Morgunblaðið - 17.12.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.12.2002, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 295. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 mbl.is Hrein perla og þarfaþing Tónlistarsagan Beethoven í bréfum og brotum ritdæmd Listir 34 Norræna húsið opið og sterkt Riitta Heinämaa forstjóri kveður eftir fimm ára starf Miðopna SLOBODAN Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, ber höfuðábyrgð á þjóðernis- hreinsunum Serba í Bosníu-Herzegóvínu á meðan á Bosníustríðinu stóð 1992–1995. Þessu lýs- ir Biljana Plavsic, sem var um hríð forseti lýðveldis Bosníu-Serba, yfir í skrif- legri játningu vegna ákæru fyrir stríðsglæpa- dómstóli Sameinuðu þjóð- anna í Hollandi um aðild að ofsóknum gegn músl- ímum og Króötum í Bosn- íu. Plavsic kom fyrir rétt í gær en vitna- leiðslum í máli hennar lýkur í vikunni. Plavsic, sem er 72 ára gömul, er fyrsta konan sem kemur fyrir stríðsglæpadóm- stólinn. Hún er jafnframt hæst setti leiðtog- inn frá fyrrverandi lýðveldum Júgóslavíu sem gengist hefur við ábyrgð á atburðum sem áttu sér stað á Balkanskaga 1991–1995. Yfirlýsingar Plavsic gætu reynst sak- sóknurum í réttarhöldunum yfir Milosevic mikilvægar. Hún hefur hins vegar sagt að hún muni ekki bera vitni gegn Milosevic. Plavsic segir Milosevic ábyrgan Haag. AFP. Biljana Plavsic AÐ minnsta kosti 48 fórust þegar ferju hvolfdi í Afríkuríkinu Líberíu sl. laugardag. Meira en eitt hundrað manns er enn saknað og er óttast um afdrif fólksins. Um 200 manns voru um borð í ferjunni, mun fleiri en henni var heimilt að flytja, er hún fór á hliðina á ánni Mofa. Búið er að finna 48 lík en aðeins 15 hefur verið bjargað á land. „Ég held að við getum ekki gert ráð fyrir að finna fleiri á lífi,“ sagði Daniel Chea, varnarmálaráðherra Líberíu, í gær. Atburðurinn átti sér stað um 80 km norð- vestur af Monróvíu, höfuðborg Líberíu. Chea sagði orsök slyssins líklega þá hversu margir voru um borð í ferjunni. Meira en 1.100 manns biðu bana í Senegal í svipuðu atviki í september á þessu ári. Tugir manna fórust í Líberíu Monróvíu. AP. HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra kannast við hugmyndir innan Evrópusam- bandsins, ESB, um að Tyrkland fái mögulega aðild að samningnum um Evrópska efnahags- svæðið, EES. Embættismenn hafi viðrað þessar hugmyndir á leiðtogafundi ESB í Kaupmanna- höfn í síðustu viku með vísan til nýlegrar ræðu forseta framkvæmdastjórnar ESB, Romanos Prodis, um að EES geti hentað þeim ríkjum sem vilja dýpka samband sitt við ESB. Halldór segir hugmyndir sem þessar sýna vanþekkingu á eðli Evrópska efnahagssvæðisins. Ræðuna flutti Prodi á fundi í Brussel í byrjun mánaðarins þar sem hann gerði samskipti ESB við nágrannaríki sín að aflokinni stækkun sam- bandsins að umtalsefni. Á leiðtogafundinum í Kaupmannahöfn var sem kunnugt er ákveðið að fresta ákvörðun um hvort hefja skyldi aðildar- viðræður við Tyrki. Ræddi Prodi m.a. hvernig ríki sem hugsanlega vildu gerast aðilar að ESB á síðari stigum gætu þróað samskiptin á sem bestan hátt. Nefndi hann ekki Tyrki á nafn í þessari ræðu heldur tók dæmi af löndum eins og Úkraínu, Moldóvu og Hvíta-Rússlandi. ESB ætti að vera tilbúið að bjóða löndunum upp á ákveðna nálægð í samskiptum sem ákvarðaði fyrirfram að full aðild yrði til umræðu. Prodi gerði því skóna í ræðu sinni að rétt væri að ríki, sem ekki ættu aðild að ESB, en vildu dýpka samband sitt við ESB, horfðu til EES-samn- ingsins sem þrjú EFTA-ríki, Noregur, Ísland og Liechtenstein, hefðu gert við ESB. Halldór Ásgrímsson segir þessar hugmyndir innan Evrópusambandsins ekki hafa komið til tals meðal EFTA-ríkjanna. Þær sýni hins vegar vel hve margt sé á lofti í tengslum við framtíð EES. Halldór sér ekki hvað þessar hugmyndir eigi að leysa varðandi hugsanlega aðild Tyrkja að Evrópusambandinu. „Við verðum varir við það í vaxandi mæli að EES-samningurinn er lítt þekktur og upp kem- ur ítrekað að aðilar hafa ekki miklar áhyggjur af því að brjóta ýmis ákvæði hans. Við þurfum að vera vel á varðbergi og undirbúa okkur fyrir framtíðina. Alltaf erum við að lenda í meiri og meiri vörn með þann samning sem við gerðum.“ Hugmyndir innan ESB um að Tyrkir fái aðild að EES Sýnir vanþekkingu á eðli EES, að mati Hall- dórs Ásgrímssonar  Vill að/10 HELGILEIKURINN Bjartasta stjarnan eftir Benedicte Riis var sýndur í Grafarvogskirkju í gær en nemendur Korpuskóla tóku þátt í sýn- ingunni ásamt kennurum auk annars starfsfólks. Hópurinn æfði helgileikinn í leikstjórn Anne Sofie Kjeldsen, dönsku-, ensku- og tónmennta- kennara við Korpuskóla. Um 170 nemendur eru við skólann og allir í einhverju hlutverki. Leikn- um var vel tekið og er ekki ofsögum sagt að Bjartasta stjarnan sé í Korpuskóla. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Bjartasta stjarnan í Korpuskóla SETTUR umhverfisráðherra, Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, segist í samtali við Morgunblaðið ekki ná því að úrskurða um um- hverfisáhrif af Norðlingaölduveitu í þessari viku eins og að hafi verið stefnt. Enn sé dálítið í land í þeirri vinnu sem embættismenn í heil- brigðisráðuneytinu og sérstakir ráðgjafar hafi tekið að sér. Jón segir að skoða þurfi vandlega allar hliðar málsins, en sem kunn- ugt er lýsti Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra sig vanhæfa, vegna fyrri ummæla um Þjórsárver, þegar kærur bárust ráðherra vegna úr- skurðar Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Norðlinga- ölduveitu. Jón segir að þessi vinna hafi tek- ið lengri tíma en hann hafi átt von á, vanda þurfi til verka og ljóst sé að úrskurðurinn komi ekki í þessari viku. Fáir vinnudagar eru milli jóla og nýárs en Jón vill á þessu stigi ekki fullyrða um hvort málið frest- ist fram yfir áramót. Vinnan verði áfram í fullum gangi. Úrskurður um Norð- lingaöldu- veitu dregst BASHAR al-Assad, forseti Sýrlands, (t.h.) fundaði með Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, í London í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem sýrlenskur forseti heimsækir Bretland en Blair heimsótti Sýrland hins vegar í fyrra og deildu leiðtogarnir tveir nokkuð harka- lega þá. Assad sagðist í gær vongóður um að komast mætti hjá stríði í Írak. AP Sýrlandsforseti hitti Tony Blair  Bjartsýnn/18 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ UM 23 þúsund manns eru í vanskil- um með lífeyrisiðgjald til lífeyris- sjóða vegna tekna síðasta árs. Um helmingurinn er einstaklingar með eigin atvinnurekstur. Meðalvanskil eru um 79 þúsund krónur, en margir skulda nokkur hundruð þúsund. Eftir að lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda tóku gildi árið 1998 hefur eftirlit verið hert með því að allir 16–70 ára launþegar greiði af launum sínum iðgjald í lífeyrissjóð. Um 23.000 í vanskilum  23 þúsund/4 Kristín Rós sigursæl í Argentínu Íþróttir 9 Nú er það jólasteikin heima á Fróni ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.