Morgunblaðið - 08.11.2002, Síða 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
örugg stýring viðskiptakrafna
MAGNÚS Baldursson, fræðslu-
stjóri í Hafnarfirði, reiknar með
að starfsmaður á vegum Skóla-
skrifstofu muni ræða við skóla-
stjóra Lækjarskóla um notkun á
gulum og rauðum spjöldum
strax í næstu viku.
Morgunblaðið greindi frá því
fyrr í vikunni að skólinn hefði
beitt gulum og rauðum spjöld-
um á nemendur í 1. til 4. bekk til
að viðhalda aga en fái barn
rauða spjaldið þarf það að sitja
inni í frímínútum í þrjá daga og
vinna heimavinnuna sína. Málið
bar á góma á fundi fræðsluráðs í
fyrradag. „Þetta er ekki það
sem við köllum akút mál þótt
auðvitað höfum við áhyggjur af
því ef fólk er óánægt með starfið
í skólanum og þá skoðum við það
alltaf,“ segir Magnús. Hann hef-
ur rætt óformlega við skóla-
stjórann um málið en engin af-
staða hefur verið tekin um
framhaldið.
Magnús segir að Skólaskrif-
stofan hafi hvatt skólastjórn-
endur til að taka á agavanda-
málum í skólum en að engin
fyrirmæli hafi verið gefin um
það með hvaða hætti. „Ég held
að það sé alveg ljóst að ef þessi
umræða heldur áfram á nei-
kvæðum nótum munum við auð-
vitað skoða málið og fá nánari
útlistun á þessu og út á hvað
þetta gengur í smáatriðum.“ Að
sögn Magnúsar hefur ekkert
formlegt erindi borist Skóla-
skrifstofunni þar sem kvartað er
undan notkun á gulum og rauð-
um spjöldum í skólanum. Hins
vegar hafi eitt foreldri haft sam-
band og nefnt að sér hugnaðist
ekki sú aðferð sem notuð væri til
að taka á agavandamálum.
Lækjarskóli
Rætt við
skólastjóra
Hafnarfjörður
BÆJARSTJÓRN Mosfellsbæjar
hefur samþykkt að hrinda af stað
vinnu við deiliskipulag svæðis þar
sem flugfélagið Atlanta hefur sótt
um að reisa höfuðstöðvar sínar. Gert
er ráð fyrir íbúðasvæði í tengslum
við athafnasvæðið sem lóðin tilheyr-
ir.
Svæðið sem um ræðir er sunnan
Vesturlandsvegar og vestan Hafra-
vatnsvegar. Að sögn Tryggva Jóns-
sonar bæjarverkfræðings hafa arki-
tektar verið ráðnir til að hanna
skipulagið en það er Teiknistofa
arkitekta, Gylfi Guðjónsson og fé-
lagar ehf., sem mun sjá um skipu-
lagsgerðina.
„Þörfin fyrir skipulagið er tilkom-
in vegna umsóknar Atlanta um lóð á
þessu svæði,“ segir Tryggvi. „Þetta
er skilgreint sem miðsvæði og svo er
íbúðasvæði sem tengist því þar sem
áætlað er að byggja um 110 íbúðir,
flestar í fjölbýli, raðhúsnæði og par-
húsum.“
Hann segir að á athafnasvæðinu
verði stærri lóðir fyrir fyrirtæki.
Þannig hafi Atlanta óskað eftir lóð
sem væri einn og hálfur hektari að
stærð. „Í þessari skipulagsvinnu
hafa menn meðal annars velt því fyr-
ir sér að þarna gæti hugsanlega ver-
ið fjölbrautaskóli en það liggja engar
ákvarðanir fyrir um það.“ Tryggvi
segir ráðgert að ljúka deiliskipulags-
vinnunni strax á þessu ári þannig að
framkvæmdir á svæðinu gætu hafist
á vormánuðum á næsta ári.
Nýtt hverfi
vestan
Hafra-
vatnsvegar
Mosfellsbær
HLUTFALL leiðbeinenda við
kennslu í grunnskólum á höf-
uðborgarsvæðinu og á Suður-
nesjum skólaárið 2002–2003 er
lægst í Garðabæ, eða 5%, að því
er fram kemur í tilkynningu frá
bænum.
Tölurnar er að finna í yfirliti
sem lagt var fram á fundi bæj-
arráðs Garðabæjar í vikunni.
Yfirlitið vann Sveinbjörn
Markús Njálsson, skólastjóri
Álftanesskóla, að beiðni skóla-
nefndar Bessastaðahrepps.
Það tekur til allra kennara og
leiðbeinenda sem eru í minnst
30% starfi.
Hafnarfjarðarbær kemur
næstur í röðinni en þar er hlut-
fall leiðbeinenda 7%. Hlutfallið
er 10% í Kópavogi og í Reykja-
vík, 14,5% í Grindavík, 15% á
Seltjarnarnesi og 23% í Mos-
fellsbæ og í Bessastaðahreppi.
Hlutfall leiðbeinenda er hæst í
Reykjanesbæ af þeim stöðum
sem skoðaðir voru eða 33%.
Leiðbeinendur í
grunnskólum
Hlutfallið
lægst í
Garðabæ
Garðabær
SNYRTISKÓLINN, nýr skóli fyrir
snyrtifræðinga, verður opnaður
með formlegum hætti í dag í
Hjallabrekku 1 í Kópavogi. Skól-
inn er einkarekinn og á fram-
haldsskólastigi og munu nem-
endur útskrifast þaðan sem
fullgildir snyrtifræðingar að
loknu námi. Hann mun alls geta
tekið við 36 nemendum en fyrst
um sinn munu 12 nemendur hefja
nám við skólann en þeim fjölgar
eftir því sem líður á veturinn.
Námið sjálft tekur tólf mánuði
að viðbættri starfsþjálfun og
sveinsprófi. Reiknað er með að
nemendur hafi lokið hluta af bók-
námi í öðrum framhaldsskóla áð-
ur en þeir innritast en stefnt er
að því að Snyrtiskólinn bjóði í
framtíðinni upp á kennslu í bók-
legum fögum á framhalds-
skólastigi þannig að nemendur
geti sótt tímana innan skólans.
Húsið þar sem Snyrtiskólinn er
til húsa er nýtt og sérhannað til
kennslu en þar hafa einnig að-
stöðu förðunarskóli No Name og
Naglaskólinn. Eigendur skólans
eru Kristín Stefánsdóttir og Inga
Þyri Kjartansdóttir. Skólastjóri
er Ósk Vilhjálmsdóttir.
Auk þess að bjóða upp á verk-
legt og bóklegt nám fyrir verð-
andi snyrtifræðinga býður skól-
inn upp á endurmenntun fyrir
útskrifaða snyrtifræðinga.
Starfstitillinn „snyrtifræð-
ingur“ fælir karlmenn frá
Ósk Vilhjálmsdóttir skólastjóri
leggur áherslu á að mikil áhersla
sé lögð á húðmeðferðina og að
snyrtifræði gangi út á mun meira
en að snyrta neglur og lita varir.
Í raun megi segja að það sé
minnsti hlutinn af náminu.
„Við erum að vinna með mjög
sterk efni og þar af leiðandi þarf
kennslan í kringum þau að vera
mjög fræðileg og markviss,“ segir
Ósk.
Í því felst að snyrti-
fræðingar eru dags-
daglega að fást við
ýmiss konar húð-
vandamál en einnig að
viðhalda heilbrigðri
húð og fegra.
„Nemendur þurfa
einnig að vera vel að
sér í efnafræði snyrti-
vara og þekkja öll
efnin sem þeir með-
höndla,“ segir Ósk og
bætir við að áhersla
sé lögð á að snyrti-
fræðingar öðlist
grunnþekkingu í líf-
fræði og lífeðlisfræði.
Spurð um áhuga
karlmanna á snyrti-
fræði segir Ósk að
einungis einn karlmaður hafi sótt
um en hann hafi ekki haft tilskil-
inn undanfara í bóknámi sem þarf
til að innritast.
Hún ítrekar að snyrtifræði sé
jafnt fyrir konur og karla og tel-
ur að hugsanlega
eigi starfstitillinn
snyrtifræðingur sinn
þátt í að fæla karl-
menn frá því að
leggja námið fyrir
sig. Hún nefnir í
þessu sambandi að
Félag íslenskra
snyrtifræðinga hafi
velt upp þeirri hug-
mynd að breyta
starfstitlinum en
dæmi um hinn nýja
starfstitil gæti verið
húðfræðingur eða
húð- og snyrtifræð-
ingur.
Sem fyrr segir
verður skólinn opn-
aður í dag að við-
stöddum Valgerði Sverrisdóttur,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og
Sigurði Geirdal, bæjarstjóra
Kópavogs. Þá mun séra Íris Krist-
jánsdóttir, sóknarprestur í Hjalla-
sókn, vígja húsið.
Nýr snyrtiskóli á framhaldsskólastigi opnaður með formlegum hætti í dag
Minnstur tími hjá nemendum fer í
að lita varir og lakka neglur
Morgunblaðið/RAXNemendur skólans, tólf talsins, ásamt skólastjóra sínum.
Kópavogur
Ósk Vilhjálmsdóttir er
skólastjóri Snyrtiskól-
ans en alls starfa átta
kennarar við skólann.
SEX umsóknir bárust um stöðu að-
stoðarskólastjóra Áslandsskóla en
málið var lagt fyrir á fundi fræðslu-
ráðs Hafnarfjarðar í vikunni.
Að sögn Magnúsar Baldurssonar
fræðslustjóra verður ráðið í stöðuna
að fengnu samþykki fræðsluráðs, að
öllum líkindum á næsta fundi þess, á
miðvikudag í þarnæstu viku.
Áður hafði umsóknarfresturinn
verið framlengdur eftir að aðeins
tvær umsóknir bárust um stöðuna.
Umsækjendurnir eru: Erlingur
Þorsteinsson, Erna Ingibjörg Páls-
dóttir, Inga Rósa Þórðardóttir,
Skarphéðinn Gunnarsson, Steinunn
Anna Gunnlaugsdóttir og Unnur
Elfa Guðmundsdóttir.
Áslandsskóli
Sex sækja um
stöðu aðstoð-
arskólastjóra
Hafnarfjörður