Morgunblaðið - 08.11.2002, Qupperneq 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 15
Þegar líkaminn þarf
meira en lystin leyfir
Útsölustaðir apótek landsins
og Heilsuhúsið
Við orku- og
próteinskorti
Magnþrungin
spennusaga!
Þegar glæsilegasta flugvél Íslendinga, Geysir, skilar sér
ekki á tilsettum tíma í Reykjavík, í septembermánuði
1950, setur ótta að fólki. Um borð er sex manna áhöfn og átján
hundar. Síðast spurðist til vélarinnar yfir Færeyjum. Þegar
liðnir eru rúmir fjórir sólarhringar og umfangsmikil leit skilar
engum árangri telja flestir landsmenn fólkið af og menn
eru farnir að skrifa minningargreinar. Þá berst
ógreinilegt neyðarkall: „Staðarákvörðun ókunn ... allir á lífi“.
Við tekur atburðarás sem á sér enga hliðstæðu.
Óttar Sveinsson er einn mest
seldi höfundur síðustu ára,
enda hafa fyrri Útkallsbækur
hans hlotið einróma lof fyrir
ljóslifandi lýsingar á
magnþrungnum atburðum.
Óttar skrifar raunverulegar
spennusögur sem erfitt er
að leggja frá sér fyrr en
sagan er öll.
Í bókinni koma fram upplýsingar, myndir og frásagnir
sem ekki hafa birst áður opinberlega.
Útkallsbækurnar eru metsölubækur ár eftir ár!
Síðasta bók seldist upp löngu fyrir jól!
30% afsláttur í verslunum Pennans og Eymundsson
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
1
/0
2
nam á fyrstu mánuðum þessa árs
1.050 milljónum króna. Framlegðar-
hlutfallið, þ.e. hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði sem hlutfall
af hreinum rekstrartekjum, lækkaði
milli ára úr 34,7% í 28,7%. Á þriðja
fjórðungi þessa árs hefur það hins
vegar hækkað á ný og var 34,5%.
Rekstrartekjur lækkuðu úr 12,4
milljörðum króna í 11,9 milljarða
króna.
Í fréttatilkynningu Kers vegna
HAGNAÐUR Kers, móðurfélags
Olíufélagsins, var 1.232 milljónir
króna á fyrstu níu mánuðum þessa
árs, en 485 milljónir króna á sama
tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár á
ársgrundvelli hækkaði úr 10% í 23%.
Hagnaður fyrir skatta var 1.541
milljón króna en var í fyrra 407
milljónir króna og jókst því um yfir
1.100 milljónir króna. Fjármagnslið-
ir voru jákvæðir um 827 milljónir
króna í ár en voru neikvæðir um 899
milljónir króna í fyrra. Þeir hafa því
batnað um meira en 1.700 milljónir
króna og stafar það aðallega af áhrif-
um sterkari krónu á erlendar skuld-
ir.
Bati fjármagnsliða skýrir því
meira en alla aukningu hagnaðar
fyrir skatta, en hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði dróst sam-
an um rúmar 240 milljónir króna og
uppgjörsins segir að gjaldfærðar af-
skriftir vegna viðskiptakrafna og
skuldabréfa séu samtals 419 millj-
ónir króna á tímabilinu og að um
verulega aukningu sé að ræða frá
fyrra ári. Aukningin sé fyrst og
fremst vegna krafna á útgerðir sem
stundað hafi veiðar á fjarlægum
miðum, en verulegir erfiðleikar hafi
verið í rekstri þessara fyrirtækja.
Ker sé með þessu að taka tillit til
aukinnar áhættu þessu samfara.
Gert sé ráð fyrir frekara framlagi í
afskriftarreikning á árinu en mat á
því verði framkvæmt miðað við að-
stæður um næstu áramót.
Eignir jukust um 4,8 milljarða
króna frá áramótum og voru 23,8
milljarðar króna í lok september. Í
tilkynningu félagsins segir að
stærstur hluti aukningarinnar sé
vegna fjárfestinga í öðrum félögum
og að stefnt sé að því að selja þær
fjárfestingar fljótlega, eða eins fljótt
og aðstæður leyfi. Eigið fé jókst um
rúman einn milljarð króna á tíma-
bilinu og nam 8,3 milljörðum króna í
lok þess. Skuldir hækkuðu því um
3,8 milljarða króna. Langtímaskuld-
ir lækkuðu, en skammtímaskuldir
hækkuðuð um 4,7 milljarða króna.
Eiginfjárhlutfall lækkaði úr 38,3% í
byrjun árs í 34,9% í lok september.
Veltufjárhlutfall, þ.e. veltufjár-
munir sem hlutfall skammtíma-
skulda, lækkaði úr 1,49 í 0,74. Veltu-
fé frá rekstri lækkaði úr 1.013
milljónum króna í 838 milljónir
króna.
Í tilkynningu Kers segir að ekkert
bendi til annars en að afkoma þess
verði góð fyrir árið í heild sinni að
gefnum þeim forsendum að stöðug-
leiki í efnahagslífi haldist og þróun
gengismála verði með sama hætti og
verið hafi undanfarna mánuði.
Fjármunatekjur
Kers 827 milljónir
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna hf. hagnaðist um 490 milljónir
króna á fyrstu 9 mánuðum ársins
sem er 6% minni hagnaður en á sama
tímabili síðasta árs en þá nam hagn-
aðurinn 524 milljónum króna eftir
skatta.
Vörusala SH á fyrstu 9 mánuðum
ársins nam 41,5 milljörðum króna en
var 41,1 milljarður króna á sama
tímabili í fyrra. Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði nam 1.480
milljónum króna en 1.540 milljónum
sama tíma árið á undan, og hagnaður
fyrir skatta nam 740 milljónum sam-
anborið við 755 milljónir árið á und-
an. Veltufé frá rekstri var 597 millj-
ónir króna en 639 milljónir ári áður.
Sala á þriðja ársfjórðungi
dróst saman um 8%
Hagnaður SH á þriðja ársfjórð-
ungi nam 153 milljónum króna en ári
áður 328 milljónum. Sala á fjórð-
ungnum reyndist 13,5 milljarðar
króna, sem er tæplega 8% lækkun í
krónum talið miðað við sama tímabil
í fyrra. Gengi viðskiptamynta sam-
stæðunnar lækkaði hins vegar um
9% þannig að sala mæld í erlendum
myntum jókst lítillega.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði var 396 milljónir króna og
hagnaður fyrir skatta 194 milljónir
króna.
Afkoman á þriðja ársfjórðungi er
ekki fjarri því sem endurskoðuð
áætlun gerði ráð fyrir en hún kvað á
um að árshagnaður yrði í námunda
við 600 milljónir króna, að því er seg-
ir í tilkynningu frá SH. Á hinn bóg-
inn er líklegt að þótt afkoma á síð-
asta ársfjórðungi verði jákvæð, náist
áætlun ekki. Þetta byggist m.a. á
slakri afkomu í Bretlandi, ekki síst
vegna nýrrar fjárfestingar í verk-
smiðju fyrir kælda rétti. Eftir að
Coldwater UK tók við rekstri fyr-
irtækisins hefur komið í ljós að þró-
un nýrra vara hafði verið vanrækt
um langan tíma en virk vöruþróun er
lykilatriði í aukinni sölu. Á undan-
förnum vikum og mánuðum hefur
því verið lögð mikil áhersla á að snúa
þessari þróun við, en slíkt tekur tíma
og byrjar ekki að gæta fyrr en á
fyrsta ársfjórðungi næsta árs.
Hagnaður
SH minnk-
ar um 6%