Morgunblaðið - 08.11.2002, Page 41

Morgunblaðið - 08.11.2002, Page 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 41 ÆTLI nokkur hafi unnið jafn- ötullega að því að búa betri hag þeim sem minna mega sín? Um nokkurra ára skeið hef ég fylgst með vinnu þeirri sem Margrét Frí- mannsdóttir hefur innt af hendi í þágu þeirra sem hafa ekki tungu til að tala sjálfir, ég tel víst að þarna sé á ferð einn virtasti og metnaðarfyllsti þing- maður okkar Íslendinga. Það góða starf sem Margrét hefur unnið í málefnum fanga hefur sann- anlega bjargað mannslífum, en oft gleymist í umræðunni um fanga- málin að fangar landsins munu ljúka afplánun sinni og sameinast sam- félaginu á nýjan leik. Því er mjög brýnt að huga að málefnum þeirra, ef ekki væri vegna þeirra, þá okkar. Á sviði áfengis- og vímuvarna kemst enginn í hálfkvisti við Mar- gréti. Ég hvet alla sem vilja stuðla að bættum hag okkar íbúanna og þá sem áfengis- og vímuvarnarmálin snerta, bæði aðstandendur og at- vinnumenn, að styðja Margréti Frí- mannsdóttur til áframhaldandi þing- setu með stuðningi ykkar í 1. sæti á Suðurlandi í prófkjörinu hinn 9. nóv- ember næstkomandi. Margrét Frí- mannsdóttir í 1. sæti á Suðurlandi Guðjón Egill Guðjónsson, starfsmaður hjá 12 spora húsi, skrifar: ÁGÆTU stuðningsmenn Sjálf- stæðisflokksins í Norðvest- urkjördæmi. Nú á laugardaginn kem- ur, hinn 9. nóv- ember, göngum við að kjörborði og velj- um okkur forystu í nýju og stærra kjör- dæmi en við höfum áður þekkt. Kjördæmi sem spannar nálægt fjórðungi landsins okkar. Í þessu nýja kjördæmi er gríðarlega mikilvægt að við veljum okkur öfl- ugan og sigurstranglegan framboðs- lista sjálfstæðismenn góðir. Við höf- um úr mörgum og álitlegum nöfnum að velja, frambjóðendum með mikla og víðtæka reynslu, það ríður á að við náum að stilla upp sterku liði. Í mínu óskaliði verður nafn Einars Kristins Guðfinnssonar mjög of- arlega á blaði. Einar Kristinn hefur sýnt það með framgöngu sinni, t.a.m. innan ferðamálaráðs, að þar fer maður sem er ábyrgur gerða sinna. Fylkjum liði, sjálfstæðismenn góðir, og tryggjum Einari Kristni gott veganesti á laugardaginn kem- ur. Tryggjum Einari Kristni annað af tveimur efstu sætum listans. Einar Kristinn, traustsins verður! Björn Bjarki Þorsteinsson, bæjarfulltrúi í Borgarbyggð, skrifar: NÚTÍMAFÓLK veltir því oft fyr- ir sér hvers virði starf þeirra sé og hvernig samferðamennirnir meti það. Ég hef sjálfur fyrir löngu gert upp við mig þýðingu menningar og mennta fyrir allt andlegt líf þjóð- arinnar og mikilvægi þeirra starfa sem þessum sviðum tengjast. Ég er einn- ig nokkuð sannfærður um að flestir Íslendingar átti sig á þýðingu þeirra. Af þessu ástæðum hefur það vakið furðu mína að Alþingi Íslendinga hefur ekki notið starfskrafta og hug- myndaauðgi listamanna nema þá í undantekningartilfellum. Í dag er bjart framundan því sam- fylkingarfólki gefst tækifæri til að kjósa á lista flokksins einstaklega frambærilegan klassískan lista- mann. Hér á ég við píanóleikarann Sigrúnu Grendal sem býður sig fram í 5.-6. sæti listans. Sigrún er ekki aðeins fyrsta flokks skapandi listamaður og per- sónuleiki heldur hefur hún sinnt fé- lagasmálum sinnar stéttar af fram- úrskarandi krafti. Er ekki kominn tími til að kjósa listamann á Alþingi Íslendinga? Ég vil hvetja allt samfylkingarfólk til að greiða Sigrúnu Grendal atkvæði sitt í prófkjörinu 9. nóvember. Kjósum lista- mann á þing Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræð- ingur, skrifar: GUÐMUNDUR Árni er öflugur talsmaður jafnaðarmanna á Íslandi. Hann er kraftmikill, áræðinn og reynsluríkur stjórn- málamaður. Undir hans forystu voru jafnaðarmenn mjög sterkir í Hafnarfirði og unnu glæsta kosningasigra á ár- unum 1986 til 1994. Guðmundur er tilbúinn til að leiða framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Það er glæsileg framvarðasveit sem okkur í kjör- dæminu stendur til boða að velja á framboðslista flokksins. Það er mik- ilvægt að flokksfólk í kjördæminu velji sitt sterkasta lið til að leiða listann til sigurs í alþingiskosn- ingum á komandi vori. Þau tæp tíu ár sem ég hef búið í Hafnarfirði hef ég kynnst Guðmundi betur og betur. Þekki vel orðið hvernig hann nær að meta málefnin kalt, en að sama skapi kynnst hversu hjartagóður maður hann er. Samfylkingin er með sterka stöðu hér í Hafnarfirði eftir kosningar síð- astliðið vor. Og ég trúi því að hún nái sterkri stöðu að loknum kosningum á komandi vori. Guðmundur Árni er réttur maður til að leiða þá vinnu í kjördæminu. Ég hvet því flokks- menn til að styðja hann í for- ustusætið. Guðmund Árna í 1. sæti Gísli Ó. Valdimarsson, formaður Samfylk- ingarinnar í Hafnarfirði, skrifar: FRAMUNDAN er prófkjör Sam- fylkingarinnar í Reykjavík. Þar er í framboði Ásta R. Jó- hannesdóttir. Ég hef lengi fylgst með störfum Ástu að mál- efnum geðsjúkra og annarra sem eiga á brattann að sækja í okkar samfélagi. Hún er þar ómetanlegur og ómiss- andi liðsmaður fyrir okkur sem störfum að þessum málum, óþreyt- andi við að taka upp mál einstaklinga og samtaka. Sem betur fer eru geðfatlaðir minnihlutahópur, en enginn veit hvenær hann sjálfur, nánir ætt- ingjar eða vinir gætu þurft að kljást við andlega vanheilsu. Þá fyrst gerir fólk sér grein fyrir mikilvægi að- stoðar samfélagsins, stjórnvalda sem stjórnmálamanna. Samfélagið þarfnast stjórnmálamanna eins og Ástu Ragnheiðar. Að henni er nú sótt í harðri prófkjörsbaráttu. Allir sem vilja geta skráð sig í Samfylk- inguna og tekið þátt í prófkjörinu hinn 9. nóvember. Ég skora á alla þá sem eru mér sammála um mikilvægi Ástu að gera það og greiða henni at- kvæði í þriðja sæti hinn 9. nóvember. Ásta R. er öflugur málsvari geðfatlaðra Anna Valdemarsdóttir, forstöðumaður í Klúbbnum Geysi, skrifar: HELGI Hjörvar er maður sem hefur unnið hörðum höndum að mál- efnum er varða bætt- an hag þeirra sem minna mega sín, Helgi Hjörvar starf- aði sem forseti borg- arstjórnar og stóð hann sig með miklum ágætum þar. Helgi var einnig formaður félagsmálaráðs og óeigingjarnt starf hans á sviði áfengis- og vímuvarnarmála er mark- að af heiðarlegum og drífandi fúsleika sem fáir búa yfir, Helgi Hjörvar er stjórnarformaður hússjóðs Ör- yrkjabandalagsins, hann var einnig formaður Blindrafélagsins. Sér- plægni er fyrir Helga óþekkt orð. Er hann því búinn að undirbúa komu sína á Alþingi Íslendinga í vor með eftirminnilegum hætti. Helgi Hjörvar er framsækinn mað- ur og fylginn sér, og hygg ég að nú sé tími jafnaðarmanna kominn, með Bryndísi Hlöðversdóttur í öðru sæti. Það er trú mín og okkar sem störfum á þessum vettvangi að þjóðin ákveði nú að greiða leið þessara forystu- manna með stuðningi til áframhald- andi setu og með Helga Hjörvar í öruggu sæti á Alþingi Íslendinga. Stöndum vörð um mannauð, veljum rétt Guðjón Egill Guðjónsson, starfsmaður hjá 12 spora húsi, skrifar: ÉG hef nú nýverið lagt fram á Alþingi Íslendinga breytingar á lögum um greiðslu ríkissjóðs til þolenda afbrota. Það gerðist nefni- lega hér fyrir nokkrum árum, nán- ar tiltekið árið 1996, að allar skaðabætur til þolenda afbrota voru lækkaðar um helming. Þetta var svokallaður bandormur í fjár- lögum, og var þessu kirfilega mót- mælt á sínum tíma, ekki síst af konum og kvennahreyfingum. Það versta í þessu máli var að með þessu var breytt áðurnefndum lög- um, sem voru tiltölulega ný og höfðu hlotið afar mikinn og góðan hljómgrunn og stuðning – þvert á pólitíska flokka. Þau voru mikil réttarbót fyrir t.d. konur sem höfðu orðið fyrir nauðgunum, svo ekki sé talað um þau börn sem urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi. En það gerðist eins og hendi væri veifað – allt skorið niður um helm- ing í þessum áðurnefndu fjárlög- um – og lofað endurskoðun í þeim næstu. Í nokkur ár hefur verið tal- að um að breyta þessu til upp- runalegs horfs, en þetta er greini- lega eitthvað sem hefur gleymst! Það gengur ekki lengur og þess vegna hef ég flutt frumvarp til laga sem gerir ráð fyrir helmingi hærri bótum en nú eru og einnig geri ég ráð fyrir að fjárhæðir taki verðlagsbreytingum samkvæmt skaðabótalögum. Nú reynir á allt tal um það hversu nauðsynlegt sé að breyta þessu og leiðrétta þessi mistök, börnum og þolendum afbrota til handa. Um þetta á því ekki að vera pólitískur ágreiningur enda málið brýnt og hagsmunir mik- ilvægir. Skaðabætur til þolenda afbrota Eftir Guðrúnu Ögmundsdóttur Höfundur er alþingismaður. „Í nokkur ár hefur verið talað um að breyta þessu til upprunalegs horfs, en þetta er greinilega eitthvað sem hefur gleymst!“ Kringlunni 8-12 www.olympia.is sími 553 3600 Vetrarlínan komin Glæsilegt úrval SATIN CURVES Gylltur 75-85 B-C-D

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.