Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 46
UMRÆÐAN 46 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ EKKI er vanþörf á að standa vörð um félagslegt réttlæti í íslenskum stjórnmálum. Ég treysti engum betur til varnar og sóknar fyrir íslenskt lág- launafólk og aðra þá sem höllum fæti standa en Jóhönnu Sigurðardóttur. Dugnaður og áræði einkenna Jó- hönnu sem þingmann. Hún veigrar sér ekki við að taka á erfiðum málum og kljást við öfluga hagsmunahópa krefjist almannahagur þess. Hvort sem fólk er alltaf sammála áherslum hennar eða ekki dylst varla að drif- kraftur Jóhönnu í stjórnmálum er þrá eftir réttlæti og þjóðfélagi sem veitir þegnunum jöfn tækifæri. Þannig baráttufólk er dýrmætt. Það er brýnt að þau lífsviðhorf sem Jóhanna Sigurðardóttir hefur barist fyrir hafi sterkan byr innan Samfylkingarinnar. Rætur jafn- aðarmannahreyfinga liggja þann veg. Því er mikilvægt að Jóhanna fái góða kosningu, þannig að hún verði í forystu fyrir annað Reykjavík- urkjördæmið og verði ráðherra í næstu ríkisstjórn. Reynsla hennar er sérstök meðmæli í því efni og við vitum fyrir hvað Jóhanna Sigurð- ardóttir stendur. Jóhönnu sem ráðherra Kristín Á. Ólafsdóttir, fyrrverandi borg- arfulltrúi, skrifar: Í SAMSTARFI við stjórn Héraðs- bókasafns Dalasýslu, sem geymt er og starfrækt í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal er nú unnið að því að hrinda í framkvæmd hugmynd sem nokkr- um sinnum hefur borið á góma á und- anförnum árum. Hún felst í því að í húsakynnum bókasafnsins verði komið á fót sérstakri Sturlustofu. Þar er ætlunin að draga saman á einn stað öll rit eftir Sturlu Þórðarson sagna- ritara og allt það sem skrifað hefur verið um hann og verk hans. Þessi hugmynd er ekki sett fram til höfuðs einum eða neinum. Hún er ekki ætluð til þess að etja kappi við mæta vini og nágranna sem vel og lengi hafa unnið að slíkum málum í heimahögum og víðar. Miklu fremur er vænst góðrar samvinnu þó að hvert hérað reyni að sjálfsögðu að draga fram og hlúa að sönnum og sí- gildum menningarverðmætum innan sinna vébanda. Tilgangurinn er margþættur og augljós. Forn rit telja að ritverk hafi þrenns konar tilgang: Fróðleik, skemmtan og nytsemd. Sturlustofu er ætlað að fræða og gleðja þá sem unna sögu þjóðarinnar og bókmenntum og efla menningar- tengda ferðaþjónustu, sem svo er nefnd nú á dögum. Síðast en ekki síst er gert ráð fyrir að Sturlustofa verði með tímanum allt í senn varðveislu-, fræða- og rannsóknasetur, þar sem iðka má fræði forn og ný, halda fyr- irlestra, sýna fræðslumyndir og veita fróðleiksfúsum lærdómsmönnum að- stöðu til rannsókna. Ekki aðeins þeim sem sinna Sturlu Þórðarsyni og verk- um hans, heldur einnig þeim sem vilja huga að sögu og menningu Breiða- fjarðarbyggða. Til stuðnings þessari fyrirætlun er vert að benda á nokkur söguleg atriði. Árbók Ferðafélags Íslands 1947 fjallar um Dalasýslu. Hún er skráð af Þorsteini Þorsteinssyni, sem þar var sýslumaður í 35 ár, frá 1920–1955. Hann var landskunnur bókasafnari og oft nefndur hinn sögufróði sýslu- maður Dalamanna. Í árbókinni kemst Þorsteinn svo að orði: „Það sem eink- um ber af um Dalasýslu, er það, hversu sögufræg hún er. Dalasýsla á ein allra héraða nær óslitna skráða sögu frá landnámstíð. Landnáma, Laxdæla og að nokkru Eyrbyggja og Borgfirðingasögur segja frá land- náms- og söguöldinni. Þá tekur Sturl- unga við í lok 11. aldar og segir mest sögu Dalasýslu allra héraða um nær tvær aldir. Frásagnir viðburða í hér- aðinu á 14. öld eru að sönnu slitróttar, en svo er um önnur héruð og saga þeirra minna kunn á því tímabili. Frá því fyrir miðja 15. öld má segja að gögn liggi fyrir óslitinni héraðssögu. Einkum hafa gögn þessi geymst á höfuðbólum eins og Skarði og Stað- arfelli. Hafa Dalamenn verið hneigðir til bóka og bréfagerðar og söfnunar. Mörg merkustu handrit vor eru kennd við bæi þar í héraðinu eða ná- grenninu.“ Auður hin djúpúðga „er tignust var allra landnámskvenna“ nam land og reisti bústað í Hvammi laust eftir 890. Um hana skrifar Magnús Magnússon ritstjóri: „Reisn, göfgi og mildi yljar minningu Auðar djúpúðgu. Hún er tignasta konan – eina drottningin, sem hvílir í íslenskri mold.“ Margt mikilhæft fólk hefur lifað og starfað í Breiðafjarðardölum í aldanna rás. Þar er vagga Sturlunganna, Staðar- fell (Þórður Gilsson), Hvammur (Sturla Þórðarson), segir Kålund/ Haraldur Matthíasson. Í Hvammi eignuðust hjónin Sturla Þórðarson og Guðný Böðvarsdóttir þrjá sonu, Þórð, Sighvat og Snorra, sem allir urðu miklir höfðingjar. Sig- urður Nordal kemst svo að orði í riti sínu Íslensk menning: „Þeir bræður, synir þeirra og sonasynir eru nefndir Sturlungar og er venjulegt að kenna síðustu áratugi þjóðveldisins við þá og nefna Sturlungaöld. Þó að það kyn væri mjög kvistað í vígaferlum, má fullyrða, að engin ætt á Íslandi hafi fyrr né síðar í þremur liðum alið svo marga mikilhæfa menn, bæði til ver- aldlegra framkvæmda og andlegra afreka.“ Þess má geta að Árni Magnússon handritasafnari fæddist á Kvenna- brekku árið 1663. Faðir hans, séra Magnús Jónsson, var prestur þar. En Árni fór kornungur að Hvammi og ólst þar upp hjá séra Karli Jörunds- syni móðurföður sínum, gáfu- og fræðimanni og séra Páli syni hans. „Hjá þeim las hann skólalærdóm til 17 ára aldurs og heimili átti hann í Hvammi Skálholtsskólaár sín þrjú, eða þangað til hann sigldi til háskól- ans í Kaupmannahöfn.“ (Þorsteinn Þorsteinsson). Þannig mætti lengi telja. Sturla Þórðarson, lögmaður og sagnaritari, f. 1214, d. 1284, var sonur Þórðar Sturlusonar. Á engan er hall- að, þó að sagt sé, að Sturla og hans nánustu ættmenn, Sturlungar, eigi drýgstan þátt í því, að Dalasýsla á svo langa og merka skráða sögu frá fyrri öldum Íslandsbyggðar. Rit Sturlu eru mörg og margvísleg: Landnáma- bók Sturlu, Íslendinga saga í Sturl- ungu, Hákonar saga gamla og saga Magnúsar konungs Hákonarsonar. Enn má nefna Kristnisögu, Þorgils sögu og Hafliða, Sturlusögu, Eyr- byggju, Grettis sögu o.fl., sem ýmsir fræðimenn eigna honum að miklu eða mestu leyti. Lengi hefur verið leitað að höfundi Njálu og hafa a.m.k. sex menn verið nefndir sem hugsanlegir höfundar að þeirri frægu bók. Í þeim hópi eru frændurnir Snorri Sturluson og Sturla Þórðarson. Egils saga er skráð af Snorra og enginn er líklegri Laxdæluhöfundur en Ólafur hvíta- skáld, albróðir Sturlu Þórðarsonar. Þeir bræður eru og taldir bestu ljóð- skáld sinnar samtíðar hér á landi. Enn má nefna, að ýmsir fræðimenn sjá mikinn skyldleika með Víga- Glúmi og Sighvati Sturlusyni og telja þá einna skemmtilegasta og litríkasta allra höfðingja fyrri alda hér á landi. Þegar Magnús ritstjóri fjallar um Glúmu og höfund hennar, spyr hann að lokum: „En hvað er því til fyrir- stöðu, að Sighvatur hafi ritað hana?“ Sturla Þórðarson lifði mjög við- burðaríka og stormasama ævi. Hann var friðsamur að eðlisfari, en hlaut þó að taka þátt í flestum stórátökum ald- arinnar. Gegnum brim og boða slapp hann jafnan lifandi. Þegar óvinir hans flæmdu hann félausan utan árið 1263 á vald Noregskonungs, leið aðeins skammur tími þar til konungur sætt- ist við hann fullum sáttum og gerði hann að trúnaðarmanni sínum og ráð- gjafa. Síðan skipaði Magnús konung- ur Sturlu lögmann yfir allt Ísland og sendi hann út með lögbók þá er hann hafði látið setja saman (Járnsíðu). Sturla bjó á Staðarhóli í Dalasýslu hátt á fjórða tug ára. Síðustu æviárin gerði hann bú í Fagurey á Breiða- firði. Þar andaðist hann sjötugur að aldri. „Var líkami hans færður á Stað- arhól og jarðaður þar að kirkju Pét- urs postula, er hann hafði mesta elsku á haft af öllum helgum mönn- um.“ Í formála Sturlunga sögu kemst höfundur (safnandi) svo að orði: „Ok treystum vér honum (þ.e. Sturlu Þórðarsyni) bæði vel til vits og ein- urðar að segja frá, því at hann vissa ek alvitrastan ok hófsamastan. Láti guð honum nú raun lofi betri.“ Að lokum skal þess getið, að fyrir framan stjórnsýsluhúsið í Búðardal lét Dalabyggð reisa myndverk árið 1992 í minningu Sturlu Þórðarsonar. Sú mynd er gerð af Hallsteini Sig- urðssyni, bróðursyni Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara, en Ás- mundur var fæddur á Kolsstöðum í Miðdölum, Dalasýslu. Við sem að þessu stöndum væntum þess að þeir, sem vilja sjá veg sögu og menningar Breiðafjarðardala sem mestan, ljái þessu góða málefni lið. Allur beinn stuðningur eða nýtileg ráð eru þakksamlega þegin. STURLUSTOFA Í DÖLUM Eftir Friðjón Þórðarson „Sturlustofu er ætlað að fræða og gleðja þá sem unna sögu þjóðarinnar og bókmenntum og efla menningartengda ferðaþjónustu … “ Höfundur er fv. ráðherra. HAFNFIRÐINGAR tóku af skarið sl. vor og höfnuðu einka- hyggju og forystu Sjálfstæðisflokks- ins í bæjarmálum. Nú fá landsmenn samskonar tækifæri á komandi vori. Það skiptir máli og ekki síður að í forystu Samfylkingar á þingi sé vösk sveit dug- og reynslumikilla ein- staklinga. Allt Samfylkingarfólk verður að taka virkan þátt í undirbúningi fyrir komandi kosningar og sýna þannig styrk okkar. Fyrsta verkefni okkar er að velja þá sem munu skipa efstu sæti á framboðslistum flokksins. Í Hafnarfirði hefur Samfylkingin góðan stuðning og það er mikilvægt að sá stuðningur skili sér. Nú er sóknarfæri fyrir Samfylkinguna og það verður að nýta. Ég legg því áherslu á að þingmaður okkar Guð- mundur Árni Stefánsson fái trausta kosningu til forystu. Í öflugri sveit með öðrum þing- mönnum okkar í kjördæminu og nýj- um öflugum frambjóðendum á Sam- fylkingin góða möguleika á að tryggja sér minnst fjögur þingsæti í kjördæminu. Öfluga sveit til forystu Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, skrifar: FIMM þingmenn Sjálfstæð- isflokksins gefa kost á sér til þing- setu í Norðvesturkjördæmi. Raun- hæft er að ætla að við kjördæmabreyt- inguna fái flokk- urinn þrjá þingmenn kjörna. Einar Kr. Guðfinnsson, fyrsti þingmaður Vestfirð- inga, stefnir á öruggt sæti og er mér ljúft að veita honum stuðning. Mannkostir Einars eru miklir og þekking hans og reynsla til margra ára okkur dýrmæt. Ég efa ekki að hann mun reynast íbúum hins nýja kördæmis vel og verja hagsmuni okkar sem best. Í starfi mínu hef ég oft þurft að leita liðsinnis hans og aldrei brugðist að málum hefur verið vel fylgt eftir af hans hálfu. Einar Kristinn hefur notið virðingar fyrir vönduð vinnubrögð og heiðarleika í málflutningi. Hann hlustar jafnt á andstæðinga sína sem samherja, virðir skoðanir annarra og leitast ávallt við að finna lausnir kjördæmi sínu og þjóð til farsældar. Það er ánægjulegt að þessi vinnu- brögð hafa skilað árangri og eru öðr- um til eftirbreytni. Ég skora á kjós- endur að veita Einari brautargengi til áframhaldandi þingsetu og setja hann í öruggt sæti. Með Einar Krist- in í forustusveit hins nýja kördæmis er víst að eigum traustan, ötulan og heiðarlegan málsvara. Einar Kristinn í forystusveit Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík, skrifar: Í PRÓFKJÖRI Samfylking- arinnar er vænlegt að setja saman lista sem spannar nægilega pólitíska breidd. Við kjósendur getum valið margt gott fólk til þingsetu, reynt fólk úr stjórnmálum og fólk með öðruvísi reynslu í farteskinu. Okkur er boðið uppá þrautreynda hug- myndasmiði og menningarjaxla einsog Mörð og Ein- ar Karl, ungt fólk einsog Helga Hjörvar og Ágúst Ágústsson, traust- ar framboðskonur einsog Guðrúnu Ö., Hólmfríði G., Ástu R., Bryndísi og Sigrúnu Grendal, klókan ref eins- og Birgi Dýrfjörð og markaðs- snilling einsog Jakob Frímann. Öll eru þau góðs makleg. En mestu skiptir að forystan fái góðan byr svo Samfylkingunni vegni vel í næstu kosningum. Þess vegna þurfa þau sem þjónað hafa lengst og best almenningi og jafnaðarhreyfingunni að fá vænt kjör. Því skora ég á kjós- endur að veita þeim gott braut- argengi, Össuri Skarphéðinssyni í fyrsta sæti og Jóhönnu Sigurð- ardóttur í annað sæti, svo að þau geti leitt Reykjavíkurkjördæmin í vor. Össur og Jóhanna leiði í Reykjavík Óskar Guðmundsson rithöfundur skrifar: SKOÐUN ÞEGAR jafnaðarmenn skipa nú í fylkingar sínar fyrir komandi kosn- ingar skiptir miklu að í baráttusæti veljist fólk sem í senn hefur til að bera reynslu, en getur líka talist merkisberi nýrra tíma í stjórnmálum. Í okkar sér- kennilega Suðvest- urkjördæmi býður sig fram ágætur hópur manna sem hefur alla burði til þess að halda uppi merki jafn- aðarstefnunnar af krafti á næsta kjörtímabili. Þar langar mig til þess að minna fólk sérstaklega á einn yngsta þingmanninn, Þórunni Svein- bjarnardóttur. Hún hefur vaxið af störfum sínum, og einkum vakið at- hygli fyrir ábyrgan en skeleggan málflutning í utanríkis- og umhverf- ismálum, hvort tveggja mál sem einna brýnast er að menn ræði af al- vöru og framsýni á komandi árum. Það er því mikilvægt að Þórunn fái góðan stuðning til áframhaldandi þingsetu í prófkjörinu hinn 9. nóv- ember. Styðjum Þórunni Páll Valsson, bókmenntafræðingur og rit- höfundur, skrifar: ÞAÐ er af margvíslegum orsökum sem menn ákveða að taka þátt í póli- tísku starfi, að ég nú ekki tali um að ganga fram fyrir skjöldu og reyna að hafa þar áhrif og fyr- ir kemur að í þeim hópi leynast hug- sjónamenn sem eiga málstað að verja. Slíkur er Stefán Bergmann líffræðingur sem býður sig fram í 3.-4. sæti á lista Samfylk- ingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Núna þegar fiskveiðikerfið er að ganga frá fiskimiðunum mun að þeirri auðlind horfinni aukast þrýst- ingur á að sökkva náttúruperlum landsins til að framleiða rafmagn svo neyslustigið ekki hrapi. Í baráttu gegn þvílíkum áformum verður gott að hafa við hlið sér ekki aðeins nátt- úrufræðing heldur einlægan nátt- úruunnanda sem auk þess hefur mikla reynslu af pólitísku starfi. Stefán er í senn vandaður vís- indamaður, traustur félagi og ötull baráttumaður fyrir betra mannlífi í bættri sambúð við náttúru landsins. Slíkum manni þurfum við á að halda. Styðjið Stefán Bergmann Sigríður Jóhannesdóttir, alþingismaður, skrifar: FERSKASTI tónninn sem ég hef komið auga á í stjórnmálaumræð- unni lengi eru sjón- armið Jakobs Frí- manns Magnússonar. Þar gefur að heyra ný og spennandi viðhorf og nýjar áherslur sem ég veit ekki til að nokkur annar stjórnmálamaður hér á landi hafi áður gert að sínum. Jak- ob Frímann vill styðja markvisst við bakið á öllu skapandi starfi í landinu eins og í listsköpun, afþreyingar- og vitundariðnaði. Þannig stóriðja, sem byggist á einstaklingunum sjálfum og skapandi hæfileikum þeirra, er stunduð víða erlendis með gríð- arlega ábótasömum árangri. Það nægir að líta á frændur okkar Íra í því samhengi. Jakob Frímann hefur starfað við það að koma skapandi hugsun í arð í tugi ára með einni vinsælustu hljóm- sveit á Íslandi. Hann gjörþekkir þennan heim og hann veit hvað þarf að gera til að styðja við ungt og skapandi athafnafólk svo að það geti komið hugmyndum sínum og verk- um á framfæri úti í hinum stóra heimi og í leiðinni skapað verðmæti fyrir þjóðarbúið. Með því að kjósa Jakob Frímann í prófkjörinu á laugardaginn stuðlum við að breyttu hugarfari og víðari sjóndeildarhring á Alþingi. Hér hef- ur skapast einstakt tækifæri til þess að opna gáttina fyrir ferskum vind- um og nýjum möguleikum. Breytum hugarfarinu – kjósum Jakob Frímann Guðmundur Jónas Haraldsson leikari og leikstjóri skrifar:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.