Morgunblaðið - 19.11.2002, Side 31

Morgunblaðið - 19.11.2002, Side 31
HLÖÐVER Vilhjálms-son greindist með rist-ilkrabba í apríl árið1999, þá 57 ára gamall. „Ég hafði gert töluvert af því að skokka árin á undan og var að æfa mig undir að fara í 10 km hlaup í Reykjavíkurmaraþoninu. Eitt sinn þegar ég var að hlaupa fékk ég mikla verki í kálfana og þurfti að stoppa þrisvar sinnum sem mér þótti undarlegt þar sem ég hafði getað hlaupið þessa vegalengd á undir einni klukkustund leikandi létt.“ Hlöðver segist í framhaldinu hafa velt vöngum yfir hvað gæti hafa orsakað þessa verki. Hann leitaði til Guðjóns Lárussonar læknis og var í framhaldi af því sendur í rannsókn þar sem í ljós kom að hann var mjög blóðlítill. Hann var samstundis fluttur á bráðamóttöku Borgarspítalans þar sem dælt var í hann um tveimur lítrum af blóði. Við nánari rannsókn kom í ljós að hann var með illkynja æxli neðst í ristlinum. Meinið var fjarlægt með skurðaðgerð í maí. Hlöðver segist ekki hafa fundið fyrir neinum einkennum fyrr. Hins vegar hafði hann nokkrum sinnum fengið blæðandi magasár og segist því hafa fylgst með því reglulega hvort hægðirnar væru dökkar. Hann bendir á að þegar hann lá á Landakots- spítala vegna blæðandi magasárs í september ár- ið 1992 hafi hann farið í ristilspeglun en þá hafi ekker óeðlilegt komið í ljós. Eftir að krabbameinið var fjarlægt dvaldi hann á sjúkrahúsi í nokkra daga og var í framhaldi af því settur í lyfjameðferð sem stóð frá júnímánuði og fram til loka árs 1999. Hlöðver nýtti sér sömu- leiðis óhefðbundnar lækningaaðferðir og drakk lúpínuseyði á hverjum degi frá því hann greindist með æxli í apríl og þar til einu og hálfu ári eftir að lyfjameðferð lauk. Hann segist þess fullviss að lúpínuseyðið hafi átt sinn þátt í að hjálpa honum að ná sér eftir uppskurðinn og á meðan á lyfja- meðferðinni stóð. „Ég fékk lítil sem engin ein- kenni sem fólk fær oft sem er í lyfjameðferð, s.s. ógleði, sprungnar varir og sprungur í fingur- góma. Ég fékk væg einkenni í fingurgómana en að öðru leyti fékk ég engin einkenni.“ Hann segist sömuleiðis hafa verið fljótur að jafna sig eftir aðgerðina enda hafi hann verið í góðu formi árin á undan. Árið 1993 var Hlöðver rúm 100 kg en hafði markvisst unnið að því árin á eftir að ná af sér þyngdinni. Þá hafði hann þrisvar sinnum tekið þátt í 10 km hlaupi í Reykjavík- urmaraþoni. „Ég kom þarna inn, eins og ég sagði við Sigurð Björnsson krabbameinslækni, í toppformi.“ Hann telur að það hafi hjálpað mikið í baráttunni við ristilkrabb- ann og eins að hann var jákvæður í garð sjúkdómsins. Fer reglubundið í skoðun „Ég varð í raun ekki fyrir neinu áfalli þegar mér var tilkynnt á sín- um tíma að ég væri með krabba- mein.“ Hlöðver hefur síðan farið reglu- lega í skoðun og auk þess tvisvar í ristilspeglun og hafa engar frekari breytingar komið í ljós í ristli. Faðir Hlöðvers var á sínum tíma einnig greindur með rist- ilkrabba, þá rúmlega sextugur að aldri. Meinið var fjarlægt og í kjöl- farið fór hann í geislameðferð og engin frekari einkenni gerðu vart við sig hjá honum. Hlöðver segist ekki hafa hugleitt það þegar hann greindist með ristilkrabba að faðir hans hefði einnig greinst með ristilkrabbamein á sín- um tíma en síðar hefði það rifjast upp fyrir hon- um. Hann á þrjú systkini á lífi en ekkert þeirra hefur farið í ristilspeglun. Hann segir að elsti bróðir sinn hafi þó rætt um að panta tíma í skoð- un. Hlöðver segir aðspurður að sér lítist vel á vit- undarvakninguna sem nú er að verða í þjóðfélag- inu í tengslum við ristilkrabbamein og forvarnir gegn sjúkdómnum. „Mér finnst það mjög þarft að fólk fari í slíkar rannsóknir og er klár á því að það myndi bjarga mörgum mannslífum ef fólk færi ekki seinna en um fimmtugt í slíkar skannanir,“ segir hann að lokum. „Varð í raun ekki fyrir neinu áfalli“ Hlöðver Vilhjálmsson nýtti sér m.a. óhefðbundnar lækningaaðferðir. Morgunblaðið/Árni Sæberg gegn sjúkdómum í meltingarfærum, m.a. með útgáfu fræðslubæklinga. Þá er að finna gagnlegar upplýsingar á vefslóðinni www.vitundarvakning.is. Krabbamein í ristli er þriðja algengasta krabbameinið á Íslandi og önnur algeng- asta dánarorsökin af völdum krabbameins. Nú stendur yfir átak til að efla forvarnir Vitundarvakning MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 31 SIGRÚN Árnadóttir greindistmeð ristilkrabba í ágúst2001 en hún hafði þá fundið fyrir verkjum í kviðarholi sem höfðu stigmagnast frá því í janúar. „Þetta byrjaði þannig að ég fann fyrir óþægindum neðarlega í kvið- arholi sem mér fannst í raun engin ástæða til að hafa áhyggjur af,“ segir hún. Smám saman fóru verk- irnir að aukast og blóð fylgdi hægðum. Sigrún fór að eiga erfitt með svefn og verkirnir urðu meiri. Hún segist fyrst hafa talið að hún væri með gyllinæð og fyrrihluta sumars leitaði hún til heim- ilislæknis og bar áhyggjur sínar undir hann. Hann ráðlagði henni að láta athuga það nánar. Sigrún dró það í nokkurn tíma í viðbót áð- ur en hún leitaði til Sjafnar Krist- jánsdóttur, sérfræðings í melting- arsjúkdómum. Að sögn Sigrúnar varð strax ljóst við ristilspeglun og síðar með sýnatöku að hún var með illkynja frumubreytingar í ristli. Hún fór í uppskurð seinnihluta ágústmán- aðar þar sem hluti ristils var fjarlægður. Að- gerðin gekk mjög vel fyrir sig, að hennar sögn. Í október fór hún í lyfjameðferð sem stóð í hálft ár og gekk sömuleiðis vel fyrir sig þótt hún hafi tekið á líkamlega, sérstaklega þegar líða fór á meðferðina. Hún orðar það svo að hún hafi verið fegin að hún var ekki ung kona með mörg börn þegar hún kom heim úr vinnunni á daginn. Aðspurð hvernig henni hafi orðið við þegar hún fékk tíðindin á sínum tíma að hún væri með ristilkrabba segir hún að það hafi í raun ekki komið sér á óvart. „Eiginlega vissi ég það mikið um ristilkrabbamein að ég vissi að það var ekkert tabú að fá slíkar fréttir. Þannig að ég hafði engar áhyggjur.“ Hún segir að flestir í fjöskyldu sinni hafi verið sömu skoðunar. „Ég held að ég hafi helst haft áhyggjur af því þegar ég vissi að ég yrði að fara í lyfjameðferð en vissi í raun ekki alveg út í hvað ég var að fara.“ Hún telur að það hafi mikið að segja að vera andlega jákvæður þegar fólk fær að vita að það hafi greinst með sjúkdóma á borð við krabbamein. Sjálf segist hún hafa brugðist þannig við og sömuleiðis hafi hún reynt að stunda reglubundna hreyfingu, meðal annars með því að fara út að ganga á hverjum degi. „Ég held að ef maður er með áhyggjur og er neikvæður taki það mjög mikið frá manni. Ég held að það hafi hjálpað mér að ég hafði engar áhyggjur.“ Sigrún segist mjög ánægð með þá þjónustu og að- hlynningu sem hún fékk, bæði þeg- ar hún var greind, í kringum upp- skurðinn og á meðan á lyfja- meðferðinni stóð. „Bæði fékk ég alveg einstaklega góða þjónustu og fólkið sem stendur að baki krabba- meinslækningum var hlýlegt og notalegt og á svo sannarlega hrós skilið.“ Móðurafi hennar greindist með ristilkrabba Hún fer reglulega í skoðun þar sem kanxer hvort einhverjar breytingar hafi gert vart við sig í ristli. Eftir því sem á líður er lengra á milli skoðana en reglu- bundið eftirlit stendur í fimm ár. Ekkert hefur komið fram sem bendir til breytinga í ristli. Að sögn hennar er krabbamein nokk- uð algengt í fjölskyldunni og þar á meðal greindist móðurafi hennar með ristilkrabbamein á sínum tíma. Hún segist því vera meðvit- andi um hættuna sem óhjákvæmi- lega sé fyrir hendi á að greinast með krabba- mein. Sigrún segir, spurð um þá vitundar- vakningu sem nú er hafin í tengslum við ristilkrabbamein, að mjög mikilvægt sé að fræða almenning um einkenni og áhættuþætti ristilkrabbameins. Einnig sé mikilvægt að bjóða fólki upp á skimun þar sem leitað sé eft- ir hugsanlegum einkennum ristilkrabba. Hún segir að með því móti geti þeir sem vilja vera vissir um að allt sé í lagi farið í slíka skoðun með reglubundnu millibili þótt hún hafi efa- semdir um að fólk myndi almennt nýta sér þessa þjónustu með reglubundnum hætti enda skoðunin þess eðlis og um mjög viðkvæmt mál að ræða fyrir marga. Leitaði ekki strax til læknis Sigrún Árnadóttir greindist með ristilkrabba 2001. Morgunblaðið/Kristinn kla hæfi- gri í fíkni- t að vera til að inn- verður að l að selja a tilbúinn svíkja þig. gir Bean. infaldlega gla hand- það skili ta sér að um. Rétt- sér að því fíkniefni, iefnasalar i lögregla ér fyrir á niefnasala ví að elta m. Þetta veg fyrir ana veru- sé þó að klegra að ð nálgast ði einfald- lögreglan eynir lög- unum. Ég ferð. Þeir num held- enn fíkni- elja efnin rófað þau verður að an. „Annað sem lögregla ætti að gera er að fylgjast náið með því sem er að gerast,“ segir Bean. Þegar Rud- olph Giuliani varð borgarstjóri í New York var lögreglunni í borg- inni gert að safna nákvæmari upp- lýsingum um þróun afbrota sem voru birtar á hverjum degi. Starf lögreglu hafi síðan tekið mið af þessum upplýsingum og árangur- inn ekki látið á sér standa. Lágmark er 60 daga meðferð Þá leggur Bean áherslu á kosti meðferðar. „Meðferð virkar. Eng- inn veit af hverju, en hún virkar,“ segir hann. En árangur náist aðeins ef fíkillinn er í meðferð í a.m.k. 60 daga. Það skili engum árangri að senda hann í meðferð sem tekur tvær til þrjár vikur. Þá sé algjör- lega nauðsynlegt að fylgjast dag- lega með því hvort fíkillinn sé enn að taka fíkniefni. Þetta verði aðeins gert með daglegum lyfjaprófunum. Vissulega sé þetta dýrt en þetta sé eina leiðin til raunverulegs árang- urs. Eftir að meðferð lýkur verði að fylgjast með fíklunum í allt að 12 vikur og halda lyfjaprófunum áfram á því tímabili. „Hér á Íslandi hafið þið mjög gott tækifæri til að ná árangri. Þjóðin er fámenn og það ætti að vera tiltölu- lega einfalt að fylgjast með landa- mærunum. Ef þið klúðrið þessu tekur það mörg ár að bæta fyrir mistökin.“ fíkniefna og afbrota eysla ökun Morgunblaðið/Golli alda því fram að fíkniefnin valdi glæpum en ég ú sé ekkert endilega raunin,“ segir Philip Bean, Loughsborough. sett skýr- ætti að til bænda amleiðslu. eins og í , þ.e.a.s. er stofn- ð sem við tja sams jólkurbúi innufélag s. ður hefðu m að auka Mjólkurbú a af eigin ænda. MS hefur í nokkur ár greitt hluta af hagnaði félagsins í séreignasjóði á móti því sem bændur greiða. Magnús sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin, en menn væru sammála um að skoða þetta betur og væntanlega taka afstöðu til þess á aðalfundi í vor. Engar tillögur um þetta hefðu hins vegar verið lagðar fyrir fulltrúaráðsfundinn. Magnús sagði að talsverður tími á fundinum hefði farið í að ræða um skipulag mjólkuriðnaðarins. „Það eru að hefjast viðræður um gerð nýs búvörusamnings. Þar skýrist væntanlega við hvaða aðstæður mjólkuriðnaðurinn og bændur eiga að búa á næstu árum. Þar verða línur lagðar og við bregðumst við samkvæmt því,“ sagði Magnús. Núverandi samningur rennur úr gildi árið 2005, en Magnús sagði að bændur þyrftu að sjá fram í tím- ann. Erfitt væri fyrir þá að taka ákvarðanir um fjárfestingar. rúaráðsfundi MS m gi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.