Morgunblaðið - 08.11.2002, Side 35

Morgunblaðið - 08.11.2002, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 35 og situr nú í sveitarstjórn. Var á þriðja sæti eina listans sem kom fram fyrir síðustu kosn- ingar, en þar er um að ræða þverpólitískan hóp sem tók sig saman. Hún er til að mynda óflokksbundin. Hafþór Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri SR-mjöls á staðnum, var í fyrsta sæti listans og er því oddviti en hann var í minnihluta í sveitarstjórn á síðasta kjörtímabili fyrir Raufarhafnarlistann, sem sjálfstæðismenn og framsóknarmenn buðu fram saman. „Ég varð svolítið skúffuð yfir því hve margir sögð- ust ekki nenna að taka þátt eða ekki hafa áhuga á því að standa í skítkasti,“ segir Margrét um aðdraganda þess að þessi eini listi var settur saman í vor. „Hvernig getur fólk í 300 manna bæjarfélagi ekki haft áhuga á því sem gerist í bænum?“ Margrét segir að það hafi ekki komið á óvart að fjárhagsstæða sveitarfélagsins væri slæm. Allir vissu að hreppurinn hefði á sínum tíma keypt verðbréf og öllum væri ljóst að verðgildi slíkra bréfi hefði hrunið upp á síðkast- ið, en „það sem var stærsta áfallið var að kom- ast að því að bæjarfélagið hafði verið rekið á yf- irdrætti síðasta hálfa árið. Ég hafði beðið um að sjá ársreikninga bæjarfélagsins, þótt ég væri ekki í sveitarstjórn, og sá að það hafði ver- ið rekið með talsverðum halla síðustu tvö árin en það kom á óvart að það hefði verið rekið frá degi til dags á yfirdráttarheimild sem yfirleitt var fullnýtt og kostaði þar af leiðandi bæj- arfélagið fleiri milljónir í dráttarvexti á ári.“ Margrét segir það gefa auga leið að þegar bæj- arfélag sé rekið með halla ár eftir ár komi að því að peningarnir klárist. „Það er reyndar al- veg sama hvort það er sveitarfélag, fyrirtæki eða fjölskylda.“ Tekjur sveitarfélagsins hafa vitaskuld lækkað verulega vegna fólksfækkun- ar í plássinu undanfarin ár, auk þess sem laun hátekjufólks, t.d. sjómanna, hafa lækkað. „En það er ekki annað inni í myndinni en að bjarga málunum,“ segir Margrét. „Og það ætti að vera hægt með smáaðhaldi í einhvern tíma; reyndar er vitað mál að það verður erfitt í fyrstu en fólk ætlar ekki að gefast upp. Við erum ekki mjög skuldsett sveitarfélag á íslenska vísu og ef rekstrinum verður stýrt eftir tekjum ætti þetta ekki að verða neitt vandamál næstu árin.“ Geta lagt niður bæinn þegar „þeir“ vilja Einar Jóhannesson og Gestur Þorsteinsson starfa báðir hjá SR-mjöli, en Gestur er reyndar einn fjögurra sem sagt hefur verið upp störf- um. „Við getum auðvitað ekki tekið ástandinu í bænum nema eins og það er; og það er ekki nógu gott,“ segir Gestur við Morgunblaðið. „Eftir því sem maður heyrir er allt á hausn- um en ég get svo sem ekkert fullyrt um það. En ég segi að þetta hafi allt saman byrjað þegar kvótakerfið var sett á,“ segir Einar. „Þegar kvóti fer af svona stað kemur ekkert í staðinn. Þá er svona staður búinn að vera. Og „þeir“ geta lagt bæinn niður hvenær sem „þeir“ vilja,“ segir hann. Með „þeim“ á hann við Útgerð- arfélag Akureyringa, sem á frystihúsið Jökul, og Samherja sem á verksmiðju SR-mjöls. Hann segir fólk hljóta að óttast að svo fari, því þegar kvótanum hafi verið skipt á örfáar hendur og fyrirtækin stækki sé engin trygging fyrir því að fyrirtæki eins og þessi tvö á Raufarhöfn starfi áfram. „Og þá er ekkert eftir. Hér er enga aðra vinnu að hafa nema hvað hreppurinn er með eitthvert fólk í vinnu,“ segir Einar og Gestur botnar: „Og húskofarnir eru verðlausir. Já, hér hefur orðið fólksfækkun og hún á eftir að verði meiri. Það getur enginn ætlast til þess að mað- ur sitji atvinnulaus heima við símann og bíði eftir því að kallað sé í mann. Það lifir enginn á því. Enda er ég að fara! Ég er búinn að flytja heimilisfangið mitt í Garðinn og fer eins fljótt og ég get.“ Gestur er fæddur á Raufarhöfn og hefur búið þar lengst af ævinni, nema hvað hann var í Keflavík í nokkur ár fyrir margt löngu. „Mér líkar vel á Suðurnesjunum. Nei, ég er ekki búinn að fá vinnu þar en ég fer héðan þegar uppsögnin tekur gildi. Það er alveg á hreinu.“ Hann segir gott að vera á Raufarhöfn, svo fremi vinnu sé að hafa, en „ég er búinn að fá nóg. Þetta gerir kannski ekki svo mikið til fyrir mig, ég er orðinn svo gamall, en ástandið er hrikalegt fyrir unga fólkið.“ Upplýsingar um fjárhagsstöðu koma úr fjölmiðlum Bergur Þórðarson, myndlistarmaður og kennari, fluttist til Raufarhafnar fyrir rúmu ári ásamt eiginkonu sinni og dóttur. „Okkur finnst yndislegt að búa hérna,“ segir hann. Hann hef- ur búið fyrir sunnan og þau voru um það bil 15 ár erlendis en Raufarhöfn og nágrenni segir Bergur paradís. „Hér er fögur náttúra. Þetta er landshluti sem hefur orðið svolítið út úr; er ósnertur ennþá. Óspilltur að mörgu leyti. Hér er fiskveiði í vötnum, fuglalíf er fjölbreytt og útiveran dásamleg að sumrinu til. Hér fær maður frið til að vinna og skólastarfið hefur gengið mjög vel.“ En hann segir: „Mér finnst nú vera að koma í ljós gallar á því að hér skuli vera sjálfkjörinn listi í sveitarstjórn. Ég hef á tilfinningunni að einhvers konar minnihluta vanti til aðhalds. Þessi sjálfkjörni listi lofaði öllu fögru í vor um að upplýsingaflæði til bæj- arbúa yrði mun öflugra en það hefði verið en nú erum við bæjarbúar að upplifa það að við fáum allar okkar upplýsingar um fjárhagsstöðu sveit- arfélagsins úr fjölmiðlum í Reykjavík. Okkur er ekkert sagt.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Raufarhöfn í erfiðri stöðu Sex til sextán ára strákar og stelpur koma saman einu sinni í viku á fótboltaæfingu undir stjórn Bjarna Ómars Haraldssonar kennara. Bergur Þórðarson, myndlistarmaður og kennari á Raufarhöfn. Erla Guðmundsdóttir, til vinstri, og Berglind Friðbergsdóttir. Þær vinna báðir í versluninni Urð á Raufarhöfn. Gestur Þorsteinsson, til vinstri, og Einar Jóhannesson, starfsmenn SR-mjöls á Raufarhöfn. Aron Þorbergsson, 16 ára, og Erna Ragn- arsdóttir, 18 ára, starfsmenn Jökuls ehf. á Raufarhöfn. Margrét Vilhelmsdóttir, framkvæmdastjóri Jökuls ehf. á Raufarhöfn. Hún á einnig sæti í sveitarstjórn Raufarhafnarhrepps. skapti@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.