Morgunblaðið - 03.01.2003, Blaðsíða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 49
SKÁKMEISTARARNIR Helgi
Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Jón
Viktor Gunnarsson urðu efstir og
jafnir með 14 vinninga af 18 á Nýárs-
móti Skeljungs sem fram fór í aðal-
stöðvum Skeljungs á Suðurlands-
braut 4 á sunnudag. Eftir stiga-
útreikninga var Helgi Ólafsson
úrskurðaður sigurvegari mótsins og
telst því skákmeistari Skeljungs árið
2002. Jóhann lenti samkvæmt sömu
útreikningum í öðru sæti og Jón Vikt-
or í því þriðja. Það er greinilegt að
verðlaunahafarnir eru í góðu formi
um þessar mundir. Þeir Jóhann og
Helgi sigruðu einnig á Jólaskákmóti
Búnaðarbankans sem haldið var fyrr
í mánuðinum og eins og þá er Jón
Viktor sá eini af yngri kynslóðinni
sem blandar sér í baráttuna um efstu
sætin. Hann sigraði reyndar á þessu
móti í fyrra. Það er hins vegar athygl-
isvert að Björn Þorfinnsson, sem
lenti í sjöunda sæti á mótinu, fær 2½
vinning af þremur gegn þessum
þremur öflugu meisturum. Mun lak-
ara árangur hans gegn þeim sem
enduðu um og fyrir neðan miðju kom
hins vegar í veg fyrir að hann næði
hærra sæti.
Átján skákmenn tóku þátt í mótinu
að þessu sinni, þeirra á meðal voru 5
stórmeistarar og þrír alþjóðlegir
meistarar. Þetta er fjórða árið í röð
sem Nýársskákmót Skeljungs er
haldið. Úrslit:
1. Helgi Ólafsson 14 v.
2. Jóhann Hjartarson 14 v.
3. Jón Viktor Gunnarsson 14 v.
4. Margeir Pétursson 12½ v.
5. Þröstur Þórhallsson 12 v.
6. Karl Þorsteins 11 v.
7.–8. Björn Þorfinnsson, Stefán
Kristjánsson 10½ v.
9. Jón L. Árnason 8½ v.
10.–12. Bragi Þorfinnsson, Bragi
Halldórsson, Ingvar Þór Jóhannes-
son 7½ v.
13.–14. Ágúst Sindri Karlsson,
Bragi Kristjánsson 7 v.
15. Þráinn Vigfússon 4½ v.
16. Guðlaug Þorsteinsdóttir 4 v.
17.–18. Árni Ármann Árnason,
Magnús Pálmi Örnólfsson ½ v.
Arnar Gunnarsson sigraði
á Flugeldamóti TK
Flugeldamót Taflfélags Kópavogs
2002 var haldið 29. desember. Fjór-
tán skákmenn mættu til leiks. Arnar
Erwin Gunnarsson sigraði örugglega
og hlaut hann 12½ vinning í 13 skák-
um. Í öðru sæti varð Erlingur Þor-
steinsson með 10½ vinning og þriðji
Stefán Freyr Guðmundsson með 10
vinninga. Eiríkur Björnsson varð
fjórði með 9½ vinning. Í fimmta sæti
varð Jónas Jónasson með 8 vinninga.
Jólahraðskákmót Taflfélags
Reykjavíkur var haldið laugardaginn
28. desember. Tefldar voru 2x7 um-
ferðir eftir Monrad-kerfi með 5 mín-
útna umhugsunartíma. Keppt var um
titilinn Jólahraðskákmeistari TR
2002 og auk þess var keppt um 2 sæti
á Nýársmóti Skeljungs. Keppnin var
æsispennandi og þurfti að tefla auka-
keppni um titilinn og laust sæti á Ný-
ársmótinu. Jón Viktor Gunnarsson
sigraði Ingvar Jóhannesson í einvígi
um sigurinn á mótinu 1½–½. Bragi
Halldórsson bar svo sigurorð af Ró-
berti Harðarsyni í einvígi um loka-
sætið á Skeljungsmótinu. Úrslit
mótsins urðu sem hér segir:
1. Jón Viktor Gunnarsson 10½ v.
2. Ingvar Þór Jóhannesson 10½ v.
3. Bragi Halldórsson 10 v.
4. Róbert Harðarson 10 v.
5.–6. Magnús Örn Úlfarsson, Sig-
urður Daði Sigfússon 9½ v.
7.–11. Björn Þorfinnsson, Stefán
Kristjánsson, Ögmundur Kristins-
son,. Sigurbjörn Björnsson, Halldór
B. Halldórsson 9 v.
12.–13. Davíð Kjartansson, Dagur
Arngrímsson 8½ v.
14.–16. Jóhann Ingvarsson, Páll
Agnar Þórarinsson, Guðlaug Þor-
steinsdóttir 8 v.
17.–21. Guðmundur Sigurjónsson,
Siguringi Sigurjónsson, Sigurður
Páll Steindórsson, Bergsteinn Ein-
arsson, Guðmundur Kjartansson 7½
v.
22. Árni Ármann Árnason, Atli
Freyr Kristjánsson, Þorsteinn Guð-
laugsson 7 v.
o.s.frv.
Keppendur á mótinu voru 42.
Skákstjóri var Ólafur Ásgrímsson.
Helgi Ólafsson Skeljungsmeistari 2002
SKÁK
Skeljungur, Suðurlandsbraut 4
NÝÁRSMÓT SKELJUNGS 2002
29. des. 2002
Daði Örn Jónsson
Gunnar Karl Guðmundsson, aðstoðarforstjóri Skeljungs, ásamt sigurvegurum Skeljungsmótsins, þeim Helga
Ólafssyni, Jóhanni Hjartarsyni og Jóni Viktori Gunnarssyni.
dadi@vks.is
Í BOÐI sem Vinnslustöðin í Vest-
mannaeyjum hélt fyrir starfsfólk
sitt rétt fyrir jólin voru nokkrir
starfsmenn þess heiðraðir fyrir
langt og drjúgt starf fyrir fyr-
irtækið. Þar á meðal var Sig-
urbjörg Guðnadóttir skrif-
stofumaður heiðruð fyrir að hafa
unnið í 50 ár hjá Vinnslustöðinni,
sem hefur verið eini vinnuveitandi
hennar í lífinu.
Góður rómur var gerður að þess-
um hátíðarhöldum innan fyrirtæk-
isins. Starfsmannafélag Vinnslu-
stöðvarinnar sá um gerð alls
meðlætis og keypti fyrirtækið það
af félaginu, til stuðnings þess.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sigurbjörg Guðnadóttir tekur við
árnaðaróskum frá Sigurgeiri
Brynjari Kristgeirssyni, fram-
kvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar.
Vinnslustöð-
in heiðrar
starfsmenn
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá þingflokki
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs.
„Þingflokkur Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs tekur undir
þau orð í áramótaræðu forseta Ís-
lands að vaxandi fátækt fjölda fólks
mitt í öllu ríkidæminu er ein mesta
þversögn samtímans. Þingflokkur-
inn styður heils hugar að skorin
verði upp herör gegn fátækt hér á
landi og efnt til þjóðarátaks í því
skyni.
Vaxandi fátækt mitt í ríkidæmi
vestrænna velmegunarsamfélaga er
afleiðing þjóðfélagsbreytinga sem
leitt hafa til gríðarlegrar auðsöfn-
unar fárra en hreinnar fátæktar
vaxandi fjölda hinna lakast settu.
Þegar við bætist, eins og gerst hef-
ur hér á landi sl. 10–12 ár, að vel-
ferðarkerfið veikist og skattbyrði
láglaunafólks eykst verður afleið-
ingin vaxandi erfiðleikar tekjulágra
einstaklinga og fjölskyldna við að
sjá sér farborða.
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð hefur þegar sett á oddinn bar-
áttu fyrir myndun velferðarstjórnar
að loknum kosningum í vor. Verk-
efni velferðarstjórnar er að snúa
vörn í sókn og innleiða tíma upp-
byggingar og endurbóta í velferð-
armálum. Öflugt samábyrgt velferð-
arkerfi í anda þess sem best gerist á
Norðurlöndum er okkar markmið
og um leið besta vörnin gegn mis-
skiptingu og fátækt.“
Til atlögu
við vaxandi
fátækt
♦ ♦ ♦
www.starri.is
Sérhæfing í
Intel-vörum
Móðurborð - Örgjörvar
- Flatir skjáir
3ja ára ábyrgð