Morgunblaðið - 03.01.2003, Side 16

Morgunblaðið - 03.01.2003, Side 16
ERLENT 16 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is www.mulalundur.is Alla daga við hendina TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 310 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2003 Kjölmiðar með ártali Spyrjið um bréfabindi í næstu bókaverslun. Við starfsfólk Múlalundar viljum þakka starfsfólki bókaverslana hve vel það hefur tekið bréfabindunum frá okkur og ekki sýst þeim sem kaupa þau því það tryggir betri framtíð margra einstaklinga. YFIRVÖLD í Ástralíu hafa hert allt eftirlit við búðir innflytjenda í land- inu en þar hefur komið til mikilla óeirða að undanförnu. Ýmsir sál- fræðingar vara hins vegar stjórn- völd við og segja, að búast megi við álíka uppákomum á næstunni vegna þess, að andlegt ástand fólksins í búðunum sé orðið mjög bágborið. Síðustu vikuna hefur komið til uppþota í fimm af sjö búðum fyrir ólöglega innflytjendur og eldur komið upp í mörgum byggingum í þeim. Í búðunum eru um 1.200 manns, aðallega frá Miðausturlönd- um og Suður-Asíu. Er beint fjártjón af völdum óeirðanna metið á meira en 300 millj. íslenskra króna. Hafa 15 ólöglegir innflytjendur, aðallega frá Kína, úr einum búðunum verið settir í sérstaka öryggisgæslu og aðrir sjö voru leiddir fyrir rétt í gær sakaðir um íkveikju og árásir á verði í Woomera-búðunum. Eru þeir sagðir hafa stjórnað uppreisn um 90 fanga. Fólkinu er haldið í búðunum með- an verið er að fjalla um umsókn þess um hæli í Ástralíu eða þar til það er flutt aftur úr landi. Getur það tekið nokkur ár. Hótar ríkisstjórn Johns Howards forsætisráðherra að reka umsvifalaust úr landi þá, sem standa fyrir uppþotum, en samtök ástr- alskra sálfræðinga segja, að uppþot- in hafi „verið fyrirsjáanleg og þess vegna unnt að koma í veg fyrir þau“. „Ástandið í búðunum er mjög al- varlegt. Fólkið er örvæntingarfullt og andleg heilsa þess orðin mjög bágborin,“ sagði Louise Newman, talsmaður samtakanna. Sagði hún, að yrði ekki úr bætt mætti fljótlega búast við nýjum óeirðum. Daryl Williams, ríkissaksóknari Ástralíu, vísaði þessu á bug og sagði, að þeir ólöglegir innflytjendur, sem teldu andlegri heilsu sinni vera hætta búin, gætu einfaldlega snúið aftur til síns heima. Sameinuðu þjóðirnar og ýmis mannréttindasamtök hafa gagnrýnt áströlsku ríkisstjórnina harðlega fyrir meðferðina á ólöglegum inn- flytjendum en þeim er öllum safnað saman í sérstakar búðir fjarri byggð og þar af eru einar á Jólaeyju í Kyrrahafi. Uppþot og óeirðir meðal ólöglegra innflytjenda í Ástralíu Eftirlit með búðunum hert Sydney. AP, AFP. Reuters Logandi byggingar í Woomera-flóttamannabúðunum í Ástralíu á gamlársdag. 37 hús eyðilögðust alveg. HANS Blix, yfirmaður vopna- eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna, þekktist í gær boð ráðamanna í Írak um að koma til Bagdad til viðræðna um störf vopnaeftirlitsmanna í landinu undanfarnar vikur. Blix fer til Bagdad í þriðju viku jan- úarmánaðar, þ.e. skömmu áður en hann á að skila öryggisráði SÞ skýrslu um framgang vopnaeftirlitsins, mánudaginn 27. janúar. Verði óháðir Dönum FÆREYINGAR geta losnað við að vera háðir danskri fjár- hagsaðstoð með því að efla efnahaginn, að sögn Anfinns Kallsbergs, lögmanns Færeyja, í nýársávarpi til þjóðarinnar. Kallsberg sagði að fjárhagslegt sjálfstæði væri eitt helsta stefnumál ríkisstjórnarinnar á nýhöfnu ári. Fjárlög Færeyja fyrir árið 2003 nema um 3,6 milljörðum danskra króna, rúmlega 42 milljörðum ísl. kr. en þar af greiða Danir um 615 milljónir d.kr. Árið 2000 var danska aðstoðin hins vegar um þúsund milljónir d.kr. Tilkynnir framboð BANDARÍSKI öldungadeild- arþingmaðurinn John Edwards tilkynnti í gær að hann byði sig fram til forseta Bandaríkjanna í kosningum á næsta ári. Ed- wards, sem er 49 ára gamall, er þingmaður demókrata í Norður-Karól- ínu. Hann seg- ist vilja berjast fyrir hagsmun- um venjulegs fólks. Tveir demókratar til viðbótar, þeir John Kerry og Howard Dean, hafa tilkynnt framboð og búist er við að Joe Lieberman og Dick Gephardt geri slíkt hið sama. Stúlkur skotnar TVÆR táningsstúlkur létust og tvær til viðbótar særðust illa eftir að byssuskotum var hleypt af í veislu í Birmingham í Bret- landi í fyrrinótt. Mun hafa kom- ið upp deila í veislunni eftir að nokkrir gestanna reyndust vopnaðir skotvopnum, með fyrrgreindum afleiðingum. Olíumengun í Frakklandi FRANSKIR saksóknarar kröfðust þess í gær að efnt yrði til glæparannsóknar á orsökum þess að olíuskipið Prestige sökk fyrir sex vikum undan strönd- um Spánar. Þegar hefur orðið mikið tjón á norðurströnd Spánar af völdum olíu úr skip- inu og hefur hún nú einnig fundist á vinsælum ferða- mannaströndum í suðvestan- verðu Frakklandi. Athuganir úr lofti sýndu á miðvikudag að mikill olíuflekkur var þá á Atl- antshafi, í um 180 km fjarlægð frá Frakklandi. Um 170 fuglar hafa þegar orðið olíunni að bráð á strönd franska héraðsins Aquitaine. STUTT Blix til Íraks John Edwards HUGSANLEGT er, að Kínverjar sendi mann á braut um jörðu á árinu. Var þetta haft eftir einum yf- irmanna kínversku geimvísinda- stofnunarinnar í vikunni. Yuan Jie, yfirmaður Shanghai-skrifstofu stofnunarinnar, sagði á þriðjudag, að verið væri að ljúka smíði geim- farsins, sem heitir Shenzhou V eða „Hið guðlega far V“, og stefnt að því að skjóta því upp á síðara helmingi ársins. Talsmaður Bandaríkjastjórnar sagði í júlí síðastliðnum, að Kína- stjórn stefndi að mannaðri geimferð á þessu ári. Áður höfðu kínverskir fjölmiðlar sagt, að langtímamark- miðið væri að koma upp bækistöð á tunglinu í því skyni að kanna og nýta auðlindir þess, til dæmis málma. Kínverskir vísindamenn Geimferð á árinu? Peking. AFP. SÚ ákvörðun rússneskra stjórnvalda að loka skrifstofu ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, í Téts- níu hefur verið hörmuð innan Evr- ópusambandsins en tétsenskir skæruliðar segja aftur á móti, að lítils sé að sakna. Hafi skrifstofan ekki verið annað en leppur fyrir Rússa. Umboð ÖSE-skrifstofunnar í Tétsníu rann út nú um áramótin og í höfuðstöðvum samtakanna í Vín náð- ist ekki samkomulag um að endur- nýja það. Það var því lítið mál fyrir Rússa að taka af skarið og loka skrif- stofunni. Joschka Fischer, utanríkis- ráðherra Þýskalands, harmaði þá ákvörðun í fyrradag og kvaðst þá vona, að hún yrði opnuð aftur fljót- lega. Sagði hann, að þar hefði verið unnið gott starf með það fyrir augum að „bæta lífsskilyrði Tétsena og koma á samningum um frið í land- inu“. Talsmaður Aslans Maskhadovs, leiðtoga tétsenskra aðskilnaðarsinna, sagði í fyrradag, að lokun ÖSE-skrif- stofunnar skipti engu máli. Hún hefði ekki verið annað en strengjabrúða Rússa og kvörtunum um ofbeldi rússneskra hermanna gegn óbreytt- um borgurum hefði í engu verið sinnt. Á hinn bóginn væri lokun skrif- stofunnar óvirðing við vestræn ríki og við henni yrðu þau að bregðast. Fá Rússar lausari taum? Vestrænir fulltrúar hjá ÖSE segja, að lokun skrifstofunnar muni gefa Rússum lausari tauminn í stríðinu í Tétsníu en talsmaður skæruliða gerði lítið úr því, Sagði hann, að hún hefði hvort eð er ekki verið annað en„hjáleiga utanríkisráðuneytisins í Moskvu“. Tim Guldimann, yfirmaður hennar í fyrra Tétsníustríðinu, frá 1994 til 1996, hefði hins vegar lagt mikið af mörkum og „ekki trúað öllu, sem kom frá Moskvu“. Hefði hann komið Tétsenum og Rússum að samningaborðinu og unnið að undir- búningi lýðræðislegra kosninga í landinu. Allt annað hefði verið uppi á teningnum með starfsemi skrifstof- unnar í Tétsníustríðinu síðara. Loka ÖSE-skrif- stofu í Tétsníu Sleptsovsk, Berlín. AFP. ♦ ♦ ♦ EVRÓPUSAMBANDIÐ (ESB) tók á nýársdag formlega að sér þjálfun og eftirlit með lögregluliðinu í Bosníu-Herzegóvínu af Sameinuðu þjóðunum sem hafa annast þann starfa í nær áratug. Er þetta í fyrsta sinn sem ESB tekur að sér slíkt hlutverk á sviði öryggismála og alþjóðlegrar friðargæslu. Hol- lenskur lögregluforingi, Maria Donk, sést hér með fána ESB við at- höfnina í Sarajevo. Reuters Evrópusambandið tekur við

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.