðdá-
unarvert var og sjaldan gaf hann sér
tíma til að taka sumarfrí því það
þurfti að nota aurana í eitthvað sem
kæmi þeim til góða.
Kærleikurinn og keleríið var hon-
um svo eðlilegt að alltaf heilsuðumst
við með kossi og kvöddumst þannig
líka, hann var bara þannig að mann
langaði til að knúsa hann. Og eins og
Íris Svava dóttir hans sagði: „Pabbi
kallaði alltaf í mig og sagðist ætla að
segja mér eitthvað en þá hvíslaði
hann bara í eyrað á mér og vildi
knúsa mig.“ Ég var nú stundum að
skamma Jóhönnu fyrir að stjana
svona við hann, þá sagði hún alltaf:
„En það gefur mér svo mikið að sjá að
honum líður vel, þá líður mér vel
líka.“ Og ekki vék hún frá honum
þessa daga er hann var á spítalanum,
né Hrafnkell sonur hans, hann var
eins og klettur við hlið móður sinnar
huggandi litlu systkinin sín og styrkj-
andi móður sína. Hann hafði þann
ótrúlega styrk sem unglingar alla
jafna hafa ekki.
Elsku Jóhanna, Hrafnkell, Atli
PÁLMI
KARLSSON
✝ Pálmi Karlssonfæddist í Kefla-
vík 24. maí 1959.
Hann lést á Land-
spítalanum 11. októ-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Grafarvogs-
kirkju 21. október.
Karl og Íris Svava, nú
verðum við að vera
sterk og halda áfram að
lifa lífinu án Pálma, en
það veit sá sem allt veit
að ekki verður það auð-
velt.
Ég man er við syst-
urnar vorum að stríða
honum á ýmsu sem
hann hafði gert þegar
hann var lítill og þegar
við systurnar byrjuðum
að segja af honum sög-
ur þá brosti hann út í
annað og sagði: „Nú
byrja þær.“
Í öllum þessum áföllum á bráða-
vakt, gjörgæslu og hjartadeild hef ég
kynnst því yndislegasta fólki á ævi
minni. Þá spyr maður sig: Hvaðan
kemur þetta fólk og þessi kærleikur
sem frá því stafar? Þakka ykkur fyrir
allt og ykkar verður ætíð minnst. Að
lokum langar mig til að þakka Lovísu
Baldursdóttur sem vinnur á gjör-
gæslu, hún er gull af manni.
Elsku Pálmi minn, þú varst okkur
öllum svo kær, og við munum alltaf
minnast þín sem hetjunnar okkar
með ljósu lokkana.
Guðný Karlsdóttir.
Pálmi Karlsson er einn af þeim
mönnum sem ég lít mest upp til.
Kraftalega byggður, var alltaf á flott-
um bílum eða mótorhjólum og vel lið-
inn hvar sem hann kom. Þetta var
minn uppáhalds frændi. Samband
mitt og Pálma var meira heldur en
bara venjulegt samband frænda.
Hann var mér meira eins og stóri
bróðir og jafnvel á tíðum eins og
pabbinn minn. Enda hafði hann mikil
áhrif á mig þegar ég var unglingur og
átti virkan þátt í að móta mig til þess
manns sem ég er nú.
Þegar maður fær fréttir af því að
svo hjartfólginn fjölskyldumeðlimur
sé í lífshættu, er fátt um orð til að lýsa
því sem fer í gegnum huga manns. Og
þegar maður stendur frammi fyrir
því að Pálmi Karlsson, uppáhalds
frændi minn, sé dáinn, er ekkert sem
fær lýst þeirri sorg og þeim tómleika
sem grípur mann. Tómarúmið sem
Pálmi frændi skilur eftir sig verður
seinnt fyllt, gleðin og jákvæðnin, sem
geislaði alltaf af honum, þessi lúmski
húmor sem honum var svo sjálfsagð-
ur. Þetta er allt farið. Hann er farinn.
Ég mun ekki gleyma því sem hann
gerði fyrir mig, sögunum sem hann
sagði mér aftur og aftur og aftur, og
þær voru bara betri og betri og betri
eftir því sem tíminn leið. Ég hafði
ekki grátið í mörg ár fram að andláti
míns elskulega Pálma frænda, það
eina sem getur veitt mér huggun, er
að Jóhanna konan hans er orðin hluti
af fjölskyldu minni og það verð ég
honum ævinlega þakklátur fyrir.
Hann átti einnig þrjú falleg börn sem
munu ævinlega minna mig á Pálma
frænda og það sem hann stóð fyrir og
ég veit að þau munu gera hann stolt-
an, þar sem hann lítur til þeirra í dag-
legu amstri.
Elsku frændi, þakka þér fyrir allan
þann tíma sem við eyddum saman og
fyrir allt það sem þú gerðir fyrir mig
og allar ráðleggingarnar. Takk kær-
lega fyrir allt saman. Ég mun aldrei
hætta að sakna þín.
Ólafur Karl Eyjólfsson.
Elsku besti Pálmi frændi. Aldrei
hefur mér fundist lífið svona óréttlátt.
Ég sakna þín svo mikið. Stundum er
sagt „þeir deyja ungir sem guðirnir
elska“. Þeir hljóta að hafa elskað þig
mikið, elsku frændi. Nú er ljósið þitt
sem lýsti svo skært slokknað. Nú ertu
farinn, allt of fljótt frá okkur öllum
sem elskum þig svo heitt. En minn-
ingin um þig, hún lifir í hjörtum okk-
ar. Við munum aldrei gleyma þér
elsku frændi. Takk fyrir allt.
Í húsi föður míns eru margar vistarverur.
Væri ekki svo, hefði ég þá sagt yður, að ég
færi burt að búa yður stað? Þegar ég er far-
inn burt og hef búið yður stað, kem ég aftur
og tek yður til mín, svo að þér séuð einnig
þar sem ég er.
(Jóh. 14:2–4.)
Ég tárvotum augum til þín lít og
sorgin hjarta mitt kremur, með sökn-
uði ég kveð þig frændi, Pálmi, þú
varst alltaf bestur, hvíl í friði elsku
Pálmi.
Lovísa Dagmar og Oliver.
Kveðja frá Sendibílastöðinni hf.
Um leið og við kveðjum Pálma
Karlsson sendibílstjóra sem kvaddi
þennan heim langt um aldur fram, að-
eins 43 ára gamall, þá enn og aftur
verðum við vitni að því að veröld okk-
ar er óútreiknanleg, við ráðum engu.
Pálmi Karlsson stundaði akstur frá
Sendibílastöðinni til fjölda ára, yfir-
vegaður og vel liðinn alla tíð. Pálma
verður saknað sem góðs félaga. Um
leið og við þökkum samstarfið og
kveðjum Pálma í hinsta sinn færum
við fjölskyldu hans allri okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Sigurður Ingi Svavarsson.
Eitt af því sem sjaldnast þurfti að
segja við mig tvisvar á æskuárunum
var að það ætti að fara í heimsókn til
Selmu frænku. Því þá gafst tækifæri
til þess að hitta frændsystkinin, börn-
in þeirra Kalla og það var ekki óeðli-
legt að við Pálmi frændi værum líkt
og samlokur því það var ekki nema
tæpur mánuður á milli okkar. Ég
minnist ævintýranna heima hjá þeim,
þar var margt brallað, úti í skúr var
hægt að smíða, það var hægt að fara í
hjólreiðartúra upp í Elliðaárdal, vaða
í Elliðaánum og koma svo úr ævintýr-
unum til baka og fá kleinur og mjólk.
Sumarið sem við Pálmi urðum 13 ára
var margt brallað, vítt og breitt um
borgina á nýlegu hjólunum okkar en
svo var komið haust og við að byrja í
fyrsta bekk í gagnfræðaskóla. Við
kvöddumst uppi við Öskjuhlíðina á
hitaveitustokkunum og innst inni
vissum við að þetta var síðasta sum-
arið sem við myndum eyða svona
saman. Við héldum í sitthvora áttina
þú upp eftir en ég niður í Hlíðar, hjól-
in okkar voru jafngömul og að sjálf-
sögðu sást ekki á þínu en mitt var
rispað og bögglað. Svo tóku nýir
tímar við og áður en langt um leið
varstu búinn að eignast mótorhjól
sem breyttist í bíl og ekki fækkaði
ævintýrunum hjá okkur. Það voru
margir rúntar, bíó og ballferðir.
Svo rakst ég á þig þar sem þú hafð-
ir lagt Toyotunni hennar mömmu
þinnar við Austurvöll. Ég hugsaði
mér gott til glóðarinnar, með að fá far
heim en bíllinn var fullur af stelpum.
Með sérstakan glampa í augunum
kynntir þú mig fyrir stelpu sem sat
fram í og þar var komin Jóhanna,
ekkert hefur skilið ykkur að, fyrr en
nú.
Nokkrum árum seinna seldir þú lít-
ið fyrirtæki sem þú hafðir rifið upp
vestur í bæ og fjárfestir í atvinnutæki
sem veitti þér tækifæri til þess að
vera áfram eiginn herra.
Við og fleiri hittumst í ágúst síðast-
liðnum uppi á Árbæjarsafni í afmæl-
isveislu og áttum góða stund og
ákváðum að gera alvöru úr að hittast
öll yfir kaffibolla en tíminn þýtur
áfram, líkt og hendi væri veifað ert þú
farinn og nú bið ég Guð þess að við
megum eiga þessa stund seinna. Ég
bið Guð að blessa Jóhönnu og börnin
og alla aðstandendur.
Hinir réttlátu gróa sem pálminn,
vaxa sem sedrustréð á Líbanon.
Þeir eru gróðursettir í húsi Drottins,
gróa í forgörðum Guðs vors.
(Sálmur 92. 13–14.)
Jónas Ragnar Halldórsson.
Það var árið 1990 að við kynntumst
Jóhönnu og Pálma. Við vorum öll í
sömu erindagjörðum úti í Englandi,
þaðan eigum við margar góðar en
einnig erfiðar minningar, og það var
ekki síst þess vegna sem við tengd-
umst sterkum vináttuböndum. Hlýj-
an og góðsemdin leyndi sér ekki hjá
þeim hjónum, alltaf tilbúin að hlusta
og hjálpa. Hrafnkell sonur þeirra var
einnig með í þessari ferð og naut
hann mikilla forréttinda enda eina ís-
lenska barnið á staðnum. Eftir eng-
landsferðina stofnuðum við stelpurn-
ar klúbb sem við köllum Born-
klúbbinn og höfum hist reglulega síð-
an.
Árið 1991 fæddist svo Atli Karl og
við stelpurnar í Born-klúbbnum
brunuðum upp á spítala til að skoða
þennan fallega dreng, og gleðin sem
skein út úr andlitinu á honum Pálma
er við mættum upp á spítala var
hreint ólýsanleg. Þremur árum
seinna fæddist svo prinsessan Íris
Svava, og ekki var nú hamingjan
minni þá. Það er sárt til þess að hugsa
að þessi yndislegu þrjú börn skuli
ekki fá að njóta návistar pabba síns
lengur, en lífið er svo hverfult og oft á
tíðum svo ósanngjarnt.
Það var orðinn siður hjá okkur í
Born-klúbbnum og mökum okkar að
fara saman á jólahlaðborð en ekki
hvarflaði það að okkur í desember
síðastliðnum að það væri í síðasta
sinn sem við fengjum að hafa Pálma
með okkur, hvað þá að okkur óraði
fyrir þegar við kvöddum Pálma þar
sem hann stóð í eldhúsinu og var að
vaska upp eftir okkur stelpurnar, eft-
ir vel heppnað kvöld í góðu yfirlæti
heima hjá þeim fyrir rúmum hálfum
mánuði síðan að það yrði okkar hinsta
kveðja.
Elsku Jóhanna, Hrafnkell, Atli
Karl og Íris Svava, við sendum ykkur
og fjölskyldum ykkar okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur og megi góður
Guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar.
Born-klúbburinn og makar.
Enginn veit sína ævi fyrr en öll er.
Þessi orð koma upp í hugann aftur og
aftur nú, þegar við kveðjum kæran
vin, sem kallaður er burt svo alltof,
alltof fljótt. Maður gerir sér grein fyr-
ir því að allt sem maður tekur sem
sjálfsögðum hlut fær nýja merkingu
þegar heggur nærri.
Okkur þykir lífið óréttlátt. Af
hverju er honum Pálma vini okkar
kippt í burtu svo fyrirvaralaust? Frá
fjölskyldu sem elskaði hann svo mikið
og frá vinunum. Pálmi hefur verið
hluti af fjölskyldu okkar svo lengi sem
við munum. Besti vinur Adda bróður,
frá því að þeir voru guttar. Þeir hafa
gengið saman í gegnum súrt og sætt,
ávallt hafa þeir verið hvor öðrum
traustur og tryggur vinur. Pálmi var
svo heilsteyptur og heiðarlegur, góð-
ur vinur vina sinna. Hann bróðir okk-
ar á um sárt að binda nú þegar hann
horfir á bak vini sínum.
Pálmi var lánsamur þegar hann
kynntist henni Jóhönnu sinni. Það var
sjaldan að maður hitti hann án þess
að Jóhanna væri nærri. Þau eiga sam-
an þrjú yndisleg börn sem eru blanda
af því besta frá báðum foreldrum.
Pálmi var lengi í Fornbílaklúbbn-
um og átti einn af fallegri bílum sem
ekið hefur verið um götur bæjarins,
bleikan Chevrolet Bel-Air árg. 1957.
Það var gaman að hitta hann á rúnt-
inum með fjölskylduna í þessum eð-
alvagni, sem hann hafði af mikilli
natni gert upp.
Við systur Adda og móðir þökkum
Pálma fyrir yndislega vináttu og lút-
um höfði í þökk fyrir að hafa fengið að
vera samferða honum, þó þennan
tíma.
Elsku Jóhanna, Hrafnkell, Atli
Karl, Íris Svava og aðrir aðstandend-
ur, megi minningin um Pálma lýsa
ykkur áfram veginn.
Hulda, Bára, María,
Marta og Dóróthea.
Á fögrum haustdegi þegar náttúr-
an skartar sínu fegursta er höggvið
stórt skarð í vinahópinn. Góður og
traustur vinur okkar, hann Pálmi, er
fallinn frá.
Eftir eigum við minningar liðinna
ára, minningar um góðan félaga sem
munu varðveitast í hjörtum okkar
ásamt þakklæti fyrir að hafa notið
þess að eiga hann sem vin.
Elsku Jóhanna, Hrafnkell, Atli
Karl, Íris Svava og aðrir ástvinir,
megi góður Guð gefa ykkur styrk í
sorginni.
Stundin líður, tíminn tekur
toll af öllu hér
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Við kveðjum vin okkar með þökk
og virðingu og biðjum góðan Guð að
varðveita hann.
Pétur og Bjarney,
Ágúst og Laufey.
Hugur manns reikar til baka í
hvert sinn sem einhver fellur frá.
Okkur langar að minnast Pálma vinar
okkar í örfáum orðum, alltaf svo kát-
ur og hress og alltaf til í að hjálpa öll-
um sem hans þurftu. Pálma þótti mik-
ið gaman að bílum og mótorhjólum
hans bílar voru alltaf hreinir og gljá-
andi. Þegar við kynntumst Pálma og
Jóhönnu fyrir 10 árum kom það fljót-
lega í ljós hvað þeir áttu margt sam-
eiginlegt strákarnir okkar Jóhönnu,
þeir Pálmi og Jómbi. Það voru ekki
ófáar stundir sem Jómbi og Pálmi
voru í bílskúrnum hans Pálma,
snyrtilegasta og best skipulagða bíl-
skúr í bænum.
Þeir settu saman heilu vélarnar og
mótorhjólin. Fimmta október fóru
þeir Jómbi og Pálmi að hjóla ásamt
fleirum upp við Hafravatn, mitt í allri
gleðinni fékk Pálmi slæman verk fyr-
ir brjóstið og sex dögum seinna er
þessi elskulegi og góði maður á besti
aldri tekinn frá okkur, allt of fljótt,
það var svo margt sem við áttum eftir
að gera saman.
Elsku Jóhanna, Hrafnkell, Atli og
Íris Við vottum ykkur samúð okkar.
Guð veri með ykkur
Jón Björn og Katrín.
Pálmi minn, mikið fannst mér leitt
að heyra að þú værir farinn frá
okkur. Þú varst alltaf svo kátur og
hress og alltaf var gaman að
spjalla við þig. Það er mikill sökn-
uður að hitta þig ekki aftur en ég
veit að einhvern tímann munum
við hittast á ný og þá getum við
spjallað mikið saman. Eiginkonu
og börnum votta ég mína dýpstu
samúð. Megi góður Guð styrkja
þau í sorg þeirra.
Stefán Konráðsson.
HINSTA KVEÐJA
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður, stjúp-
móður og ömmu,
SIGRÚNAR MARÍU
SIGURÐARDÓTTUR ARASON,
Christchurch,
Nýja Sjálandi.
Jóhannes Arason,
Matthildur Hjartardóttir Arason,
Þórhildur Sylvía,
Magnúsdóttir Robinson, Robert James Robinson,
Magnús N. Þóroddsson,
Jóhannes Andrew Robinson,
James Robert Robinson,
Ari Jóhannesson, Merry Elat,
Ari Brynjar Arason,
Ásgerður Jóhannesdóttir,
Óðinn Víglundsson,
Ingvar Þór Jóhannesson, Van Jóhannesson.