Morgunblaðið - 08.11.2002, Page 45

Morgunblaðið - 08.11.2002, Page 45
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 45 ÁSTA Ragnheið- ur Jóhannesdóttir er, að mínu mati, ein af fáum hug- sjónamanneskjum á þingi. Hún hefur barist fyrir réttlátu samfélagi og verið ötull talsmaður þeirra sem oft eiga undir högg að sækja. Þann tíma sem Ásta Ragnheiður hefur verið á þingi hefur hún staðið vörð um velferðarkerfið og lagt áherslu á fjölskyldu-, heilbrigðis- og tryggingamál. Hún hefur lagt áherslu á þau mál sem allir jafn- aðarmenn geta verið sammála um að skapi grundvöll að réttlátu samfélagi. Ásta Ragnheiður hefur einnig lagt sitt af mörkunum til að vekja athygli á mismunandi aðstöðu ólíkra lífsskoðanahópa hér á landi. Hún hefur lýst því yfir að hún vilji bæta lagalega og félagslega stöðu þeirra sem standa utan Þjóðkirkj- unnar og þeirra sem standa utan trúsafnaða. En þessum hópum er mismunað í dag. Ég hvet því alla þá sem vilja að rödd réttlætis heyrist á þingi til að kjósa Ástu Ragnheiði Jóhann- esdóttur í þriðja sætið í prófkjöri Samfylkingar í Reykjavík þann 9. nóvember næstkomandi. Kjósum Ástu Ragnheiði í 3. sætið Sigurður Hólm Gunnarsson, varaformaður Siðmenntar, skrifar: HINAR dreifðu byggðir landsins þurfa á öflugum forustumönnum að halda. Atvinnulífið þar verður að eiga í þeim trausta og víðsýna bak- hjarla. Baráttan fyrir jöfnun búsetu- skilyrða er verkefni sem ekki tekur enda og krefst ein- urðar og festu. Þekking, reynsla og áhugi forustu- manna á skóla-og heilbrigðismálum verður að vera til staðar. Áhersla á bættar samgöngur og fjarskipti verður að vera markviss og stöðug og athafnir látnar fylgja orðum. Vaxtarsproti landsbyggðarinnar, ferðaþjónustan, þarf á dugmiklum talsmönnum að halda. Kröfurnar um sanngjarna og eðlilega hlutdeild landsbyggðar í opinberum störfum og stofnunum á að bera fram með rökum kinnroðalaust og nýta hvert tækifæri í þeim efnum. Forystumað- urinn verður að hafa trú á verk- efnum sínum og kjark til að fram- kvæma þau. Laugardaginn 9. nóvember nk. velja sjálfstæðismenn í hinu nýja Norðvesturkjördæmi forustusveit sína. Með áðurgefnar forsendur að leiðarljósi ætla ég að velja Sturlu Böðvarsson í 1. sætið. Sturlu til forystu Ellert Kristinsson, Stykkishólmi, skrifar: Hverfisgötu 18, s. 530 9314 Pólskir dagar 8.-10.nóvember Á laugardag kl. 19 verður opnuð samsýning fjögurra pólskra listamanna. Laugardag kl. 20 er upplestur. Á sunnudag kl. 16 saga Póllands o.fl. Sérstakur pólskur matseðill alla helgina. í desember Pantið tímanlega! Sími: 569 1111. Netfang: augl@mbl.is Fjölgun útgáfudaga Útgáfudögum fjölgar enn. Í desember gefast auglýsendum aukin tækifæri til að koma skilaboðum til lesenda Morgunblaðsins. Dagurinn sem bætist við nú er föstudagurinn 27. desember. Desember 1 2 4 5 6 7 8 9 10 3 11 12 13 20 28 29 14 15 16 1817 25 19 26 21 22 23 24 30 31 M Þ M F F L S ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M O R 19 21 5 1 1/ 20 02 27 v/Laugalæk, sími 553 3755. Samkvæmis fatnaður ÉG er að stíga mín fyrstu skref í stjórnmálum sem varamaður í sveit- arstjórn Sandgerðis. Í sveit- arstjórnum er feng- ist við ýmis málefni sem m.a. snerta ungt fólk. Skólamál, æskulýðs- og íþróttamál og at- vinnumál. Ungt fólk með börn á líka mik- ið undir sveitarstjórnum m.a. vegna leikskóla. Önnur mál sem snerta ungt fólk, aðstaða til náms, skattar m.a. á barnavörur, húsnæðismál og fleiri er fjallað um á Alþingi. Jóhann er reyndur sveitarstjórn- armaður og kennari. Hann þekkir vel þarfir ungs fólks og er í góðu sambandi við ungt fólk. Hann mun því nýtast okkur vel á þingi. Hann hefur verið í forystu sveit- arstjórnarmanna flokksins og hefur því góða yfirsýn yfir verkefni og þarfir sveitarfélaga almennt. Það er þannig maður sem við þurfum að fá á þing. Ég tel mikilvægt að maður með hans reynslu nái kjöri á Alþingi. Ég skora því á Samfylkingarfólk í Suðurkjördæmi að setja Jóhann Geirdal í 2. sæti listans. Það er gott fyrir sveitarstjórnarstigið, það er gott fyrir ungt fólk! Jóhann Geirdal í 2. sæti Hallbjörn V. Rúnarsson, varamaður Þ-lista í bæjarstjórn Sandgerðis, skrifar: JAKOB Frímann Magnússon gef- ur kost á sér til forystu fyrir Reyk- víkinga í prófkjöri Samfylking- arinnar á laugardag. Þennan landsþekkta tónlist- ar- og athafnamann þarf vart að kynna. Hann hefur getið sér gott orð hvar sem hann hefur komið og sýnt metnað í starfi. Hann er framsýnn heimsborgari og tekur ákvarðanir skv. sinni eigin sannfæringu. Alþingi þarfnast nýrra krafta. Krafta þeirra sem hafa sýnt og sannað sig í hinu almenna athafnalífi. Jakob Frímann myndi hleypa nýju lífi í Alþingi Ís- lendinga. Ég skora á Reykvíkinga alla að leggja leið sína á kjörstað og veita honum brautargengi. Jakob Frímann á Alþingi Hjálmar Blöndal, blaðamaður, skrifar: SAMFYLKINGARFÓLK, tryggjum áframhaldandi setu Guð- rúnar Ögmunds- dóttur á Alþingi í komandi flokksvali. Guðrún, sem hefur mikla þekkingu og reynslu á sviði fé- lagsþjónustu, hefur nýtt hana vel í bland við viðhorf frjálslyndis og kven- frelsis í þingstörfum sínum. Það hef- ur ekki síst komið fram í umfjöllun um málefni innflytjenda. En ým- islegt í löggjöf okkar á því sviði þarf lagfæringar við. Auk þess hefur Guðrún beitt sér af skynsemi í þeim dapurlegu málum sem varða al- þjóðlegt mannsal og okkur hefur illu heilli birst undanfarið. Málefni innflytjenda verða áfram á dagskrá næstu misserin. Und- anfarið hafa öfgaöfl komist til áhrifa í sumum grannlanda okkar í skjóli borgaraflokka. Við þurfum ekki að láta okkur koma á óvart þótt að lýð- skrumarar hér á landi tækju upp öfgastefnu gegn innflytjanda ef þeir telja sér henta. Tryggjum að yf- irgripsmikil þekking Guðrúnar verði til staðar á Alþingi. Tryggjum Guðrúnu Ögmundsdóttur öruggt sæti Kristinn Karlsson, form. Samfylking- arfélagsins ABR, skrifar: MÖRÐUR Árnason er lands- þekktur fyrir málsnilld sína og rök- festu í kappræðum. Hitt vita kannski fyrst og fremst vinnufélagar hans að hann er vinnusamur með af- brigðum, vandvirkur og fundvís á lausnir. Allt eru þetta eig- inleikar sem prýða mega einn þingmann. Á nýrri öld er ekki síður mikilsvert að til löggjaf- arstarfa veljist fólk sem kann skil á íslenskri menningu að fornu og nýju og er hvorki haldið vanmetakennd gagnvart innlendum þjóðararfi né erlendum menningaráhrifum. Mörð- ur er í senn iðkandi og unnandi ís- lenskra fræða og varfærinn evr- ópusinni. Loks er þess að geta sem ekki er síst um vert. Mörður er nátt- úruverndarsinni og hefur skrifað málefnalegar greinar um fyrirhug- aðar virkjanaframkvæmdir. Manni sýnist að Samfylkingunni – og Al- þingi – veiti ekkert af slíkum manni. Mörð Árnason í 3. sæti Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur skrifar: ÁSTA Ragnheiður er verðugur fulltrúi okkar á þingi. Hún hefur haldið á lofti málefnum jaðarhópa í þjóðfélaginu, fólks sem hefur vegna veikinda eða slysa orðið óvinnufært og í kjölfarið misst allt sitt. Þessu fólki hef- ur fjölgað mikið upp á síðkastið og er nú svo komið að varla er hægt að tala um það sem jaðarhóp. Ef við viljum ein- hverntíma koma til móts við þetta fólk og sýna því réttlæti þá verðum við að tryggja að þingmenn eins og Ásta Ragnheiður geti haldið áfram á sinni braut. Það er kominn tími til að forgangsraða málunum upp á nýtt, koma velferðarmálunum í fyrsta sæti, bola gamaldags og úreltum hugsunarhætti út og innleiða alvöru lýðræði. Ásta Ragnheiður – áfram veginn! Kristinn Jóhannesson rafvirki skrifar:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.