Morgunblaðið - 08.11.2002, Qupperneq 55
DAGBLÖÐ í skól-
um er samstarfs-
verkefni Fræðslu-
miðstöðvar Reykjavíkur
og dagblaðaútgefenda.
Nemendur vinna með dagblöð í
skólatíma og heimsækja dagblað á
Reykjavíkursvæðinu að verk-
efnaviku lokinni. Hinn 16. október
sl. komu hressir 7. bekk-
ingar úr Ártúnsskóla í
heimsókn á Morg-
unblaðið til að
kynna sér starf-
semina og skoða
sig um. Morgunblaðið vonar að
þau hafi orðið einhvers vísari og
þakkar þeim um leið fyrir komuna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
7. bekkur b í Ártúnsskóla í heimsókn hjá Morgunblaðinu.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 55
Auglýsendur!
Pantið fyrir kl. 16
á mánudögum!
Sérrit um bækur fylgir Morgunblaðinu
hvern miðvikudag fram að jólum.
Allir nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
í síma 569 1111 eða augl@mbl.is
Meðal efnis eru viðtöl við
höfunda, fréttir og gagnrýni
um nýjar bækur.
fimmtudag - föstudag - laugardag - sunnudag
vörur + afsláttur
Kringlufjarki er…
www.kringlan.is upplýsingasími 588 7788 skrifstofusími 568 9200
Gerðu frábær kaup fyrir jólin
Opið til kl. 19.00 í dag
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
RI
1
92
59
11
/2
00
2
Þú sparar
kr. 6.590
Kynntu þér tilboðin!
Spennandi
bökunar-
tilboð!
Hólmfríður Garðarsdóttir opnar
heimasíðu
Hólmfríður Garðarsdóttir frambjóð-
andi í flokksvali Samfylkingarinnar
hefur opnað heimasíðuna www.holm-
fridur.rvik.com þar sem hún kynnir
áhuga- og baráttumál sín og feril í
stjórn- og félagsmálum til þessa.
„Hólmfríður gefur kost á sér til
framboðs því hana langar að ráða
ráðum og henni er sérstaklega annt
um menntamál og ekki hvað síst
framtíð framhaldsmenntunar á land-
inu,“ segir í fréttatilkynningu. „Sem
starfandi háskólakennari og fyrrver-
andi framhaldsskólakennari er hún
búin að fá nóg af fögrum orðum fyr-
irmanna um nauðsyn góðrar mennt-
unar til að Ísland megi verða fremst
meðal jafningja sem þekkingarsam-
félag og nútímaleg þjóð meðal þjóða.
Staðreyndin er nefnilega sú að fjár-
magn er sífellt skorið við nögl og úr
því verður að bæta á næsta kjör-
tímabili.
Stefanía Óskarsdóttir hefur opn-
að heimasíðu
Stefanía Óskarsdóttir stjórnmála-
fræðingur og varaþingmaður, sem
sækist eftir 6. sæti í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík, hefur
opnað heimasíðu. Slóðin er
www.stefania.is. Þar er aðfinna upp-
lýsingar um Stefaníu, fréttir og
greinar þar sem fram koma áherslur
Stefaníu og helstu stefnumál. Mið-
stöð prófkjörsbaráttunnar er á kosn-
ingaskrifstofunni Laugarásvegi 1.
Helgi Hjörvar vígir vaxtaklukku
heimilanna
Helgi Hjörvar, frambjóðandi í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í Reykja-
vík, vígir vaxtaklukku heimilanna við
verslun BT í Kringlunni í dag, föstu-
dag. Klukkan mun sýna 750 millj-
arða skuldir heimilanna og með
hvaða hraða þær hækka nú.
Á helgi.is hefur nýverið hafist Vaxta-
leikurinn. Í honum geta menn kynnt
sér hve lengi þeir eru á ári hverju að
vinna sér inn ráðstöfunartekjur er
dugi fyrir vaxtamuninum hér og í ná-
grannalöndunum.
Í DAG STJÓRNMÁL
LANDSRÁÐ Frjálslynda flokksins
hefur verið boðað til samráðsfundar í
Reykjavík á morgun, laugardaginn
9. nóvember nk.
Samráðsfundurinn verður haldinn
að Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerð-
inni), 4. hæð, frá kl. 9-16. Dagskrá
fundarins varðar málefnavinnu og
áherslur í starfi fram á vorið.
Samráðsfundur
Frjálslynda
flokksins
HAGKAUP hafa tekið þá ákvörðun
að lækka verð á barnafatnaði sem
nemur álögðum virðisaukaskatti dag-
ana 8. og 9. nóvember. Er þetta gert í
tilefni af þingsályktunartillögu Páls
Magnússonar þingmanns um afnám
virðisaukaskatts af barnafötum.
Í fréttatilkynningu Hagkaupa seg-
ir að fyrirtækið vilji með þessu sýna
fjölskyldufólki hvað tillaga Páls þýði
fyrir útgjöld íslenskra heimila.
Vilja Hagkaup ennfremur sýna
með verðlækkuninni hve öflug íslensk
verslun er, þegar hún býr við sömu
skilyrði og sú erlenda.
Hagkaup
lækka verð á
barnafatnaði
Storkur sást á Mýrum
Í frétt Morgunblaðsins á þriðju-
daginn var þess ekki getið hvar
fyrsti storkurinn hefði sést vorið
1969. Haft var samband við blaðið og
liggur nú fyrir að fyrsti storkurinn
sást við Nýpugarða á Mýrum í Aust-
ur-Skaftafellssýslu dagana 24.–26.
apríl árið 1969.
Vísindadögum
ekki lokið
Mishermt var í fyrirsögn í blaðinu
í gær að dagskrá Vísindadaga Há-
skóla Íslands væri lokið. Hið rétta er
að Vísindadögum lýkur á sunnudag-
inn kemur. Hins vegar lauk Tækni-
dögum HÍ á miðvikudaginn. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
NORRÆNA upplýsingaskrifstofan
hefur auglýst Nordplus-mini ferða-
styrki fyrir nemendur grunnskóla.
Styrkurinn er veittur af Norrænu
ráðherranefndinni í samstarfi við
Norræna félagið. Markmiðið er að
hvetja til og efla samstarf milli grunn-
skólabekkja á Norðurlöndunum. Um-
sóknarfrestur er til 1. desember 2002.
Umsóknir skal senda til Norrænu
upplýsingaskrifstofunnar, Glerárgötu
26, 600 Akureyri. Hægt er að nálgast
nánari upplýsingar um styrkinn og
umsóknareyðublað á heimasíðu Nor-
rænu upplýsingaskrifstofunnar:
www.akmennt.is/nu undir liðnum
skólamál og á heimasíðu Norræna fé-
lagsins www.norden.is
Úthlutunin í desember gildir fyrir
ferðir sem farnar verða á vorönn
2003.
Umsóknarfrestur um styrki til
lýðháskólanáms á vorönn 2003, á ein-
hverju Norðurlandanna, rennur út
15. nóvember. Nemendur þurfa að
vera orðnir 17½ árs þegar þeir sækja
um. Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu Norrænu upplýsingaskrif-
stofunnar www.akmennt.is/nu.
Ferðastyrkir til
nemendaskipta
JÓLAFRÍMERKIN eru komin út
hjá Íslandspósti. Frímerkin tvö eru
litskrúðug og að þessu sinni eru þau
tileinkuð jólaskreytingum og undir-
búningi jólanna. Annað frímerkjanna
hefur verðgildi burðargjalda innan-
lands, sem er 45 kr., og kemur út í tíu
stykkja heftum. Hitt hefur verðgildi
burðargjalda til Evrópu, sem er 60 kr.
og kemur aðeins út í örkum.
Innblástur við hönnun frímerkj-
anna er sóttur til jólaskreytinga en
Íslendingar hafa löngum verið áhuga-
samir um að lýsa upp skammdegið í
jólamánuðinum með ljósalengjum og
skreytingum í garða, á hús og svalir,
segir í fréttatilkynningu. Á öðru frí-
merkinu er einnig horft til þeirra tíma
þegar tíðkaðist að nota íslenska fán-
ann sem skraut á jólatrjám lands-
manna. Hlynur Ólfsson hannaði frí-
merkin og eru þau prentuð í
Frakklandi.
Íslandspóstur hefur einnig gefið út
nú í nóvember tvö ný frímerki sem
eru prýdd íslenskum fuglum, stelk og
þórshana.
Ársmappa 2002 sem inniheldur öll
frímerki útgefin á árinu er einnig
komin út og fæst allt ofangreint nú á
pósthúsum um land allt og hjá endur-
söluaðilum.
Litskrúðug jólafrí-
merki komin út
alltaf á þriðjudögumÍÞRÓTTIR