Morgunblaðið - 19.11.2002, Side 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 10.
Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Mögnuð mynd
sem hefur fengið
einróma lof
gagnrýnenda.
Robin Williams
aldrei betri"
- USA Today
Missið ekki
af þessar Kvikmyndir.com
DV
HJ. MBL
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16.
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
i
i l
i illi
l i i
-
i i i
Hann er með 1000
andlit...en veit
ekkert í sinn haus!
Dana Carvey fer á
kostum í geggjaðri
gamanmynd sem
er framleidd af
Adam Sandler.
Sýnd kl. 4. með ísl. tali
Sýnd kl. 8 og 10.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Allra s
íðustu
sýnin
gar!
DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.B. i. 16.
5, 7.30 og 10.
1/2Kvikmyndir.com
USA Today
SV Mbl
RadíóX
ÓHT Rás 2
Á LAUGARDAGINN fór fram
hnefaleikasýning í Laugardalshöll-
inni. Það voru Sextándinn og BAG,
boxklúbbur Hnefaleikafélags
Reykjaness sem stóðu að sýning-
unni. Þeir sem sýndu voru sex Ís-
lendingar og sex Bandaríkjamenn
og fóru leikar þannig að Ísland
vann þrisvar en Bandaríkin þrisv-
ar.
Guðjón Vilhelm Sigurðsson er
þjálfari hjá BAG. „Þetta tókst frá-
bærlega,“ segir Guðjón og er auð-
heyranlega hinn hressasti. „Þetta
fór jafnvel og mann gat dreymt
um. Það kom ekkert á eða neitt
slíkt og þeir sem stóðu að þessu
eiga heiður skilinn fyrir uppsetn-
ingu sem var til hreinnar fyrir-
myndar.“
Guðjón er stoltur af íslensku
strákunum og segir þá hafa verið
vel stemmda.
„Við þessar aðstæður fengum
við það besta úr þeim,“ segir hann
og bætir við að hrifning þeirra yfir
salnum hafi ekki leynt sér: „Að-
búnaðurinn hreinlega kveikti í
þeim og lyfti þeim upp á annað
stig.“
Eðlilega var eitthvað um stress
en eins og Guðjón lýsir þessu, þá
voru sumir Íslendinganna að
keppa opinberlega í fyrsta skipti.
„Og það á þjóðarleikvanginum ef
svo mætti segja. Með 2.000
öskrandi áhorfendur og í þokkabót
í beinni útsendingu! Með þetta í
huga stóðu þeir sig stórkostlega.“
Að mati Guðjóns gefur þetta
tóninn fyrir framhaldið. „Það er
bjart framundan ef við pössum
okkur að halda þessum staðli. Það
er mikilvægt að hugsa vel um
strákana og geta boðið þeim upp á
aðstæður sem þessar.“
Rúmlega 2.000 manns fylgdust
með keppninni í Höllinni og var
hún einnig sýnd beint á sjónvarps-
stöðinni Sýn.
Bjartir
og box-
andi
Skúli „Tyson“ þiggur ráð frá Guðjóni Vilhelm Sigurðssyni. Allt á fullu!
Hnefaleikasýningin í Laugardalshöll
Ljósmynd/Árni Torfason
Skúli „Tyson“ Vilbergsson sigraði John Jacobs frá Bandaríkjunum.
UPPSELT er orðið í stúku á hljóm-
leika bresku hljómsveitanna
Coldplay og Ash sem haldnir verða
í Laugardalshöllinni 19. desember
næstkomandi.
Miðasala hófst í gær klukkan 10.
Væn biðröð hafði myndast fyrir ut-
an sölustaði þegar salan hófst og til
marks um áhugann seldist upp í
stúku á einum tveimur klukkutím-
um. Síðla gærdags höfðu selst um
3.000 miðar en alls komast um
5.500 manns fyrir í Laugardalshöll.
Að sögn Kára Sturlusonar, eins
hljómleikahaldaranna, má gera
ráð fyrir að miðarnir seljist upp í
þessari viku.
„Miðarnir hafa runnið út jafnt og
þétt og það er nokkuð ljóst að Ís-
lendingar ætla að taka Coldplay og
Ash opnum örmum.“ Miðasala
heldur áfram af fullum krafti í
verslunum Skífunnar í Smáralind,
Kringlunni og á Laugavegi.
Coldplay og Ash í Laugardalshöll
Morgunblaðið/Kristinn
Biðraðir mynduðust á sölustöðum í gærmorgun, m.a. í Kringlunni.
Uppselt í stúku
ÞAÐ kemur ekki á óvart að
önnur myndin um galdra-
strákinn Harry Potter og
ævintýri hans hafi ratað
beint í toppsæti bandaríska
aðsóknarlistans. Myndin,
sem nefnist Harry Potter
og leyniklefinn og byggist á
samnefndri sögu breska
rithöfundarins J.K. Rowling, halaði
inn 7,4 milljarða íslenskra króna
þessa opnunarhelgi sem er ögn minna
en fyrsta myndin gerði í fyrra (7,6
milljarðar). Þetta er þriðja arðbær-
asta frumsýningarhelgi sögunnar en
metið á Spiderman (9,7 milljarðar).
Að sögn Dan Fellman, yfirmanns
innlendrar dreifingar hjá Warner
Bros í Bandaríkjunum, eiga þeir von
á að myndin muni halda sér vel næstu
vikurnar. Umsagnir hafi almennt ver-
ið jákvæðar og aðsókn á
myndina á laugardag og
sunnudag var meiri en á
fyrirrennarann.
Vinna við þriðju mynd-
ina, Harry Potter og fang-
inn í Azkaban, er þegar
hafin en hún á að koma út
árið 2004. Það er hinn
fremur lítt kunni mexíkóski leikstjóri
Alfonso Cuaron sem mun leikstýra
henni, en Chris Columbus, sem leik-
stýrt hefur báðum Potter-myndunum
til þessa, sest í sæti framleiðslustjóra.
Harry Potter og leyniklefinn var
frumsýnd í 3.682 kvikmyndahúsum í
Bandaríkjunum en var einnig sýnd í
3.284 kvikmyndasölum víða um heim.
Myndin setti þannig aðsóknarmet í
Bretlandi og einnig var sett aðsókn-
armet í Taívan, Filippseyjum og Mal-
asíu. Fjöldi barna tók sér frí í skóla og
mætti á sýningar klæddur eins og
Harry Potter og vinir hans og langar
biðraðir mynduðust víða.
Dómar um myndina hafa allflestir
verið jákvæðir og segja hana taka
þeirri fyrri fram að gæðum. T.d. segir
USA Today að myndin læsi áhorfend-
ur í kröftugri galdri en sú er á undan
kom og Roger Ebert, kunnasti gagn-
rýnandi Bandaríkjanna, en hann
skrifar fyrir Chicago Sun Times, seg-
ir myndina afrakstur þess sem sett
var upp í fyrri myndinni. Þeir lítt
hrifnu segja nýju myndina endur-
tekningarsama og Washington Post
segir hana einfaldlega „Stóra, sljóa og
tóma“.
Þá er bara spurning hvort Bond
gamli nær að hrekja stráklinginn
Potter af stalli um næstu helgi …
! " #$
% &'
(
$ ) $
*+*
,+-
,.+,
,,+/
+
0+*
0+/
0+/
+1
+0
*+*
2+0
+.
,/,+2
+
,11+2
.1+.
-/+1
+2
,+/
Efst í Bandaríkj-
unum og aðsókn-
armet í Bretlandi
Harry Potter og leyniklefinn frumsýnd