Morgunblaðið - 17.12.2002, Side 20

Morgunblaðið - 17.12.2002, Side 20
ERLENT 20 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Skráning hlutabréfa Tækifæris hf. Útgefandi Tækifæri hf., kt. 631299-2299, Strandgötu 3, 600 Akureyri, sími 460 4700. Heildarnafnverð hlutafjár Þann 23. desember 2002 verður allt útgefið hlutafé Tækifæris hf., 542.857.872 kr. að nafnverði, skráð á Tilboðsmarkaði Kauphallar Íslands hf., að uppfylltum þeim skilyrðum sem Kauphöllin setur. Auðkenni hlutabréfa félagsins er TF. Viðskiptavakt Gengið hefur verið frá samningi við Íslensk verðbréf hf. um viðskiptavakt með hlutabréf Tækifæris hf., svo sem reglur um skráningu verðbréfa á Tilboðsmarkað Kauphallar Íslands hf. kveða á um. Milliganga við skráningu Íslensk verðbréf hf., kt. 610587-1519, Strandgötu 3, 600 Akureyri. Upplýsingar og gögn Skráningarlýsingu og gögn sem vitnað er til í henni er hægt að nálgast á heimasvæði Tækifæris hf., www.iv.is eða hjá umsjónaraðila. Tækifæri hf. - Strandgötu 3 - 600 Akureyri - Sími 460 4700 - www.iv.is SPANIA Bancuta kom íheiminn fyrir þrem mán-uðum og hefur verið ein-sömul svo að segja alla sína stuttu ævi – síðan móðir hennar skildi hana eftir á barna- spítalanum í Búkarest í Rúmeníu og kom ekki aftur. En það kann að vera langt þangað til þessi litla sígaunastúlka fær að yfirgefa stál- grindarúmið sitt á stofu fimm. Líkt og á við um þúsundir ann- arra barna mega útlendingar ekki ættleiða Spaniu vegna tímabund- ins banns sem rúmensk stjórnvöld hafa sett og hefur vakið reiði hjá fólki á Vesturlöndum sem er að reyna að fá að ættleiða börn. Þá hefur bannið valdið hjálp- arstarfsfólki áhyggjum, því það telur að börnin séu nú dæmd til dvalar á munaðarleysingjahælum. Bannið var sett á í júní í fyrra eft- ir að Evrópusambandið (ESB) hélt því fram, að Rúmenía væri orðin að markaðstorgi með börn og myndi það torvelda landinu að fá aðild að sambandinu. Bannið varð til þess að ESB komst upp á kant við Bandaríkin, er tóku afstöðu með bandarískum, ísraelskum, spænskum og frönskum pörum sem voru að leita að börnum til að ættleiða. Breska barónessan Emma Nich- olson, sem er embættismaður hjá ESB og hefur gengið hvað harðast fram í því að reyna að fá Rúmena til að herða lög um ættleiðingar barna, segir að Rúmenía liggi vel við höggi mafíósa sem noti börn. Bandaríkjamenn myndu aldrei leyfa að bandarísk börn væru flutt til annarra landa með þeim hætti sem rúmensk börn væru, sagði Nicholson, og ættu Bandaríkja- menn því að sýna rúmenskum fjöl- skyldum sömu virðingu og sínum eigin. „Því lengur sem þeir draga það að setja lög um ættleiðingar til út- landa, því verra er það fyrir börn- in,“ sagði systir Mary Rose Christy, bandarísk nunna sem starfar í Rúmeníu. „Þetta bitnar á börnunum.“ Fátt af því sem komið hefur í ljós síðan kommúnisminn hrundi hefur vakið meiri hneykslun en slæmt hlutskipti yfirgefinna barna, sem er hvergi verra en í Rúmeníu. Einræðisherrann Nic- olae Ceausescu hafði bannað fóst- ureyðingar og getnaðarvarnir og fjölskyldur sem höfðu ekki efni á að sjá börnum sínum farborða settu þau í umsjá hins opinbera. ESB vill að ættleiðing til út- landa verði síðasti valkosturinn, eftir að fullreynt er með fóstur- heimili eða ættleiðingu innanlands. Allt skuli gert til að finna börn- unum góð heimili miðað við rúm- enskar aðstæður, sagði Nicholson. Bannið á að falla úr gildi í febrúar en mögulegt er að framlengja það ef nýju ættleiðingarlögin hafa ekki verið samþykkt. Ráðamenn í Rúmeníu hafa litla samúð með andstæðingum banns- ins. Forsetinn, Ion Iliescu, sagði í síðasta mánuði: „Bandaríkjamenn ættu að búa til sín eigin börn. Ef þeir vilja börn ættu þeir að fara til landa þar sem fæðingartíðni er há. Meginmarkmið okkar er að bæta hlutskipti allra barna í landinu.“ Rúmenskir embættismenn segja að flest þau 84 þúsund börn sem eru á framfæri hins opinbera séu ekki ættleiðingarhæf heldur búi á ríkisreknum stofnunum en for- eldrar þeirra heimsæki þau reglu- lega til þess að halda forræðinu. „Það var mikil spilling í ættleið- ingakerfinu,“ sagði Adrian Nast- ase forsætisráðherra. Áður en bannið var sett hefðu rúmensk ungbörn verið seld á Netinu fyrir allt að 50 þúsund dollara (um 4,3 milljónir króna) og ríkið hefði ekki átt neina lagalega möguleika á að skerast í leikinn. En lítil von er til þess að börn eins og Spania verði ættleidd í Rúmeníu, þar sem fordómar gagn- vart sígaunum eru djúpstæðir. Fé- lagsmálafulltrúinn Georgeta Ciob- anu er að reyna að hafa uppi á foreldrum Spaniu til þess að ganga úr skugga um hvort þeir vilji í raun og veru gefa hana endanlega frá sér. Á meðan foreldrarnir finnast ekki heimsækir Ciobanu Spaniu litlu reglulega og tekur hana í fangið. „Henni finnst gott að láta halda á sér,“ segir Ciobanu. Gott að láta halda á sér AP Sígaunastúlkan Spania í höndum hjúkrunarkonu í Búkarest. Fordómar gagnvart sígaunum eru miklir í Rúmeníu. ’ Það var mikilspilling í ættleið- ingakerfinu. ‘ Búkarest. AP. Bann við ætt- leiðingum rúm- enskra barna til útlanda veldur deilum PETER Foster, Ástralinn sem aðstoðaði Cherie Blair við að kaupa íbúðarhúsnæði nýverið, lýsti því í gær yfir að eiginkona forsætisráð- herrans breska hefði ekki komið að tilraun- um hans til að komast hjá því að verða vísað úr landi. Ásakanir hafa verið uppi um að Cherie hafi beitt áhrifum sínum til að hjálpa Foster, en hann segir nú að hún hafi aðeins veitt sér lögfræðileg- ar upplýsingar. Bað hann Blair- hjónin afsökunar á þeim ama sem tengsl Cherie við hann hefðu valdið þeim. Afganskar konur hafa það slæmt KONUR í Afganistan hafa það að mörgu leyti alveg jafnslæmt nú og í stjórnartíð talibana. Þetta eru niðurstöðar rann- sóknar, sem Human Rights Watch-samtökin kynntu í gær. Zama Coursen-Neff, sem gerði rannsóknina, sagði marga standa í þeirri trú að allt hefði breyst á einni nóttu við það að talibanar skyldu reknir frá völd- um; einkum og sér í lagi að staða kvenna væri nú önnur og betri. Þetta væri rangt, mann- réttindi væru enn brotin á kon- um víða í Afganistan. Lykketoft nýr leiðtogi DANSKIR jafnaðarmenn völdu á laugardag Mogens Lykketoft, fyrrverandi utanríkisráðherra, sem nýjan leiðtoga Jafnaðar- manna- flokksins en Poul Nyrup Rasmussen, fyrrverandi forsætisráð- herra, til- kynnti ný- verið um afsögn sína. Lykketoft varaði í ræðu, sem hann flutti á flokksþinginu um helgina, við of miklum skatta- lækkunum, en ríkisstjórn And- ers Fogh Rasmussen hefur þær á sinni stefnuskrá. Vandræði Lotts aukast VANDRÆÐI Trents Lotts, leiðtoga repúblikana í öldunga- deild Bandaríkjaþings, jukust um helgina en þá sagðist Don Nickles, næstáhrifamesti þing- maður repúblikana í öldunga- deildinni, hlynntur því að leið- togakjör færi fram áður en þing kemur saman að nýju. Kvaðst hann óttast að kjósendur sner- ust gegn Repúblikanaflokknum ef Lott gegndi áfram hlutverki leiðtoga þeirra í þinginu en Lott hefur verið hart gagnrýndur vegna ummæla sem hann lét falla í 100 ára afmæli þing- mannsins Stroms Thurmonds nýverið. Mátti túlka orð Lotts þar með þeim hætti að hann styddi aðskilnað svartra manna og hvítra í Bandaríkjunum. STUTT Cherie gerði ekkert rangt Peter Foster Mogens Lykketoft TILLÖGUR framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, ESB, í landbún- aðarmálum voru kynntar í gær en þær fela í sér, að útflutningsstyrkir verði lækkaðir um 45%, beinn stuðn- ingur við bændur um 55% og tollar lækkaðir um 36%. Franz Fischler, sem fer með land- búnaðarmál í framkvæmdastjórninni, kynnti tillögurnar en þær hafa verið lagðar fyrir Heimsviðskiptastofn- unina, WTO. Í þeim eru einnig til- teknar ráðstafanir til að hjálpa þróun- arríkjunum og þá einkanlega með því að fella niður kvóta á innflutningi landbúnaðarvara frá þeim fátækustu. Fischler lagði hins vegar áherslu á, að tillagan um minni niðurgreiðslur væri háð því, að önnur þróuð ríki færu eins að. Fischler sagði, að tillögurnar væru „raunhæfar“ og endurspegluðu þá stefnu ESB, sem samþykkt var í Doha í Qatar á síðasta ári, að ryðja burt öllum viðskiptahindrunum. Viðræður Heimsviðskiptastofnun- arinnar um aukið frelsi í viðskiptum með landbúnaðarafurðir eiga að hefj- ast fyrir mitt næsta ár. Hefur tillagna ESB verið beðið með eftirvæntingu þar sem flestir hafa þegar skilað inn sínum. ESB vill stórlækka niður- greiðslur Brussel. AFP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.