Morgunblaðið - 17.12.2002, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 17.12.2002, Qupperneq 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4741-5200-0002-4854 4548-9000-0059-0291 4539-8500-0008-6066 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. POSSESSION GWYNETH PALTROW AARON ECHART JENNIFER EHLE JEREMY NORTHAM Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.05. 1/2MBL 1/2Roger Ebert Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna sem kemur öllum í jólaskap Jólamyndin 2002 Kvimyndir.is  HL. MBL  SK RadíóX  ÓHT Rás2  HK DV 1/2 Kvikmyndir.com TILRAUNIN Sýnd kl. 10.05. Ísl. texti. B.i. 16. 8 Eddu verðlaun Yfir 54.000 áhorfendur Sýnd kl. 5.45 með enskum texta og 8. B.i. 12 ára.Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.10.  Roger Ebert 1/2 Kvikmyndir.is  DV Y F I R 5 1 . 0 0 0 G E S T I R 1/2HL MBL  RadíóX Jólamynd film-undar Sýnd kl. 6, 8 og 10. H.K. DVGH. Vikan SV. MBL GH. Kvimyndir.com B.Ö.S. Fréttablaðið Tónlist eftir Sigur Rós. SÝND Í STÓ RA SALN UM Sýnd kl. 5 og 8. RadíóX DV Y F I R 5 1 . 0 0 0 G E S T I R Roger Ebert HL MBL Kvikmyndir.is Sýnd kl. 4 og 6. Vit 461 Sýnd kl. 4. Ísl tal Vit 448 Kvikmyndir.is ÁLFABAKKI KRINGLA AKUREYRI KEFLAVÍK Sýnd kl. 4, 6, 8 og 9.15. Sýnd kl. 4, 7 og 10. Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8. Vit 468 ÁLFABAKKIÁLFABAKKI EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 og 9.15. B. I. 16. VIT 469. VIÐ eigum 15 ára afmæli á næsta ári.Okkur langaði að gera eitthvaðmeira en venjulega poppplötu. Viðerum ennþá mjög metnaðarfullir og langar til að gera stóra hluti,“ segir Guðmund- ur Jónsson, lagahöfundur og gítarleikari Sálar- innar hans Jóns míns. Hljómsveitin hefur sýnt metnaðinn í verki því auk þess að hafa nýlega leikið frumsamið efni með Sinfóníuhljómsveitinni verður söng- leikurinn Sól & Máni eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson frumsýndur í Borgarleikhúsinu í jan- úar. „Í byrjun ársins 2000 kom hugmyndin upp, að gera söngleik og gefa út tvær plötur á und- an,“ segir Guðmundur. Hljómsveitin hafði þá ekki gefið út plötu með nýju efni í fimm ár en árið áður kom út hljómleikaplata. Platan Annar máni kom út haustið 2000 og Logandi ljós árið eftir en söngleikurinn bygg- ist á plötunum tveimur. Aðdáendur sveitarinn- ar vissu að plöturnar tengdust en engan grun- aði að úr yrði heill söngleikur. Lengi langað að gera söngleik „Ég var búin að ganga með svona söng- leikjapælingu lengi. Við ætluðum alltaf að sjá til með framhaldið ef plöturnar myndu ekki ganga vel eða við myndum ekki fá neinn til að gera söngleikinn. Þá stæðu í versta falli eftir tvær góðar poppplötur,“ útskýrir Guðmundur, sem er hrifinn af góðum rokksöngleikjum á borð við Jesus Christ Superstar og Hárið. Plöturnar gengu vel og hlutu góða útvarps- spilun. Sem dæmi var lagið „Á nýjum stað“ val- ið lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaunum í fyrra. Guðmundur hafði samband við Borgar- leikhúsið fyrir tæpu ári, sem féllst á hugmynd- ina. „Það sem ég var með í farteskinu var að tíu lög höfðu verið í töluverðri útvarpsspilun og voru orðin vel kunn.“ Vísindaskáldskapurinn ræður ríkjum í verk- inu en í forgrunni en ástarsaga Sólar og Mána. Ýmis öfl sækja að þeim og er verið að varpa fram stórum spurningum. Þær varða æðri máttaröfl, trúarofstæki og tæknihroka. „Þetta er svona sambland af Disney og Star Trek. Við erum að búa til nýjan heim. Aðstæð- urnar eru skrýtnar en mannlegar tilfinningar eru hafðar til grundvallar. Sagan gerist ekki í nútímanum. Við vildum ekki fjalla um dag í lífi fjölskyldu í Breiðholti þar sem allir brystu skyndilega í söng yfir hafragrautnum,“ segir hann en ólíkt Breiðholtinu er heimur Sólar og fallna engilsins Mána ekki raunverulegur og gilda þar önnur lögmál. Öll skilningarvitin á fullu Íslenski dansflokkurinn tekur þátt í sýning- unni og verður söng, dans og tónlist blandað saman. „Ég vona að þetta verði hratt, skemmtilegt og mikið fyrir augað. Það er það sem við stefnum á, öll skilningarvitin á fullu.“ Karl Ágúst Úlfsson er höfundur verksins ásamt Sálinni. „Hann tók þessa litlu sögu og setti kjöt á beinið, samtöl og atburðarás,“ segir Guðmundur en Karl kom inn í verkefnið í vor- mánuðum. „Ég er algjör jómfrú í sambandi við leik- húsvinnu. Það er búið að vera mjög gaman að fylgjast með þessu fæðast,“ segir hann. Hljómsveitin sjálf tekur að sjálfsögðu þátt í sýningunni. „Stefán syngur þarna hálfgerðan sögumann,“ segir Guðmundur. Ennfremur er gamall félagi hans, Jón Ólafsson, í hlutverki tónlistarstjóra með Guðmundi. Guðmundur upplýsir að hvert einasta lag á plötunum tveimur sé samið með sérstakan kar- akter í huga. „Hvert lag tilheyrir ennfremur atburðarásinni. Við settum þetta niður í línu- lega frásögn,“ segir hann en lögin koma fyrir í söngleiknum í nokkurn veginn sömu röð og þau er að finna á diskunum.Þau hafa þó tekið miklum breytingum. „Stundum verður mikið úr lögum og stundum lítið. Þarna gilda allt önnur lögmál en þegar verið er að búa til popp- plötu.“ Sálin hefur sent frá sér nýtt lag, „Á einu augabragði“, sem var sérstaklega samið fyrir söngleikinn en Sól og Máni, Arnbjörg Vals- dóttir og Bergur Þór Ingólfsson, taka þátt í flutningi lagsins. Blanda af Disney og Star Trek Morgunblaðið/Árni Torfason Æfingar á Sól og Mána hafa staðið yfir að undanförnu. Hér er Arnbjörg Valsdóttir í hlutverki Sólar og Jóhanna Vigdís Arnardóttir sem Sara. Æfingar standa yfir á söngleiknum Sól & Mána í Borgarleikhúsinu Lagið „Á einu augabragði“ er komið í útvarps- spilun. Söngleikurinn Sól og Máni verður frum- sýndur í Borgarleikhúsinu 11. janúar. FYRIR þremur árum gaf Kristinn Snævar Jóns- son út sinn fyrsta disk sem ber nafnið Kveikjur. Diskinn vann hann í samstarfi við Vilhjálm Guð- jónsson, eins og nýja plötu sína, sem ber nafnið Talandi tónar. Eins og ýjað er að í titli sér tón- listin einvörðungu um að tala, ekkert er sungið á diskinum. Kristinn beitir hins vegar öðrum að- ferðum og nokk nýstárlegum til að koma boð- skap á framfæri, hvert lag er sérstaklega mynd- skreytt í umslagi og með því fylgir stuttur texti eða hugvekja. „Ég á fullt af lögum í pússi mínu og geri prufu- upptökur við og við,“ útskýrir Kristinn. „Þar sem ég er ekkert sérstaklega góður söngvari brá ég á það ráð að setja sóló í stað raddar. Ég fann svo fljótlega að lögin löguðust ágætlega að því.“ Hann segir að hann og Vilhjálmur hafi svo hafist handa við upptökur í september. Kristinn kímir þegar hann er spurður út í myndskreyt- ingarnar, segir það eðlis síns vegna erfitt að koma einhverjum boðskap á framfæri í gegnum ósungin lög. Á fyrstu plötu sinni kom hann boð- skapnum á framfæri í söng; vangaveltum um líf- ið og tilveruna; umhverfi okkar og tilfinningalíf. Sams konar hugleiðingar prýða þessa plötu – en á þann hátt sem áður segir. Þáttur Vilhjálms Guðjónssonar var svo að spila þetta inn en eftirtektarvert er að hljóm- arnir eru æði „skuggalegir“, þ.e. minna óneit- anlega á lög bresku sveitarinnar The Shadows. „Ja … málið er að ég nota magnara sem er sömu tegundar og þeir í Shadows notuðu. Svo sá ég á andliti félaga míns að hann var alveg sáttur við þennan hljóm (brosir).“ Kristinn vinnur þannig að hann setur niður prufuupptökur á disk og segist eiga stafla af slíku heima við. Hann vinnur sem rekstrarhag- fræðingur á daginn en sinnir tónlistinni í hjá- verkum. „Ég er kominn með ágætisupptökugræjur heim til mín, þannig að ég get stundað heima- framleiðslu með sæmilegasta hætti.“ Hann segir tónlistarsköpunina veita sér ró og afslöppun. Það sé mjög þægilegt að komast úr dægurþrasinu yfir í tónlistina. „Það er t.d. eitt lag sem heitir „Afdrep“ og það er það sem þetta er. Tónlistin er afdrep mitt frá hinum daglega erli. Það er fátt betra en að una sér við hana.“ Tónlistin er afdrep mitt arnart@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Kristinn Snævar Jónsson og Vilhjálmur Guð- jónsson. Kristinn Snævar Jónsson gefur út Talandi tóna fyrirtaeki.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.