Morgunblaðið - 17.12.2002, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
EFTIR góðan og endurnærandi
svefn við ylinn frá Orkuveitunni
vakna ég við vekjaraklukkuna mína
sem er knúin rafmagni frá Orkuveit-
unni.
Fer í heita sturtu með vatni frá
Orkuveitunni, vatni sem mér er séð
fyrir í ómældu magni af Orkuveit-
unni, það þarf jú rafmagn til að dæla
öllu þessu vatni.
Næst er það kaffið úr minni
ágætu kaffikönnu sem reyndar er
knúin rafmagni frá Orkuveitunni.
Lesa Morgunblaðið við ljós frá
Orkuveitunni.
Taka gemsann úr hleðslutækinu
sem er knúinn rafmagni frá Orku-
veitunni.
Er til starfa er komið þarf að
kveikja á tölvunni sem einnig er
knúin rafmagni frá Orkuveitunni.
Setja í gang viftuna knúna af raf-
magni frá Orkuveitunni.
Senda þarf föx um allar trissur og
viti menn, faxtækið er líka knúið af
rafmagni frá Orkuveitunni.
Í kaffinu þarf ég kaffi og það helst
heitt en til þess þarf rafmagn frá
Orkuveitunni.
Á milli mála er nú oft indælt að fá
sér kaldan drykk en til þess þarf
kæliskáp og hann er knúinn raf-
magni frá Orkuveitunni.
Í hádeginu þarf ég frekari nær-
ingar við og æskilegt væri ef sú nær-
ing væri heit, þá er það örbylgjuofn-
inn, hann er líka knúinn rafmagni
frá Orkuveitunni.
Að loknum góðum vinnudegi í vel
upphituðu húsnæði kyntu með heitu
vatni frá Orkuveitunni fer ég heim í
mitt góða hlýa hús sem reyndar er
einnig kynt með vatni frá Orkuveit-
unni, og nú í skamdeginu þarf mikið
af ljósum (ef maður ætlar ekki að
leggjast í þunglyndi og fara jafnvel
að mótmæla virkjunarframkvæmd-
um), nú ljósin eru eins og allir vita í
dag rafmagnsljós knúin af rafmagni
frá Orkuveitunni.
Eitthvað þarf nú að borða um
kvöldmatarleytið og þá kemur nú
eldavélin í góðar þarfir og hvað
haldið þið, hún er ekki kolakynt
heldur gengur hún fyrir rafmagni
frá Orkuveitunni.
Að afloknum kvöldverði er nú
ekki amalegt að fá sér kaffisopa og
við vitum nú þegar hvað þarf til
þess, jú rétt til getið, rafmagn frá
Orkuveitunni.
Þá fer nú að líða að fréttum í sjón-
varpinu og hva, sjónvarpið þarf raf-
magn frá Orkuveitunni.
Að loknum fréttum væri nú alveg
tilvalið að líta aftur í blöðin sem
reyndar eru prentuð í þar til gerðum
vélum knúnum af rafmagni frá
Orkuveitunni, en til þess þarf jú ljós
með rafmagni frá Orkuveitunni.
Svo fer ég í skúrinn og dútla mér
þar eitthvað fram eftir kvöldi við
undirleik klassískrar tónlistar í út-
varpinu sem einnig er knúið af raf-
magni frá Orkuveitunni.
Loksins er komið að því að fara í
bólið með frúnni en ekki þarf ég raf-
magn til þess frá Orkuveitunni held-
ur læt ég mér nægja kertaljós til
þeirra athafna.
Loksins er vekjaraklukkan stillt
og farið að sofa með þá einlægu ósk í
brjósti að Orkuveitan bregðist mér
nú ekki í nótt frekar en endranær,
og þakklæti til þeirra framsæknu
karla og kvenna sem löngu fyrir
mína tíð gerðu sér grein fyrir því að
hér væri ekki búandi ef ekki væri
virkjað.
Lengi lifi Orkuveitan og sú hug-
sjón að virkja orku landsins mér og
öðrum þegnum þess til hagsbóta,
ánægju og hagsældar.
Hvar værum við án virkjana.
Með björtum ylhýrum kveðjum.
JÓHANN ÞÓR HOPKINS,
Hesthömrum 19, 112 Reykjavík.
Dagur í lífi
náttúruunnandans
Frá Jóhanni Þór Hopkins
NÚ ÞEGAR jól og áramót nálgast
langar mig, að gefnu tilefni, að biðja
foreldra um að leiða hugann sérstak-
lega að útivistartíma barna sinna.
Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina
þegar jólafrí grunnskólanna byrjar
þá aukast skemmdarverk, hverskon-
ar, nokkuð. Virðist sem foreldrar
slaki nokkuð á útivistarreglunum yf-
ir jólahátíðina og taki í staðinn upp
nýjar og oft miður góðar „afþvíbara“
reglur. Skemmdarstarfsemin teng-
ist oftast sölu og meðferð skotelda og
blysa dagana í kringum áramót. Þá
þykir sumum börnum og unglingum
spennandi að útbúa varasamar
sprengjur úr þeim skotföngum sem
eru á boðstólum. Oft kviknar
skemmdarfýsnin er skyggja og
kvölda tekur og stendur jafnvel hæst
þegar komið er framyfir útivistar-
tíma hjá ungu fólki.
Ég hvet foreldra líka sérstaklega
til að sýna ástríki og ábyrgð í verki
gagnvart börnum sínum um áramót-
in, líkt og alla aðra daga, og stuðla að
fjölskylduvænu gamlárskvöldi þar
sem allir fái notið sín í öruggu og
ánægjulegu andrúmslofti. Eyðum
þeim ljóta ósið og ómenningu að
börn og ungmenni séu úti á lífinu á
nýársnótt, eftirlitslaus við óæskileg-
ar aðstæður, jafnvel drukkin og
hættuleg sjálfum sér og öðrum.
Byggjum upp á heilbrigðum grunni í
þessum málum, foreldrum og ekki
hvað síst börnunum okkar til heilla.
Það hefur sýnt sig að þegar börn
og ungmenni lenda hvað oftast í
vandræðum og óæskilegum aðstæð-
um, sem þau kunna ekki að ráða
fram úr, er það eftir að útivistartíma
þeirra lýkur. Börn eru foreldrum
sínum afar kær og því skulum við
virða þau lög og reglur sem eru sett
þeim til verndar, líkt og útivistar-
reglunum er ætlað að gera.
VALGARÐUR
VALGARÐSSON,
Skerseyrarvegi 3,
220 Hafnarfirði.
Ástríku foreldrar
Frá Valgarði Valgarðssyni