Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla dagaSími 588 1200
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í
gær að í undirbúningi væri gerð frumvarps sem
heimilaði ríkinu að framselja til Landsvirkjunar
vatnsréttindin í afréttum Árnessýslu. Kvaðst hann
vonast til þess að geta lagt fram frumvarp þessa
efnis fram á Alþingi að loknu jólahléi þess. Eins og
kunnugt er komst óbyggðanefnd að þeirri niður-
stöðu í mars sl. að Landsvirkjun teldist ekki eigandi
landsréttinda, þar með talin vatnsréttindi, innan
þjóðlendunnar í uppsveitum Árnessýslu. Ríkissjóð-
ur væri aftur á móti handhafi þeirra.
Fyrirspurn á þingi um stefnuna
Svanfríður Jónasdóttir, þingmaður Samfylking-
arinnar, kvaddi sér hljóðs um þetta mál á Alþingi í
gær og spurði forsætisráðherra m.a. að því hver
stefna ríkisstjórnarinnar væri varðandi meðferð
vatnsréttinda á Þjórsársvæðinu eftir að óbyggða-
nefnd hefði úrskurðað að þau væru eign ríkisins en
ekki Landsvirkjunar eins og talið var.
Forsætisráðherra sagði til þess að líta „að eign-
arhald ríkisins í fyrirtækinu hefur ásamt öðru
byggst á framsali þessara réttinda til fyrirtækisins
skv. sameignarsamningi ríkisins og Reykjavíkur-
borgar frá 1. júlí 1965.“ Ráðherra sagði að meðeig-
endur ríkisins að Landsvirkjun, Reykjavíkurborg
og Akureyrarbær, hefðu hins vegar lagt á það
áherslu að óbreytt réttarstaða fyrirtækisins yrði að
gengnum úrskurði óbyggðanefndar ekki að fullu
tryggð nema ríkinu yrði með lögum heimilað að
framselja Landsvirkjun þau réttindi, sem samning-
urinn frá 1965 tók til.
Landsvirkjun skaðast ekki
„Hafa bæði borgarstjórinn í Reykjavík og bæj-
arstjórinn á Akureyri staðfest þá afstöðu bréflega
og beint því til ríkisstjórnarinnar að hún beiti sér
fyrir lagasetningu í þessa veru. Í ljósi þessarar af-
stöðu meðeigendanna hef ég látið hefja undirbún-
ing að gerð frumvarps þar að lútandi enda get ég út
af fyrir sig tekið undir að það sé nauðsynlegt ef lagt
er til grundvallar að í samningnum frá 1965 hafi átt
að felast bein eignayfirfærsla þessara réttinda í
hefðbundnum einkaeignarréttarlegum skilningi.“
Ráðherra sagði að lokum að aðalatriði málsins
væri að Landsvirkjun biði ekki skaða af þeirri nið-
urstöðu sem fengist hefði með fyrrgreindum úr-
skurði óbyggðanefndar.
Vatnsréttindi verði fram-
seld til Landsvirkjunar
ÞAÐ var í byrjun síðustu ald-
ar sem Gnúpverjahreppur og
nágrannahreppar seldu
Fossafélaginu Títan, sem Ein-
ar Benediktsson stofnaði,
ásamt fleirum, vatnsréttindi
sín í Þjórsá og Tungnaá. Árið
1952 voru þau seld íslenska
ríkinu og við stofnun Lands-
virkjunar árið 1965 voru
þessi lands- og vatnsréttindi ríkisins lögð til af
hálfu ríkisins á móti framlagi Reykjavík-
urborgar.
Á fyrri hluta þessa árs komst óbyggðanefnd
hins vegar að því að réttindin væru í eigu rík-
isins en ekki Landsvirkjunar þar sem Gnúp-
verjahreppur hafi ekki átt réttindin þegar þau
voru seld. Búfjáreigendur hafi haft hefðbund-
inn afnotarétt af svæðunum en ekki getað talist
eigendur þeirra.
Áttu ekki réttindin
sem þeir seldu
JÓN Baldvin – Tilhugalíf er sölu-
hæsta bókin á Íslandi vikuna 3. til 9.
desember, samkvæmt samantekt
Félagsvísindastofnunar. Kolbrún
Bergþórsdóttir skráði.
Skáldsaga Arnaldar Indriða-
sonar, Röddin, er í öðru sæti og
Sonja eftir Reyni Traustason í því
þriðja. Ísland í aldanna rás – 20.
öldin (1976–2000) er í fjórða sæti og
Útkall – Geysir er horfinn eftir Ótt-
ar Sveinsson í því fimmta.
Á listanum yfir íslensk og þýdd
skáldverk er Röddin í efsta sæti, þá
kemur Stolið frá höfundi stafrófs-
ins eftir Davíð Oddsson og Nafn-
lausir vegir eftir Einar Má Guð-
mundsson er í þriðja sæti.
<= .A $ AC!$
$02'
A 6 $# :
;
3A@ $! E$
=! $AD!9!+B
!
#A<3$ . !
! $AF8D>!
Tilhugalíf
söluhæst
Bókasala/32
ALUR álvinnsla ehf. mun byggja upp verksmiðju
sína í Helguvík í Reykjanesbæ. Þátttaka fjárfesta
á svæðinu átti þátt í að henni var valinn staður þar.
Frumkvöðlar fyrirtækisins, Helgi Þór Ingason
og Þorsteinn I. Sigfússon, hafa verið að þróa við-
skiptahugmynd sem byggist á því að vinna ál úr
álgjalli sem fellur til í álverunum í Straumsvík og á
Grundartanga. Álverin hafa til þessa flutt álgjallið
út til endurvinnslu. Einnig er fyrirhugað að end-
urvinna brotaál sem safnað er hérlendis. Við
vinnsluna verður notaður brennsluofn með tækni
sem þróuð hefur verið í Evrópu en hún er talin um-
hverfisvænni en sú tækni sem notuð hefur verið.
Fyrirtækið verður fyrsta innlenda meginstarf-
semin sem leiðir af álframleiðslu hér á landi.
Fjárfesta í fyrirtækinu
Forystumenn í bæjarstjórn Reykjanesbæjar
buðu fram aðstöðu fyrir álvinnsluna á iðnaðar-
svæðinu í Helguvík og tóku þátt í að kynna við-
skiptahugmyndina fyrir fjárfestum á svæðinu sem
ákváðu að leggja fram hlutafé. Það varð til þess að
frumkvöðlarnir völdu Helguvík.
Helgi Þór Ingason vonast til að gengið verði frá
öllum samningum á næstu vikum þannig að hægt
verði að hefja framleiðslu næsta haust.
Álvinnsla í
Helguvík
Álgjall/24
FÉLAGAR í Félagi heyrnarlausra hér á landi
fjölmenntu á þingpallana á Alþingi í gær til að
fylgjast með umræðum um réttindi heyrn-
arlausra. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, vakti
athygli á málefnum heyrnarlausra í fyrirspurn-
artíma. Í máli Tómasar Inga Olrich mennta-
málaráðherra kom m.a. fram að í dag yrði hald-
inn fundur með fulltrúum Ríkisútvarpsins um
möguleika þess að íslenskt sjónvarpsefni verði
textað. „Ég hef einsett mér að beita mér fyrir
þessu máli,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Túlkar mættu á Alþingi í gær til að þýða umræðuna fyrir félaga úr Félagi heyrnarlausra sem fjölmenntu á þingpalla við umræðuna.
Fundur um textun
íslensks sjónvarpsefnis
Álitamál/10
NÝTT öryggis- og sprengjuleit-
arkerfi vegna sprengjuleitar í
farangri verður tekið í notkun í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar um
næstu áramót. Mun þetta einn
fullkomnasti öryggisbúnaður af
þessu tagi sem völ er á í heim-
inum.
Búnaðurinn, sem kostar um
210 milljónir kr., er hálfsjálf-
virkur og tengdur gegnumlýs-
ingarvél sem skynjar sjálf far-
angur sem þarfnast frekari
skoðunar vegna öryggiseftirlits
á flugvellinum.
Einnig hefur verið tekin í
notkun á flugvellinum sérhönn-
uð bifreið af gerðinni Mercedes-
Benz sem búin er sérstakri
gegnumlýsingarvél vegna leitar
í vöru- og póstsendingum sem
fara um flugvöllinn.
Hið nýja öryggiskerfi var
kynnt í gær og við það tækifæri
undirritaði Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra endurskoð-
aða neyðaráætlun fyrir flugvöll-
inn. Þar er m.a. að finna nýja
viðbragðsáætlun vegna
sprengjuhótana, flugrána og
mögulegra sýklavopna.
Nýr sprengjuleitarbúnaður í notkun í flugstöðinni
Fullkomið öryggiskerfi
Getur/37
NOTAST á við þrjár
aðferðir við að koma
Guðrúnu Gísladótt-
ur, sem liggur á
hafsbotni undan
ströndum Noregs,
aftur á flot. Nota á tanka, belgi og loft til að
lyfta skipinu. Stefnt er að því að það verði
komið til hafnar fyrir jól.
Um borð í skipinu er farmur sem lýst hef-
ur verið sem einum verðmætasta farmi Ís-
landssögunnar, 870 tonn af frystum síldar-
flökum, sem talið er að séu óskemmd.
Að sögn Hauks Guðmundssonar, eiganda
Íshúss Njarðvíkur, sem hefur keypt skipið,
kemur á fjórða tug manna að aðgerðinni.
Vona að síldin um
borð sé óskemmd
Flak Guðrúnar Gísladóttur
Flókin aðgerð/36