Morgunblaðið - 17.12.2002, Qupperneq 25
LITLU munaði að rússneskt fisk-
flutningaskip hafnaði í fjörunni í
Húsavíkurhöfn í gærmorgun.
Skipstjóri þess hugðist bakka
skipinu þegar það var á leið inn í
höfnina, en vél þess svaraði ekki.
Af þeim sökum hélt skipið áfram
ferð sinni og stefndi í átt að fjör-
unni við dráttarbrautina.
Stefán Stefánsson hafnarvörð-
ur sagði að hafnsögumaður sem
var um borð, hafi komið í veg fyr-
ir óðagot og lét skipverja setja út
akkeri sem hægði á ferð skipsins
og stöðvaði það loks. „Það var á
heldur mikilli ferð með suðvest-
anátt í bakið og það mátti litlu
muna að illa færi,“ sagði Stefán.
Engar skemmdir urðu á skip-
inu, sem flytur um 400 tonn af
frystum þorski úr Barentshafi.
Erindi skipsins til Húsavíkur var
að láta Fiskistofu taka út þorsk-
inn en skipið mun síðan losa
farminn á Raufarhöfn og Vopna-
firði.
Rússneskt
fiskflutninga-
skip í vanda
Húsavík
Rússneska fiskflutningaskipið við bryggju á Húsavík í gærmorgun.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sunnlenskir vísindastyrk-
ir afhentir í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Sig. Jónsson
Fjöldi gesta var við afhendingu vísindastyrkjanna sem veittir voru úr vísindasjóði Fræðslunets Suðurlands.
fellssýslu og mynda þær vatnajarð-
fræðilegan grunn að grunnvatnslík-
ani af svæðinu. Verkefnið hefur
mikla þýðingu fyrir Suðurland auk
almenns fræðilegs gildis og er dæmi
um gildi rannsókna þegar kemur að
ákvörðunum um landnýtingu.
Má þar nefna þátt grunnvatnsins
í áformum um vatnsaflsvirkjanir,
hvort sem er á svæðinu sjálfu eða
með veitingu vatns í Langasjó; þátt
grunnvatnsins í nokkrum gjöfulustu
sjóbirtingsám landsins; og þátt
grunnvatnsins í landgræðslu og
heftingu sandfoks auk áhrifa á
möguleika til skógræktar á svæð-
inu.
Stofnun tæknigarðs á Reykjum
Verkefni Þórhildar felur í sér
gerð viðskiptaáætlunar á grundvelli
hugmyndar um stofnun tæknigarðs,
fyrirtækis um byggingu og rekstur
húss á Reykjum í Ölfusi. Húsinu er
ætlað að hýsa frumkvöðla og ný-
sköpun á sviði líftækni, umhverf-
istækni, garðyrkjutækni og orku-
framleiðslu.
Verkefnið miðar að því að byggja
upp þekkingarsamfélag og efla
rannsóknar- og þróunarstarf á Suð-
urlandi, en viðskiptaáætlunin er í
raun athugun á því hversu raunhæf
slík áform eru og er sem slík einn af
hornsteinum þess að setrið geti ris-
ið og orðið að veruleika.
Um 4.000 hafa sótt námskeið
Fræðslunet Suðurlands var stofn-
að í september 1999 og hafa við-
tökur verið mjög góðar. Í máli Jóns
Hjartarsonar, framkvæmdastjóra
Fræðslunetsins, kom fram að alls
hafa nálægt 4.000 manns sótt nám-
skeið og viðburði á vegum Fræðslu-
netsins. Á þessu ári sækja 1.200
manns námskeið og 70 kennarar
hafa þegið laun fyrir kennslu á
námskeiðum og 43 háskólanemar
gengust undir próf nú í desember.
Háskólanemarnir stunda nám í
hjúkrunarfræði, viðskiptafræði,
auðlindafræði, leikskólakennara-
námi og íslensku. Kennslan fer
fram frá Háskólanum á Akureyri
nema í íslensku, þar er kennt frá
Háskóla Íslands. Í gangi eru við-
ræður um aukið námsframboð við
ríkisháskólana í gegnum Fræðslu-
netið.
Morgunblaðið/Sig. Jónsson
Styrkþegarnir ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands.
STYRKIR úr vísindasjóði Fræðslu-
nets Suðurlands voru afhentir við
hátíðlega athöfn 13. desember á
Hótel Selfossi. Alls bárust átta um-
sóknir um styrki úr sjóðnum að
þessu sinni, umsóknarfrestur rann
út 20. nóvember 2002 en þetta er í
fyrsta skipti sem úthlutað er úr
sjóðnum. Niðurstaða sérstakrar
matsnefndar var sú að Náms- og
rannsóknarstyrk Fræðslunets Suð-
urlands árið 2002 að upphæð
500.000 kr. hlýtur Ríkey Hlín Sæv-
arsdóttir fyrir BS-verkefni sitt í
jarðfræði við Háskóla Íslands, en
það nefnist Grunnvatn og vatna-
jarðfræði Skaftársvæðisins.
Viðbótarstyrk að upphæð 250.000
kr. hlýtur Þórhildur Ólöf Helgadótt-
ir fyrir lokaverkefni sitt til cand.
oecon.-gráðu í viðskiptafræði við
Háskóla Íslands, en það nefnist
Orkugarður á Reykjum í Ölfusi,
tæknigarður og frumkvöðlasetur.
Það var Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, sem afhenti styrk-
ina.
Markmið vísindasjóðsins er að
styrkja námsfólk sem er að vinna að
lokaprófsverkefni á háskólastigi.
Verkefnið skal tengjast Suðurlandi
með ótvíræðum hætti og við mat á
verkefninu skal tekið tillit til hversu
líklegt er að niðurstöður verkefn-
isins leiði til frekari atvinnuupp-
byggingar, stuðli að frekari rann-
sóknum og í heildina þjóna
hagsmunum Suðurlands. Styrkþeg-
inn skuldbindur sig til að standa að
kynningu á lokaniðurstöðum verks-
ins í formi fyrirlestra eða nám-
skeiða í samvinnu við Fræðslunetið.
Verkefni Ríkeyjar felur í sér at-
huganir á grunnvatni og vatnafari á
vatnasviði Skaftár í Vestur-Skafta-
Selfoss
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 25
www.ef.is
Skoðaðu þessa
frábæru pönnu!
Fást grunnar eða
djúpar og sem
grillpönnur.
24-26-28-30 sm.
Feitislaus steiking.
Hagstætt verð!
3 viðurk
enningar
„Frábær“
hjá
þýskum
neytenda
samtöku
m
Besta steikarpannan
í Evrópu....
samkvæmt dómi þýskra
neytendasamtaka
JÓLAUNDIRBÚNINGUR nær nú
hámarki í Grunnskólanum í Borg-
arnesi en þar keppast nemendur og
kennarar við að flétta jólin inn í
hefðbundnar námsgreinar. Þegar
fréttaritari leit inn í heimilisfræði
hjá 10. bekk nýlega voru nemendur
að búa til laufabrauð að fornum sið.
Þeir voru áhugasamir og sköp-
unargleðin blómstraði.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Sylvía Ósk Rodriquez sker út mynstur í laufabrauð.
Laufabrauðsgerð
Borgarnes
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050