Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 62
FÁIR hafa sungið inn einsmikið af lögum og Björg-vin Halldórsson og vístað af nógu er að taka
þegar velja skal á safnskífu. Á síð-
asta ári sendi Björgvin frá sér plötu
með nýjum lögum, en að þessu sinni
gefur hann út safnplötu með sínum
bestu ballöðum; Ég tala um þig:
Bestu ballöður Björgvins, 21 lag
alls, tvö þeirra ný og ný tónleika-
útgáfa af laginu „Ég lifi í draumi“.
Björgvin Halldórsson segist ekki
hafa verið alveg tilbúinn í nýja
sólóskífu, enda var hann með plötu
og bók á síðasta ári. Hann segist þó
vera byrjaður á nýrri plötu, en hún
komi ekki út fyrr en á næsta ári,
hann vilji gefa sér góðan tíma til að
gera hana sem best úr garði.
Lét aðra um lagavalið
Björgvin segir það síður en svo
hafa verið létt verk að velja lög á
safnplötuna nýju, enda hafi hann
tekið upp svo mikið af lögum í
gegnum tíðina. „Við ákváðum að
hafa hana í rólegu deildinni og sett-
um saman lista með þannig lögum
sem eru ansi mörg enda hef ég tek-
ið upp tæplega 500 lög á ferl-
inum.„Hann segist hafa fengið aðra
til að velja lögin á plötuna, enda
vildi hann ekki vera með puttana of
mikið í valinu; „þegar maður er að
gera þetta sjálfur er hætt við að
maður sé full hlutdrægur,“ segir
hann og bætir við að sér hafi oft
reynst vel að kalla til menn til að
hlusta með sér, hvort sem hann er
að velja á plötu eða vinna nýja tón-
list.
Að sögn Björgvins eru á plötunni
róleg lög frá ýmsum tímum, en
áhersla hafi einmitt verið lögð á að
hún drægi upp sem breiðasta mynd
af því sem hann hefur sungið inn á
band í gegnum tíðina. „Svo vildum
við hafa sem fæst þeirra laga sem
er að finna á tvöfalda disknum sem
kom út á sínum tíma, Þó líði ár og
öld. Hann hefur selst svo vel og er
enn að seljast, er kominn í 16 til
17.000 eintök, og okkur fannst því
kjörið að hafa þessa plötu sem eins
konar viðbót við þá útgáfu.“
Þroskaður Einar Bárðar
Á plötunni eru líka tvö ný lög,
annað erlent en hitt eftir Einar
Bárðarson. Björgvin segist hafa
rekist á lagið hans Einars nánast
fyrir tilviljun þar sem þeir voru í
veiði saman. „Við vorum að hlusta
á lög og ég heyrði fyrir slysni lag
eftir Einar sem hann raulaði sjálfur
við píanóundirleik. Mér leist strax
vel á þetta lag og kom mér á óvart
hvað hann er góður söngvari. Hann
er mjög lunkinn og með þroskaðan
tónlistarsmekk miðað við aldur.
Gaman að taka lag eftir hann.
Svo er það amerískt lag sem
Kenny Rogers söng á sínum tíma,
með mjög sniðugum texta, og það
passaði vel við hrynjandina á plöt-
unni og kallast á við rólegt lag sem
var á plötunni minni í fyrra. Svo er
ný upptaka á einu lagi, „Ég lifi í
draumi“, sem tekið var upp á tón-
leikunum hans Eyjólfs Kristjáns-
sonar í Borgarleikhúsinu fyrir
stuttu en hann syngur einmitt með
mér í laginu.“
Stefnir lengra í kántríátt
Björgvin segist vera að gæla við
það að halda tónleika í Austurbæj-
arbíói í desember og flytja lög af
plötunni og meira til. „Mig langar
að halda tónleika og flytja þessi lög
og lög sem ég hef flutt í gegnum
tíðina í annarri útfærslu en ég hef
áður gert, hafa þau í órafmögnuðu
deildinni, vera með skemmtilegt
band og taka þetta svona á teppinu.
Þetta er á frumstigi og svolítið mik-
ið rigg að gera þetta en mig langar
mikið til þess,“ segir Björgvin, en
hann hefur í mörgu að snúast, er ið-
inn við að troða upp víða og er svo
farinn að undirbúa næstu plötu eins
og getið er. „Ég er að semja helling
og ætla mér góðan tíma í þetta, á
fullt af lögum og er sífellt að bæta
við og henda út,“ segir hann. „Ég
stefni meira í organic-deildina, fara
lengra í kántríáttina en ég gerði á
síðustu plötu, er þó ekki að tala um
einhvern línudans, en lögin segja
þó til um hvernig þetta verður.“
Bestu ballöður Björgvins
Björgvin lagði mikla áherslu á að ballöðuplatan drægi upp mynd af
öllum ferlinum.
62 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta
meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá.
Gott popp styrkir
gott málefni
1/2 Kvikmyndir.com
USA Today
SV Mbl
DV RadíóX
Sýnd kl. 5.50. B. i. 16.
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8 og 10.15.
FRUMSÝNING
Hann er með 1000 andlit... en veit ekkert í sinn haus! Dana Carvey fer
á kostum í geggjaðri gamanmynd sem er framleidd af Adam Sandler.
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Búðu þig undir nýja til-
raun í hrylling. Það geta
allir séð þig og það heyra
allir í þér. En það getur
enginn hjálpað þér!
Mögnuð hryllingsmynd.
Sýnd kl. 8 og 10.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
1/2Kvikmyndir.is
„DREPFYNDIN“
ÞÞ. FBL
FRUMSÝNING
Mögnuð mynd
sem hefur fengið
einróma lof
gagnrýnenda.
Robin Williams
aldrei betri"
- USA Today
Missið ekki
af þessar
6 og 8.30.
Gott popp styrkir
gott málefni
1/2Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
DV
USA Today
SV Mbl
DV
RadíóX
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
i
i l
i illi
l i i
-
i i i
Hann er með 1000 andlit...en veit ekkert í sinn
haus! Dana Carvey fer á kostum í geggjaðri
gamanmynd sem er framleidd af Adam Sandler.
Strike og vinningshafi í Warcraft
var Tron. Keppt var í þremur und-
irflokkum í Quake III. Sigurveg-
ari CTF var liðið Eiki og co og í
TDM voru það Kúrudýrin, sem
báru sigur úr býtum. Bæði liðin
eru úr Murk-hópnum. Í einstakl-
ingskeppninni 1 on 1 vann b3nni.
Í Quake II var keppt í tveimur
undirflokkum. Liðið Godfathers
úr Don-hópnum vann AQTP og
einstaklingsgreinina AQFA vann
Darkness.
Eins og sjá má eru keppendur
ekki mikið fyrir að láta bera á sér
og keppa allir undir ýmsum gælu-
nöfnum. Skjálfti er haldinn fjórum
sinnum á ári af Símanum Interneti
í samstarfi við Opin kerfi. Verð-
laun gefa Expert og Skífan.
ÍÞRÓTTAHÚS HK í Digranesi í
Kópavogi skalf af spenningi á
Skjálftamótinu um helgina. Að
sögn Kristjóns Sverrissonar, ann-
ars skipuleggjenda mótsins, gekk
keppnin vel fyrir sig og stóðust
allar tímasetningar með ágætum.
Kristjón segir stemninguna hafa
verið góða og keppendur hafa
verið ánægðir með hvernig til
tókst. Keppt var í bardagatölvu-
leikjunum Counter Strike, War-
craft III og Quake II og III. Titr-
ingurinn í keppendum var mikill
en eins og í annarri keppni gátu
ekki allir keppendurnir 550 staðið
uppi sem sigurvegarar.
Lið Murk sigraði í Counter
Titringur á
lokaspretti
Skjálfta