Morgunblaðið - 19.11.2002, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SAMKVÆMT samningum sem
nú hafa verið gerðir um sölu á salt-
síld lækkaði verð á henni að jafn-
aði um 10% frá því á síðasta ári.
Útflutningsverðmæti saltsíldar
var á síðasta ári um 940 milljónir
króna. Miðað við að sama magn
verði flutt út á yfirstandandi ári
má ætla að verðmætatapið nemi
nærri 100 milljónum króna. Á
fyrstu 9 mánuðum ársins 2002 er
búið að flytja út saltsíld fyrir um
793 milljónir króna.
Þrátt fyrir þokkalega spurn eft-
ir saltsíld á mörkuðum hefur verð
lækkað nokkuð frá því á síðasta
ári. SÍF hefur nú samið um sölu á
um 55 þúsund tunnum af saltsíld.
Að sögn Kristjáns Jóhannessonar
hjá SÍF orsakast verðlækkunin
einkum af nokkuð breyttum að-
stæðum í Noregi. Þar séu nú tölu-
verðar birgðir af freðsíld, auk þess
sem hráefnisverð til vinnslunnar
hafi lækkað og stærðarflokkum
verið breytt sem hafi bein áhrif á
saltsíldarframleiðslu hér á landi.
Þá hafi léleg síldveiði hér við land
gert það að verkum að kaupendur
séu nú varkárir gagnvart Íslend-
ingum, enda óvíst að takist að
framleiða upp í gerða samninga. Á
síðasta ári hafi til að mynda ekki
náðst að framleiða upp í nema 70%
af því sem samið var um.
Umbjóðendur SÍF hafa þegar
saltað síld í um 25 þúsund tunnur
það sem af er þessu ári og hafa
aldrei saltað jafnlítið miðað við
árstíma frá árinu 1980, að sögn
Kristjáns.
100 milljónum
minna fyrir síld
!
:
;
<
-:
,
5
OP53< ? C?
( +
Um 10% verðlækkun/14
NORSKA flugfélagið Braathens, sem hefur
frá ársbyrjun verið í eigu SAS, hefur óskað
eftir því að fá fleiri íslenska flugvirkja til
starfa, að því er fram kemur á vef Flug-
virkjafélags Íslands, flug.is. Fyrr á þessu
ári fóru sjö Íslendingar til Noregs að
tilstuðlan félagsins. Komu þá fulltrúar
Braathens til landsins og völdu úr hópi um-
sækjenda.
Haft er eftir einum Íslendinganna, Davíð
Aroni Guðnasyni, að til standi að ráða fleiri
flugvirkja hjá Braathens strax eftir áramót
og að íslenskir starfskraftar séu þar ofar-
lega á óskalistanum. Aðallega er verið að
leita eftir flugvirkjum með sveinspróf og
réttindi en ekki er talið útilokað að ráðnir
verði menn nýkomnir úr skóla og með litla
sem enga reynslu.
Morgunblaðið/Þorkell
Braathens
vill fleiri
flugvirkja
KVIKMYNDAUNNENDUR í
miðborg Reykjavíkur þurfa ekki
að óttast að síðasta vígi þeirra,
Regnboginn, falli því breytingar
standa yfir á bíóinu, sem miðast
að því að færa það í nútímalegra
horf og þægilegra. Sölunum
fjórum verður breytt og anddyr-
ið fær andlitslyftingu.
„Fyrst og fremst verður skipt
um öll sæti og sett eins sæti og í
Smárabíói,“ segir Karl Schiöth,
dreifingarstjóri kvikmynda hjá
Norðurljósum.
Betri sæti
Hægt er að halla nýju sæt-
unum aftur og jafnframt verður
bilið milli sætaraðanna breikkað
í 110 sentimetra líkt og í Smár-
anum, að sögn Karls. Einnig
verður skipt um veggklæðning-
ar og sýningartjöld og komið er
Dolby Digital-hljóðkerfi í alla
sali. Sætum fækkar talsvert.
„Eins og í sal eitt erum við að
fækka um rúmlega 100 sæti,
sem fer beint í aukin þægindi.
Fyrsti bekkur verður hvergi
eins framarlega og var. Ég held
að það verði gott að sitja í öllum
sætum,“ segir Karl og bætir því
við að Regnboginn sé aldeilis
ekki á leið úr miðbænum.
Breytingum er lokið á sal
fjögur og er hann kominn í
gagnið. „Hann var opnaður á
miðvikudaginn. Salur eitt er
hins vegar lokaður núna en
verður opnaður aftur þegar nýja
James Bond-myndin verður
frumsýnd 29. nóvember,“ segir
Karl og bætir við að þá verði
breytingum í anddyri einnig lok-
ið. Um miðjan desember verður
síðan vinnu við sali tvö og þrjú
lokið.
Regnbog-
inn verður
áfram á
sínum stað
ÞAÐ var handagangur í öskjunni
þegar þeir Kristinn Sigmundsson
óperusöngvari og Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari árituðu
geislaplötuna sína „Uppáhalds-
lögin“ eftir útgáfutónleika sem
þeir héldu í Salnum í Kópavogi í
gærkvöldi fyrir troðfullum sal. Á
diskinum eru lög sem Jónas og
Kristinn hafa flutt á tónleikum í
gegnum árin en Kristinn segir að
þeir félagar hafi byrjað að vinna
saman fyrir um tuttugu árum.
„Við erum orðnir eins og fimm-
tug hjón,“ segir hann og hlær.
„Við höfum unnið vel saman og
það hefur aldrei borið neinn
skugga á það samstarf.“
Kristinn segir að tónleikarnir
hafi gengið að óskum og áhorf-
endur hafi tekið tónlistinni vel.
„Það er voða gaman að geta sung-
ið þessi lög hér heima. Þetta er
fólkið mitt, það er allt að því fjöl-
skyldustemmning þegar maður
syngur hér heima,“ segir Krist-
inn. Hann hefur í nógu að snúast
um þessar mundir og segir hann
því miður ekki tíma fyrir aðra tón-
leika til að kynna Uppáhaldslög.
Kristinn syngur um þessar
mundir í Meistarasöngvurunum
frá Nürnberg í Konunglegu óp-
erunni í Covent Garden í Bret-
landi og hlutverk Don Basilos í
Rakaranum í Sevilla í Íslensku óp-
erunni.
Morgunblaðið/Golli
Kristinn segir þá félaga vera orðna eins og fimmtug hjón eftir tuttugu ára samstarf í tónlistinni.
Allt að því fjölskyldustemmn-
ing að syngja hér heima
FORSALA hefst á föstudaginn á
heimsfrumsýningu Turnanna
tveggja, annarrar myndarnnar, sem
gerð er eftir Hringadróttinssögu
J.R.R. Tolkiens. Myndin verður for-
sýnd í fimm kvikmyndahúsum í
Reykjavík og á Akureyri, Laug-
arásbíói, Smárabíói, Regnboganum,
Kringlubíói og Borgarbíói, miðviku-
daginn 18. desember klukkan 20. Er
það sami dagur og hún verður frum-
sýnd í Bandaríkjunum.
Þetta er helsta tækifæri aðdáenda
Fróða og félaga til að sjá Turnana
tvo fyrir jól en myndin verður frum-
sýnd annan í jólum.
Turnarnir
forsýndir
Hringadróttinssaga/57
GUÐJÓN Hjörleifsson, fyrrverandi
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur
sagt sig úr uppstillingarnefnd Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi þar
sem hann kemur, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins, til greina í
eitt af efstu sætum listans í kjör-
dæminu. Uppstillingarnefndin á að
skila tillögum sínum til kjördæmis-
ráðs flokksins laugardaginn 30. nóv-
ember.
Um tuttugu manns taka þátt í að
velja á lista flokksins í hinu nýja Suð-
urkjördæmi, sem er samansett úr
gamla Suðurlandskjördæminu, hluta
af Reykjaneskjördæmi og hluta af
Austurlandskjördæmi. Árni Johnsen
hefur til margra ára verið fulltrúi
Vestmannaeyinga á þingi og hafa
Eyjamenn gert kröfu til þess að eiga
fulltrúa ofarlega á framboðslistanum.
Uppstillingarnefnd fundaði á
Kirkjubæjarklaustri á laugardaginn
var og mun nefndin halda störfum
sínum áfram í Þorlákshöfn næsta
laugardag. Nefndin skilar kjördæm-
isráði tillögu að framboðslista í fé-
lagsheimilinu Stapa í Njarðvík 30.
nóvember næstkomandi. Þar mun
kjördæmisráð, sem á annað hundrað
manns eiga sæti í, greiða atkvæði um
tillögur nefndarinnar.
Guðjón kemur til greina í
eitt af efstu sætum D-listans
Segir sig úr upp-
stillingarnefnd
GUÐNI Boltonsson er heitið á nýju mynd-
bandi sem gert hefur verið um Guðna
Bergsson, fyrirliða enska knattspyrnuliðs-
ins Bolton Wanderers. Myndbandið, sem er
80 mínútna langt, verður frumsýnt í hátíð-
arsal á Reebok-leikvanginum í Bolton í
kvöld. Aðgangseyririnn, sex pund eða um
800 krónur, rennur til góðgerðarstarfsemi.
Peter Smith, kynnir hjá sjónvarpsstöð
Bolton Wanderers, Touchline TV, hefur
unnið að gerð myndarinnar síðan í apríl.
Hann segir í samtali á heimasíðu félagsins
að margt forvitnilegt sé að finna í mynd-
inni, meðal annars magnað mark sem
Guðni hafi skorað meðan hann lék á Ís-
landi. „Það hafa fáir knattspyrnumenn í
dag leikið í átta ár með sama félaginu.
Guðni er nútíma goðsögn hjá Bolton og við
töldum að það væri svo sannarlega þess
virði að gera þetta myndband. Við vildum
framleiða eitthvað alveg sérstakt í vetur
og nú geta stuðningsmenn Bolton eignast
magnaða heimild um þennan frábæra leik-
mann,“ segir Smith.
„Guðni Bolt-
onsson“ frum-
sýnd í kvöld
♦ ♦ ♦