Morgunblaðið - 17.12.2002, Side 36

Morgunblaðið - 17.12.2002, Side 36
UMRÆÐAN 36 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 • Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850 3.2 milljón virkir dílar. Aðdráttarlinsa 38-114mm. Ljósnæmi ISO 100-400. Hreyfanlegur skjár. Notar Compact Flash kort. Notar AA eða Ni-MH rafhlöður. Verð kr. 59.900,- STAFRÆN PENTAX frábær myndgæði og gott verð ÞRJÚ frumvörp um nýskipan yf- irstjórnar vísinda- og tæknimála hafa verið til umfjöllunar á Alþingi að undanförnu. Frumvörpin voru fyrst lögð fram á síðasta þingi en þá kom fram mikil gagnrýni á þau, m.a. vegna ótta við að þau leiddu til aðskilnaðar milli vísindarannsókna og tækniþróunar og gætu dregið úr samræmingu á mikilvægum þátt- um stefnumótunar. Eftir endur- skoðun voru þau lögð fram aftur og ríkir nú almennari sátt um þau þótt enn hafi ýmsir athugasemdir við þau. Áhyggjur af stjórnmálaáhrifum Margir hafa áhyggjur af blöndun stjórnmálamanna og vísindamanna í vísinda- og tæknráði og óttast óeðlileg áhrif stjórnmálamanna. Öflun nýrrar þekkingar er skap- andi starfsemi sem krefst andlegs frjálsræðis og verður að lúta lög- málum faglegrar gagnrýni án póli- tískra fyrirmæla og hafta ef hún á að skila marktækum árangri í þágu samfélagsins. Á hinn bóginn eru ákvarðanir um opinberar fjárveit- ingar og aðbúnað til vísindarann- sókna og tækniþróunar í höndum stjórnmálamanna. Afskipti þeirra eru því óhjákvæmileg. Eftir seinni heimsstyrjöldina hefur víðast á Vesturlöndum tekist allgóður skilningur milli vísinda og stjórn- mála um leikreglur. Með vaxandi vitund um mikilvægi vísinda- og tækniþekkingar sem undirstöðu þjóðfélagsframfara hafa flestar þjóðir komið sér upp skipulagi til að marka stefnu um stuðning við vísindarannsóknir og nýtingu nýrr- ar þekkingar í þágu samfélagsins. Segja má að til sé orðinn óskráð- ur samningur milli stjórnmála og vísinda um að þjóðfélagið veiti fé til vísindarannsókna á faglegum forsendum vísindanna sjálfra – en – gegn því að njóta ávaxtanna í formi félagslegs og efnahagslegs ávinnings sem af nýrri þekkingu leiðir. Framkvæmd þessa „samn- ings“ er hins vegar með margvís- legum hætti í lýðræðisríkjum Vest- urlanda. Viðfangsefni vísinda- og tækniráðs Athygli hefur vakið árangur sem hefur náðst í nokkrum ríkjum að undanförnu. Samanburður milli ríkja OECD og innan ESB hefur leitt í ljós að ýmis smáríki standa sig afar vel í þessu efni. Meðal þeirra eru öll Norðurlöndin, ekki síst Finnland. Reyndar er Ísland nú einnig komið í fremstu röð með- al OECD ríkja. Hugmyndin um „þekkingarþjóðfélagið“ þar sem þjóðfélagsframfarir og alþjóðleg samkeppnishæfni er byggð á mannauði fremur en náttúruauð- lindunum einum hefur náð til stjórnmálamanna. Athuganir á vegum OECD og Evrópusam- bandsins hafa margoft leitt í ljós að viljinn til að fjárfesta í vísindum og nýta nýja þekkingu til þjóðfélags- framfara er háður góðum tengslum milli vísindaheims og samfélags, – vísindastofnana og fyrirtækja, – opinberra aðila og einkaaðila. Eitt megin verkefni stefnumót- unar á sviði vísinda og tækni er að tryggja að þau tengsl séu sem virk- ust og hvetja til þeirra. Það gerist með setningu sameiginlegra og há- leitra markmiða og með styrkveit- ingum hins opinbera, en ekki síður með því að brúa ýmsar gjár sem gjarnan verða til af skipulagsleg- um ástæðum. Hér á landi má benda á að lengi vel vantaði áhættufé til stofnunar fyrirtækja um áhugaverðar rannsóknaniður- stöður. Þetta kom í veg fyrir ný- sköpun. Með auknu frelsi á fjár- málamarkaði miðjan síðasta áratug losnaði um stíflu í þessu efni og hafa mörg ný þekkingarfyrirtæki orðið til og útflutningur þekking- arafurða vex nú hröðum skrefum. Einnig má benda á að núverandi skipan rannsókna í þágu atvinnu- veganna getur ekki talist skilvirk lengur þótt hún hafi áður gagnast vel. Nýting nýrrar þekkingar er ekki lengur sérhæfð og bundin hefðum atvinnuvegaskiptingar. Þekkingin nýtist þvert á hinar lóð- réttu skiptingu þeirra eftir ráðu- neytum, stofnunum og fyrirtækja- hefðum. Þekkingin er líka margvídd og ekki má gleyma þætti hugvísinda og félagsvísinda í mót- un og þróun samkeppnishæfs þjóð- félags. Nægir að minna á hlut þeirra í að skerpa menningarlega sjálfsvitund þjóða, benda á mein- semdir þjóðfélagsins og sýna fram á hvernig mannlegum samskiptum megi haga til að ná sem mestum árangri á öllum sviðum þjóðfélags- ins. Látum á það reyna Höfundur þessarar greinar hef- ur lengi verið þátttakandi í vísinda- og tæknimálum hér á landi og fylgst með mótun vísinda- og tæknistefnu í grannlöndum og á vettvangi OECD. Það er mat mitt að sú skipan sem felst í frumvörp- unum þremur sé áhugaverð og tímabær tilraun um skipulag vís- inda- og tæknimála sem geti leitt af sér farsæla þróun hér á landi. Mér er ljóst að ávinningurinn er háður því að góður vilji fylgi og að skilningur skapist innan vísinda- og tækniráðs milli stjórnmála- manna og fulltrúa vísindasam- félagsins, – milli ráðuneyta inn- byrðis og milli opinbera geirans og einkageirans um þau málefni sem ráðið tekur til umfjöllunar. Reynsl- an af hliðstæðu fyrirkomulagi er mjög góð í Finnlandi. Allar for- sendur eru til þess að hið sama gerist hér á landi og treysti ég jafnt stjórnmálamönnum sem vís- indasamfélaginu til þess. Ég mæli með því að látið verði reyna á það með samþykkt þessara lagafrum- varpa sem fyrst! Hvers vegna vísinda- og tækniráð? Eftir Vilhjálm Lúðvíksson „Ávinning- urinn er háð- ur því að góður vilji fylgi.“ Höfundur er framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs Íslands. UMRÆÐUR á Íslandi um orku- mál og umhverfismál þeim tengd bera vitni umtalsverðum áhuga á viðfangsefninu. Málefnið hefur og öfluga alþjóðlega skírskotun, sem er til þess fallin að auka áhugann á viðfangsefninu. Heildarorkunotkun Íslendinga er ein sú umhverfisvænsta, sem um getur í heiminum. Þrátt fyrir ein- hverja mestu orkunotkun á mann, sem um getur, er vandfundinn sá staður á jörðinni, þar sem loft, láð og lögur eru hreinni en á Íslandi, og mun svo vonandi áfram verða. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að meginástæða þessa er sú, að raforkuvinnsla og húsnæðisupp- hitun fer nánast alfarið fram með umhverfisvænum orkugjöfum, þ.e.a.s. vatnsafli og jarðvarma. Þessu er hins vegar alveg öfugt farið víðast annars staðar, þar sem að jafnaði aðeins 15–20% raforku- vinnslunnar eru með vatnsafli og megnið af upphitun húsnæðis á rætur að rekja til eldsneytis. Hvers vegna að virkja? Almenn samstaða er um að virkja innlendar orkulindir fyrir al- menna orkunotkun í landinu og að leysa mengandi eldsneytisnotkun af hólmi með innlendri orku, þegar tæknin gerir slíkt hagkvæmt. Þar með yrði Ísland „sjálfstætt“ í orku- legu tilliti. Þetta sjálfstæði næst þó vart án miðlunarlóna á hálendinu. Ef girða á fyrir orkuskort að vetr- inum án slíkra miðlunarlóna, þarf að leggja sæstreng til Bretlands eða meginlands Evrópu, sem flutt gæti orku í báðar áttir. Þetta yrði mjög dýrt og er engan veginn til þess fallið að hámarka virðisauka orkulindanna hér innanlands. Á Íslandi hefur hins vegar jafn- an staðið styrr um stórvirkjanir og ráðstöfun orku frá þeim til stór- iðju. Með hinu lögformlega um- hverfismati er æskilegu aðhaldi með áformum virkjunaraðila komið á og tryggt, að þeir verða að gera fyrirfram grein fyrir framkvæmd- um og afleiðingum þeirra á um- hverfið að beztu manna yfirsýn. Síðan tekur við mat stjórnvalda og Alþingis á því, hvort veita skuli virkjunarleyfið. Aðdragandi virkj- unarframkvæmda er þannig í nú- tímalegum og lýðræðislegum far- vegi. Líklegt má telja, að fáir mundu styðja stórfelldar virkjun- arframkvæmdir á hálendinu né annars staðar, ef ekki næðist með þeim verulegur ávinningur fyrir þjóðarheildina. Samt er fórnar- kostnaður Íslendinga tiltölulega lítill í samanburði við fórnarkostn- að ýmissa annarra vatnsorkulanda, þar sem flytja hefur þurft þúsundir og í sumum tilvikum milljónir manna burt vegna myndunar stórra miðlunarlóna. Hérlendis koma hins vegar miðl- unarlónin niður á nokkrum dýra- Virkjað í þágu þjóðarhags Eftir Bjarna Jónsson „Nútíma- álver nýta hátækni í ríkum mæli vegna gríð- arlegrar sjálfvirkni og mælinga hvers konar, sem þar fara fram.“ ENN beinist kastljós að launa- mun kynja. Er það vel. Tilefnið eru niðurstöður rannsóknar á vegum fjölþjóðlegs Evrópuverkefnis sem á íslensku heitir Að loka launagjánni. Niðurstöður hafa birst um tvo að- skilda þætti, sem nokkuð hafa ruglast saman í umfjöllun síðustu daga. Á vegum verkefnisins var annars vegar gerður heildarsamanburður á greiddum launum á öllum vinnu- markaðnum, skipt á opinbera geir- ann og einkamarkaðinn. Í ljós hef- ur komið að fyrstu tölur um mun á greiddu tímakaupi karla og kvenna í opinbera geiranum og á einka- markaði hér á landi voru misvís- andi. Þessar tölur hafa verið leið- réttar og er launamunurinn áþekkur á hvorum tveggja vett- tvanginum, þó ívið meiri á einka- markaði eins og aðrar íslenskar rannsóknir hafa sýnt hingað til. Sýnir þetta aðeins hve vandmeð- farin tölfræðin er. Það má þó ekki verða til að ekki sé fjallað alvar- lega um kynbundinn launamun, en brýnast er að ræða hvernig bregð- ast má við. Hvað telst ómálefnalegur launamunur? Niðurstöður fyrir Ísland sýna að öll laun kvenna í opinbera geir- anum, sé miðað við fullt starf, eru að meðaltali 24% lægri en karla. Þessi munur er 27% á einkamark- aði. Sé viðmiðunargrunni talnanna snúið við og spurt hvað konur þyrftu að hækka í launum til að ná körlum, þá eru stærðirnar aðrar. Í opinbera geiranum þyrftu laun kvenna að hækka um 31,6% til að ná launum karla, en 37% á einka- markaði. Þetta eru „óleiðréttar“ tölur. Í þeim eru ekki síuð út áhrif yfirvinnu, starfsaldurs, starfsstétta og slíkra þátta til að greina hvað ekki tekst að skýra með málefna- legum hætti, sem þá gefur vís- bendingu um kynjamisrétti. Með þeirri tölu er reynt að nálgast óút- skýrðan mun milli karla og kvenna í sambærilegum störfum og starfs- stéttum, með sama vinnutíma og starfsaldur. Hér á landi og erlendis er hinsvegar deilt harkalega um aðferðir, þ.e. hvað sé eðlilegt að nota til að „útskýra“ launamuninn. Enginn vafi leikur á að vinnutími og starfsaldur teljast til málefna- legra atriða, en umdeilanlegra er, eins og gert var í könnun Samtaka atvinnulífsins og Jafnréttisráðs í sumar, að útskýra burt launamun með þáttum eins og barnafjölda og öðrum, sem eiga að virka til lækk- unar á launum kvenna en ekki karla. Hinsvegar eru í umræddu Evr- ópuverkefni niðurstöður um þrjár starfsstéttir sérstaklega, verkfræð- inga, framhaldsskólakennara og fiskvinnslufólk. Einnig hér eru bor- in saman óleiðrétt heildarlaun. Hér eru tölur lægri (14, 9 og 20%) af þeirri augljósu ástæðu að saman- burðurinn er gerður innan hverrar starfsstéttar, en þá þurrkast út áhrif starfsstéttar. Því endurspegla þessar tölur ekki launamun sem rekja má til þess að hefðbundnar „kvennagreinar“ eru almennt lægra launaðar en karlagreinar, en það gera tölurnar um opinbera geirann og einkamarkaðinn. Sam- anburði af þessum tveim ólíku gerðum skyldi ekki rugla saman. Hvern vantar hvað? Á Stöð 2 á dögunum varpaði Þórunn Sveinbjarnardóttir alþing- ismaður fram brýningu til „hins opinbera“, ríkis og Reykjavíkur- borgar, og sagði allt vanta, stefnu- mótun, aðgerðir og pólitískan vilja. Fjármálaráðherra hlýtur að svara fyrir sig, en ég get svarað fyrir borgina. Borgin er stærsti atvinnu- rekandinn í þessum hópi (ríkið skilgreinir sig sem marga atvinnu- rekendur meðan Reykjavíkurborg er einn). Þórunn gat ekki um að borgin hefur mótað stefnu, gripið til aðgerða og sýnt staðfastan póli- tískan vilja allt frá 1995, þegar gerð var umfangsmikil rannsókn á launum hjá Reykjavíkurborg. Sam- bærileg rannsókn í vor sýndi að óútskýrður launamunur kynja hef- ur minnkað úr 15,5% í 7% á þess- um tíma, miðað við tiltekna að- ferðafræði, sem reyndar er ekki yfir gagnrýni hafin. Og þó áhrif starfsstéttar teljist til málefnalegra skýringa, þá hefur líka dregið úr þeim. Það þýðir að munur á „hefð- Spyrjum um aðferðir – köllum eftir árangri Eftir Hildi Jónsdóttur „Reykja- víkurborg hefur sett fram alger- lega nýja launastefnu.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.