Morgunblaðið - 19.11.2002, Page 25

Morgunblaðið - 19.11.2002, Page 25
SEM kunnugt er hefur verið gert átak á undanförnum þremur árum í að hreinsa og fegra umhverfi sveita- bæja. Verkefnið hefur verið nefnt Fegurri sveitir og er á vegum land- búnaðarráðuneytisins í umboði ríkis- stjórnarinnar. Hrunamannahreppur tekur þátt í verkefninu og hefur gríð- armiklu af brotajárni og öðru rusli verið fargað á undanförnum árum. Í vor heimsótti starfsmaður verk- efnisins, Sigríður Jóhannsdóttir, öll lögbýli, gróðrarstöðvar og nokkur fyrirtæki og fengu þær heimsóknir jákvæðar undirtektir. Í haust fór um- hverfisnefnd hreppsins um sveitina ásamt sveitarstjóra og tók út árang- urinn. Valið var erfitt, en útkoman var sú, að þrjú býli hlutu verðlaun fyrir snyrtilega umgengni og eitt fyrir góð- an árangur í átakinu. Allir sem taka þátt í verkefninu fá viðurkenningar- skjal. Verðlaunin fengu Hrafnkels- staðir I, Kotlaugar, Skipholt I og Jað- ar. Sigríður Jónsdóttir, bóndi á Fossi, fulltrúi Bændasamtakanna í verkefn- isnefndinni Fegurri sveitir, segir að verulegt átak hafi verið gert víða um land. Segja mætti að sumar sveitir hafi tekið stakkaskiptum, mikið hefur verið málað og fegrað. Meðal annars safnað miklu af brotajárni, gömul hús rifin og borið í plön og slóða svo eitt- hvað sé nefnt. Hinn 29. nóvember verður ráðstefna, á vegum Fegurri sveita, haldin á Hótel Selfossi undir heitinu „Íslenskar sveitir – ásýnd – ímynd“. Framkvæmdastjóri verkefn- isins er Ragnhildur Sigurðardóttir, M.Sc í umhverfisfræði og lektor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Fjögur sveitabýli fá umhverfisverðlaun Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Þau hlutu verðlaun fyrir snyrtilegustu býlin í Hrunamannahreppi, f.v.: Agnar Reidar Róbertsson og Kristbjörg Kristinsdóttir, Jaðri, Haraldur Sveinsson og Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir, Hrafnkelsstöðum I, Sigrún Ein- arsdóttir og Sigurjón Sigurðsson, Kotlaugum, og Valný Guðmundsdóttir og Karl Guðmundsson, Skipholti I. Hrunamannahreppur SKAMMTÍMAVISTUN fyrir fötluð börn og ungmenni sem rekin er í Holti í Borgarbyggð veitir nú aðeins þjónustu tvær helgar í mánuði. Þjón- ustan er á vegum Svæðisskrifstofu fatlaðra á Vesturlandi í samstarfi við Þroskahjálp. Að sögn Önnu Einarsdóttur, for- stöðumanns í Holti, er ástæðan fyrir skertri þjónustu skortur á fjármagni en æskilegt væri að geta boðið að lágmarki þrjár helgar í mánuði. Bið- listi er eftir skammtímavistun og vit- að er um hóp barna sem þyrftu að komast að á næsta ári. Miðað við stöðuna í dag er ekki ljóst hvort hægt verður að sinna þeim sem sækja um vistun né taka á móti fleiri börnum. Sama á við um stuðnings- fjölskyldur, þar skortir einnig fjár- magn til að geta veitt þá þjónustu sem þörf er á. ,,Flest börnin hjá okkur eru bæði með stuðningsfjölskyldur og skammtímavistun. Þróunin hefur verið sú að meðan börnin eru mjög ung kjósa foreldrar frekar stuðn- ingsfjölskyldur, en þegar börnin eld- ast koma oftast fram óskir um að nýta frekar skammtímavistun. Ástæðan er félagsleg samskipti Ljósmynd/Guðrún Vala Starfsmenn og börn í Holti, f.v.: Sindri Dagur Garðarsson, Anna Ein- arsdóttir, Kristinn Rafn Einarsson, Freyr Karlsson, Ragnheiður Giss- urardóttir, Stefán Trausti Rafnsson og Freydís Guðmundsdóttir. Skert þjón- usta í Holti Borgarnes barnanna. Þau eiga sína vini í skammtímavistuninni og þar hittast þau á jafningjagrundvelli sem er ekki alltaf sjálfgefið við aðstæður í daglegu lífi,“ segir Anna. ,,Á þennan hátt erum við bæði að skapa ánægju barnanna við að hitta vini sína og um leið að létta á foreldrum, þ.e. þau fá hvíld og vita jafnframt af börnunum í góðra vina hópi.“ Svæðið sem Holt þjónar er allt Vesturland fyrir utan Snæfellsnes. Því er skammtímavistunin stundum eini staðurinn þar sem krakkarnir hafa tækifæri til að hittast. Börnin vilja fá að vera með vinum sínum og hafa þannig áhrif á þjónustuna. Dæmi eru um tengsl sem hafa mynd- ast milli barna í skammtímavistun og hafa haldist sem vinátta fram á fullorðinsár og jafnvel endað með því að einstaklingar hafa ákveðið að búa saman. Starfsmannamál í Holti eru stöð- ug og allir starfsmenn þroskaþjálfar eða að ljúka námi. Starfsemin hófst árið 1986 í formi sumardvalar, þá hafði Benjamín Ólafsson gefið Holt til Þroskahjálpar á Vesturlandi. For- eldrar í Þroskahjálp byggðu síðar við húsið og einnig leggja þeir til bíl sem tekur níu manns í sæti. Á sumr- in er boðið upp á sumardvöl sem hef- ur einnig dregist saman í sex vikur og því ljóst að færri komast að en vilja og fá styttri dvöl en áður. „LIFIR hún eða lokar“ var yfirskrift opins fundar um framtíð Sements- verksmiðjunnar á Akranesi sem Vinstri hreyfingin-grænt framboð boðaði til sl. miðvikudag um þá tví- sýnu stöðu sem rekstur verksmiðj- unnar er í um þessar mundir. Hús- fyllir var á fundinum og var áberandi einhugur um málefnið í tali manna. Frummælendur voru Jón Bjarna- son þingmaður, Guðmundur Guð- mundsson, fyrrum framkvæmda- stjóri verksmiðjunnar, Þór Tómasson frá Hollustuvernd ríkisins og Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi og stjórnarmaður í verksmiðjunni. Staða verksmiðjunnar var kynnt ít- arlega út frá samkeppnisforsendum og mögulegri brennslu m.a. fastra úr- gangsefna í ofni verksmiðjunnar. Það sem uppúr stendur er að rekstrarfor- sendur sementsframleiðslu um þess- ar mundir eru slæmar vegna meintra undirboða erlends aðila á markaðin- um. Að auki er bygginga- og mann- virkjaiðnaður hér á landi í mikilli lægð og sala á sementi því lítil. Margir fundarmenn tóku til máls og var ein- hugur í máli allra um að verja stöðu Vilja verja stöðu verksmiðjunnar Akranes fyrirtækisins sem hefur verið horn- steinn í atvinnurekstri á Akranesi um áratugaskeið. Í lok fundarins var samþykkt álykt- un: „Almennur fundur á vegum Vinstrihreyfingarinnar-græns fram- boðs, haldinn á Akranesi 13. nóvem- ber 2002, skorar á stjórnvöld að grípa tafarlaust til aðgerða til að tryggja framtíð Sementsverksmiðjunnar. Fundurinn bendir á að verksmiðjan er stóriðja á íslenskan mælikvarða, veitir um 90 manns atvinnu, byggir starfsemi sína nær eingöngu á inn- lendu hráefni og hefur þjónað ís- lenskri mannvirkjagerð í nær hálfa öld. Jafnframt gefur verksmiðjan færi á eyðingu orkuríkra úrgangsefna sem ella þyrfti að flytja úr landi með ærnum tilkostnaði. Þjóðhagsleg hag- kvæmni verksmiðjunnar er því ótví- ræð og augljós sóknarfæri til að auka hana verulega. Nú er vegið að þessu óskabarni þjóðarinnar af erlendu risafyrirtæki sem hyggst einoka ís- lenska sementsmarkaðinn með ófyr- irsjáanlegum afleiðingum. Því krefst fundurinn þess að stjórnvöld upplýsi Akurnesinga og aðra landsmenn þeg- ar í stað um áform sín gagnvart fram- tíð verksmiðjunnar.“ LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 25 DAGUR íslenskrar tungu var hald- inn hátíðlegur í félagsheimilinu fyrir fullu húsi og fast var kveðið að orði, rétt eins og tíðkast á Norðurlandi. Nemendur grunnskólans á Þórshöfn sáu að mestum hluta um dagskrána í formi upplestrar, söngs og sögu- lestrar. Sumir fluttu frumsamin ljóð, aðrir eftir nána ættingja og einn bekkur- inn sagði sögu, samda með hjálp áheyrenda, sem lögðu til lýsingar- orðin í söguna svo útkoman varð afar skrautleg. Ágætri dagskrá lauk með kaffiveitingum þar sem rúsínulumm- ur og súkkulaðikaka voru á borðum en umsjón veitinga var í höndum nokkurra nemenda. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Nemendur áttunda og níunda bekkja grunnskólans á Þórshöfn flytja ljóð. Hátíðleg stund í félagsheimilinu Þórshöfn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.