Morgunblaðið - 19.11.2002, Page 30

Morgunblaðið - 19.11.2002, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÞETTA er þægileg afsök-un,“ segir Bean þegarhann er spurður að þvíhvers vegna innbrots- þjófarnir haldi þessu fram. Að sögn hans hefðu langflestir þeirra sem bera því við að þeir stundi afbrot til að afla sér peninga fyrir fíkniefn- um, leiðst út í afbrot hvort sem þeir hefðu neytt fíkniefna eða ekki. Philip Bean gaf nýlega út bókina Fíkniefni og glæpir í Bretlandi og hefur hún vakið talsverða athygli. Hann á að baki langan og farsælan ferill sem fræðimaður, hefur ritað og ritstýrt fjölda bóka auk þess fræðigreinar eftir hann hafa birst víða. Hann hélt fyrirlestur í Há- skóla Íslands í síðustu viku en hitti blaðamann Morgunblaðsins fyrst að máli. Veruleikinn er flókinn „Fylgist þú með fjölmiðlum í Bretlandi, hvort sem er sjónvarpi eða dagblöðum, færðu þá hugmynd að tengslin milli glæpa og eiturlyfja séu augljós,“ segir hann. Veruleik- inn sé á hinn bóginn flóknari. Að hans mati eru tengslin afar lítil. Þeir fíklar sem séu helst líklegir til að fremja afbrot beinlínis til að fjár- magna fíkniefnaneyslu séu langt leiddir heróínfíklar. Aðrir hefðu flestir brotið af sér hvort sem var. „Það er miklu auðveldara fyrir inn- brotsþjófa að segja: „Ég réð ekkert við mig, ég varð að brjótast inn til að eiga peninga fyrir fíkniefnun- um,“ heldur en að segja: „Ég er bara illgjarn þjófur sem hef gaman af því að stela peningum annarra“ eða eitthvað í þeim dúr,“ segir hann. Í raun sé lítið vitað um tengsl- in með vissu og ekki hafi farið fram ýkja miklar rannsóknir á þessu við- fangsefni. „Samt er alltaf verið að halda því fram að fíkniefnin valdi glæpum en ég hef hins vegar bent á að sú sé ekkert endilega raunin.“ Bean er þó alls ekki að halda því fram að ekki eigi að berjast gegn fíkniefnum, þvert á móti. Hann leggur áherslu á að fíkniefnin valdi miklum skaða, bæði fyrir fíkla og aðra. Hann segir að það sé fjar- stæða að halda því fram lögleiðing fíkniefna verði til þess að ólögleg fíkniefnasala og neysla hætti. Fíkniefnasalar myndu örugglega finna sér markað, þeir gætu selt á lægra verði en löglegir aðilar og þeir mynu án efa selja unglingum fíkniefni. Fíkniefnamarkaðurinn yrði áfram ofbeldisfullur. Lögleið- ing fíkniefna myndi engan vanda leysa en árangurinn yrði að líkind- um sá að fíkniefnaneytendum myndi fjölga. „Borgar sig að taka áhættuna? Ég er ekki viss um að svo sé. Um leið og búið er að lög- leiða yrði afskaplega erfitt að hætta við og snúa til fyrra horfs,“ segir hann. Þýðir ekki að elta þá stóru Aðspurður hvaða aðferðir gefist best í að berjast gegn fíkniefnavið- skiptum segir Bean að tollgæsla og lögregla verði með öllum ráðum að koma í veg fyrir að fíkniefnin kom- ist til landsins og það verði að sækja fíkniefnasalana til saka. „Þetta tvennt gerir þó ekki endilega svo mikið gagn í baráttunni gegn fíkni- efnum,“ segir Bean. Ef aðeins einn aðili flytti inn fíkniefni væri hægt að ná góðum árangri. Í reynd væri það svo að margir aðilar stunduðu fíkni- efnasmygl og sölu og jafnvel þó að nokkrir stórtækir fíkniefnasalar væru handteknir dygði það skammt. Hann nefnir sem dæmi að fyrir nokkrum árum hafi lögreglan í London handtekið því sem næst alla fíkniefnasala sem störfuðu í King’s Cross hverfinu. Aðgerðin hafi tekið 4–5 vikur og krafist mik- illar vinnu af hálfu lögreglu. Eftir að fíkniefnasalarnir voru komnir bak við lás og slá hafi lögregla fylgst áfram með hverfinu. Eftir 15 daga voru nýir fíkniefnasalar komnir í stað þeirra sem voru hand- teknir „Það þarf ekki mi leika til að ná góðum árang efnaviðskiptum. Þú þarft tilbúinn að beita ofbeldi t heimta skuldir. Og þú v geta útvegað sölumenn til fíkniefni fyrir þig – og vera að beita þá ofbeldi ef þeir s Annað þarf ekki til,“ seg Því muni nýir menn ei taka við af þeim sem lögre tekur. Bean telur því að litlum árangri að einbeit stórtækustu sölumönnunu ara sé að lögregla einbeiti s að trufla viðskipti með koma í veg fyrir að fíkni geti selt efnin. Þetta geti gert með því að koma sé þeim stöðum þar sem fíkn fer fram en einnig með þv fíkniefnasalana á röndum komi ekki algjörlega í v fíkniefnasölu en trufli ha lega. Mikilvægast af öllu með þessari aðferð sé ólík nýir neytendur þori að fíkniefnasalann – þeir verð lega of hræddir við að l handtaki þá. „Yfirleitt re reglan að ná höfuðpauru held að það sé ekki rétt aðf eiga ekki að byrja á toppn ur botninum. Smásölume efna eru líklegri til að se fólki sem hefur aldrei pr áður og það er þetta sem v koma í veg fyrir,“ segir Be Philip Bean, prófessor í afbrotafræði, um tengsl Fíkniefnane þægileg afsö Níu af hverjum tíu innbrotsþjófum sem lögreglan í Reykjavík klófestir bera því við að þeir stundi innbrot til að fjármagna fíkniefnaneyslu. Philip Bean, prófessor í afbrotafræði við háskóla á Englandi, segir á hinn bóginn að tengslin milli neyslu og afbrota séu afar lítil. „Samt er alltaf verið að ha hef hins vegar bent á að sú prófessor við Háskólann í MAGNÚS H. Sigurðsson,formaður stjórnarMjólkursamsölunnar íReykjavík, segir að það muni skýrast í viðræðum rík- isins og bænda, sem nú eru að hefj- ast, hvaða breytingar verða gerðar á skipulagi mjólkuriðnaðarins. Hann segir mikilvægt að niður- staða í þessum viðræðum fáist sem fyrst. Skipulagsmál mjólkuriðnað- arins voru til umræðu á fulltrúa- ráðsfundi MS sem haldinn var sl. föstudag. Magnús sagði að engar ákvarð- anir hefðu verið teknar á fundinum. Menn hefðu hins vegar farið yfir málin. Rætt hefði verið um nýlegan úrskurð samkeppnisráðs, skipu- lagsmál og greint hefði verið frá kröfum sem Sigurbjörn Hjaltason, bóndi á Kiðafelli í Kjós, hefur gert á hendur MS. Sigurbjörn telur að MS hafi greitt of lítið í séreigna- sjóði bænda og telur að félaginu hafi verið óheimilt að vísa sér úr fé- laginu. „Ég greindi frá stöðunni eins og hún er í máli Sigurbjörns. Fund- armenn vildu sem minnst tjá sig um það mál og töldu að það sem hefði verið tekin ákvörðun um í vor ætti að standa,“ sagði Magnús og bætti við að það yrði verkefni stjórnar fyrirtækisins að svara kröfum Sigurbjörns með hliðsjón af þeim ákvörðunum sem teknar voru í vor. „Þetta mál snýst um það að bóndi sem leggur inn mjólk er fé- lagsmaður í MS. Þegar hann hættir mjólkurinnleggi er hann ekki leng- ur félagsmaður. Í vor var s ari ákvæði um hvenær greiða úr séreignasjóði t sem hætt hafa mjólkurfra Það er farið með þetta e öðrum samvinnufélögum, þegar bóndinn er hættur sjóðurinn greiddur út. Það gerðum í vor var að se konar ákvæði og er hjá Mj Flóamanna, sem er samvi eins og MS,“ sagði Magnú Magnús sagði að umræð átt sér stað innan MS um greiðslur í stofnsjóði, en M Flóamanna greiddi í fyrra fé inn í séreignasjóði bæ Skipulagsmál mjólkuriðnaðarins rædd á fulltr Ræðst af nýjum búvörusamning LISTMARKAÐUR Í LÆGÐ Listaverkamarkaðurinn á Íslandihefur nú verið í lægð um nokk-urra ára skeið og má rekja upp- hafið til þess að fram komu upplýsing- ar um að fjöldi falsaðra málverka eftir íslenska málara hefði verið seldur grunlausum kaupendum. Í viðamikilli úttekt Önnu Sigríðar Einarsdóttur og Ragnhildar Sverrisdóttur á málinu í Morgunblaðinu á sunnudag kemur fram að rannsókn þessa máls sé ein sú umfangsmesta, sem lögreglan hafi tekist á hendur, og megi búast við að henni ljúki á næstu vikum. Ekki hefur fengist uppgefið hjá lögreglu hversu mörg málverk eru til rannsóknar, en Ólafur Ingi Jónsson, forvörður hjá Morkinskinnu, sem vakti athygli á þessu máli, kveðst þess fullviss að ein- ar 900 falsanir á verkum 16 látinna ís- lenskra listamanna, þar á meðal Jó- hannesar Kjarvals, Nínu Tryggva- dóttur, Þórarins B. Þorlákssonar, Svavars Guðnasonar og Þorvalds Skúlasonar, hafi farið í sölu hér á landi og í Danmörku. Þetta mál hefur grafið undan lista- verkamarkaðnum. Aðalsteinn Ingólfs- son listfræðingur segir að fólk hafi hvorki þorað að selja né kaupa verk í langan tíma og bætir við að listunn- endur hafi ekki einungis haldið sig frá viðskiptum með verk gömlu meistar- anna, heldur veigrað sér við að kaupa málverk yngri kynslóðar listamanna. Ein ástæðan fyrir því að hægt var að dæla hinum meintu fölsunum inn á markaðinn er sú hversu lítil yfirsýn er yfir þau verk, sem margir helstu lista- menn þjóðarinnar hafa skilið eftir sig. Fyrir vikið var framan af lítið tekið eftir því þegar óþekkt listaverk eftir þekkta listamenn fóru skyndilega að koma inn á markaðinn. Liður í því að skapa listmarkaðnum traust á nýjan leik væri að hefja skipulega skráningu verka okkar helstu listamanna. Það er vissulega mikið verk og kostnaðar- samt ef vel á að vera. Í slíkum gagna- grunni er lágmark að fram komi hefð- bundnar upplýsingar á borð við uppruna og eigendaskrá, en þar bætist við skrá um notkun lita, ástand verka og notkun tákna, svo eitthvað sé talið. Í þessu sambandi mætti nefna nafn Sturlu Guðlaugssonar, sem um ára- tuga skeið starfaði við þá stofnun í Hollandi, sem hefur með höndum skráningu og greiningu hollenskra listaverka, og veitti henni forstöðu í fimm ár. Sturla naut mikillar virðingar í Hollandi og þegar hann lést árið 1971 hafði hann nýlega verið gerður að for- stöðumanni eins virtasta listasafns heims, Mauritshuis í Haag. Hann átti snaran þátt í að skrá verk hollensku og flæmsku meistaranna auk þess að vinna skrá yfir verk Vincents Van Goghs. Þegar slíkt yfirlit hefur verið gert yfir verk listamanns verður mun auðveldara en ella að átta sig á því hvað er á seyði þegar áður óþekkt verk eftir hann koma fram og um leið koma í veg fyrir að skapist slíkt ófremdar- ástand, sem ríkt hefur á íslenskum listaverkamarkaði undanfarin misseri. FORYSTUSKIPTI Í KÍNA Miklar breytingar eiga sér nú stað íKína. Á sextánda flokksþingi Kínverska kommúnistaflokksins var lagður grunnur að víðtækum forystu- skiptum. Ber þar hæst að Jiang Zemin, sem er 76 ára, lætur af störfum flokks- leiðtoga en verður áfram forseti Kína fram í mars á næsta ári. Ný miðstjórn var einnig kjörin á þinginu og skipti hún út allri æðstu stjórn flokksins, hinni svokölluðu framkvæmdanefnd stjórn- málanefndarinnar. Hu Jintao, varafor- seti og væntanlegur arftaki Jiangs, var sá eini, sem var endurkjörinn í fram- kvæmdanefndina. Þess ber þó að geta að þótt Jiang láti af mikilvægum emb- ættum verður hann áfram talinn valda- mesti maður landsins samkvæmt þeim hefðum er myndast hafa innan kín- verska kommúnistaflokksins. Þetta voru nokkuð meiri breytingar á forystu flokksins en búist hafði verið við. Hins vegar er erfitt að rýna í kín- versk stjórnmál, opinber umræða er lít- il og ákvarðanir eru teknar bak við lukt- ar dyr. Þannig er mjög lítið vitað um Hu þótt gert hafi verið ráð fyrir því í nokk- urn tíma að hann myndi taka við for- setaembættinu af Jiang. Hann er nokk- uð ungur á mælikvarða kínverskra leiðtoga, eða 59 ára, og er talinn líkleg- ur til að halda áfram á þeirri braut að byggja upp viðskiptavænt umhverfi í Kína. Hins vegar eru litlar líkur taldar á að hann muni slaka á klónni þegar kemur að pólitísku frelsi Kínverja. Kínversk stjórnvöld hafa á síðustu áratugum fylgt þeirri stefnu að opna landið í auknum mæli fyrir viðskiptum og fjárfestingum. Risavaxið skref í þá átt var tekið með aðild Kínverja að Heimsviðskiptastofnunni, WTO. Í henni felst að Kínverjar verða að opna hagkerfi sitt á fjölmörgum sviðum fyrir erlendum fjárfestingum og samkeppni. Hagur Kínverja af WTO-aðild er mikill en jafnframt mun hún ógna rekstrar- grundvelli illa rekinna og úreltra ríkis- fyrirtækja, sem enn eru mörg í Kína þótt þeim hafi verið fækkað undir stjórn Zhu Rongji, er nú mun láta af störfum sem forsætisráðherra. Stefna Kínverja hefur skilað gífur- legum hagvexti á undanförnum árum þótt vissulega sé langt í að Kína takist að jafna þjóðartekjur vestrænna iðn- ríkja. Engu að síður er Kína nú þegar orðið að mikilvægu efnahagsveldi sem fjölmennasta ríki veraldar. Þar er hins vegar ekki von á miklum pólitískum breytingum. Þó svo að Kommúnistaflokkurinn hafi sagt skilið við flest það sem tengist „kommún- isma“ og sé óðum að markaðsvæða Kína hefur flokkurinn ekki viljað sleppa hendinni af stjórn landsins. Flokkurinn vill halda völdum annars vegar valdanna vegna en einnig óttast margir forystumenn flokksins að það kunni að leiða til upplausnar í Kína ef frjáls skoð- anaskipti og kosningar verða leyfð. Sú harka er stjórnvöld í Kína hafa sýnt í garð Falun Gong eru glöggt merki um þann ótta. Þessi ótti við lýðræði og frelsi mun hins vegar þegar upp er stað- ið hamla hinni efnahagslegu þróun. Hann kemur í veg fyrir að hægt sé að byggja upp óháð réttarkerfi, sem er forsenda þess að markaðskerfi nái að dafna. Augljós afleiðing er sú mikla spilling sem er viðvarandi vandamál í Kína. Forystuskiptin í Kína virðast ekki líkleg til að breyta þessu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.