Morgunblaðið - 19.11.2002, Page 22

Morgunblaðið - 19.11.2002, Page 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 22 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ af þessu enda margt að sjá og spennandi karakterar á ferð,“ segir hún að lokinni fyrstu sýningunni. „Það voru kannski tvö, þrjú sem fannst þetta svolítið hræðilegt en flest sátu þau og skellihlógu þegar þeir félagar fóru að syngja. Þetta er ákveðin upplifun fyrir þau því þetta er eins og að komast í alvöruleikhús þótt sýningin sé sett hérna upp.“ Engin tengsl milli tann- skemmda og Sparisjóðsins Hún segir yngstu deildirnar, sem hafa börn á aldrinum eins og hálfs árs og upp í tveggja ára, ekki koma með að þessu sinni enda skynji þau sýninguna ekki á sama hátt og hin börnin. Alls eru það þó um 1.500 börn í þessum þremur sveit- arfélögum sem sjá sýningarnar – leikskólabörn í Hafnarfirði í gær og í dag og börn í Garðabæ og Bessa- staðahreppi næstu daga. Heiðrún hlær þegar hún er spurð ÞAÐ er ekki dónaleg 100 ára afmæl- isgjöf sem leikskólabörn í Hafn- arfirði, Garðabæ og Bessa- staðahreppi fá þessa dagana. Reyndar eru það ekki leik- skólabörnin sem eru 100 ára um þessar mundir, heldur gefandinn sem er Sparisjóður Hafnarfjarðar og í tilefni af afmælinu býður hann öllum krökkum á leikskólum þess- ara sveitarfélaga til leiksýningar í vikunni. Fyrstu sýningarnar voru í gær en það eru þeir pörupiltar Karíus og Baktus sem sjá um að skemmta litla fólkinu af þessu tilefni. Sýningarnar eru settar upp í safnaðarheimilinu Hásölum við þjóðkirkjuna í Hafn- arfirði og að sögn Heiðrúnar Hauks- dóttur, markaðsfulltrúa Sparisjóðs Hafnarfjarðar, er þar á ferðinni hluti úr sýningu Þjóðleikhússins. „Krakkarnir hafa voðalega gaman að því hvort einhver tengsl séu á milli tannpúkanna illræmdu og Sparisjóðs Hafnarfjarðar og svarar neitandi. „Leikritið var einfaldlega valið af því að það er í sýningu núna og svo er auðvitað gott að fræða börnin um það hvernig á að bursta tennurnar og hugsa vel um þær.“ Hátíðarhöldum vegna 100 ára af- mælisins er þó engan veginn lokið með þessum sýningum og að sögn Heiðrúnar stendur Sparisjóðurinn fyrir tónleikum í Hafnarfirði í næsta mánuði fyrir gesti og gangandi svo eitthvað sé nefnt. Morgunblaðið/Þorkell Börnin fylgdust agndofa með skammarstrikum þeirra bræðra Karíusar og Baktusar. Tannpúkar á aldarafmæli Hafnarfjörður Í ÍÞRÓTTA- og tómstundastarfi gefst einstaklega gott tækifæri til að vinna með vandamál sem tengjast einelti. Þetta er skoðun Vöndu Sig- urgeirsdóttur en hún er einn af fyr- irlesurum á fræðslukvöldi gegn ein- elti í íþrótta- og tómstundastarfi sem Íþróttabandalag Hafnarfjarðar og forvarnarnefnd bæjarins standa að í kvöld. Hún segir vissa hættu á því að börn, sem verði fyrir einelti, einangr- ist frá íþróttum og tómstundastarfi. Vanda hefur starfað innan íþrótta- hreyfingarinnar í fjölda ára auk þess sem hún starfaði í félagsmiðstöð um tíu ára skeið. Hún segir einelti vera ekkert síður til staðar í íþrótta- og tómstundastarfi en annars staðar í þjóðfélaginu þótt hún viti ekki um neina rannsókn sem gerð hafi verið á því hérlendis. Fundinum á morgun er sérstak- lega beint að þjálfurum og leiðbein- endum í íþrótta- og tómstundastarfi. „Þeir eru oft í ágætisaðstöðu til að taka á þessu,“ segir Vanda. „Þú ert skyldugur til að fara í skóla en þú ert ekki skyldugur til að fara í íþróttir og þess vegna held ég að þeir sem eru að vinna í íþróttum og tómstundum þurfi að hugsa mjög mikið um þetta. Það er fullt af krökkum sem hætta og það þarf að fylgjast miklu betur með því.“ Yfirleitt vitað um hvaða krakka er að ræða Hún segir umræðan hafa aðallega snúist um einelti í skólum en það sé einnig mikilvægt að líta á málið út frá íþróttum og tómstundum. „Mér finnst athyglisvert að þeir krakkar sem lenda í einelti þora oft ekki að fara í tómstundir eða þá að þeir hrökklast burt. Rannsóknir sýna hins vegar að holl og góð tómstundaiðja skiptir gríðarlega miklu máli, bæði hvað varðar líðan og velgengni í skóla fyrir utan áhrif gegn vímuefnum. Þá er ekki gott að vera án tómstundaiðj- unnar til viðbótar við afleiðingar ein- eltisins. Þetta er eitthvað sem ég held að þurfi að skoða sérstaklega.“ Að mati Vöndu snýst málið að miklu leyti um samstarf milli skóla og félagsstarfs. „Yfirleitt er vitað hvaða krakkar þetta eru og ef það er vitað um barn sem hefur lent í einelti og ekki er í neinu tómstundastarfi þarf að athuga hvað hægt er að gera til að koma viðkomandi í tómstundir. Þess vegna er ég að tala um þetta sam- starf. Reyndar er heilmikið samstarf á milli félagsmiðstöðva og skóla á mörgum stöðum en mér finnst að það þurfi að breikka þessa samvinnu yfir í hin frjálsu félög.“ Hún segir þjálfara og leiðbeinend- ur oft í góðri aðstöðu til að gera eitt- hvað í málunum. „Ég lít á tómstunda- starfið sem tækifæri til að vinna með einelti því þar fer fram mjög gott starf. Það á að vera tiltölulega auðvelt að koma krökkum sem eru félagslega einangraðir inn í mikið af þessu starfi ef það er bara samstarf um það.“ Hafa ekki þekkingu til að takast á við einelti Á fundinum í kvöld verður m.a. rætt um það hvernig best er að bregðast við einelti. Hugmyndin er síðan að nýta þá umræðu í bækling sem dreift verður meðal þjálfara og leiðbeinenda. Vanda tekur undir að það vanti leiðbeiningar fyrir þennan hóp. „Tvímælalaust, alveg eins og með kennara,“ segir hún. „Þekktur fræðimaður á þessu sviði, Dan Olw- eus, hefur sagt að það sé langt því frá að kennarar á Norðurlöndum hafi þekkingu til að takast á við jafnalvar- legt vandamál og einelti er og ég held að það gildi ekki síður um þá sem eru að vinna í íþróttastarfi.“ Hún bendir þó á að í Kennarahá- skólanum fái allir kennaranemar ákveðna leiðsögn varðandi einelti. „Flest íþrótta- og tómstundafélög eru með einhvers konar leiðtogafræðslu og þetta ætti í mínum huga að vera sjálfsagður hluti af því.“ En birtist einelti á einhvern annan hátt í íþróttum en t.d. á skólalóð? „Ég veit það ekki,“ segir Vanda. „Bún- ingsklefar eru hluti af íþróttunum og það er oft talað um að það þurfi að passa búningsklefana sérstaklega varðandi einelti því þar eru börnin mjög varnarlaus. Annars birtist þetta örugglega ekkert öðruvísi í íþróttum en annars staðar.“ Fræðslukvöldið fer fram í Álfafelli, íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst klukkan 18. Allir sem starfa að barna- og unglingastarfi í Hafnarfirði eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Einelti í íþróttum og tómstundastarfi barna rætt á fræðslufundi í kvöld Samstarf skóla og félagsstarfs nauðsynlegt Hafnarfjörður Morgunblaðið/Sverrir Að sögn Sveins H. Skúlasonar, forstjóra Hrafnistu, er nú áætlað að end- urbótum á brunavörnum verði lokið fyrir árið 2004. BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur veitt Slökkviliði höfuðborgarsvæðis- ins heimild til að beita Hrafnistu í Hafnarfirði dagsektum vegna ágalla á brunavörnum í byggingunni. Deildar- stjóri forvarnardeildar slökkviliðsins segir þó ekki byrjað að beita dagsekt- unum enda hafi á síðustu vikum verið unnið í því að bæta úr ágöllunum. Forstjóri hjúkrunarheimilisins segir málið til komið vegna hertari krafna um brunavarnir. Málið á sér nokkurn aðdraganda en bréfaskipti Slökkviliðsins og Hrafn- istu ná aftur til ársbyrjunar árið 2001 og jafnvel lengur því fyrir þann tíma var eldvarnaeftirlit í höndum annarra aðila þar sem ekki var búið að sam- eina slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. Þeir ágallar sem eru tilgreindir í bréfi slökkviliðisins til bæjarstjórnar eru að ekki sé staðið rétt að brunahólfun í húsinu auk þess sem flóttaleiðir séu ógreiðfærar og að nokkru leyti not- aðar til geymslu á varningi. Þá sé ekki útgöngu- og neyðarlýsing á þeim. Í bréfi Slökkviliðsins er talað um að eðli og umfang ágallanna sé líklegt til að hafa umtalsverð áhrif á öryggi fólks ef eldsvoði verður í húsinu. Bjarni Kjartansson, framkvæmda- stjóri forvarnardeildar Slökkviliðsins, segir að í þessu sambandi sé unnið með ákveðin lykilhugtök varðandi al- varleika eldvarnaágalla. „Þegar talað er um umtalsverð áhrif má ætla að einhverjir komist ekki út eða geti átt í erfiðleikum með að bjarga sér af eigin rammleik. Hins vegar er það ekki sama og bráð hætta eða þegar við teljum ágalla eldvarna hafa afgerandi áhrif á öryggi fólks. Þá er verið að tala um að beita heimild til lokunar.“ Stífari kröfur um húsnæði fyrir ósjálfbjarga fólk Hann segir því litið svo á að sam- bærileg mál og á Hrafnistu séu þess eðlis að þau þoli bið og ekki sé gripið til aðgerða svo fremi sem verið sé að vinna að úrbótum. Hann undirstrikar að ekki sé farið að beita Hrafnistu dagsektum þótt heimildin liggi fyrir. „Það sem breytist við þessa heimild er að það er komin stíf pressa á hús- eigendur en svona mál hafa jafnan haft einhvern aðdraganda. Engu að síður gefum við þeim kost á að bregð- ast við eftir einhverri verkáætlun sem gefur eðlilegt svigrúm.“ Að sögn Bjarna hefur verið unnið að úrbótum síðustu vikur. „Eftir því sem ég veit er þetta komið í góða vinnslu og við munum vonandi sjá fyr- ir endann á þessum vandamálum inn- an einhvers ákveðins tíma.“ Aðspurður hvort ekki sé alvarlegt að um slíka ágalla sé að ræða í hús- næði þar sem eldra fólk, sem jafnvel er ekki að fullu sjálfbjarga, dvelur segir Bjarni: „Auðvitað liggur í hlut- arins eðli að staðir þar sem fólk er illa eða ófært um að bjarga sér sjálft gera meiri kröfur til öryggis. Í nýjustu byggingarreglugerðinni er kveðið skýrt á um að húsnæði sem er ætlað fólki, sem er illa eða ófært um að bjarga sér sjálft, skuli sérstaklega brunahannað. Þannig að það hafa ver- ið gerðar mun stífari kröfur um slíkt húsnæði að undanförnu sem lýsir kannski ákveðinni stefnumörkun.“ Dýrar aðgerðir Sveinn H. Skúlason, forstjóri Hrafnistu, segir málið í ákveðnum farvegi. „Okkur var sett ákveðin áætl- un af Slökkviliðinu sem ég viðurkenni að við unnum kannski ekki nógu hratt eftir. Þegar það síðan óskaði eftir að beita dagsektum var hins vegar búið að semja um nýtt vinnuplan sem við höfum alveg unnið eftir.“ Hann segir að eftir að bæjarráð samþykkti að heimila dagsektirnar hafi Hrafnista kynnt bæjaryfirvöld- um stöðu málsins sem leiddi til þess að á síðasta fundi bæjarstjórnar var samþykkt að vísa málinu aftur til bæj- arráðs. „Við erum á fullr iferð að vinna í þessum málum en þetta eru miklar aðgerðir og dýrar þannig að við gátum ekki alveg fylgt upphaflega planinu. Við erum búnir að uppfylla það sem til stóð á þessu ári og eflaust búnir að gera endurbætur fyrir 8 milljónir nú þegar.“ Að sögn Sveins er nú stefnt að því að ljúka endurbótunum á þremur ár- um eða fyrir árið 2004. Hann segir málið til komið vegna breyttra krafna varðandi brunavarnir. „Húsið er hólfað af með tilltiti til eldsvoða en þær álhurðir og hertu gler standast ekki ítrustu kröfur og staðla Evrópu- sambandsins í dag. Nú er staðan sú að fyrstu hólfaskiptin eru komin þannig að við erum að vinna að þessu á fullu og vonandi í góðu samkomulagi við alla aðila.“ Vankantar á bruna- vörnum við Hrafnistu Hafnarfjörður Unnið að úrbótum að sögn forstjóra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.