Morgunblaðið - 03.01.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 9
ÞETTA virtist ætla að verða ósköp
venjulegur dagur í lífi Sveins Hilm-
arssonar, starfsmanns ÁTVR, sem
var á leið til vinnu sinnar á gamlárs-
dagsmorgun. Á leiðinni ók hann hins
vegar óvænt fram á þriggja ára
stúlku sem hafði villst á Hlíðarveg-
inum í Kópavogi. Var hún berfætt á
náttfötunum og orðið kalt.
„Mér fannst þetta hálfskrýtið,“
sagði Sveinn. „Ég fylgdist með henni í
baksýnisspeglinum og sá hana hlaupa
yfir götu og þá vissi ég að þetta var
ekki alveg eins og það átti að vera.
Þegar ég sá að enginn fylgdi henni
eftir sneri ég við og stöðvaði hjá henni
til að spyrja hvað hún væri að vilja.
Hún sagði mér að hún ætlaði að finna
mömmu sína. Þá þóttist ég sjá að hún
vissi ekkert hvað hún væri að gera.
Ég lét hana í bílinn hjá mér og reyndi
að veiða upp úr henni hvar hún ætti
heima. En það vissi hún ekki og því sá
ég mér þann kost vænstan að fara
með hana á lögreglustöðina.“
Lögreglumönnum gekk vel að
finna út hver stúlkan væri og komu
foreldrarnir fljótlega til að sækja
hana á stöðina. Héldu þeir hana vera
sofandi heima, en þeir þurftu báðir að
fara til vinnu á gamlársdagsmorgun.
Stálpaður bróðir stúlkunnar, sem var
heima, átti að gæta systur sinnar.
„Sennilega hefur hún verið á leið
heim til afa síns og ömmu, en þau eiga
heima í um eins kílómetra fjarlægð,
hún hafði tekið stefnuna þangað,“
sagði Sævar Finnbogason, varðstjóri
hjá lögreglunni í Kópavogi.
Þegar Sveinn kom með barnið,
gleymdist að taka niður nafn hans á
lögreglustöðinni. Í frétt mbl.is um
málið bað lögreglan hann um að gefa
sig fram svo foreldrarnir gætu þakk-
að fyrir björgunina. Gekk þetta allt
eftir.
Fann 3 ára telpu úti
á götu á náttfötunum
„Fannst
þetta hálf-
skrýtið“
GERÐ aðkomujarðganga við Kára-
hnjúka miðar vel, að sögn Guðmund-
ar Sveins Kröyer, jarðfræðings hjá
Hönnun á Egilsstöðum. Byrjað var
að bora fyrir bergboltum við ganga-
munnann 10. desember. Íslenskir að-
alverktakar og norsk-sænska fyrir-
tækið NCC, sem er undirverktaki,
annast gangagerðina. Voru bormenn
komnir 75,5 m inn í bergið þegar gert
var hlé 19. desember. Lengd gang-
anna verður 720 m. Byrjað var að
sprengja í 525 m hæð yfir sjávarmáli
og er 13,5 gráða halli á göngunum.
Búið að bora
75 metra göng
♦ ♦ ♦
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
Froðuþeytari
fyrir cappucino
verð án statífs kr. 2.500
m.statífi kr. 2.995
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Bankastræti 14, sími 552 1555
Útsalan
er hafin
Eddufelli 2 s. 557 1730 • Bæjarlind 6 s. 554 7030.
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 • lau. 10-15.
Útsala — Útsala
Vetrarútsalan byrjar á morgun
Mikil verðlækkun
Allt nýjar og nýlegar vörur
str. 36-42 & 44-56
ÚTSALA
hefst í dag
35-70%
afsláttur
Kringlunni - sími 581 2300
ÚTSALA
Opið virka daga frá kl. 9-18
Laugardaga frá kl 10-15
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222
40-70%
afsláttur
Útsalan er hafin
Útsalan
er hafin
Kringlunni — s. 568 1822
Laugavegi 56, sími 552 2201
Laugavegi 4, sími 551 4473 - www.lifstykkjabudin.is
Kæru viðskiptavinir
Gleðilegt nýtt ár og þökk fyrir það liðna