Morgunblaðið - 08.11.2002, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 57
„STEMNINGIN er bara góð núna
fyrir síðustu umferðirnar. Við
stelpurnar byrjuðum rosalega vel
en í síðustu tveimur umferðum
höfum við leikið alveg ferlega af
okkur. En við ætlum að gefa í
núna á endasprettinum og sæta-
röðin ræðst einatt í þessum síð-
ustu umferðum. Það er að duga
eða drepast,“ segir Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir. „Við gáfum
norsku stelpunum Ópal eins og
við gerum raunar fyrir hverja
viðureign. Við burstuðum þær síð-
an og það var ákaflega sætur sig-
ur. Við vorum búnar að ákveða að
leikurinn við þær norsku væri
langmikilvægastur.“
Qi-Gong og ljóðalestur
Þröstur Þórhallsson segir
stemninguna í liðinu vera fína og
að allir séu í góðu formi.
„Við mætum kl. níu inn á her-
bergi til Gunnars Eyjólfssonar í
kínverskar Qi-Gong-æfingar í 30
til 40 mínútur.
Þá kemur morgunmatur og síð-
an fer liðið að undirbúa sig.
Klukkan tvö mætum við aftur til
Gunnars og þá les hann stundum
ljóð fyrir okkur, Einar Ben. og
fleiri. Síðan er teflt og þannig
gengur þetta fyrir sig hjá okkur
og það er ekki mikill tími aflögu
fyrir annað en skákina.“
F.v.: Lilja, Harpa og Aldís klárar í slaginn við þær norsku sem voru heldur
svipþyngri að viðureigninni lokinni.
„Nú er að
duga eða
drepast“
ÍSLENSKU liðin á Ólympíuskák-
mótinu í Bled sigruðu bæði andstæð-
inga sína í 11. umferð mótsins. Í opn-
um flokki sigruðu Íslendingar lið
Perú örugglega með þremur vinn-
ingum gegn einum. Þetta var annar
sigur liðsins í röð. Eftir óaðfinnan-
lega taflmennsku í mótinu tapaði
Hannes Hlífar Stefánsson sinni
fyrstu skák:
1. J. Granda Zuniga (2.605) -
Hannes Hlífar 1-0
2. M. Belli (2.401) - Helgi Áss 0-1
3. C. Esplana (2.352) - Þröstur
Þórhallsson 0-1
4. F. Cruz (2.363) - Stefán Krist-
jánsson 0-1
Kvennaliðið vann lið Íraka 2-1:
1. R. Sabah Moslem - Guðfríður
Lilja 1-0
2. W. Mohammed Jannar - Harpa
Ingólfsdóttir 0-1
3. K. Muhamed - Aldís Rún 0-1
Enn er árangur liðanna í samræmi
við styrkleika, en karlaliðið er í 32.-
39. sæti með 24½ vinning og kvenna-
liðið er í 61.-66. sæti með 15 vinninga.
Nú eru aðeins þrjár umferðir eftir
af mótinu. Rússar leiða enn í karla-
flokki. Röð efstu liða:
1. Rússland 32 v.
2. Ungverjaland 30 v.
3. Georgía 28 v.
4.-5. England og Króatía 27½ v.
Í kvennaflokki heldur Georgía for-
ystunni. Röð efstu liða í kvenna-
flokki:
1. Georgía 24½ v
2. Kína 24 v.
3. Rússland 22½ v.
4. Pólland 21½ v.
Noah Siegel sigraði
á atkvöldi Hellis
Noah Siegel sigraði örugglega á
atkvöldi Hellis sl. mánudag. Hann
lagði alla andstæðinga sína, 6 að tölu,
að velli. Noah er Bandaríkjamaður
frá New York sem er hér á stuttu
námsferðalagi. Hann hefur 2.249 al-
þjóðleg skákstig.
Vestfirðingar urðu í 2. og 3. sæti,
en annar varð Sæbjörn Guðfinnsson
og þriðji varð Magnús Sigurjónsson:
1. Noah Siegel 6 v. af 6
2. Sæbjörn Guðfinnsson 5 v.
3. Magnús Sigurjónsson 4 v.
4. Benedikt Egilsson 3½ v.
5.-8. Þórarinn Björnsson, Vigfús
Ó. Vigfússon, Sigurður Freyr Jón-
atansson, Grímur Daníelsson 3 v.
Arnar sigraði á níunda
Halló!-mótinu
Arnar E. Gunnarsson sigraði á ní-
unda og næstsíðasta mótinu í bikar-
syrpu Halló! sem fram fór á ICC. 2.
varð Rúnar Sigurpálsson og 3. varð
Ólafur Kristjánsson sem þarna tefldi
á sínu fyrsta skákmóti í ICC. Mikil
spenna er í sjálfri syrpunni en þar
leiðir Björn Þorfinnsson með 48½
vinning, 2. er Snorri G. Bergsson
með 43½ vinning, 3. er Arnar E.
Gunnarsson með 42½ vinning og 4.
er Rúnar Sigurpálsson með 42 vinn-
inga. Björn hefur hins vegar teflt á 8
mótum einn þessara, en verðlaunin
eru veitt fyrir átta bestu mótin.
Sjálft Íslandsmótið fer fram 24. nóv-
ember. Úrslit:
1. Arnar E. Gunnarsson 8 v. af 9
2. Rúnar Sigurpálsson 7 v.
3. Ólafur Kristjánsson 6½ v.
4.-7. Bragi Halldórsson, Guð-
mundur S. Gíslason, Davíð Kjartans-
son og Sigurður Páll Steindórsson 6
v.
8.-12. Snorri G. Bergsson, Davíð
Ólafsson, Magnús Örn Úlfarsson,
Arnar Þorsteinsson og Pálmi R. Pét-
ursson 5½ v.
13.-15. Gylfi Þórhallsson, Björn
Þorfinnsson og Kristján Halldórsson
5 v.
16.-22. Áskell Örn Kárason,
Hrannar Baldursson, Sigurjón Þor-
kelsson, Þórður Hrafnsson, Tómas
Veigar Sigurðarson, Björn Ívar
Karlsson og Hrannar Björn Arnars-
son 4½ v.
Skákþing Garðabæjar hafið
Skákþing Garðabæjar hófst nú í
vikunni. Alls taka 15 skákmenn þátt í
mótinu, þar á meðal Sigurður Daði
Sigfússon sem er langstigahæstur
keppenda. Flestöll úrslit urðu eftir
bókinni í fyrstu umferð, nema hvað
Sverrir Þorgeirsson sigraði Andrés
Kolbeinsson eftir langt endatafl.
Bæði íslensku liðin
sigruðu í 11. umferð
Ólympíumótsins
Daði Örn Jónsson
SKÁK
Bled, Slóvenía
35. ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ
25. okt.–10. nóv. 2002
www.avon.is
Snyrtivöruverslun
opin allan sólarhringinn
Skólavörðustíg 21, sími 551 4050.
Viskustykki
Til í níu mynstrum
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Dagskrá þingsins verður sem hér segir:
• Kl. 13:30 Þingsetning - Markús Örn Antonsson, stjórnarformaður ÞFÍ.
• Kl. 13:35 Hátíðarávarp
„Framtíðarsýn um samstarf þjóðræknisfélaganna“
- Sigrid Johnson, forseti Icelandic National League
of North America.
• Kl. 14:00 Ingveldur Ýr Jónsdóttir syngur við undirleik
Guðríðar St. Sigurðardóttur, píanóleikara.
Þær munu einnig segja frá tónleikaferð sinni vestur um haf.
• Kl. 14:25 Ávarp - Eiður Guðnason, aðalræðismaður Íslands í Winnipeg.
• Kl. 14:30 Heimildarmynd um líf afkomenda
íslenskra innflytjenda vestra um 1940.
• Kl. 14:50 „Heim í átthagana 2004”
- Davíð Gíslason, Árborg, Manitoba, segir frá
væntanlegri heimsókn Vestur-Íslendinga til Íslands 2004.
• Kl. 15:10 Fyrirlestur Viðars Hreinssonar, bókmenntafræðings,
um Stephan G. Stephansson í tilefni
af útkomu ritverks um skáldið.
• Kl. 15:30 Kynning Vesturfarasetursins á Hofsósi á
margmiðlunarverkefninu „An Interactive Heritage Journey” -
Wincie Jóhannsdóttir, menningar- og fræðslustjóri
Vesturfarasetursins.
• Kl. 16:00 Ferðasaga og myndasýning sr. Björns Jónssonar
frá ferð til Vesturheims sumarið 2002.
• Kl. 16:30 Myndræn kynning á ungmennaskiptum Snorraverkefnisins.
Ásta Sól Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri, og
Tricia Signý McKay. Almar Grímsson,
formaður Snorrasjóðsins, kynnir.
• Kl. 17:00 Þingslit og léttar veitingar.
ÞJÓÐRÆKNISÞING 2002
Stjórnin
Þjóðræknisfélag Íslendinga stendur fyrir þjóðræknisþingi
í Borgartúni 6 laugardaginn 9. nóvember
og hefst þingið kl. 13:30. Þingið er öllum opið.
Handklæði & flíshúfur
Flíspeysur m. Félagsmerkjum,
flísteppi o.fl. Fáið sendan myndalista
Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is
JólatilboðÍ 12 árSérmerkt
12
61
/
T
A
K
TÍ
K
Opið 9-17 virka daga
Laugardaga 13-16
LAGERSALA
Meiriháttar
tölvustýrt fjórhjól
• Ljós að
framan
• Gúmístuðari
Nú kr.
2490,-
áður kr. 5.990,-
Meira en 48 aðgerðir
í stjórnborði
Mikill
kraftur
Mótor
hljóð
Á LEIKFÖNGUM
Einnig
mjög mikið úrval
annara leikfanga.
Gervijólatré
á góðu verði