Morgunblaðið - 19.11.2002, Síða 17
kvæmdastjóri og útgefandi eru yfir
framkvæmdaráði.
Björgólfur Guðmundsson eignað-
ist sem kunnugt er rúmlega 68% hlut
í Eddu – miðlun í vor, en fyrirtækið
varð til við samruna Vöku-Helgafells
og Máls og menningar árið 2000. Við
kaup Björgólfs í vor tók Páll Bragi
Kristjónsson stöðu stjórnarfor-
manns og starfaði sem slíkur, allt
þar til nú að hann var ráðinn fram-
kvæmdastjóri.
NÝTT skipurit var samþykkt á
stjórnarfundi Eddu – miðlunar og
útgáfu hf. sem haldinn var í síðustu
viku. Páll Bragi Kristjónsson var
ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins og Halldór Guðmundsson, sem
áður var forstjóri, var ráðinn útgef-
andi. Einnig urðu breytingar á
stjórn fyrirtækisins. Þröstur Ólafs-
son tók við formennsku af Páli
Braga, en hann var áður varafor-
maður. Ólafur B. Thors var gerður
að varaformanni stjórnar. Aðrir í
stjórn eru Páll Bragi, Örnólfur
Thorsson og Þór Kristjánsson.
Undir framkvæmdastjóra heyra
eftirtalin svið: Fjármál og rekstur,
sölu- og markaðsmál, starfsmanna-
mál, dótturfélög og bókabúðir Máls
og menningar. Undir útgefanda
heyra Mál og menning, Vaka-Helga-
fell, Forlagið, Almenna bókafélagið,
önnur útgáfa, bókaklúbbar, fram-
leiðsludeild og þróunarmál. Fram-
Páll Bragi
Kristjónsson
Halldór
Guðmundsson
Skipulagsbreytingar
hjá Eddu – miðlun
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 17
Skýrr tapar 31 milljón
MÓÐURFÉLAG Skýrr tapaði 31
milljón króna á fyrstu níu mánuðum
ársins, samanborið við 151 milljónar
króna tap á sama tímabili 2001.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsgjöld nam hins vegar 230
milljónum króna, en var 161 milljón á
sama tíma í fyrra.
Rekstrartekjur móðurfélagsins
námu alls 1.418 m.kr., samanborið
við 1.525 milljónir á sama tíma í fyrra
og drógust því saman um 7%. Í til-
kynningu frá félaginu segir að meðal
rekstrartekna á síðasta ári hafi verið
söluhagnaður upp á 36 milljónir, en
enginn í ár, auk þess sem stór samn-
ingur hafi verið gerður við ríkið um
sölu á Oracle viðskiptalausnum í júlí í
fyrra. Að þessu frátöldu hafi verið
um 19% raunaukningu rekstrar-
tekna að ræða. Rekstrargjöld tíma-
bilsins námu 1.278 m.kr., samanbor-
ið við 1.447 milljónir í fyrra og lækka
því um 12%. Sé salan til ríkisins að-
skilin hækkuðu gjöldin um 14%.
Fjármagnsliðir tímabilsins eru já-
kvæðir um 3 m.kr., en voru neikvæð-
ir á síðasta ári um 39 m.kr. Þar mun-
ar mest um 19 m.kr. gengishagnað
vegna styrkingar krónunnar. Sér-
stök niðurfærsla hlutabréfaeignar
nemur 102 m.kr., vegna lækkunar á
markaðsgengi skráðra hlutabréfa í
eigu félagsins. Á sama tímabili í
fyrra nam niðurfærslan 238 m.kr.
Niðurfærslan í ár skýrist að mestu af
lækkun á bréfum í Columbus IT
Partner.
LEIÐRÉTT
Í FRÉTT sem birtist á viðskipta-
síðu á laugardag kom fram að sala
Össurar hefði aukist um 56% á 4 ár-
um og og hagnaðurinn um 76%.
Hið rétta er að hér var um að
ræða meðaltal á hverju ári. Það er,
að um meðaltalsvöxt Össurar á ári
var að ræða og því hefur vöxturinn
verið mun meiri en fréttin gaf til
kynna.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
14,5 milljóna króna tap
fall er 45%, samanborið við 43% árið
áður. Veltufjárhlutfall var 0,9, en 2 á
sama tíma í fyrra. Lækkunin skýrist
af því að næsta árs afborganir lang-
tímalána eru í lok september 453
milljónir en voru einungis 82 milljónir
á sama tíma 2001. Um er að ræða lán
sem verða endurfjármögnuð.
SLÁTURFÉLAG Suðurlands tapaði
14,5 milljónum króna á fyrstu níu
mánuðum ársins, en á sama tímabili í
fyrra nam tapið 103 milljónum. Í til-
kynningu frá félaginu segir að bætt
afkoma stafi fyrst og fremst af lækk-
un fjármagnsgjalda vegna gengis-
hækkunar krónunnar.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir
og fjármunaliði (EBITDA) nam 122
milljónum króna samanborið við 115
milljónir á sama tíma árið 2001.
Rekstrartekjur voru 2.667 milljónir
króna og jukust um rúm 13% frá
árinu áður. Rekstrargjöld jukust
einnig, um tæp 14%. Afskriftir
rekstrarfjármuna voru 115 milljónir,
samanborið við 107 milljónir í fyrra.
Heildareignir SS í lok september
voru 2.625 milljónir króna og höfðu
hækkað um 8 milljónir frá fyrra ári.
Skammtímaskuldir voru 819 milljón-
ir, langtímaskuldir 628 milljónir og
eigið fé 1.178 milljónir. Eiginfjárhlut-
Sláturfélag Suðurlands
♦ ♦ ♦
!
! "!
$ % &
'
( ! % ! $ ) *** Dragtadagar
20% afsláttur af pils- og buxnadrögtum
v/Laugalæk, sími 553 3755