Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 42
UMRÆÐAN
42 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐRÚN Ögmundsdóttir þing-
maður er skelegg kona og kraft-
mikil. Hún er óhrædd við að taka á
erfiðu málunum sem við fæst viljum
vita af, og draga þau fram í dags-
ljósið. Hún stendur
fyrir sínu hvar sem
hún fer og býr að
ríkri þekkingu og
reynslu úr starfi
sínu sem fé-
lagsráðgjafi á víðum
vettvangi.
Í starfi sínu sem alþingiskona
hefur hún unnið vel, ekki aðeins
sem hluti af heild, heldur sem frum-
kvöðull og málshefjandi á brýnum
úrlausnarefnum, ekki síst þeim er
varða kjör hinna sem minna mega
sín í samfélaginu. Hún er ekki kona
sem fellur í fjöldann, heldur kona
sem gustar af og framkvæmir.
Þess vegna er Guðrún Ögmunds-
dóttir ómissandi á Alþingi Íslend-
inga, þar sem framtakið er meira
virði en fjöldinn. Því skora ég á allt
hugsandi fólk að mæta í prófkjör
Samfylkingarinnar á laugardag og
tryggja að atorkusemi Guðrúnar
Ögmundsdóttur nýtist áfram á Al-
þingi, landi og lýð til heilla.
Guðrún Ögmunds-
dóttir ómissandi
þingkona
Ragnheiður Jónsdóttir enskukennari
skrifar:
EINN er sá maður í framboðs-
hópi Samfylkingarinnar í Reykjavík
sem allir ættu að
geta sameinast um
að koma á þing.
Ágúst Ólafur
Ágústsson hefur
vaxið mikið í starfi
formanns ungra
jafnaðarmanna og
stjórnar þar geysiöflugu starfi.
Ekki er á nokkurn hallað þegar
fullyrt er að þar fari ferskasti og
öflugasti frambjóðandinn úr hópi
utanþingsmanna. Samfylkingunni
gefst nú einstakt tækifæri til að
leiða inn á þing ungan og kraftmik-
inn atgervismann. Þrátt fyrir ung-
an aldur er það festa og einurð
sem helst hafa einkennt störf
Ágústar. Hann tekur hlutverk sitt
alvarlega og hefur sýnt að þegar
hann tekur afstöðu til mála er það
yfirleitt byggt á vandlegri skoðun á
viðkomandi málaflokki. Ágúst hefur
til að mynda verið einn af öflugustu
talsmönnum Evrópusambands-
aðildar og við skoðun sína á málinu
er hann orðinn einn helsti sérfræð-
ingur Íslands í sjávarútvegsstefnu
sambandsins. Það eru svona vinnu-
brögð sem einkenna góða þing-
menn. Sameinumst öll um að koma
Ágústi á þing.
Sameinumst
um Ágúst
Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmála-
fræðingur, skrifar:
LÝÐRÆÐI er orð sem er oft
notað við hátíðleg tækifæri, en
hvað felst í orðinu lýðræði?
Það felst t.d. í því að allir hafi
sama rétt til menntunar, til að tjá
sig og sínar hugmyndir. Það er
alls ekki sjálfgefið að allir hafi
sömu aðstöðu til að afla sér
menntunar, þar hefur jafnaðar-
stefnan mikilvægu hlutverki að
gegna. Jafnaðarstefnan á að
tryggja að allir hafi rétt til að afla
sér menntunar, eftir áhuga og
getu, án tillits til efnahags og bú-
setu. Þessari hugmynd tryggjum
við best brautargengi með því að
styrkja Samfylkinguna til enn
frekari góðra verka á komandi ár-
um. Þor og kraftur er máttur, þá
er komið að tjáskiptum manna, ég
tel mjög brýnt að íslenska skóla-
kerfið kenni nemendum sínum að
tjá sig í ræðu og riti. Íslenskt
skólakerfi þarf í auknum mæli að
mínu mati að kenna nemendum að
halda ræður, útbúa ræður, al-
mennar fundarreglur og fundar-
sköp. Það er ótrúlega mikilvægt að
fólk geti tjáð sig hvort sem er í
mæltu eða rituðu máli.
Það hlýtur að vera eitt af meg-
inverkefnum íslensks skólakerfis
að við fáum sem heilsteyptustu og
trúverðugustu einstaklinga úr
skólum landsins. Til að slíkt sé
raunhæft þarf íslenska mennta-
kerfið að huga vel að ofannefndum
atriðum.
Um leið og þessi atriði eru auk-
in, verður manneskjan frjálsari og
lýðræðið virkara að mínu mati.
Þessum atriðum mun ég fylgja
eftir ef ég fæ til þess styrk í kom-
andi flokksvali Samfylkingar í
Suðvesturkjördæmi.
Lýðræði, mennt er
máttur, hug-
myndir, þor og
kraftur er máttur
Eftir Jón Kr.
Óskarsson
Höfundur gefur kost á sér í 4. – 6.
sæti í flokksvali Samfylkingar í
Suðvesturkjördæmi.
„Jafnaðar-
stefnan á að
tryggja að
allir hafi rétt
til að afla
sér menntunar, eftir
áhuga og getu, án tillits
til efnahags og
búsetu.“
ÉG vil hvetja alla félaga í Sam-
fylkingunni að kjósa Jónas Sigurðs-
son í 2. sætið í Suðvesturkjördæmið.
Jónas Sigurðsson er og hefur verið
bæjarfulltrúi í Mos-
fellsbæ síðastliðin
átta ár. Hann hefur
gífurlega reynslu og
þekkingu og mikla
yfirsýn á pólitísku
starfi innan sveitar-
félaga. Hann leggur
metnað sinn í að nálgast öll málefni
með opinn huga og yfirvegun og hef-
ur jafnframt hugrekki til að taka
ákvarðanir. Hann er einn af þeim
sjaldgæfu einstaklingum sem er allt-
af málefnalegur. Alúð hans og færni
í samskiptum við fólk gera hann að
fyrsta flokks frambjóðanda. Kjósum
Jónas Sigurðsson í eitt af efstu sæt-
unum á framboðslista Samfylking-
arinnar.
Kjósum Jónas
í 2.–4. sætið
Hjördís Bjartmars Arnardóttir skrifar:
VALDIMAR Leó Friðriksson
gefur kost á sér í flokksvali Samfylk-
ingarinnar í Suðvesturkjördæmi 9.
nóvember nk.
Valdimar Leó hef-
ur starfað mikið inn-
an íþróttahreyfing-
arinnar og er
formaður UMSK
sem er næststærsta
héraðssambandið
innan ÍSÍ. Hann er
jafnframt framkvæmdastjóri Aftur-
eldingar í Mosfellsbæ. Þar hefur
hann unnið mikið og gott starf. Oft
er vitnað til samnings Aftureldingar
við Mosfellsbæ innan íþróttahreyf-
ingarinnar sem fyrirmyndarsamn-
ings íþróttafélags og bæjarfélags.
Valdimar er talsmaður fé-
lagshyggju og jöfnuðar. Hann hefur
ekki aðeins látið orðin tala heldur
hefur hann starfað í hlutastarfi á
sambýli fyrir fatlaða og látið málefni
bæði vistmanna og starfsmanna til
sín taka með eftirtektarverðum
árangri.
Þátttakendur í flokksvalinu verða
að hafa hugfast að á listann raðist
fólk með fjölbreytta reynslu og úr
öllum bæjarfélögum kjördæmisins.
Því hvet ég samfylkingarfólk til að
kjósa Valdimar í 4. sætið. Hann mun
reynast traustur liðsmaður.
Valdimar í 4. sæti
Pétur Hrafn Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Körfuknattleikssambands Íslands,
skrifar:
ÞAÐ þarf að ráðast í átak í at-
vinnumálum Suðurkjördæmis þar
sem kostir svæðisins eru nýttir til
hins ýtrasta. Fjölda margt má
nefna hvað varðar sérstöðu og
kosti þess til öflugrar atvinnuupp-
byggingar. Það á með kraftmiklum
hætti að standa að uppbyggingu
nýrra atvinnutækifæra, t.d. með
menningartengdri ferðamennsku,
markvissum stuðningi við nýsköp-
un, stofnun svæðisbundinna frum-
kvöðlasmiðja, byggingu fleiri
skóladeilda og uppbyggingu iðn-
aðar.
Samgöngubætur
og ferðamennska
Nálægðin við höfuðborgarsvæð-
ið, fjöldi vinsælla ferðamannastaða
og orkuöflun landsins, sem á sér
að miklu leyti stað í kjördæminu,
gefa færi á umfangsmikilli at-
vinnuuppbyggingu. Sem dæmi má
nefna að u.þ.b. 90% af orkufram-
leiðslu landsins fara fram á Suður-
landi en mjög lítil iðnaðarfram-
leiðsla á sér hinsvegar stað á
Suðursvæðinu. Þessu verður að
breyta. Margir staðir á Suðurnesj-
um og Þorlákshöfn, svo dæmi séu
tekin, eru tilvaldir til uppbygg-
ingar öflugs iðnaðar.
Það er hægt að fullyrða að þau
gullnu tækifæri sem ferðamanna-
straumurinn á svæðið skapar eru
fjarri því að vera að fullu nýtt.
Samgöngubætur á borð við lýsingu
Hellisheiðar, tvöföldun Reykjanes-
brautar og Suðurstrandavegur eru
hins vegar nauðsynlegar til að
hægt sé að byggja upp heilsárs og
menningartengda ferðamennsku.
Hlutur menningar af landsfram-
leiðslu er miklu meiri en flesta
grunar, eins og Ágúst Einarsson
prófessor hefur sýnt fram á í ræðu
og riti. Framlag menningar í verð-
mætasköpuninni er 3,5% á móti
fiskiðnaði sem er með um 5%. Það
gefur augaleið að markviss menn-
ingarnýting getur skapað fjöl-
breytt og verðmæt störf sé ráðist í
það með þróttmiklum hætti að
byggja. Menningartengd ferða-
mennska er auðlind sem Suður-
svæðið getur nýtt með margvísleg-
um hætti og orðið grunnur að
mikilli auðlind til framtíðar. Þá
myndi stofnun Vatnajökulsþjóð-
garðs skapa mikil sóknarfæri fyrir
austasta hluta Suðurkjördæmis.
Samfylkingin hefur kynnt metn-
aðarfulla hugmynd um stofnun
slíks þjóðgarðs. Með tilkomu hans
myndi skapast fjöldi verðmætra
starfa fyrir bæði kynin og fólk á
öllum aldri.
Frumkvöðla-
smiðja, menning
og þjóðgarður
Eftir Björgvin G.
Sigurðsson
Höfundur er þátttakandi í prófkjöri
Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi.
„Stofnun
Vatnajök-
ulsþjóð-
garðs myndi
skapa mikil
sóknarfæri fyrir aust-
asta hluta Suðurkjör-
dæmis.“
TALSVERÐ umræða hefur verið
undanfarið um löggæslumál. Sýnist
sumum sem allt sé
hér í góðum gír og
engin þörf á bótum í
þeim efnum. Ég er
útivarðstjóri í lög-
reglunni í Kópavogi.
Við erum að jafnaði
þrír lögreglumenn-
irnir hér á götunni. Ekki kem ég
auga á tjónið þó að við værum t.d.
fimm, jafnvel þótt við teldum einum
fleiri en á Jótlandi eða í Finnmörku.
Lögreglumaður kostar um kr.
5.000.000 á ársgrundvelli. Það gerir
t.d. árlega eingreiðslu upp á kr. 192
per bæjarbúa í Kópavogi. Það er
ekki verri fjárfestingarkostur en í
DeCode.
Ég vil leyfa mér að vekja athygli
bæjarbúa og annarra á störfum
Rannveigar Guðmundsdóttur al-
þingismanns til að þoka löggæslu-
málum til betri vegar. Þingmaðurinn
hefur undanfarin ár sýnt þessum
málum okkar borgaranna skilning
umfram ýmsa aðra og reynt að vinna
þessum öryggismálum framgang.
Þingmaðurinn hefur margtekið
þessi mál upp á Alþingi þó að ekki
næðist ávallt árangur sem skyldi.
Nú þegar líður að kosningamálum
tel ég rétt að menn gefi þessu gætur.
Ég vil hvetja Samfylkingarfólk til að
setja Rannveigu í 1. sæti í komandi
prófkjöri og veita henni þannig
brautargengi til að vinna áfram sitt
ágæta starf.
Löggæslumál –
Rannveigu
í 1. sæti
Páll Ástþór Jónsson, lögreglumaður í
Kópavogi, skrifar:
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson
er einn öflugasti forystumaður
jafnaðarmanna á Íslandi. Hann er
jafnaðarmaður af
lífi og sál og hefur
unnið að mark-
miðum jafn-
aðarstefnunnar frá
unga aldri. Störf
hans hafa ávallt ein-
kennst af baráttu
fyrir aukinni velferð í samfélagi
okkar og hann hefur ævinlega beitt
sér fyrir málstað þeirra sem minna
mega sín.
Ég kynntist Guðmundi fyrst á
vettvangi fjölmiðlanna þar sem
skörp samfélagssýn og djúp rétt-
lætiskennd einkenndu störf hans.
Sem bæjarstjóri í Hafnarfirði reif
hann upp atvinnu- og menningar-
lífið í bænum og færði hann inn í
nútímann.
Guðmundur Árni er hug-
sjónamaður með bæði mikla
reynslu af stjórnmálum og kröftuga
framtíðarsýn. Hann berst fyrir
jöfnun lífskjara í landinu og bætt-
um hag láglaunafólks, barnafjöl-
skyldna, aldraðra og öryrkja. Ég
hvet samfylkingarfólk til að velja
Guðmund Árna í 1. sætið og sam-
einast um að byggja hér réttlátt
þjóðfélag. Oft var þörf en nú er
nauðsyn.
Guðmund Árna
í 1. sætið
Sonja B. Jónsdóttir
kvikmyndagerðarmaður skrifar:
ÞAÐ er skortur á ungu fólki á
Alþingi um þessar mundir. Einn
efnilegasti fram-
bjóðandi ungliða-
hreyfinga
stjórnmála-
flokkanna er tví-
mælalaust Ágúst
Ólafur Ágústsson,
formaður ungra
jafnaðarmanna, sem gefur kost á
sér nú í prófkjöri Samfylking-
arinnar. Ágúst er að ljúka há-
skólagráðum í lögfræði og hag-
fræði. Málflutningur hans um
kosti aðildar að Evrópusamband-
inu hefur vakið mikla athygli,
greinilegt er að þar er ekki byggt
á slagorðum heldur traustri þekk-
ingu á málefninu enda hefur
Ágúst þegar skrifað vandað rit um
sjávarútvegsstefnu ESB. Sem
ungur menntamaður hefur Ágúst
orðið þess áskynja að mikið vantar
upp á að menntamálin séu sett
nógu ofarlega á forgangslista nú-
verandi stjórnvalda og vill bæta úr
því. Þar hefur hann á réttu að
standa. Ágúst Ólafur er í senn
hógvær maður, greindur og skel-
eggur. Hann yrði örugglega öfl-
ugur málsvari ungu kynslóð-
arinnar á Alþingi. Tryggjum
honum öruggt þingsæti.
Ágúst Ólafur –
ábyrgur
málflutningur
Pétur Jónsson, formaður Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur, skrifar:
ÉG hef fylgst með Rannveigu
Guðmundsdóttur frá því hún hasl-
aði sér völl í sveitarstjórn-
armálum, varð síðan þingmaður
fyrir Reykjanes og
loks félagsmálaráð-
herra. Hún hefur
brennandi áhuga á
málum launafólks
og fjölskyldna, mál-
efnum barna og
þeirra sem standa
höllum fæti í þjóðfélaginu. En hún
hefur tekist á við önnur verkefni á
Alþingi eins og efnahags- og utan-
ríkismál.
Ég hef átt þess kost að starfa
með Rannveigu í stjórnmálum um
margra ára skeið. Rannveig stend-
ur alltaf fyrir sínu.
Nú hefur hún sagt háu mat-
arverði stríð á hendur með til-
löguflutningi á Alþingi. Það sem
Rannveig setur frá sér er vel unn-
ið og þannig var það með tillöguna
um að leita orsaka matarverðsins
með samanburði við hin Norð-
urlöndin. Með sannfærandi og
ábyggilegum upplýsingum stað-
festi hún það sem allir þóttust vita
en héldu að þýddi ekkert að
kvarta undan, að verð á mat hér á
landi er óviðunandi. Þannig hefur
hún vakið flóðbylgju umræðu sem
hægt er að binda vonir við og trú
á að Alþingi taki mark á. Það eru
þessi mál sem skipta gríðarlega
miklu máli fyrir launafólk á Ís-
landi.
Veljum Rannveigu áfram í for-
ystu.
Gott hjá
Rannveigu
Helga E. Jónsdóttir, Kópavogi, skrifar: