Morgunblaðið - 08.11.2002, Síða 6

Morgunblaðið - 08.11.2002, Síða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FJÓRIR karlmenn voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í 1–3 ára fangelsi fyrir innflutning á 30 kílóum af hassi til landsins í mars sl. Hassið var falið inni í hús- gögnum sem voru flutt í vörugámi frá Danmörku. Refsing þriggja mannanna var milduð þar sem þeir sögðu frá þætti annarra í smygl- inu. Sigurður Hilmar Ólason hlaut þyngsta dóminn, þriggja ára fangelsi. Hann neitaði ávallt að hafa verið nokkuð viðriðinn málið en var dæmdur á grundvelli framburður annarra sakborninga, vitna og upptökum af símtölum. Ingi Þorgímur Guðmundsson, sem dæmdur var í tveggja ára fangelsi, bar að upphafið að því að fíkniefnin voru flutt til lands- ins hafi verið fundur þeirra Sig- urðar í desember 2001. Þar hafi verið ákveðið að Sigurður myndi útvega fíkniefnin í Danmörku en Ingi myndi útvega einhvern til að flytja þau inn. Í upphafi rann- sóknarinnar kvaðst Ingi ekki hafa þorað að játa á sig smyglið eða bendla aðra við málið vegna þess að hann óttaðist margt „í kringum“ Sigurð. Fyrir beiðni Inga féllst kunningi hans á að taka að sér innflutninginn í gegn- um fyrirtæki sem hann átti. Hann kvaðst hafa tekið við hass- inu af íslenskum manni í Kaup- mannahöfn í mars sl. og komið því fyrir í húsgögnum sem hann flutti til landsins með vörugámi. Eftir að hann var handtekinn var hann látinn fletta í gegnum myndasafn lögreglunnar og bar hann kennsl á Sigurð og sagðist þekkja hann sem Íslendinginn sem afhenti honum fíkniefnin. Í dómnum er sérstaklega tekið fram að ekkert hafi komið fram sem geri þessa myndflettingu tortryggilega. Héraðsdómur dæmdi manninn í 20 mánaða fangelsi. Fjórði maðurinn játaði að hafa lagt til 1,4 milljónir til viðskiptanna gegn því að fá 5,4 kíló af hassi. Í niðurstöðu dóms- ins segir að enda þótt fjárframlag mannsins bendi til þess að hlutur hans „í fyrirtækinu“ hafi verið stærri gæti verið hér önnur skýr- ing á, og þótti ekki óhætt að telja sannað að hann hafi ætlað sér meira en 5,4 kíló af efnunum. Sú viðbára að hann hafi ætlað að nota efnin einn, þótti á hinn bóg- inn ekki trúverðug og var hann dæmdur í eins árs fangelsi. Ekki bráð- hættulegt fíkniefni Við ákvörðun refsinga hafði dómurinn „hliðsjón af því að hér var um mikið magn að ræða en einnig af því að kannabis getur ekki talist vera bráðhættulegt fíkniefni“. Refsing allra nema Sig- urðar var milduð þar sem þeir sögðu til annarra í málinu og stuðluðu mjög að því að það upp- lýstist. Ingi, sem talinn var annar aðalskipuleggjanda smyglsins, fékk t.a.m. eins árs skemmri refs- ingu en Sigurður sem ávallt neit- aði sök. Héraðsdómararnir Pétur Guð- geirsson, Hervör Þorvaldsdóttir og Friðgeir Björnsson dómstjóri kváðu upp dóminn. Verjandi Inga var Guðmundur Ágústsson hdl., verjandi Sigurðar var Þórir Arnar Árnason hdl. en Kristján Stefáns- son hrl. og Karl Georg Sigur- björnsson hrl. voru verjendur hinna tveggja. Kolbrún Sævars- dóttir flutti málið f.h. ríkissak- sóknara. Innflutningur á 30 kílóum af hassi frá Danmörku Fjórir menn dæmdir í 1–3 ára fangelsi FYRIR dóminn var m.a. spiluð upptaka af símtali á milli Sigurðar Hilmars Ólasonar og Inga Þor- gríms Guðmundssonar, sem voru aðalskipuleggjendur smyglsins, að því er fram kemur í dómnum. Sigurður sagði samtalið ekki tengjast þessu máli. Hann neitaði því að hafa átt nokkurt samstarf við Inga en hefði reynt að greiða götu hans sem vinar. Hluti af samtalinu fer hér á eftir: S: Halló. I: Blessaður. S: Heyrðu. I: Já. S: Er þér runnin reiðin? I: Já, frekar. S: Af. . . hvernig, þarna, ætlar þú að halda áfram samstarfi við okkur með svona hót- unum? I: Hótunum? S: Ha? I: Það var enginn með hótanir, ég sagðist bara ekki gera neinum greiða sem. . . eða þú veist. . . ef að ég fengi enga greiða, skilurðu, þá myndi ég ekki gera neinum greiða. S: Nei. I: Það er bara ósköp einfalt. S: Já, já. I: En, hérna... en, hérna... S: Heyrðu, við skoðum þetta bara í ljósi þess, sko, ég er búinn að bakka þig upp í mörg, mörg ár... I: Ég veit allt um það. S: ...án þess að telja það eftir mér eitt einasta, einasta sek- úndubrot. I: Já. S: Ég... ég, þarna, sko, uh... ég er búinn að styðja við bakið á þér og peppa þig upp, ég hef aldrei ætlast til nokkurs skapaðar hlutar í staðinn... I: Ég... S: og annað er, Ingi, að ég get ekki unnið undir hótunum.. I: Nei, bíddu aðeins... bíddu að- eins rólegur... S: . ..þannig að við skulum end- urskoða okkar samstarf að þessu leytinu til. „Bíddu aðeins rólegur“ SNILLINGARNIR úr hinu heimsfræga sýningarliði Harlem Globetrotters komu til landsins á miðvikudaginn til að halda nokkrar sýningar á víðfrægum boltabrellum sínum og ærslast með áhorfendum. Eitt fyrsta verk þeirra var að heimsækja börn á Barnaspítala Hringsins og sýna þeim listir sínar. Leikmenn liðsins halda sex sýningar hérlendis fram á sunnudag. Morgunblaðið/Jim Smart Gleði- gjafar í heimsókn FLUGFÉLAGIÐ Luxair í Lúxem- borg hafði samband við Flugfélag Ís- lands í gær og óskaði eftir að fá leigða Fokker-50 vél félagsins til að leysa af hólmi vélina sem fórst í að- flugi í Lúxemborg á miðvikudag. Að sögn Jóns Karls Ólafssonar, framkvæmdastjóra Flugfélags Ís- lands, gat félagið ekki orði við beiðni Luxair með svo skömmum fyrirvara. Flugfélag Íslands á fjórar Fokk- er-50 vélar og notar þær í innan- landsflugi. Aðspurður hvort Fokker-vélar Flugfélags Íslands færu í sérstaka skoðun vegna flugslyssins í Lúxem- borg sagði Jón Karl ekki svo vera. Hann sagði að enn væri ekki ljóst hvað hefði orsakað þetta hræðilega slys og því engin ástæða til að efast um flughæfni Fokker-vélanna. Hann sagði að um 250 slíkar vélar væru til í heiminum og væri þetta fyrsta alvar- lega slysið sem þær tengdust. Luxair vildi leigja Fokker frá Flugfélagi Íslands ♦ ♦ ♦ RÍKISSAKSÓKNARI hefur ritað sýslumanninum í Kópavogi bréf þar sem farið er fram á skýringar á með- ferð lögreglunnar í Kópavogi á kæru gegn eiganda Holts fasteignasölu í Kópavogi fyrir meint skjalafals, um- boðssvik, skilasvik og brot á siða- reglum fasteignasala. Kæran barst lögreglunni 30. jan- úar sl. en eigandinn var ekki kallaður til yfirheyrslu fyrr en um níu mán- uðum síðar. Svar hefur ekki borist frá sýslumanni. Fasteignasalinn gaf sig fram við efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra 29. október og játaði á sig tug- milljóna fjárdrátt. Fasteignasalan Holt Ríkissaksókn- ari óskar eftir skýringum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.