Morgunblaðið - 19.11.2002, Síða 55

Morgunblaðið - 19.11.2002, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 55 Hverfisgötu  551 9000 Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá Gott popp styrkir gott málefni Sýnd kl. 10.10. B. i. 16. 1/2Kvikmyndir.com USA Today SV Mbl DV RadíóX Stórskemmtileg grínmynd frá framleiðendum The Truman Show með Óskarsverð- launahafanum Al Pacino í sínu besta formi. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20.  ÓHT Rás 2 Einn óvæntasti spennutryllir ársins! 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.30 og 8. B. i. 16. www.regnboginn.is ENOUGH Anja og ViktorSýnd kl. 6. Ótextuð. Olsen Banden Sýnd kl. 8. Ótextuð. Momans verden Sýnd kl. 10. Enskt tal ótextað. FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU HANNIBAL LECTER  Kvikmyndir.com  HK DV  SV Mbl Sýnd kl. 10. B. i. 16. . Þegar tveir ólíkir menn deila getur allt gerst. Stórbrotin og óvenjuleg spennumynd með Samuel L. Jackson og Óskarsverðlaunahafanum, Ben Affleck. Margir vilja meina að hér sé á ferðinni ein besta og eftirminnilegasta kvikmynd ársins. Sjáið Jackie Chan í banastuði Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. www.laugarasbio.is SV Mbl RadíóX 1/2 Kvikmyndir.is  SK RadíóX  ÓHT Rás 2 ÍSLENSKT rapp slítur formlega barnsskónum með þessu mjög svo frambærilega verki þeirra Bents & 7Bergs. Nú er þetta orðið alvöru og hægt að fara að miða við það besta sem gerist erlend- is, séu menn í skapi til þess. Íslendingar hafa með þessu verki líka eignast fyrstu sprotaplötuna („offshoot“), líkt og tíðkast hjá rapphópum eins og Wu Tang Clan en Bent er einn Rottweilerhunda eins og kunnugt er. Svalt. Eitt sinn var mér sagt að íslensk- ir rapparar kæmust hvorki lönd né strönd ef þeir röppuðu ekki á ensku. Hvílíkt kjaftæði! Undanfarið hafa ungir listamenn á þessu sviði sann- að að hið ylhýra, ástkæra er ekki bara nothæft sem rappmál heldur býður það upp á miklu fleiri og skemmtilegri túlkunarmöguleika en enskan. Íslendingar tala íslensku og hvað er þá betra en að lýsa um- hverfi og upplifunum en einmitt á þeirri tungu sem þér er töm. Mun- um fleyg orð þjóðskáldanna: „Ég skildi, að orð er á Íslandi til um allt, sem er hugsað á jörðu.“ (Einar B.) og „Ástkæra ylhýra málið og allri rödd fegra!“ (Jónas). Mikið er það líka hressandi að heyra texta sem fjalla um eitthvað. Bent, 7Berg og gestir þeirra hér yrkja á skemmtilegan og oft og tíð- um eftirminnilegan hátt um dag- legar upplifanir sínar og umhverfi, hvort sem það er fyllerí, útilegur, rappbransinn eða almennar vanga- veltur um lífið og tilgang þess eða tilgangsleysi. Góða ferð tekst næsta fullkom- lega að brúa bilið á milli þeirra sem hafa einbeitt sér að æringjahætti og vel útpældum dónaskap (XXX Rott- weiler) og þeirra sem leggja fram- sækið, djúpspakt rapp fyrir sig (Af- kvæmi guðanna). Afraksturinn er því fjölbreytt plata sem er þó síst sundurlaus. Það sem einkennir plöt- una helst er krafturinn og frískleik- inn sem heldur dampi út í gegn og Bent, 7Berg og félagar eru afar öruggir á því sem þeir eru að gera og því sem þeir vilja koma í gegn. Hér er farið ansi víða um; heyra má slagara („Má ég sparka“), ádeilur („Fíkniefnadjöfullinn), stuð/kæru- leysi („Drykkja“), íhygli („Bls. 8“) og lag sem nístir merg og bein, svo sorgþrungið og svakalegt er það („Örorka“). Allt er þetta framreitt af sama örygginu, sama metnaðin- um. Tónlistin, sem íslenskir hipp- hopparar skeyta bakvið rímurnar, hefur hingað til verið í aukahlut- verki. Hér er svosem engin bylting í þeim málum, þó margar glúrnar lausnir skjóti upp kollinum. Flest lögin eru þó góðu heilli grípandi og melódísk, ekki bara heilalaus „funky drummer“ taktur undir píanóglingri eins og algengt er. Rappið flæðir vel, eins vel og ís- lenskan leyfir því a.m.k. (stundum er farið með tuttugu stafa, fjögurra atkvæða orð á 10 sekúndubrotum). Bent er sérstaklega eftirtektarverð- ur, stíll hans er athyglisverð blanda af rappi og söng og skapar þetta honum sérstöðu um leið og þetta lífgar ávallt upp á þau lög sem hann lætur að sér kveða í. Hönnun og umbúðir eru glæsi- legar og góður fengur er að text- unum sem fylgja með. Í raun má segja að vandað sé til verka, í nær öllu sem viðkemur þessari útgáfu. Hreint út sagt frábær plata, sem setur nýja staðla fyrir íslenskt rapp. Góða ferð! Tónlist Staf eftir staf, blað eftir blað Bent & 7Berg Góða ferð Hitt/Edda Góða ferð er fyrsta plata Bents og 7Berg. Lög eftir Tryggva, Nec, Palla Pth, DJ Gummo, Gulla og Sadjei. Textar eftir Bent og 7Berg en auk þess eiga Dóri DNA, Class B, Offbeat og Eyedea inn- slög. Gunnlaugur Már Pétursson leikur á gítar og Frosti Klink leikur á trommur. Plötuklór eftir DJ Paranoya. Upp- tökustjórn, hljóðblöndun og hljómjöfnun var í höndum Finns Hákonarsonar. Palli Pth og Sadjei stjórnuðu þó upptökum á sínu laginu hvor og Fiat og Sadjei hljóð- blönduðu einnig sitt lagið hvor. Fiat end- urútsetti þá eitt lag. Arnar Eggert Thoroddsen alltaf á föstudögum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.