Morgunblaðið - 03.01.2003, Síða 54
DAGBÓK
54 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Skógafoss, Freri, Örfir-
isey, Venus, Vigri og
Mánafoss fara í dag
Hafnarfjarðarhöfn:
Richmond Park kom í
gær, Helga María fór í
gær, Rán og Viking fara
í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofan.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
frjálst að spila í sal.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45 op-
in handavinnustofan,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–16.45 alla daga
nema mánudaga.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
applikering, kl. 10–13
opin verslunin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, myndlist, kl.
9.30 gönguhópurinn
Gönuhlaup leggur af
stað, kaffi á eftir göng-
unni, allir velkomnir, kl.
14 brids og spila-
mennska, hárgreiðslu-
stofan opin 9–14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13. „Opið
hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið Hraunsel verð-
ur opnað mánudaginn 6.
janúar með pútti kl. 10,
tréskurði kl. 13og fé-
lagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin kl. 10–13 virka
daga. Morgunkaffi, blöð-
in og matur í hádegi.
Sunnudagur: Dansleikur
kl. 20, Caprí-tríó leikur
fyrir dansi. Skrifstofa fé-
lagsins er í Faxafeni 12,
sími 588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Opið frá 9–16.30, m.a.
spilamennska frá hádegi
kl. 13.15. Lagt af stað í
messu í Digraneskirkju,
að því loknu er ekið um
höfuðborgarsvæðið, ljós-
um prýtt. Allar upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 17, heitt á
könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla. Föstudaginn 3.
janúar kl. 14 verður ára-
mótaguðsþjónustu í
Digraneskirkju, pr .sr.
Guðmunur Þor-
steinsson, lagt af stað
frá Hraunbæ kl. 13.30,
skráning í síma
587 2888.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun. Fótaaðgerð, hár-
snyrting. Allir velkomn-
ir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmtud.: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 10–11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
alm. handavinna, kl. 10–
11 kántrýdans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30–14.30
sungið við flygilinn, kl.
14–15 félagsráðgjafi á
staðnum, kl. 14.30–16
dansað í aðalsal. Getum
bætt við nemendum í
mósaik, keramikmálun
og bútasaum. Upplýs-
ingar og skráning í síma
562 7077. Þjónustu-
miðstöðin er opin öllum
óháð aldri.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids verður
spilað næst þriðjudaginn
7. janúar.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað frá
Gjábakka, Fannborg 8,
kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum með
börnin sín á fimmtud. kl.
13–15 á Loftið í Hinu
húsinu, Pósthússtræti
3–5. Opið hús og kaffi á
könnunni, djús, leikföng
og dýnur fyrir börnin.
Gigtarfélagið. Hóp-
þjálfun hefst eftir jólafrí
þriðjudaginn 7. janúar.
Hádegisleikfimi, létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Leik-
fimi fyrir gigtarfólk og
aðra fullorðna. Ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Skráning og upp-
lýsingar á skrifstofu GÍ,
s. 530 3600.
Minningarkort
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stangarhyl
1, 110 Reykjavík. S. 570
5900. Fax: 570 5901.
Netfang: slysavarna-
felagid@landsbjorg.is.
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, s. 568 8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, s.
562 1581 og hjá Kristínu
Gísladóttur, s. 551 7193
og Elínu Snorradóttur,
s. 561 5622.
Minningarkort Sjúkra-
liðafélags Íslands eru
send frá skrifstofunni,
Grensásvegi 16, Reykja-
vík. Opið virka daga kl.
9–17. S. 553 9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525 1000
gegn heimsendingu
gíróseðils. Minn-
ingakort Breiðfirðinga-
félagsins eru til sölu hjá
Sveini Sigurjónssyni, s.
555 0383 eða 899 1161.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arsjóður í vörslu kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði.
Minningarkortin fást nú
í Lyfjum og heilsu,
verslunarmiðstöðinni
Firði í Hafnarfirði. Kort-
ið kostar 500 kr.
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar eru
afgreidd á bæjarskrif-
stofu Seltjarnarness hjá
Ingibjörgu.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir sem
hafa áhuga á að kaupa
minningarkort vinsam-
legast hringi í síma
552 4994 eða síma
553 6697, minning-
arkortin fást líka í Há-
teigskirkju við Háteigs-
veg.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju, s.
520 1300, og í blómabúð-
inni Holtablóminu,
Langholtsvegi 126. Gíró-
þjónusta er í kirkjunni.
Minningakort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67 og í Kirkju-
húsinu v/Kirkjutorg.
Minningarkort
Kvenfélagsins
Hringsins í Hafnarfirði
fást í blómabúðinni
Burkna, hjá Sjöfn, s.
555 0104, og hjá Ernu s.
565 0152.
Minningarkort ABC-
hjálparstarfs eru af-
greidd á skrifstofu ABC-
hjálparstarfs í Sóltúni 3,
Reykjavík, í síma
561 6117. Minning-
argjafir greiðast með
gíróseðli eða greiðslu-
korti.
Allur ágóði fer til hjálp-
ar nauðstöddum börn-
um.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s. 552-
2154. Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud. kl.
16–18 en utan Skrif-
stofutíma er símsvari.
Einnig er hægt að
hringja í síma 861-6880
og 586-1088. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Í dag er föstudagur 3. janúar, 3.
dagur ársins 2003. Orð dagsins: Ef
þér elskið mig, munuð þér halda
boðorð mín.
(Jóh. 14, 15.)
Skrif Sveins Haralds-
sonar um leiklist
SVEINN skrifar í Morgun-
blaðið 27. desember leik-
listargagnrýni um leikritið
„Með fullri reisn“ sem var
frumsýnt annan dag jóla.
Eftir að hafa séð leikritið
þennan sama dag og lesið
grein rýnisins má ég til
með að benda honum á að
umsögn um einn leikarann
vantar alveg. Hann hlýtur
að sjá það sjálfur, maður-
inn, ef hann les rýni sína að
hann gleymir Sigríði Þor-
valdsdóttur leikkonu sem
fór alveg á kostum og var
hreint út sagt frábær í hlut-
verki sínu bæði að mínu
mati og annarra sem voru
þarna með mér. Vil ég
þakka henni og öllum öðr-
um leikurum og starfsfólki
Þjóðleikhússins fyrir ein-
staklega skemmtilega, vel
gerða og fjöruga sýningu.
Soffía Guðmundsdóttir,
Hagalandi 11, Mosf.
Tapað/fundið
Hálsmen í óskilum
HÁLSMEN, silfurlitað
með bláum steini, fannst sl.
föstudag á Hagkaupsplan-
inu í Skeifunni. Upplýsing-
ar í síma 588 3990.
Jólapakkar
týndust
POKI með jólapökkum
týndist á Vitastíg á að-
fangadagskvöld. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 554 6249 eða 861 4993.
Silfurlitað kvenúr
týndist
SILFURLITAÐ kvenúr
týndist 28. desember sl.,
sennilega í verslunarmið-
stöðinni Firði í Hafnarfirði
eða í nágrenni. Skilvís finn-
andi hafi samband við Önnu
í síma 555 0125.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
ÞRÍR fallegir og kassavan-
ir kettlingar óska eftir góðu
heimili. Uppl. í síma
557 7788.
Páfagaukur týndist
Á LAUGARDAGINN
flaug út um glugga í Skipa-
sundi lítil gárastelpa, blá og
hvít að lit. Ef einhver hefur
fundið hana þá vinsamlega
hafið samband við Sigríði í
síma 698 2376.
Páfagaukur
í óskilum
PÁFAGAUKUR flaug inn
um gluggann hjá okkur í
Fossvogi á nýársdags-
kvöld. Gauksi er í góðu yf-
irlæti en saknar nú samt
eigenda sinna og eru þeir
beðnir um að hringja í síma
588 6411.
Rambó er
enn týndur
KÖTTURINN Rambó
týndist úr gæslu á jóladag
frá Kattholti. Hann er
svartur, 14 ára og mjög
gæfur. Þeir sem hafa orðið
hans varir hafi samband í
Kattholt í síma 567 2909
eða 581 2181.
Glóey er týnd
GLÓEY varð skelfingu
lostin á gamlárskvöld og
flýði út í myrkrið í Kjósinni.
Hún á heima í Mosfellsbæ
og er að
reyna að
komast
heim þar
sem henn-
ar er sárt
saknað.
Glóey er
tveggja
ára, leir-
ljós og
fremur loðin, með kolótt
trýni og rauða hálsól með
gulu merki í.
Hún er ljúf og blíð og
kemur með gleði til þeirra
sem kalla á hana. Ef ein-
hver hefur séð Glóey þá
vinsamlega hafið samband í
síma 699 3250 eða 69 69
299. Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI brá sér í Þjóðleikhús-ið með nokkrum vinum sínum
og sá jólasýningu leikhússins, söng-
leikinn Með fullri reisn.
Eins og flestir vita gengur leik-
ritið í staðfærðri útgáfu út á að at-
vinnulausir menn í sjávarplássi taka
upp á því að dansa nektardans til að
krækja sér í aura. Í lokaatriði leik-
ritsins ganga þeir „alla leið“, þ.e.
leikararnir fara úr hverri spjör. Í
senunni er lýsingu reyndar beitt svo
hugvitssamlega að konur í vinahópi
Víkverja kvörtuðu sáran yfir að hafa
ekki „séð neitt“ þrátt fyrir að sitja á
fremsta bekk.
Aðrir áhorfendur á fremsta
bekknum veltu hins vegar fyrir sér –
aðallega í gríni – hvort það gæti ver-
ið að nýjar reglur Reykjavíkurborg-
ar um fjarlægð á milli nektardansara
og áhorfenda hefðu verið brotnar á
þeim, þar sem fjarlægðin milli þeirra
og „nektardansaranna“ hefði verið
minni en fjórir metrar. Niðurstaða af
umræðum í hópnum varð þó sú að
þessi nektardans væri ekki í alvöru
og að reglurnar næðu ekki yfir hann.
Í staðfærslu leikritsins hefur því
reyndar verið komið að hvaða reglur
gildi um nektardans í Reykjavík;
spurt er hvort þetta athæfi sé ekki
bannað, og því svarað til að það sé
bara einkadansinn, og „bara fyrir
sunnan“.
x x x
VÍKVERJI komst ekki hjá því aðvelta því fyrir sér meðan á leik-
ritinu stóð, hvort það hefði þótt jafn-
fyndið og skemmtilegt ef leikurinn
hefði gengið út á konur í þessari
sömu stöðu, þ.e. sem dansa nektar-
dans sér til lífsviðurværis. Líkast til
endurspeglar það valdahlutföllin og
ólíka stöðu kynjanna að það þykir í
lagi að gera grín að körlum, sem
vinna fyrir sér með „strippi“, en
sama á ekki við ef konur eiga í hlut.
Það þykir einfaldlega fjarlægur
möguleiki að karl þurfi nokkurn tím-
ann að leggjast svona lágt. Það er
þess vegna ekki auðvelt fyrir fólk að
heimfæra þær aðstæður, sem leik-
ritið lýsir, upp á blákaldan raunveru-
leikann.
x x x
NEIKVÆÐUM umsögnum í fjöl-miðlum um íslenzk skáldverk,
bíómyndir, leikrit o.s.frv. er oft illa
tekið af aðstandendum þessara
verka. Hvað ætli höfundar nýju
dönsku kvikmyndarinnar Bertram
& Co hafi þá sagt er þeir lásu dóm í
Berlingske Tidende, sem byrjar
svona: „Hálfum öðrum tíma eftir að
„Bertram & Co“ byrjar hefur hún
verið búin í tíu mínútur. Það eru
góðu fréttirnar.
Það er ekki eins gott, að á milli
þessara tveggja punkta eru áttatíu
mínútur af grófri kvikmyndalegri
móðgun, sem er byggð á annars
dauðri kenningu um að almennir
áhorfendur samanstandi af fólki með
valhnetu fyrir heila.“
Síðar í dómnum bætir gagnrýn-
andinn því við að leikstjórnin sé við-
líka fáguð og biluð þurrkaratromla,
leikurinn sé bezt gleymdur og að vilji
einhver sjá myndina sé hann líklega
haldinn sjálfspíningarhvöt. Þeir,
sem á annað borð sjái myndina, verði
að vera varkárir þegar þeir komi úr
bíó, af því að það sé svo erfitt að
ganga á samankrepptum tám!
Líklega er íslenzk gagnrýni bara
nokkuð ígrunduð, varkár og orðvör,
þegar allt kemur til alls.
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 aumingja, 4 helmingur,
7 smábýlið, 8 skjálfa, 9
elska, 11 keyrir, 13 karl-
fugls, 14 grefur, 15 lög-
un, 17 reiður, 20 agnúi,
22 blíða, 23 kvistótt, 24
sefaði, 25 manndrápi.
LÓÐRÉTT:
1 yrkja, 2 fetill, 3 kven-
dýr, 4 fornafn, 5 telja úr,
6 bik, 10 slanga, 12 bel-
jaka, 13 lík, 15 hófdýr, 16
sundra, 18 útlimir, 19
hvalaafurð, 20 skott, 21
málmur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 kunngerir, 8 votar, 9 dugir, 10 tíu, 11 rolla, 11
reisa, 15 hross, 18 árnar, 21 tók, 22 rifti, 23 aflar, 24 un-
aðslegt.
Lóðrétt: 2 umtal, 3 narta, 4 eldur, 5 Ingvi, 6 sver, 7 urra,
12 les, 14 err, 15 horf, 16 orfin, 17 stirð, 18 ákall, 19 ný-
leg, 20 rýrt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16