Morgunblaðið - 19.11.2002, Síða 11
ÁÆTLAÐ er að brunar af völdum
rafmagns hafi verið 887 í fyrra og
eignatjón vegna þeirra hafi numið
850 milljónum króna. Sex af hverjum
tíu brunum af völdum rafmagns urðu
í íbúðarhúsnæði. Í hátt í helmingi til-
vika varð eldur laus vegna rangrar
notkunar en í rúmum 42% tilvika var
orsökin bilun eða hrörnun í búnaðin-
um sjálfum.
Þetta er meðal helstu niðurstaðna í
nýrri ársskýrslu Löggildingarstofu
sem skráir slys og bruna af völdum
rafmagns hér á landi.
Engin dauðsföll vegna elds
af völdum rafmagns
Enginn fórst í rafmagnsbrunum
hér á landi í fyrra og er tíðnin raunar
nokkuð lægri hér en á hinum Norð-
urlöndunum eða 0,44 dauðsföll á ári.
Langalgengast er að eldur kvikni út
frá eldavélum eða í 37% allra raf-
magnsbruna og í nær öllum tilvikum
er það vegna mannlegra mistaka, svo
sem aðgæsluleysis eða rangrar notk-
unar. Einna algengast er að fólk
gleymi pottum á eldavélarhellum og
eldur kvikni af þeim sökum. Næst-
algengast var að bruni yrði vegna raf-
magnstaflna og raflagna í neysluveit-
um. Þá er og algengt að bruni verði
vegna rafmagnstækja ýmiss konar,
þ.e. ísskápa, þvottavéla, uppþvotta-
véla, lausatækja, sjónvarpa, lampa og
ýmissa varmamyndandi tækja eða
1–5% bruna hvert tæki.
Löggildingarstofan skráði 73
bruna af völdum rafmagns í fyrra
sem er svipað og árið áður en engu að
síður nokkuð meira en síðastliðin sex
ára en að meðaltali voru skráðir 63
brunar á ári 1995–2001.
Flest slysanna urðu vegna mann-
legra orsaka eða um 80% og var um
þriðjungur hinna slösuðu rafveitu-
menn, einn af hverjum fjórum var
rafiðnaðarmaður en tæplega helm-
ingur leikir, þ.e. venjulegt fólk.
Hefði mátt koma í veg
fyrir um 400 bruna
Í skýrslu Löggildingarstofu segir
að með réttri notkun hefði mátt koma
í veg fyrir stóran hluta rafmagns-
bruna eða allt að 46% og því hefði
með réttri notkun og aðgæslu mátt
koma í veg fyrir um 400 tjón í fyrra.
Ekkert dauðsfall varð vegna raf-
magnsbruna í fyrra og er þetta
fimmta árið í röð án dauðsfalla af
þeim völdum en árið 1996 fórust tveir
menn í rafmagnsbruna. Tíðni dauðs-
falla vegna rafmagsnbruna er um
1,55 á hverja milljón íbúa en samsvar-
andi tala á hinum Norðurlöndunum
er 1,81.
Um 850
milljóna
tjón vegna
rafmagns-
bruna
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 11
Laugavegi 84, sími 551 0756
af stretchbuxum frá
20% afsláttur
. s æ t i ð3
Sólveig Pétursdóttir
dóms- og
kirkjumálaráðherra
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík
22. og 23. nóvember 2002.
Kosningaskrifstofa
stuðningsmanna Sólveigar
er að Suðurlandsbraut 8,
Fálkahúsinu.
Allir hjartanlega velkomnir.
Stuðningsmenn.
Skrifstofan er opin virka daga frá
kl. 10:00 til 21:00 og um helgar frá
kl. 13:00 til 18:00.
Símar skrifstofunnar eru:
568 0582 og 568 0584
Faxnúmer er 568 0584
4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við streitu,
kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar
breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðl-
ast aukið frelsi og lífsgleði. Ásmundur, sem m.a. byggir nám-
skeiðið á eigin reynslu af kvíða, tekur fyrir þætti eins og jógastöð-
ur, öndunaræfingar, slökun og andleg lögmál sem stuðla að vel-
gengni, jafnvægi og heilsu. Ekki er krafist reynslu af jóga. Yfir-
gripsmikið og traust námskeið frá árinu 1994.
Hefst miðvikudaginn 20. nóvember– mán. og mið. kl. 20:00.
Auðbrekku 14, Kópavogi.
Símar 544 5560 og 820 5562,
www.yogastudio.is
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni
Stærsta töskuverslun landsins
Skólavörðustíg 7, sími 551 5814
Herra
kr. 2.800
Dömu
kr. 2.600
Þar sem hanskarnir fást
Er þér kalt?
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
GRILLPÖNNUR
kr. 2.900 (stærri)
kr. 2.300 (minni)