Morgunblaðið - 08.11.2002, Page 58
DAGBÓK
58 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
20.30 Caprí tríó leikur
fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is. Kaffistofan
er lokuð vegna breyt-
inga í Glæsibæ.
Föstudagur: Félagsvist
kl. 13.30.
Fræðsluferð í Þjóð-
menningarhús 13. nóv-
ember kl. 14 að skoða ís-
lensku handritin,
skráning á skrifstofu
FEB. Árshátíð FEB
verður haldin í Ásgarði,
Glæsibæ, föstudaginn
15. nóvember. Húsið
opnað kl. 18, borðhald
hefst kl. 19. Veislustjóri
sr. Hjálmar Jónsson.
Háttíðarræðu flytur Ell-
ert B. Schram. Þorvald-
ur Halldórsson syngur
og stjórnar fjöldasöng.
Jóhannes Kristjánsson
fer með gamanmál. Kór-
söngur Söngfélags FEB.
Hljómsveitin Upplyfting
leikur fyrir dansi. Fé-
lagar fjölmennið. Miða-
pantanir á skrifstofu
FEB. Silfurlínan er opin
á mánu- og miðviku-
dögum kl. 10–12. Skrif-
stofa félagsins er í Faxa-
feni 12, s. 588 2111.
Félagsstarfið er í Ás-
garði, Glæsibæ.
Gerðuberg, félagsstarf,
myndlistarsýning
Brynju Þórðardóttur
stendur yfir. Miðvikud.
13. nóv. heimsókn til
eldri borgara í Rangár-
þingi, m.a. skemmti-
dagskrá í félagsheim-
ilinu Hvoli, skráning
hafin, mæting í Gerðu-
berg kl. 12.30. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silfur-
smíði, kl. 9.15 ramma-
vefnaður, kl. 13 bók-
band. Nokkur pláss laus
í kínverskri leikfimi,
stólaleikfimi og málm-
og silfursmíði.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlistarhópur,
kl. 14–15 bingó.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla. Kl. 14 verður
Helgi M. Sigurðsson,
starfsmaður sjóminja-
nefndar í Árbæjarsafni,
með erindi um sögur af
draugum, afbrotamönn-
um, álfum og skrímslum
í Elliðaárdalnum. Allir
velkomnir. Kaffihlað-
borð.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, kl. 10 mæðra-
morgunn, kl. 14–16
bingó. Fótaaðgerð, hár-
snyrting. Allir velkomn-
ir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmud.: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17,
hárgreiðsla kl. 10–11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
alm. handavinna, kl. 10–
11 kántrídans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30–14.30
Sungið við flygilinn, kl.
14–15 félagsráðgjafi á
staðnum, kl. 14.30–16
dansað í aðalsal. Þriðjud.
12. nóv. kl.13.30 verður
fræðslufundur. Er sorg-
in ber að dyrum. Ást-
vinamissir, heilsumissir,
hvernig bregst ég við.
Sigrún Ingvarsdóttir fé-
lagsráðgjafi og Kristín
Pálsdóttir prestur. Allir
velkomnir, óháð aldri,
kaffiveitingar á eftir.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað frá
Gjábakka, Fannborg 8,
kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laugardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum með
börnin sín á fimmtud.
kl.13–15 á Loftið í Hinu
húsinu, Pósthússtræti
3–5. Opið hús og kaffi á
könnunni, djús, leikföng
og dýnur fyrir börnin.
Kvenfélag Grensás-
sóknar. Basar í safn-
aðarheimilinu laugard.
9. nóv. kl. 14–17. Tekið
móti munum í dag,
föstudag, kl. 17–19 og
laugardag kl. 10–12.
Félagsfundur verður
mánud. 11. nóv. kl. 20.
Kvenfélag Fríkirkj-
unnar í Reykjavík
heldur basar og hluta-
veltu laugard. 9. nóv. kl.
14 í Safnaðarheimilinu
Laufásvegi 13. Margt
góðra muna, engin núll.
Dagdvöl Sunnuhlíð,
Kópavogsbraut 1, Kópa-
vogi. Haust- og jólabas-
arinn verður laugard. 9.
nóvember kl. 14, kaffi-
sala.
Hana-nú Kópavogi
Leikhúsferð á Sölumað-
ur deyr hjá Leikfélagi
Reykjavíkur í Borg-
arleikhúsinu fimmtu-
daginn 14. nóvember kl.
20. Rúta frá Gullsmára
kl. 19.30 og Gjábakka kl.
19.20. Miðar einungis
seldir þeim sem fara í
rútuferð.
Miðarnir eru til sölu í
Gjábakka og Gullsmára
fram til kl. 13 mánudag-
inn 11. nóvember. Spjall-
kvöldið í Gjábakka 20.
nóvember fellur niður af
óviðráðanlegum
ástæðum.
Borgfirðingafélagið í
Reykjavík verður með
sölukaffi og skyndihapp-
drætti sunnudaginn 10.
nóvember á Suðurlands-
braut 30, húsið opnað kl.
14.30.
Í dag er föstudagur 8. nóvember,
312. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Drottinn er ljós mitt og fulltingi,
hvern ætti ég að óttast? Drottinn
er vígi lífs míns, hvern ætti ég
að hræðast?
(Sálm. 27, 1.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Chok-
yu Maru no. 21 og Ottó
N. Þorláksson koma í
dag.
Ásbjörn og Mánafoss
fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan, kl.
13.30 bingó, kl. 10–16
púttvöllurinn.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
spilað.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kórs
eldri borgara í Damos.
Laugard.: kl. 10–12 bók-
band, línudans kl. 11.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45 op-
in handavinnustofan,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–16.45 alla daga
nema mánudaga.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
applikering, kl. 10–13
opin verslunin.
Félagsstarfið Furugerði
1. Kl. 10, leikfimi og kl.
14 bingó. Allir velkomn-
ir.
Félagsstarfið Hæðar-
garði 31. Kl. 9–12 böðun,
kl. 9–16.30 opin vinnu-
stofa, myndlist, kl. 9.30
gönguhópurinn Gönu-
hlaup leggur af stað,
kaffi á eftir göngunni,
allir velkomnir, kl. 14
brids og spilamennska,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13. „Opið
hús“ spilað á spil. Árlegi
haustbasarinn og kaffi-
salan verður föstud. 8.
og laugard. 9. nóv. frá kl.
13–17.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Bingó verður spilað í
Gullsmára 13 í dag kl.
14. Opið hús sem átti að
vera í Gjábakka 9. nóv.
fellur niður vegna bas-
ars í Sunnuhlíð.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Tréút-
skurður kl. 13 brids kl
13.30. Námskeið í mótun
á leir fyrir byrjendur
hefjast föst. 8 nóv. Uppl.
í Hraunseli s. 555 0142.
Dansleikur í kvöld kl.
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 akkeri, 4 krani, 7 hreyf-
ill, 8 meðulin, 9 kraftur,
11 fífl, 13 heiðurinn, 14
ládeyðu, 15 heilnæm, 17
ójafna, 20 púki, 22 spillt,
23 verðleiki, 24 hinn, 25
ávöxtur.
LÓÐRÉTT:
1 sorti, 2 stríðin, 3 sjá eft-
ir, 4 hæð, 5 spakur, 6 út,
10 pússar, 12 reið, 13
espa, 15 refsa, 16 dáin, 18
kind, 19 fæddur, 20 aular,
21 blóðsuga.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fýsilegur, 8 grund, 9 ilmur, 10 inn, 11 skarð, 13
solls, 15 flagg, 18 smátt, 21 róm, 22 tuggu, 23 áttan, 24
vitgranna.
Lóðrétt: 2 ýsuna, 3 ildið, 4 efins, 5 urmul, 6 uggs, 7 hrós,
12 róg, 14 orm, 15 fáti, 16 angri, 17 grugg, 18 smára, 19
ástin, 20 tonn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI gladdist á dögunumyfir hugmyndaauðgi kaupenda
pjattnúmera á bílum og vildi gjarnan
sjá verð á slíkum hégómaspjöldum
lækkað svo fleiri gætu notið þeirra.
Þessar hugleiðingar kölluðu á bréf-
korn frá lesanda, sem þykir synd að
smám saman sé nú horfið frá upphaf-
legum tilgangi núverandi númera-
kerfis, sem var sá að auðkenna hvern
nýjan bíl með föstu númeri, sem
fylgdi honum frá gámi til grafar, eins
konar kennitölu.
x x x
LESANDINN er búsettur íBandaríkjunum, þar sem fyrst
hófst útgáfa svonefndra „einkanúm-
era“. Hann hefur tillögu um aðra
lausn, sem gagnast mætti bæði hé-
gómagirnd eða hugmyndaauðgi bíl-
eigenda og rökstuðningnum fyrir
fastri kennitölu bílsins: „Í Bandaríkj-
unum er nefnilega aðeins skylda að
hafa númeraplötu aftan á bílnum.
Eigandi ræður því hvað hann hefur á
framhliðinni. Hugmyndin er sem
sagt sú að dómsmálaráðuneytið gefi
út reglugerð sem skyldi menn til að
bera fastanúmer bílsins aftanvert á
bílnum en leyfi „einkanúmer“ að
framanverðu, gegn hóflegu gjaldi,
sem renni til slysavarna í umferð-
inni,“ segir í bréfi lesandans.
x x x
HIN nýja Íslenzka orðabók hefurkomið af stað miklum um-
ræðum, ekki sízt um það hvort ýmis
orð (t.d. sjitt eins og frægt er orðið)
megi vera í bókinni eða hvort úthýsa
beri „röngu“ máli úr jafnvirðulegri
heimild um íslenzkt mál. Víkverja
heyrist flestir, sem hann talar við,
vera sammála höfundum orðabókar-
innar, um að hún eigi í senn að vera
lýsandi (innihalda ýmis orð úr dag-
legu talmáli) en um leið leiðbeinandi
(með spurningarmerkjum við vonda
málið). Þó er augljóslega kynslóða-
munur í þessu máli og yngra fólk
hlynntara stefnu orðabókarhöfunda
en sumir af eldri viðmælendum Vík-
verja telja að frekar hefði átt að bæta
sjaldgæfum fornyrðum við orðabók-
ina en mikið notuðum nýyrðum og
slangri.
x x x
HJÖRTUR Einarsson íslenzku-fræðingur virðist á sömu skoð-
un og orðabókarhöfundarnir, en
hann blandar sér í umræðurnar um
nýútkomna orðabók á vefnum Sellan-
.is. Víkverja finnst hann komast að
skynsamlegri niðurstöðu, þótt hann
myndi nú kannski ekki sjálfur tala
um málfasista (ætli það orð sé í nýju
orðabókinni?):
„Það er ljóst að í íslensku eru orð
misrétthá. Þannig eru orð sem teljast
góð og gild íslensk orð að uppruna
jafnan betri en tökuorð og slang-
uryrði. Þess vegna þykir oft betra að
tala um bifreiðar en bíla og dráttar-
vélar eru betri en traktorar, útvarp
er vissulega fínna en radíó og vélar
og tæki þykja betri en maskínur. Öll
þessi orð eru þó notuð talsvert í ís-
lensku og finna má þau í orðabókum.
Þau eru misrétthá en fæst eru þó
beinlínis talin óæskileg, nema af sum-
um málfræðingum og íhaldssömum
málfasistum. En af hverju eru sum
tökuorð og slanguryrði talin óæski-
legri er önnur? Af hverju eru orð eins
og sjeik og bögg verri en orð eins og
bíll og viskustykki? Hvers vegna er
verra að bögga e-n en að vaska upp?
Eru töffarar eitthvað verri en döm-
ur? Er verra að tjilla en að slappa af?
Í öllum þessara tilvika er um tökuorð
og nýtt eða gamalt slangur að ræða.“
Hvað varð um Jazz
FM 97,7 og Klassík
FM 100,7?
MIKIÐ varð ég glaður
þegar ég uppgötvaði Jazz
FM 97,7 á sínum tíma og
ekki varð ánægjan minni
þegar ég fann Klassík 100,7
skömmu síðar. Mikil og
kærkomin tilbreyting frá
poppsíbyljunni á hinum
stöðvunum að ekki sé
minnst á steinrunnar pæl-
ingarnar á Rás 1 með rík-
isrekinni nauðungaráskrift
í þokkabót. En nú eru báð-
ar þessar ágætu stöðvar
þagnaðar. Að vísu er stanz-
laust verið að auglýsa eitt-
hvert vanilluglundur á 97,7
en á 100,7 ríkir þögnin ein.
Hvað veldur? Ég hef ekki
trú á öðru en að margir hafi
hlustað á þessar stöðvar
sér til ánægju ef marka má
mörg lofsamleg ummæli
um þær í Morgunblaðinu.
Fyrir mitt leyti báru þess-
ar tvær stöðvar af öllum
hinum og miklu meira en
það. Mikið vildi ég að þær
færu í gang aftur sem allra
fyrst.
Reynir Eyjólfsson,
Eyrarholti 6,
Hafnarfirði.
Þakklæti til RÚV
BOGI hafði samband við
Velvakanda og vildi koma á
framfæri þakklæti til RÚV.
Laugardagskvöldið 2. nóv-
ember sl. voru leikin dans-
lög á milli kl. 23 og mið-
nættis eins og var gert í
gamla daga og mæltist það
vel fyrir á hans heimili.
Þetta er skemmtileg til-
breyting frá viðtalsþáttum.
Vonandi verður framhald
á. Hafið mínar bestu þakk-
ir fyrir, segir Reynir.
Ég get ekki orða
bundist
ÉG fór um daginn með vin-
konu minni að skoða
hundafimisvæðið í Mos-
fellsbænum. Og viti menn,
það er búið að eyðileggja
öll tæki og tól á staðnum.
Sterkir búkkar lágu í tætl-
um, ýmist á víð og dreif um
svæðið eða í hrúgu fyrir
framan kofa sem þarna er.
Ruslafata úr vír, hálfrifin,
lá á hliðinni á bak við kof-
ann. Spýtur (leifar af búkk-
um) lágu með naglana upp.
Við snerum þeim við, svo
hundarnir okkar myndu
ekki stíga á þá. Ég spyr,
hvað fær fólk út úr því að
eyðileggja íþróttatæki
besta vinar mannsins?
Guðrún Pétursdóttir,
hundaeigandi.
Tapað/fundið
Hjólkoppur
tapaðist
HJÓLKOPPUR tapaðist
af Nissan Micra á höfuð-
borgarsvæðinu. Finnandi
vinsamlegast hafi samband
í síma 551-9622. Fundar-
laun.
Dýrahald
Lítinn hvolp vantar
gott heimili
LÍTILL hvolpur fæst gef-
ins á gott heimili. Upplýs-
ingar í síma 861-2908.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
HVER ætlar að bera
ábyrgð á fasteignasölu-
málinu og hver ætlar að
borga fólkinu?
Af hverju var ekkert
gert í málinu þegar kæra
barst til lögreglunnar? Á
lögreglan aðeins að gæta
hagsmuna nokkurra ein-
staklinga?
Af hverju var Félag
fasteignasala ekki búið
að loka á þennan mann
þegar þeir vissu af mál-
inu og það skal enginn
segja mér að þeir hafi
ekki vitað af því. (Til
hvers að hafa þetta félag
yfirhöfuð ef þeir gæta
ekki hagsmuna almenn-
ings?)
Hvaða hlutverki gegn-
ir dómsmálaráðuneytið í
þessu máli og af hverju
eru hinar og þessar
stofnanir að hvítþvo sig
af þessu máli? Eini að-
ilinn sem hefur við-
urkennt eitthvað er
Íbúðalánasjóður en það
lentu ekki allir illa þar.
Hver fær fyrsta kröfu-
rétt í búið ef þar er
einhvað til? Ríkið? Ekki
varð það illa úti.
Hvað munar ríkið um
nokkar milljónir þegar
einstaklingar verða jafn-
vel gjaldþrota út af
þessu máli og allir verða
allt í einu voðalega hissa
yfir því, að þetta hafi
gerst. Það vissu allir af
þessu virðist vera, nema
kúnnarnir. Hvað er að?
Ég segi: Til hvers að
hafa fasteignasala ef
svona skipulögð glæpa-
starfsemi er leyfð?
Ég spyr og ég vil svör.
R.
Hver ber ábyrgð?