Morgunblaðið - 03.01.2003, Side 20

Morgunblaðið - 03.01.2003, Side 20
ERLENT 20 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð Er ekki kominn tími til að hefja nýtt nám, rifja upp eða bæta við fyrra nám? Það getur þú gert hjá reyndum kennurum Menntaskólans við Hamrahlíð. Þú getur valið námsgreinar eftir þörfum. Í MH er hægt að auka við þekkingu sína á mörgum sviðum. Við skólann eru nú þrjár bóknámsbrautir. Í boði er fjölbreytt nám í raungreinum, tungumálum og samfélagsgreinum. Þá er boðið upp á námskeið í stærðfræði fyrir foreldra grunnskólanema í 9. og 10. bekk. Nokkrir áfangar verða kenndir í fjarnámi eða dreifnámi. Er þetta ekki eitthvað fyrir þig? Innritun í Öldungadeild MH fyrir vorönn 2003 fer fram dagana 3. janúar n.k. kl. 1500 - 1800, 4. janúar n.k. kl. 1000 - 1400, og 6. janúar n.k. kl. 1500 - 1900. Námsráðgjafar verða nemendum til aðstoðar 6. janúar milli kl. 1500 og 1800. Mögulegt er að innrita sig í gegnum síma eða vefinn. Sjá nánar í Fréttapésa öldunga á heimasíðu okkar. Mikilvægt er að þeir nemendur sem vilja láta meta fyrra nám leggi þau gögn inn á skrifstofu sem fyrst. Greitt er sérstaklega fyrir mat á fyrra námi. Skólagjöld ber að greiða við innritun. Komdu í heimsókn á heimasíðu okkar! Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar s.s. stundatöflu vorannar, Fréttapésa öldunga, bókalista og innritunareyðublað fyrir símainnrituna og fl. Slóðin er; www. mh.is Rektor Ásmundur Melkorka Haukur Villi Jón Hólm Ólafía Gísli Felix Fasteignasalan Hóll óskar öllum lands- mönnum gleðilegs nýs árs og þakkar ánægjuleg viðskipti á liðnum árum. Kraftmikið starfsfólk Hóls er reiðbúið til þess að þjóna þér og þínum í öruggum fasteignaviðskiptum á nýju ári. Starfsfólk Hóls. ft i i t f f l l i i til j í í f t i i i t j i. t f f l l . Selfoss Akrueyri Dalabyggð Egilsstaðir Patreksfjörður Suðurland Ágúst Árni BerglindBjörgvin Ella Hörður Franz ÞorsteinnJóhann ÓliSigrún Svandís Kristberg Þórlaug Reykjavík Fjarðarbyggð LUIZ Inacio Lula da Silva,lítt menntuð verkalýðs-hetja, sór á miðvikudagembættiseið forseta Brasilíu. Í ræðu sem Lula flutti að lokinni athöfninni hét hann því að berjast gegn fátækt og spillingu í landinu. Mikil gleði og almenn hef- ur ríkt í Brasilíu undanfarna daga enda eru miklar vonir bundnar við forsetann nýja. Tugir þúsunda manna höfðu komið sér fyrir meðfram helstu breiðgötum Brasilíu, höfuðborgar Brasilíu, til að fylgjast með því er Lula ók í opinni Rolls Royce- bifreið til þinghússins þar sem embættistakan fór fram. Rauðir fánar blöktu og hefðbundin slagorð brasilískra vinstrimanna hljómuðu er forsetinn ók hjá í bifreiðinni sem Elísabet Englandsdrottning færði Getulio Vargas, þáverandi forseta landsins, að gjöf á sjötta áratug liðinnar aldar. Bifreið- arinnar gættu „Sjálfstæðisdrek- arnir“ en svo nefnast lífvarð- arsveitir sem konungur Brasilíu, Joao VI, stofnaði árið 1808. Tilfinningaþrungin ræða Viðstaddir athöfnina voru níu er- lendir þjóðhöfðingjar og fulltrúar helstu þjóðfélagshópa í Brasilíu, m.a. indíána. Að athöfninni lokinni flutti Lula tilfinningaþrungna ræðu þar sem hann hét því að bæta kjör fátæks fólks í Brasilíu og boðaði herför gegn spillingunni sem löngum hefur einkennt samfélag og stjórnsýslu þar syðra. „Við munum ekki líða spillingu, svik og sóun og áframhaldandi stuld á auð- lindum í eigu þjóðarinnar,“ sagði forsetinn. Lula lagði áherslu á að tími breytinga væri runninn upp í Brasilíu. Nú gæfist landsmönnum loks tækifæri til að breyta sam- félaginu því óttinn hefði vikið fyrir voninni. Forsetinn kvaðst mundu berjast gegn fátækt og spillingu á sama tíma og skilyrði yrðu sköpuð fyrir hagvexti og aukinni samvinnu við önnur ríki Rómönsku Ameríku. „Verði það svo, við lok kjörtímabils míns, að sérhver Brasilíumaður geti snætt morgunverð, hádeg- ismat og kvöldverð mun mér hafa tekist að uppfylla hlutverk mitt í lífinu,“ sagði forsetinn. Bætti hann við að skömm myndi fylgja þjóð- inni svo lengi sem einn Bras- ilíumaður þyrfti að líða hungur. Talið er að þriðji hver Bras- ilíumaður dragi fram lífið undir skilgreindum fátæktarmörkum. Lula ræddi nokkuð skilyrði hag- vaxtar og lýsti yfir því að baráttan gegn verðbólgu yrði þar efst á for- gangslistanum. Stjórn hans myndi styðja frelsi í viðskiptum og leggj- ast gegn hvers kyns hafta- og verndarstefnu um leið og áhersla yrði lögð á réttlátar leikreglur á vettvangi alþjóðlegra viðskipta. „Lula, Lula, Lula,“ hrópaði al- þýðan er bifreið forsetans ók hjá og var það líkast því sem fræg rokkstjarna væri þar á ferð. „Ég tók börnin mín með mér svo þau gætu upplifað þessa sögulegu stund,“ sagði kona ein í þvögunni. Hún kvaðst vera opinber starfs- maður og sagði að laun hennar hefðu verið óbreytt í átta ár. „Hér er þörf á algjörum grundvall- arbreytingum,“ hrópaði hún og grét af gleði. Duglegur og róttækur „Lula, við viljum fylgja fordæmi þínu,“ sagði á risastórum borða sem komið hafði verið fyrir við þinghúsið. Var þar vísað til þess að Lula bjó við mikla fátækt í æsku og þykir hafa sýnt fádæma dugnað sem nú hefur skilað honum í æðsta valdaembætti brasilísku þjóð- arinnar. Lula bauð sig fyrst fram til forseta 1989, síðan 1994 og aft- ur 1998. Hann sigraði loks í kosn- ingunum í haust þegar 61% þeirra sem þátt tóku greiddi honum at- kvæði sitt. Mestu skipti mikil óánægja með efnahagsstefnu Fernando Henrique Cardsoso, frá- farandi forseta, en þrátt fyrir fyr- irheit í þá veru mistókst honum að sigrast á atvinnuleysisvandanum og spillingunni. Þá hefur misskipt- ing auðsins trúlega sjaldan verið meiri í Brasilíu og bilið milli ríkra og fátækra fer vaxandi. „Ég hef breyst“ Lula hófst til metorða innan verkalýðshreyfingarinnar. Hann fæddist í októbermánuði 1945 í norðausturhluta Brasilíu þar sem fátækt er almenn. Hann lauk skyldunámi og seldi appelsínur á götum heimaborgar sinnar auk þess sem hann burstaði skó til að hjálpa foreldrum sínum að fram- fleyta fjölskyldunni. 14 ára gamall var hann orðinn verkamaður og hættur í skóla. Hann fór fyrir verkfallsmönnum og gerðist einn helsti leiðtogi stjórnarandstöð- unnar þegar herforingjar voru við völd í Brasilíu á áttunda áratugn- um og fram á þann níunda. Hann stofnaði Verkamannaflokkinn (PT) í febrúar 1980, var kjörinn á þing 1986 og bauð sig fyrst fram til for- seta þremur árum síðar. Sem verkalýðsforingi þótti hann löngum róttækur mjög en fyrir kosningarnar í fyrra breytti hann um stíl, klæddist jakkafötum og tók að freista þess að höfða til fleiri en fátæklinga og verka- manna. Gerðist hann hófsamari í yfirlýsingum sínum og tók að leggja áherslu á að þrátt fyrir yf- irlýsta vinstristefnu hygðist hann ekki hverfa frá stefnu hagvaxtar og viðskiptafrelsis. Það bar árang- ur þó svo að gott gengi hans í kosningunum í haust skyti mörg- um skelk í bringu. Er Lula fór með sigur af hólmi í fyrri umferð- inni í september varð mikils ótta vart á fjármálamörkuðum. Forsetinn hefur reynt að sefa þann ótta og leggur ríka áherslu á að hann vilji ekki lengur umbylta samfélaginu: „Ég hef breyst, ég hef breyst mjög mikið,“ sagði hann í kosningabaráttunni. Hið sama á við um flokk hans sem hefur mark- visst færst sig nær miðju stjórn- málanna í Brasilíu. Lula boðar herför gegn fátækt og spillingu Reuters Luiz Inacio Lula da Silva ásamt eiginkonu sinni, Marisa, eftir að hafa tekið við embætti forseta Brasilíu. Mikil gleði ríkir í Brasilíu eftir valdatöku fyrsta vinstrimannsins á forsetastóli í 40 ár Brasilíu. Los Angeles Times, AFP. ’ Við munum ekkilíða spillingu, svik og sóun og áfram- haldandi stuld á auðlindum í eigu þjóðarinnar ‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.