Morgunblaðið - 17.12.2002, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 17.12.2002, Qupperneq 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 27 FJÖLLISTAHÓPURINN Pars Pro Toto með Láru Stefánsdóttur í broddi fylkingar tróð upp í Borg- arleikhúsinu síðastliðið föstudags- kvöld. Sýningin var tileinkuð þeim Per Jonsson danshöfundi og Einari Kristjáni Einarssyni gítarleik- ara en stutt er síðan þeir létust. Boðið var upp á fjögur dans- verk. Það fyrsta frá árinu 1995 og er eftir Per Jonsson. Verkið nefnist Til Láru og er sólóverk sem Per samdi sérstaklega fyr- ir Láru Stefánsdóttur. Dansverkið er til- finningaþrungið á dramatísku nótunum. Hreyfingarnar eru gerðar með offorsi og enda gjarn- an eins snöggt og þær hefjast. Per notaði oft þrönga lýsingu ofan frá í verkum sínum. Hann lét dansara sína gjarnan breiða út faðminn og horfa inn í ljósið eins og til að skyggnast inn í aðra veröld. Þetta gerir henn einnig í þessu dans- verki. Dans Láru minnti á gyðju úr goðafræðinni. Það var eins og sýn hennar í annan heim færði henni vitneskju sem einungis henni væri ætlað að búa yfir. Hún túlkaði af ákveðni og innlifun þrá eftir einhverju æðra. Hún dansaði af öryggi og Per Jonsson hefði ef- laust orðið stoltur af þessu dans- verki sínu. Slagverksleikararnir Eggert Pálsson og Steef van Oost- erhout fluttu slagverk eftir Hjálm- ar H. Ragnarsson. Það er ekki ætlunin að fjalla um tónlistina hér enda er það í höndum tónlistar- gagnrýnenda. Slagverksleikur fé- laganna í Bendu, sem voru sitt hvorum megin við dansarann ýtti undir offorsið í túlkun Láru en kaffærði hins vegar dansverkið og dró athyglina frá dansinum. Að mínu mati hefði farið betur að hafa tónlistarflytjendur ekki á sviðinu, að minnsta kosti fjær dansaranum og þá hefði stærra svið átt betur við. HRÆRINGAR eftir Láru Stef- ánsdóttur var frumflutt árið 1996 og var þá dansað af tveim kven- dönsurum. Það var dansað sem sólóverk af Sveinbjörgu Þórhalls- dóttur á föstudagskvöldið. Á svið- inu er líkami lítils barns, mynd- verk Ragnhildar Stefánsdóttur og dansarinn liggur þar hreyfingarlaus hjá. Stórt gúmmíhjarta er á sviðinu. Verkið er unnið út frá texta eft- ir Elísabetu Jökuls- dóttur. Í honum segir frá konu sem sefur í síðu hári og dreymir um elskhuga í fjarskalegu hafi. Tón- listin er flutt af bandi og einnig flutt lifandi af Guðna Franzsyni. Sveinbjörg Þórhalls- dóttir liðast um sviðið í dansgerð Láru Stef- ánsdóttur. Dans hennar er munúðar- fullur, það er þungi í hreyfing- unum og í þeim birtist draum- kennd þrá. Hár hennar sveiflast og myndar hreyfingar þannig að texti Elísabetar rennur lifandi fyr- ir hugskoti. Sveinbjörg túlkar og dansar verkið af innlifun og ein- beitni. Hún býr yfir fallegu og kröftugu hreyfiflæði og átti auð- velt með að gæða verkið lífi. Hér er athyglisverður dansari á ferð. Í verkinu studdu tónlistin og dans- inn hvort annað og mynduðu heild. Spil Guðna gaf verkinu dulúð og hjartslátturinn frumstæðan kraft. Búningur dansarans var eins og í fyrsta verki kvöldsins vel sniðinn og efni kjólsins fylgdi eftir hreyf- ingum dansarans. Myndverk Ragnhildar Stefánsdóttur, hjarta sem liggur á sviðinu, rammaði síð- an inn verkið. Hræringar er heil- steypt og athyglisvert dansverk. JÓI nefnist fyrsta verk eftir hlé. Það er einnig eftir Láru Stefáns- dóttur, dansað af Jóhanni Frey Björgvinssyni. Það er einnig unnið út frá texta úr sögu eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Textinn fjallar um þrá eftir ást, ást sem veitir lausn. Verkið er sýn á ást. Það hefst á því að dansarinn liggur á brjóst- um, liðast síðan um sviðið í teygð- um og toguðum hreyfingum. Hann er klæddur í svarta skyrtu og nær- buxur. Hann mátar hælaháa skó og dansar í þeim, ýmist skrykkjótt eða af öryggi. Í lokin býr hann sér gröf úr brjóstum. Dansverkið er hugleiðing um ást og sýn á ástina að minnsta kosti eina hlið hennar og þá væntanlega eins og hún birt- ist höfundi. Jóhann Freyr dansar af öryggi og hreyfingar hans eru fágaðar. Hann er næmur dansari bæði á hreyfingar og tónlist. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með honum þroskast á listabraut- inni undanfarin ár. Tónlistin og dansinn mynda órjúfanlega heild í dansverkinu Jói og eins og í Hrær- ingum, verkinu á undan þá studdu listformin hvort annað svo úr varð heildsteypt dansverk. Í SÍÐASTA verki kvöldsins er dansgerðin eftir Láru Stefáns- dóttur og er höfundur tónlistar Hjálmar H. Ragnarsson. Það voru Rússíbanarnir sem fluttu tónlist- ina sem Lára Stefánsdóttir og Guðmundur Helgason ásamt nem- endum úr Listdansskóla Íslands dönsuðu við. Í raun er verkið Cyr- ano-tónleikar með léttum dansi. Dansinn er eins konar skreyting við tónlistina. Það er dans í tónlist- inni hans Hjálmars og auðséð að nemendur jafnt sem atvinnudans- arar nutu þess að hreyfa sig við hana. Hún er jákvæð þróunin sem átt hefur sér stað hjá danshöf- undum undanfarið. Það er þegar þeir hlúa að nemendum og verð- andi atvinnudönsurum með því að bjóða þeim að spreyta sig í dans- verkum sem eru við þeirra hæfi. Andrúmsloftið var létt yfir verkinu og skemmtunin var góður endir á vel heppnuðu listakvöldi Pars Pro Toto. LISTDANS Borgarleikhúsið Til Láru: Höfundur: Per Jonsson. Dansari: Lára Stefánsdóttir. Tónhöfundur: Hjálmar H. Ragnarsson. Slagverk: Eggert Páls- son, Steef van Oosterhout, félagar í Bendu. Búningar: Elín Edda Árnadóttir. Lýsing: Kári Gíslason. PARS PRO TOTO Lára Stefánsdóttir Hræringar: Höfundur Lára Stefánsdóttir. Dansari: Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Tón- höfundar: Guðni Franzson, Riccardo Nova. Flytjendur tónlistar: Guðni Franz- son, Tamborino ensemble. Jói: Höfundur: Lára Stefánsdóttir. Dans- ari: Jóhann Freyr Björgvinsson. Tónhöf- undur: Guðni Franzson. Gítar: Hilmar Jensson. Glös: Matthías Hemstock. Myndverk: Ragnhildur Stefánsdóttir. Cyrano: Tónhöfundur: Hjálmar H. Ragn- arsson. Danshöfundur: Lára Stef- ánsdóttir. Dansarar: Emilía Benedikta Gísladóttir, Guðmundur Helgason, Guð- rún Óskarsdóttir, Hannes Þórður Þor- valdsson, Henna-Riikka Nurmi, María Lovísa Ámundadóttir, Katrín Diljá Jóns- dóttir, Lára Stefánsdóttir, Saga Sigurð- ardóttir og Steve Lorenz. Flytjendur tón- listar: Rússíbanar, Guðni Franzson, Hilmar Jensson, Jón Skuggi, Kristinn H. Árnason, Matthías M.D. Hemstock, Tatu Kantomaa. Lilja Ívarsdóttir Ólík andlit Láru BANDALAG ÍSLENSKRA LEIKFÉLAGA Tilboð á andlitsmálningu Vatnslitabox frá Kryolan með 24 litum á 3.500 kr. Sendum í póstkröfu! Laugavegi 96 • www.leiklist.is • 551 6974 fyrirtaeki.is Geisladiskur til sölu Sexy Loverboy Indian Princess Leoncie Hinn frábæri geisladiskur Sexy Loverboy fæst í Hljómvali (Keflavík), Þrumunni, Laugavegi 69, Japis og Skífunni. Skemmtilegasta jólagjöfin í ár Hin vinsæla söngkona Leoncie vill skemmta um allt land. Bókið með fyrirvara: 691 8123 www.leoncie-music.com Umboðssími 691 8123. Leoncie er spiluð á bestu útvarpsstöðvum víða um heim. Geymið auglýsinguna  w w w .d es ig n. is © 20 02 - IT M 90 41 V. Fellsmúla • S. 588 7332 Opið: Mán. - föst. 9-18, Laugardaga í des. 10-16 Hitastýrð blöndunartæki Verð frá kr. 8.900,- • Sturtuklefar • Sturtuhorn • Baðkarshlífar Smáatriðin í lag! Fjölbreytt úrval fylgihluta á frábæru verði Rúnnað sturtuhorn, 80-90 cm. 4-6mm öryggisgl., hvítt/króm Verð frá kr. 35.800,- Sturtuhorn, 80-90 cm. 4-6mm öryggisgl., hvítt/króm Verð frá kr. 19.750,- Allt fyrirbaðherbergið Baðkarshlíf, h140 L85 cm. 5mm öryggisgl., hvítt/króm Verð frá kr. 14.900,- Þrískipt baðkarshlíf, h140 L125 cm. 5 mm öryggisgl., hvítt Verð kr. 16.900,- Baðkarshlíf milli veggja, h140 L160-200 cm. 4 mm öryggisgl., hvítt Verð frá kr. 26.850,- Nuddsturtuklefi 90x90 cm. Verð frá kr. 122.650,- Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Stökktu til Kanarí 2. janúar í 2 vikur frá kr. 49.962 Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina 2. janúar til Kanaríeyja á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí þann 2. janúar í 2 vikur, þar sem þú nýtur 22 stiga hita og veðurblíðu og getur kvatt veturinn í bili á þessum vinsælasta vetraráfangastað Evrópu við frábærar aðstæður. Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför, hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir, og á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Verð kr. 59.950 Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, gisting, skattar. 2. janúar, 14 nætur. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Almennt verð kr. 62.950. Verð kr. 49.962 Verð fyrir manninn, m.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug, gisting og skattar. 2. janúar, 14 nætur. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Ekki innifaldar. Almennt verð kr. 52.460.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.