Morgunblaðið - 17.12.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í SAMGÖNGUÁÆTLUN til tólf
ára, þ.e. fyrir árin 2003 til 2014, sem
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra hefur lagt fram á Alþingi, er
gert ráð fyrir því að um 240 millj-
arðar fari í samgöngumál á tíma-
bilinu. Áætluninni er skipt niður í
þrjú fjögurra ára tímabil. Þannig er
t.d. gert ráð fyrir því að tæplega 80
milljarðar fari til samgöngumála á
hverju þessara tímabila. Þar af er
framlag til vegamála mest, en gert er
ráð fyrir því að um 55 til 57 millj-
arðar fari til þess málaflokks á
hverju tímabili, eða samtals um 162
milljarðar á tólf árum. Hluti þessara
fjármuna eru markaðir tekjustofnar.
Áætlunin tekur til flugs, siglinga
og landssamgangna og er m.a. lögð
fram á grundvelli nýrra laga um
samgönguáætlun. Í henni er grunn-
net samgangna skilgreint, gerð er
grein fyrir áherslum og markmiðum
tímabilsins, fjármálum og helstu
framkvæmdum næstu tólf ára.
Uppbygging vega yfir hálendið
Í áætluninni kemur m.a. fram að
stefnt sé að því að hefja uppbygg-
ingu helstu landsvega yfir hálendið á
tímabilinu, þ.e. Sprengisandsleiðar,
Kjalvegar, Fjallabaksleiðar nyrðri
og Kaldadalsvegar.
Einnig kemur fram í áætluninni að
skv. því fjármagni sem gert er ráð
fyrir að fari til samgöngumála á
tímabilinu eigi að vera hægt að ljúka
þeim verkefnum sem ákveðin eru í
jarðgangaáætlun, þ.e. jarðgöngum
milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og
jarðgöngum milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar.
Þá er stefnt að því að ljúka við
endurbyggingu vegar milli Reyðar-
fjarðar og Eskifjarðar í tengslum við
fyrirhugað álver í Reyðarfirði.
Meðal þeirra framkvæmda sem
stefnt er að því að hefja á fyrsta
tímabili áætlunarinnar, þ.e. frá 2003
til 2006, er gerð mislægra gatnamóta
Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar og að Hringbraut verði færð
frá Miklatorgi að Sóleyjargötu.
Einnig er lagt til að framkvæmdir
við Sundabraut hefjist á fyrsta tíma-
bilinu en þær verði fjármagnaðar að
einhverju leyti með lántökum þannig
að unnt verði að dreifa greiðslum á
lengri tíma.
Þá er lagt til að tvöföldun Reykja-
nesbrautar milli Hafnarfjarðar og
Keflavíkur hefjist á fyrsta tímabilinu
og haldi síðan áfram út áætlunartím-
ann. Auk þess er lagt til að lokið
verði við brú á Þjórsá á fyrsta tíma-
bilinu sem og vegagerð um hana.
Samgönguáætlun til ársins 2014 lögð fram á Alþingi
240 milljarðar til
samgöngumála
ÞAÐ er í mörgu að snúast fyrir jól-
in og ljóst að allir sem vettlingi geta
valdið hafa eitthvað að gera. Með-
limir Hjálparsveitar skáta í Kópa-
vogi notuðu helgina til að pakka
flugeldum og kunnu Árni Jónsson
og Bryndís Ósk Pálsdóttir, sem eru
fremst á myndinni, vel til verka.
Segja má að eitt taki við af öðru hjá
neytendum.
Morgunblaðið/Vilhelm Gunnarsson
Flugeldunum pakkað
HELGI Jóhannesson, formaður
stjórnar Sambands garðyrkjubænda,
segir að stofnun Græns ehf. breyti
litlu varðandi starfsskilyrði bænda og
grænmetismarkaðinn nema hvað
kaupendum fækki um einn og þeir
verði þrír framvegis. Þeir eru, auk
Græns, Búr og Mata ehf.
Hann segir að út af fyrir sig sé það
áhyggjuefni að þrýstingur á fram-
leiðendur um betri kjör sé að aukast
frá kaupendum en viðbrögð framleið-
enda verði væntanlega þau að halda
betur utan um afurðasöluna.
Aðalbreytingin á árinu sé eftir sem
áður þegar tollar voru afnumdir af
grænmeti. Nú ráði heimsmarkaður-
inn verðinu. Þá hafi breytingar verið
gerðar á sölukerfi grænmetisbænda
þegar Fengur seldi Sölufélag garð-
yrkjumanna í haust til hóps bænda
en hið nýja fyrirtæki býður eingöngu
upp á íslenskt grænmeti.
„Það segir sig sjálft að eftir því
sem kaupendum fækkar þá styrkja
þeir stöðu sína og stór kaupandi get-
ur gert meiri kröfur en lítill um verð
og afslætti. Þannig að pressan verður
þá meiri á framleiðendur,“ segir
Helgi.
Baugur Group hf. og Eignarhalds-
félagið Fengur hf. munu eiga jafnan
hlut í Grænu ehf., 50% hvort, en í eigu
þess verða tvö heildsölufyrirtæki á
grænmetis- og ávaxtamarkaði, Ban-
anar ehf. og Ávaxtahúsið, Nýtt og
ferskt ehf.
Að sögn Helga hefur stjórn Sam-
bands garðyrkjubænda ekki fjallað
sérstaklega um málið en Helgi segir
að garðyrkjubændur séu sammála
um að í sjálfu sér gefi samruninn ekki
tilefni til neinna aðgerða af hálfu
þeirra.
„Ég heyri á bændum að þetta
breyti ekki miklu um okkar starfs-
skilyrði, miðað við hvernig staðan var
orðin,“ segir hann.
Samband garðyrkjubænda um stofnun Græns ehf.
Lítil áhrif á græn-
metismarkaðinn
INGIMAR Jónsson, forstjóri versl-
anakeðjunnar Kaupáss, sem er með-
al aðaleigenda Búrs hf., segir að það
hafi í sjálfu sér ekki komið á óvart að
samkeppnisráð hafi heimilað sam-
runa Ávaxtahússins, Banana og Nýs
og fersks ehf. í eitt fyrirtæki, Grænt
ehf.
Eigendur nýja fyrirtækisins,
Baugur og Fengur, sem er aðaleig-
andi Banana, hafi haft tengsl með því
að reka saman Ávaxtahúsið, sem er
ávaxta- og grænmetislager Baugs.
Sú staða hafi m.a. gert það að verk-
um að Kaupás hafi ekki lengur séð
sér fært að eiga viðskipti við Banana.
Því hafi fyrirtækið tekið þátt í stofn-
un ávaxta- og grænmetisdeildar
Búrs í byrjun októbers síðastliðins.
Frá þeim tíma hafi verð á þessum
vörum til neytenda lækkað enn frek-
ar.
Ingimar bendir á að samkvæmt
opinberum gögnum hafi Mata og
Bananar haft samráð á grænmetis-
markaðnum. Um nokkurn tíma hafi
fákeppni myndast í heildsölu á
grænmeti og ávöxtum. Út úr því
mynstri hafi Kaupás viljað komast.
„Við vildum brjótast undan því oki
sem var hreinlega í þessum viðskipt-
um. Síðan er ansi hart að heyra for-
svarsmenn Mata tala um það núna
að nú sé að verða til einhver fákeppni
á þessum markaði. Fákeppni hefur
verið til staðar og af þeim sökum
réðumst við í innflutninginn til að
geta verið samkeppnisfærir í ávöxt-
um og grænmeti. Enda sýnir það sig
að frá því að Búr hóf þennan inn-
flutning hefur verð á þessum vörum
lækkað,“ segir Ingimar en þess skal
getið að Kaupás rekur verslanir
Nóatúns, 11-11 og Krónunnar.
Aðspurður hvort Búr ætli að halda
áfram þessum innflutningi segir
Ingimar að svo verði, enda séu menn
ánægðir með hvernig til hafi tekist.
Forstjóri Kaupáss um grænmetismarkaðinn
Fákeppni leiddi til
innflutnings Búrs
EINAR Oddur Kristjánsson alþing-
ismaður er bjartsýnn á að sátt muni
nást um ágreiningsatriði í raforku-
lagafrumvarpi iðnaðarráðherra.
Bráðabirgðaákvæði frumvarpsins
kveða á um að nefnd verði falið að
komast að niðurstöðu um deiluatrið-
in fyrir lok næsta árs.
„Við höfum deilt mjög harkalega
um þetta og það hefur verið ákveðið
að taka deilumálin frá og reyna að
leita lausna á þeim. Ég hlýt að vera
bjartsýnn á að okkur takist það.“
Einar Oddur leggur áherslu á að
skýrt verði hvernig jöfnun á raforku-
kostnaði verði háttað og hún verði á
sem breiðustum grunni. Hins vegar
verði rekstraröryggis gætt í hinum
dreifðu byggðum þar sem vitað er að
engri samkeppni verður við komið.
Einar Oddur um raforkufrumvarpið
Bjartsýnn á að
lausn verði fundin