Morgunblaðið - 08.11.2002, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.11.2002, Qupperneq 16
ERLENT 16 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MÚGÆSINGURINN hófst með orðrómi um að fimm menn hefðu verið handteknir fyrir að stela kú – móður alls mannkynsins í augum hindúa – og flá hana lifandi nálægt hindúahofi í indverska landbúnaðar- bænum Dulena. Eitthvað varð að gera. Það var gert. Þúsundir æstra hindúa söfnuðust saman við lög- reglustöð þar sem mennirnir fimm voru í haldi og múgurinn dró þá út úr fangaklefunum, barði þá til ólífis með kylfum og múrsteinum. Tvö lík- anna voru brennd. Múgmorðin í Dulena, sem voru framin 15. október, hafa vakið heita umræðu út um allt Indland: er líf kýrinnar heilagra en mannslífið? Þessi umræða endurspeglar tog- streituna á Indlandi milli þeirra sem vilja vernda veraldlegar fjölræðis- hefðir landsins og þjóðernissinnaðra hindúa sem líta á sig sem verndara hindúasiðar og -menningar. Þótt yfirvöld hafi lofað ýtarlegri rannsókn á múgmorðunum og tugir lögreglumanna og dómari hafi verið á staðnum hafa engir verið ákærðir nema mennirnir fimm sem voru myrtir. Mennirnir voru ákærðir fyr- ir að lóga kú. Rannsóknarmennirnir hafa nú fengið niðurstöðu krufning- ar – á kúnni. Mennirnir voru úr röðum dalíta, eða „hinna ósnertanlegu“, stétt- lausra hindúa sem hafa lítinn sem engan rétt í indverska erfðastétta- kerfinu. Margir þjóðernissinnaðir hindúar líta svo á að morðin séu skiljanleg og jafnvel réttlætanleg refsing fyrir enn verri glæp. „Við teljum kúna vera móður heimsins, mannkynsins, þannig að þeir sem lóga kú hafa myrt móður,“ sagði Pitambar Gaur, 35 ára, for- ystumaður deildar Heimsráðs hind- úa í Dulena. Gaur kvaðst harma ör- lög dalítanna fimm en sagði að refsingin væri „rökrétt“ við þessar aðstæður. „Ef hún kemur í veg fyrir að aðrir drepi kýr þá tel ég að þetta hafi verið rétt.“ Slík ummæli hafa vakið reiði með- al frjálslyndra Indverja sem segja að öfgamenn úr röðum hindúa og pólitískir bandamenn þeirra – meðal annars Bharatiya Janata-flokkurinn sem fer fyrir samsteypustjórn Ind- lands – grafi undan lögum og reglu og ali á sundrungu í samfélaginu. Stjórnmálamenn í Kongress-flokkn- um, sem er í stjórnarandstöðu, og fleiri segja að róttækir hindúar hafi hvatt til múgmorðanna í samstarfi við lögregluna. Mörg dæmi eru um slík múgmorð á Indlandi en yfirleitt tengjast þau deilum hindúa og íslamska minni- hlutans. Hindúar myrtu til að mynda yfir þúsund múslíma í Guj- arat-ríki í fyrra eftir að múslímar höfðu myrt 60 þjóðernissinnaða hindúa í farþegalest. Vilja ekki upplýsa málið Dalítar hafa ekki heldur farið var- hluta af ofsóknum. Þótt þeir séu hindúar eru þeir „óhreinir“ í augum margra Indverja og þeir mega að- eins hafa með höndum þau störf sem aðrir hindúar vilja ekki. Eitt þessara starfa er að flá naut- gripi. Þótt bannað sé að slátra kúm á Indlandi veitir stjórnin dalítum leyfi til að selja húð sjálfdauðra kúa. Þetta var atvinna dalítanna fimm sem voru myrtir í Dulena. Faðir eins þeirra segir að þeir hafi ætlað að selja húð kýrinnar þegar lögreglumenn hafi stöðvað þá og barið til bana eftir að þeir hafi neitað að greiða mútur. Þeir hafi síðan log- ið því að æstur múgur hafi myrt mennina í því skyni að hylma yfir eigin glæp. Aðrir ættingjar mannanna halda því hins vegar fram að lögreglu- menn hafi barið einn dalítanna til bana og reynt að hylma yfir það með því að koma af stað orðrómi um að dalítarnir hafi lógað kú og síðan leyft öfgamönnum úr röðum hindúa að myrða hina dalítana fjóra. Flest þykir benda til þess að múg- urinn hafi myrt flesta ef ekki alla dalítana. Lögreglunni hefur þó lítið orðið ágengt við rannsókn málsins og íbúar bæjarins eru mjög tregir til að veita henni upplýsingar um það, enda styðja margir þeirra morð- ingjana. „Þeir eru góðir hindúar og þess vegna var það rétt af þeim að reiðast og drepa þá,“ sagði bæjarbúi sem býr nálægt lögreglustöðinni. Er kýrin heilagari en mannslífið? Fimm menn myrtir fyrir að lóga kú Washington Post Indversk kona, Ramvati Singh (fyrir miðju), og ættingjar hennar syrgja son hennar, einn fimm dalíta sem voru myrtir fyrir að lóga kú. Dulena. The Washington Post. ’ Þeir sem lóga kúhafa myrt móður mannkynsins. ‘ FÆREYSKA landstjórnin hefur fal- ið danska sagnfræðiprófessornum Bent Jensen að gera úttekt á tengslum færeyskra vinstrimanna við valdhafa í kommúnistaríkjum Mið- og Austur-Evrópu á dögum kalda stríðs- ins. Landstjórnin, undir forystu An- finns Kallsbergs, lögmanns Færey- inga, hefur ákveðið að verja ákveðinni summu af fjárlögum í þetta verkefni. Landstjórnin hefur ennfremur samið um að Jensen fái aðgang að leyni- skjölum sem geymd eru í ýmsum skjalasöfnum í Danmörku, þar á með- al leyniþjónustu dönsku lögreglunn- ar, leyniþjónustu hersins og ráðu- neyta utanríkis- og varnarmála. „Samkvæmt samkomulagi við fær- eysku landstjórnina get ég ekki lyft hulunni af bráðabirgðaniðurstöðum rannsóknarinnar. En ég geri ráð fyrir að henni ljúki á næsta ári,“ hefur Jyl- landsposten eftir Jensen prófessor, sem hefur safnað miklum upplýsing- um úr skjalasöfnum í Moskvu. Greindi Jensen frá því, að rannsóknin væri hliðstæð rannsókn sem hann hefði fyrr á þessu ári lagt til við danska forsætisráðherrann Anders Fogh Rasmussen að hann fengi um- boð til að gera um fortíð danskra vinstrimanna. Danska stjórnin afréð þó að fela það frekar dönsku rann- sóknastofnuninni um utanríkismál. Tilgangurinn með rannsókninni sem Jensen vinnur nú að fyrir Fær- eyinga er m.a. komast að því hverjir hafi gengið erinda Varsjárbandalags- ins í Færeyjum og hvernig ráðamenn Sovétríkjanna hafi metið hernaðar- legt mikilvægi eyjanna. Sovézk fiski- skip voru tíðir gestir við Færeyjar á dögum kalda stríðsins og þykir líklegt að áhafnir þeirra hafi verið á höttun- um eftir fleiru en þorski. Úttekt gerð á Austur- blokkar- tengslum Færeyjar LÖGREGLAN í Indónesíu sagði í gær að verið væri að yfirheyra mann sem væri félagi í samtökum sem staðið hefðu fyrir sprengju- tilræðinu á eynni Bali fyrir skömmu en þar fórust rúmlega 190 manns, aðallega erlendir ferðamenn. Mað- urinn, sem er þrítugur og sagður er heita Amrozi, mun hafa átt hvítan Mitsubishi-sendibíl sem sprakk við þekktan ferðamannastað er margir Vesturlandamenn sóttu. Aðspurður sagði yfirmaður indónesísku lögreglunnar, Da’i Bachtiar, að Amrozi, sem einnig gengur undir nafninu M. Rozi og fleiri dulnefnum, hefði verið stjórn- andi tilræðismannanna á staðnum. Handtaka Amrozis þykir vera mik- ill áfangi í baráttu Indónesa gegn hermdarverkamönnum. „Hann hefur sagt okkur margt og viðurkennt að hafa verið að verki á Bali. Við erum því að leita að vinum hans og þeir hafa verið settir á lista lögreglunnar yfir eft- irlýsta menn,“ sagði Bachtiar. Lög- reglan hefur birt teikningar af hin- um eftirlýstu og dreift þeim um landið. Flogið var með Amrozi frá Bali til Jövu á miðvikudagskvöld þar sem hann verður yfirheyrður frekar. Indónesar eiga samstarf við lögreglumenn frá Ástralíu, Banda- ríkjunum og fleiri löndum vegna rannsóknar málsins. Hvatt til árása á veitingastaði Amrozi er frá Lamongan á aust- urhluta Jövu og mun stundum hafa farið til bæna í nálægum heimavist- arskóla múslíma í borginni Teng- gulun, að sögn skólastjórans, Zak- aria sem eins og fleiri Indónesar notar aðeins eitt nafn. Amrozi er sagður hafa verið handsamaður í skólanum. Zakaria sagðist hafa tjáð lögreglunni að hann þekkti mann- inn og einnig Abu Bakar Bashir, íslamskan klerk sem nú er í haldi vegna gruns um hlutdeild í öðrum hryðjuverkum. Ráðamenn í Singapore og Malas- íu telja að Bashir sé andlegur leið- togi hryðjuverkasamtakanna Jem- aah Islamiyah sem grunuð eru um að hafa tekið þátt í tilræðinu á Bali. Indónesar álíta að Bashir hafi skipulagt árásir á nokkrar kirkjur á aðfangadag árið 2000. Bashir, sem er 64 ára gamall og sjúkur, er nú í haldi lögreglunnar. Hann dvaldist um hríð í Malasíu, þar sem Amrozi starfaði einnig um sama leyti og Bashir stofnaði á sínum tíma ísl- amskan heimavistarskóla þar sem áðurnefndur Zakaria úrskrifaðist. Bashir neitar því að eiga nokkurn þátt í hryðjuverkum. Asíuútgáfa bandaríska dagblaðs- ins Wall Street Journal sagði í gær að sprengingin á Bali hefði verið skipulögð af Hambali, herskáum múslímaklerki sem sagður er vera yfirmaður aðgerða Jemaah Islam- yiah. Ekki er vitað hvar hann held- ur sig núna. Blaðið hafði eftir heim- ildarmönnum sínum að Hambali hefði á fundi í Taílandi í janúar sl. hvatt herskáa araba og Suðaustur- Asíumenn til að ráðast á veitinga- staði og næturklúbba í heimshlut- anum. AP Teikningar af eftirlýstum hryðjuverkamönnum sem lögreglan í Indónesíu hefur dreift vegna tilræðisins á Bali. Indónesar handtaka hermdarverkamann Sagður hafa átt þátt í sprengju- tilræðinu á Bali Jakarta, Bali. AFP, AP. RUDOLF Augstein, stofnandi og út- gefandi þýzka fréttatímaritsins Der Spiegel, lézt á sjúkrahúsi í Hamborg í gær, tveimur dög- um eftir 79 ára af- mælið. Banamein hans var lungna- bólga. „Það er sem við höfum misst föð- ur,“ er haft eftir Joachim Preuß að- stoðarritstjóra á netfréttasíðu Spiegel, þar sem fréttin af andláti Augsteins var birt í gær. Næsta tölu- blað ritsins verður helgað minningu Augsteins, sem stofnaði það árið 1947. Augstein var einn virtasti blaða- maður Þýzkalands eftir stríð. Eftir að hafa verið látinn laus úr bandarískum stríðsfangabúðum – hann var kallað- ur í herinn árið 1942 og særðist á austurvígstöðvunum – starfaði hann fyrst um sinn við brezkt hernámsdag- blað í fæðingarborg sinni Hannover en tókst síðan að herja út leyfi her- námsyfirvalda til að gefa út eigið fréttablað. Upp úr stríðsrústunum byggði hann upp blað sem varð fljótt einn áhrifamesti fjölmiðill Þýzka- lands. Með fulltingi harðsvíraðs liðs blaðamanna með bækistöðvar í Ham- borg gerði Augstein „Spegilinn“ að miðli sem stóð virkan vörð um prent- frelsið og gat sér orðstír fyrir vand- aða rannsóknarblaðamennsku. Hann kallaði blaðið gjarnan „stórskotalið lýðræðisins“. Í október 1962 voru Augstein og nokkrir aðrir blaðamenn Spiegel handteknir eftir að birt var í blaðinu umfjöllun um meinta vangetu NATO til að bregðast við ef í harðbakkann slægi í kalda stríðinu. Var blaðinu gefið að sök að hafa birt trúnaðar- upplýsingar. Handtökurnar kölluðu á alþjóðleg mótmæli og þær urðu til þess að Franz-Josef Strauß, þáver- andi varnarmálaráðherra Vestur- Þýzkalands, neyddist til að segja af sér. Málið hefur síðan jafnan verið kallað „Spiegel-hneykslið“. Sem útgefandi blaðsins hélt Aug- stein áfram að skrifa í það leiðara allt fram í andlátið, og hafði með því áhrif á opinbera umræðu í Þýzkalandi. Vikulegt upplag Der Spiegel er ell- efuhundruðþúsund eintök. Rudolf Augstein allur Rudolf Augstein
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.