Morgunblaðið - 03.01.2003, Qupperneq 1
BRIGITTE Boisselier, forsvars-
maður fyrirtækisins Clonaid, sem á
þriðja degi jóla fullyrti að fyrsta ein-
ræktaða barnið væri fætt í þennan
heim, sagði í gær að á næstu dögum
myndi annað einræktað barn fæðast
einhvers staðar í Evrópu.
Boisselier sagði í viðtali við
franska sjónvarpsstöð að barnið
myndi fæðast fyrir sunnudag. Hún
vildi hins vegar ekki greina frá því
hvar fæðingin myndi eiga sér stað.
Vísindamenn eru vantrúaðir á að
Clonaid hafi í raun tekist að klóna
barn. Boisselier sagði hins vegar í
gær að foreldrar barnsins myndu
ákveða á næstu tveimur sólar-
hringum hvort þeir vildu láta taka
DNA-sýni úr barninu og móður
þess, en samanburður á sýnunum
myndi sanna hvort um klónun hefði
verið að ræða eður ei.
Segir annað
klónað barn
á leiðinni
París. AP.
AP
ÍSBRJÓTUR var að störfum í höfninni í Helsinki á
nýársdag en þá gerði miklar frosthörkur á svæðinu.
Fór hitastigið í mínus 20 gráður á Celsius. Kalt hefur
einnig verið víða í Noregi og í Danmörku er spáð 15
gráða frosti um helgina. Þegar er þunnur ís víða á
sundunum og ísbrjótarnir fjórir, Thorbjørn, Isbjørn,
Elbjørn og Danbjørn, sem nefnast einu nafni
„Bjørnebanden“, eru til taks í Fredrikshavn ef ryðja
þarf leið fyrir skipaumferð. Síðast þurfti að grípa til
ísbrjótanna árið 1996. Annars staðar í álfunni er nú
víða mikið vatnsveður og flóð valda vandræðum í
Bretlandi og Belgíu.
Hrollkalt í Helsinki
STOFNAÐ 1913 1. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 mbl.is
Jólaleg
undirföt
Hin 86 ára gamla Lífstykkjabúð
átti fallegasta jólagluggann 24
Tangó og
dramatík
Egill Ólafsson og Le Grand
Tangó spila í Salnum Listir 31
EINN helsti áhrifamaður tyrkneskra
stjórnmála hvatti Rauf Denktash,
leiðtoga Kýpur-Tyrkja, í gær ein-
dregið til að ná samkomulagi við Kýp-
ur-Grikki fyrir 28. febrúar nk. þannig
að eyjarhlutarnir geti samtímis geng-
ið í Evrópusambandið. Gagnrýndi
Recep Tayyip Erdogan, leiðtogi
stjórnarflokksins, Réttlætis- og þró-
unarflokksins, Denktash fyrir skort á
sáttfýsi í viðræðum sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa haft milligöngu um.
„Ég er ekki hlynntur þeirri stefnu
sem fylgt hefur verið á Kýpur síðustu
30–40 árin,“ sagði Erdogan. Bætti
hann því við að Kýpurdeilan væri ekki
eitthvert einkamál Denktash, sem
hefur verið leiðtogi Kýpur-Tyrkja alla
tíð frá því að tyrkneski herinn réðst
inn í Kýpur árið 1974.
Aðeins skoðun eins manns
Ummæli Erdogans eru sögð til
marks um þá áherslu sem tyrknesk
stjórnvöld leggja á að Kýpurdeilan
verði leyst, en það gæti orðið til að
hraða inngöngu Tyrklands í ESB.
Þau eru jafnframt í andstöðu við þá
stefnu sem stjórnvöld í Ankara hafa
fylgt en Tyrkland er eina landið sem
hefur viðurkennt sjálfstætt ríki Kýp-
ur-Tyrkja á norðurhluta eyjunnar.
Erdogan lýsti stuðningi sínum við
sáttatillögu erindreka SÞ en Denkt-
ash hefur ekki viljað skrifa upp á hana
og ber því við að hann treysti ekki
leiðtogum Kýpur-Grikkja.
Setti Erdogan ofan í við Denktash
fyrir þessa afstöðu hans og sagði að
mönnum bæri að sýna sáttfýsi ef við-
unandi sáttatillaga væri komin fram.
Momtaz Soysal, náinn samstarfs-
maður Denktash, gerði lítið úr um-
mælum Erdogans og sagði þau aðeins
skoðun eins einstaklings. Glafkos
Klerides, leiðtogi Kýpur-Grikkja,
lýsti hins vegar áhyggjum vegna þess
skoðanaágreinings sem virðist kom-
inn upp milli leiðtoga Kýpur-Tyrkja
og stjórnvalda í Ankara. Óttast hann
að þetta verði til að hamla samning-
um, fremur en greiða fyrir þeim.
Erdogan hvetur til sátta á Kýpur
Ankara, Nicosia. AP, AFP.
MOSHE Katsav, forseti Ísraels, skoraði í
gær á stjórnmálaflokka landsins að endur-
skoða stefnu sína og taka upp nýjar aðferð-
ir til að binda enda á átökin við Palestínu-
menn sem hafa kostað nær 3.000 manns
lífið á rúmum tveimur árum.
„Ég sé enga lausn á hryðjuverkavanda-
málinu í stefnuskrám flokkanna. Við þurf-
um nýja áætlun,“ sagði forsetinn. „Það er
kominn tími til að athuga hvort Ísraelar
séu á réttri leið,“ bætti hann við en sagði
ekkert um hvaða aðferðir ætti að taka upp.
Fyrr um daginn höfðu ísraelskar her-
sveitir ráðist inn í fernar flóttamannabúðir
á Gaza-svæðinu, jafnað 25 hús við jörðu og
handtekið hóp Palestínumanna. Nokkru
áður höfðu ísraelskir hermenn skotið til
bana þrjá palestínska drengi á aldrinum
14–15 ára. Drengirnir höfðu farið yfir girð-
ingu gyðingabyggðar á Gaza-svæðinu og
voru með hníf og tvennar vírklippur.
Vopnaður Palestínumaður var einnig
skotinn til bana eftir að hafa ráðist inn í
íbúðarhús í N-Ísrael og hermenn fundu lík
Ísraela sem liðsmenn al-Aqsa-herdeildar-
innar höfðu vegið á Vesturbakkanum.
Forseti
Ísraels segir
stefnu flokk-
anna ónýta
Jerúsalem. AFP, AP.
ÍSLANDSFLUG hefur bætt við sig
tveimur Airbus A300/600R-breið-
þotum til verkefna í fraktflugi. Þeg-
ar sú síðari verður komin í notkun
síðar í mánuðinum verður félagið
með níu þotur í rekstri í millilanda-
flugi og tvær Dornier-vélar í innan-
landsflugi.
Alls verður Íslandsflug þá með
sex þotur í fraktflugi og þrjár sem
bæði geta sinnt frakt- og farþega-
flugi. Nýju þoturnar sem fyrirtækið
hefur tekið á leigu verða notaðar í
fraktflug fyrir alþjóðlegu flutninga-
fyrirtækin DHL og TNT, önnur
milli Brussel og Mið-Austurlanda
en verið er að ganga frá samningi
um verkefni fyrir hina þotuna. Þrjár
af Boeing 737-þotunum eru bæði í
frakt- og farþegaflugi og sú fjórða
eingöngu í farþegaflugi og er nú í
verkefnum í Grikklandi. Hinar
fimm þoturnar eru allar breiðþotur
af gerðinni Airbus. Er ein í frakt-
flugi milli Evrópu, Beirút og Persa-
flóa og hinar í verkefnum fyrir
franska flugfélagið Air France og
alþjóðlegu flutningafyrirtækin.
Ómar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsflugs, segir að
fraktflutningar í flugi hafi braggast
heldur betur en farþegaflugið eftir
atburðina 11. september 2001.
Ákveðið hafi verið að leita eftir Air-
bus-breiðþotum til slíkra verkefna.
Hann segir A300/600-gerðina bera
meira en A310 en að sú síðarnefnda
hafi meira flugþol.
Fljúga með frakt
fyrir DHL og TNT
Airbus-fraktvél merkt Íslandsflugi.
Tvær Airbus-breiðþotur bætast í flota Íslandsflugs Hugmynd um þver-
pólitíska Evrópunefnd
Formenn
VG og
Framsókn-
ar jákvæðir
FORMENN Framsóknarflokksins
og Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs taka vel í hugmynd Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra um
þverpólitíska nefnd til að fjalla um
tengsl Íslands við Evrópusambandið.
Formenn Samfylkingarinnar og
Frjálslynda flokksins eru ekki eins já-
kvæðir en útiloka ekki hugmyndina.
„Mér finnst það sjálfsagt og við
höfum rætt þetta nokkuð innan
Framsóknarflokksins og teljum að
það sé hið besta mál,“ segir Halldór
Ásgrímsson um hugmynd Davíðs.
Hann leggur þó áherzlu á að slík
nefnd yrði ekki til þess að draga úr
starfi Framsóknarflokksins að Evr-
ópumálum.
„Ég tek mjög jákvætt í hugmynd
forsætisráðherra enda verði þetta þá
gert af fullri alvöru og vel að málum
staðið; nefndin fái þannig það umboð
og þær aðstæður sem þarf til þess að
gera þetta af myndarskap,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
VG.
Kosið verði um Evrópustefnu
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, segir að hann
telji í sjálfu sér jákvætt að Alþingi
setji á fót nýja Evrópustefnunefnd.
Össur segist þó leggja áherzlu á að
slík nefnd geti ekki mótað stefnu Ís-
lands í Evrópumálum, það sé verkefni
stjórnmálamanna og eðlilegast sé að
almenningur fái að greiða atkvæði um
stefnu flokkanna í Evrópumálum.
Sverrir Hermannsson, formaður
Frjálslynda flokksins, segist ekki
hafa neitt sérstakt um hugmynd for-
sætisráðherra að segja.
Enginn útilokar/10
Forystugrein/34
Skaup yfir
meðallagi
Gagnrýni um áramótaskaup
Sjónvarpsins Fólk 58