Morgunblaðið - 03.01.2003, Side 34

Morgunblaðið - 03.01.2003, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. FÁTÆKT TIL UMRÆÐU Forseti Íslands, Ólafur RagnarGrímsson, og biskup Íslands,Karl Sigurbjörnsson, gerðu báðir fátækt að umtalsefni í ávarpi sínu til þjóðarinnar á nýársdag, hvor með sínum hætti. Forsetinn vakti at- hygli á fátæktinni sem þrífst í hinu ís- lenzka allsnægtasamfélagi, biskupinn á allsleysinu í þróunarríkjum. Ólafur Ragnar Grímsson sagði m.a. í nýársávarpi sínu að Íslendingar hefðu aldrei haft jafnmikla fjármuni á milli handa. „Tækifærin til góðra verka eru fleiri en nokkru sinni í sögu þjóðar. Það er því óneitanlega þver- sögn að einmitt í slíkri gósentíð skuli fátækt aukast ár frá ári,“ sagði for- setinn. Hann gerði að umræðuefni þann mikla fjölda, sem nú fyrir hátíðarnar leitaði til hjálparstofnana, og spurði hverjir væru svona illa staddir, hvar fátæktin væri orðin daglegur gestur. Hann nefndi ungar mæður, einstæð- inga, aldraða sem eingöngu hafa ein- faldan lífeyri úr að spila, öryrkja sem lifa við lágmarksbætur. Þá bættist í vaxandi mæli í hópinn fólk í fastri vinnu sem engu að síður ætti ekki fyr- ir brýnustu nauðsynjum. Ólafur Ragnar sagðist þeirrar skoðunar að umræða um fátæktar- vandann hefði ekki verið nægilega viðamikil og fátæktin væri á vissan hátt falin í skugga. Óhætt er að taka undir hvatningu hans til þjóðarinnar um að grípa til átaks til að vinna bug á fátæktinni. Sú barátta mun ekki skila árangri nema vandinn sé einmitt ræddur af hreinskilni. Karl Sigurbjörnsson rifjaði í nýárs- prédikun sinni í Dómkirkjunni upp heimsókn sína til Indlands í fyrra, þar sem hann sá „öreiga og ánauðug börn, utangarðsfólk í okkar hnatt- væddu, tæknivæddu, auðugu veröld“. Biskupinn spurði: „Hver er von þessa fólks? Hvað mun megna að rjúfa fjötrana og gefa því framtíð? Samstarfsaðilar Hjálparstarfs kirkj- unnar á Indlandi vinna kraftaverk fyrir tilstyrk hinna mörgu stuðnings- manna hér á Íslandi. En það virðist samt sem dropi í haf þjáninganna. Hverju eigum við að trúa, hvernig eigum við að breyta og hvers megum við vona fyrir hönd þessa fólks og niðja okkar? Hvað mun ráða för, hvaða meginreglur og siðgæðismæli- kvarðar, hvaða gildismat? Hver er leiðin til friðar og farsældar lífi og heimi?“ Og biskupinn hafði jafnframt svar- ið á reiðum höndum: „Fagnaðarerind- ið um Jesú Krist, hinn krossfesta og upprisna lausnara, fullyrðir: Guð hef- ur tekið sér stöðu með þeim snauðu og undirokuðu. Og framtíðin er á þeirra bandi. „Hinum snauða er ekki eilíflega gleymt,“ segir Guðs orð. Og það sem gert er til að lina þrautir og lækna mein, rjúfa hlekki og reisa upp, það er þjónusta við Drottin Krist. Og er aldrei til einskis.“ Sem kristin þjóð, sem hefur boð- skapinn um mannkærleika og sam- hjálp að leiðarljósi, eigum við að gera átak til að útrýma fátækt og eymd, ekki aðeins hér heima heldur líka þar sem við getum látið gott af okkur leiða í öðrum ríkjum. Þeir, sem búa við allsnægtir, mega ekki gleyma meðbræðrum sínum, sem þurfa á hjálp að halda. ÞJÓÐARSÁTT UM EVRÓPUMÁL? Davíð Oddsson forsætisráðherrasetur í áramótagrein sinni í Morgunblaðinu fram athyglisverða hugmynd þess efnis að sett verði á fót þverpólitísk nefnd til að fjalla um Evrópumál. Vísar hann til þess for- dæmis sem er að finna í starfi auð- lindanefndarinnar á síðasta áratug þar sem tókst að finna lausn á harð- vítugu deilumáli. Í grein sinni segir forsætisráð- herra: „Spurningin er þessi: Treysta menn sér til að sameinast um að setja niður þverpólitíska nefnd, skipaða mönnum sem nálgast efnið út frá mis- munandi forsendum, en hafa þó burði til að rífa sig frá mesta ruglinu sem nú einkennir umræðuna? Einhverjir munu sjálfsagt setja sig upp á móti svona hugmynd vegna þess eins að viss hætta er á að nefnd af þessu tagi gæti átt það til að ná árangri. Spor veiðileyfagjaldsnefndarinnar kynnu helst að hræða þá sem umræðu stunda hennar vegna en ekki málefnisins. Sjálfsagt eru þeir til, úr báðum skotgröfum, sem vilja ekki að púður- reykurinn nái að setjast svo menn sjái út úr augum. Slíkir fengu ekki að ráða för í fyrrnefnda málinu og hví ættu þeir að ráða för í svo alvarlegu deilu- máli sem Evrópusambandsmálið svo sannarlega er?“ Allt frá því að Íslendingar hófu við- ræður um aðild að Evrópska efna- hagssvæðinu fyrir rúmum áratug hafa deilur um Evrópumál sett svip sinn á stjórnmálaumræðuna. Deilt hefur verið um málið jafnt innan flokka sem milli flokka. Til dæmis hefur verið greinilegur áherslumunur á milli nú- verandi stjórnarflokka í Evrópumál- unum. Ýmislegt hefur bent til að sá áherslumunur gæti orðið helsti þrösk- uldurinn í vegi áframhaldandi sam- starfs Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks. Sú lausn, sem forsætis- ráðherra leggur til, gæti leyst þann vanda. Hún hefur hins vegar jafn- framt mun breiðari skírskotun. Samband Íslands við Evrópusam- bandið er eitthvert mikilvægasta hagsmunamál Íslendinga í framtíð- inni. Við eigum nú þegar náið sam- starf við ESB í gegnum EES-samn- inginn. Ísland er hluti af hinum sameiginlega markaði, stór hluti af sameiginlegri löggjöf ESB er nær sjálfkrafa tekinn upp í íslenska lög- gjöf. Stærstur hluti utanríkisviðskipta okkar er við ríki Evrópusambandsins. Hugsanlega verða öll viðskipti okkar við ESB-ríki í evrum í framtíðinni ef Bretar, Svíar og Danir ákveða að taka upp hinn sameiginlega gjaldmiðil. Um það er hins vegar deilt af mikilli hörku hversu æskilegt sé að tengjast Evrópusambandinu enn nánari bönd- um, jafnvel með fullri aðild. Líkt og forsætisráðherra bendir á minnir Evrópuumræðan á stundum á skot- grafahernað. Það er hins vegar mikil- vægt að breið sátt náist um þessi mál, hver svo sem niðurstaðan verður. Ef rétt er að málum staðið gæti þver- pólitísk nefnd orðið til að leggja grunn að slíkri þjóðarsátt í Evrópu- málum. BANKASTJÓRI Landsbankans, Halldór J. Kristjánsson, fagnar þessum áfanga og segist binda miklar vonir við að aðkoma hinna nýju kjölfestufjárfesta að bank- anum verði til þess að efla hann. „Samstarf mitt við þá síðustu vik- ur og mánuði hefur styrkt mig í þeirri skoðun að aðkoma þeirra verði til að efla bankann. Þetta eru öflugir aðilar með mikla og víðtæka reynslu af alþjóðlegum viðskiptum, sem mun koma bankanum til góða. Fagna ber því að ríkissjóður valdi kjölfestufjárfestana fyrst og fremst út frá mati á líklegum styrk þeirra til að efla starfsemi bankans. Eig- endurnir hafa víðtæka reynslu af fjárfestingum og rekstri stærri at- vinnufyrirtækja. Ég tel að þetta sjónarmið tryggi best stöðu allra hluthafa, starfsfólks og við- skiptavina bankans til lengri tíma. Þeir sem fjárfest hafa með þessum aðilum í öðrum félögum hafa haft af því verulegan arð,“ segir Halldór. dór. Telur hann að kaup einnig afar vel við unað anum búi mikill styrkur markaðsstaða og sterk tengsl sem byggja má á fram arðbærum vexti ti Með því endurskoðun sem í samningi ríkisins sonar felst telur Halldó lausn hafi verið fundin áherslumun sem var um teknum eignaliðum. „H huga að á liðnu ári hefu sala eða samruni á bönk Norðurlöndum. Að mat inga er það fyrst og fre þess hversu erfitt það e langtímahorfur banka o fyrirtækja þegar niðurs efnahagslífinu. Þær fáu sem gerðar hafa verið á urlöndum á nýliðnu ári tekist á endanum vegna um mat á eignum við slí fjármálamörkuðum. Það er mjög eðlilegt Hann segist telja að ríkið hafi hlotið góða ávöxtun á hlutafé sitt í Landsbankanum og kveðst ánægður fyrir hönd bæði ríkisins og Samsonar með samninginn sem rit- að var undir á gamlársdag. „Þetta er sögulegur áfangi í umbreyting- arferli á íslenskum fjármálamark- aði en með þessari sölu er lokið einkavæðingu elsta og fremsta banka þjóðarinnar. Með þessari sölu hefur ríkissjóður samtals feng- ið rúmlega 20 milljarða króna fyrir hlut sinn í bankanum. Þegar Lands- bankinn varð almenningshlutafélag haustið 1998 var markaðsverð eign- arhluta ríkisins í bankanum um 10 milljarðar króna og hefur sam- anlagt virði hluta ríkisins í félaginu því rúmlega tvöfaldast á um fjórum árum. Jafnframt hefur verið greiddur um 8–10% arður árlega árin 1999–2002. Ávöxtun ríkissjóðs af eignarhlut í Landsbankanum hef- ur því verið góð og má ríkissjóður vel við þessa sölu una,“ segir Hall- Virði hlutar ríkisins rúmlega tvöfaldaðist á fjórum árum S ALA á tæplega helmings- hlut ríkisins í Lands- banka Íslands hf. til Samsonar eignarhalds- félags ehf. varð að veru- leika á síðasta degi ársins 2002. Með undirritun í Þjóðmenningar- húsinu á gamlársdag lauk rúmlega tveggja mánaða samningalotu rík- isins og Samsonar um viðamestu einkavæðingu Íslandssögunnar. Kaupverðið er 12,3 milljarðar króna og núvirt meðalgengi í viðskiptun- um er 3,91 króna á hlut. Afhending hlutabréfanna verður tvískipt en Samson greiðir að fullu fyrir í Bandaríkjadölum. Í kjölfar undirritunar og að fengnu samþykki Fjármálaeftirlits- ins fær Samson afhent 33,3% hluta- fjárins en þau 12,5% hlutarins sem eftir standa verða afhent í desem- ber 2003. Hlutur ríkisins í Lands- bankanum er um 2,5% eftir söluna. Fyrri hluti kaupanna er bundinn þeim kvöðum að Samson er óheim- ilt að selja í 21 mánuð frá undirritun kaupsamningsins nema að fengnu skriflegu samþykki seljenda. Framkvæmdanefnd um einka- væðingu sá um söluna fyrir hönd ríkisins og enski bankinn HSBC var aðalráðgjafi nefndarinnar. Að Samson ehf. standa Björgólfur Guðmundsson, Björgólfur Thor Björgólfsson og Magnús Þorsteins- son og rituðu þeir undir samninginn ásamt iðnaðar- og viðskiptaráð- herra og fjármálaráðherra. Samkvæmt samningnum ættu tæpir 9 milljarðar króna að skipta um hendur um leið og Fjármálaeft- irlitið hefur lagt blessun sína yfir viðskiptin og afgangurinn verður greiddur í desember. Virði samn- ingsins í krónum hefur þó rýrnað frá því kaupverðið var ákveðið í október því gengi dollara gagnvart Samið var um að verði ekki meira en um 7 króna. Miðað við upph sendur má sjá að enda hlut ríkisins í Lan verður því á bilinu 11,6 arðar króna. Endurfjárfest andvirði lækk Í tilkynningu frá Sam vegna frétta síðustu d munandi mat kaupenda á tilteknum útlánum b kaupandinn taka fram þ.e. ríkið, hafi ábyr lausn þeirra mála sem um. Kaupverðið sé það krónu hefur lækkað um tæp 9% frá því að tilkynnt var að ríkið hefði gengið til samninga við Samson um söluna. Verð hlutarins er miðað við gengi dollara hinn 18. október, síð- asta viðskiptadag áður en ritað var undir samninginn. Þá var gengi dollara tæpar 89 krónur en er nú um 81 króna. Kaupverðið er því í raun 11,2 milljarðar króna eða um 1,1 milljarði lægra í krónum talið en það var í október, sé miðað við nú- verandi gengi. Þar sem samning- urinn er gerður í dollurum kemur þessi gengismunur þó ekki að sök. Samson greiðir sömu upphæð í doll- urum og um var samið í október og íslenska ríkið ætti heldur ekki að fá minna í sinn hlut, að því gefnu að andvirði sölunnar verði ekki skipt í krónur. Andvirði samningsins er því tæplega 140 milljónir dollara. Verðið endurskoðað í október Áður en til þess kemur að Sam- son greiði fyrir 12,5% hlutarins í Landsbankanum verða tilteknir lið- ir í efnahagsreikningi bankans end- urskoðaðir, skv. ákvæðum samn- ingsins. Samningurinn sem undirritaður var á gamlársdag byggist eins og fyrr segir á sam- komulagi sem gert var í október. Í millitíðinni var sagt frá því í frétt- um að áreiðanleikamat sem endur- skoðunarfyrirtækið KPMG gerði benti til þess að það verð sem sett var upp fyrir Landsbankann væri of hátt. Nokkuð bar í milli á mati bankans og KPMG á verðmæti Landsbankans. Ákvæðið um hugs- anlega lækkun kaupverðs er haft með til að jafna þennan mun á verð- mætamati. Þannig féllust báðir að- ilar á að endurskoða mat sitt á til- teknum liðum efnahagsreiknings í október nk. og lækka verðið á bank- anum, gæfi nýja matið tilefni til. Landsban Samson ehf. skrifaði undir samning um kaup á helmingshlut ríkisins í Landsbankanum á gamlársdag með þeim skilyrðum að kaup- endur Búnaðarbankans fengju ekki betri kjör. Ráðherra sagði Eyrúnu Magnúsdóttur að skilyrðið breytti engu fyrir ríkið og að hún teldi þjóðina vera ánægða með söluna. Geir H. Haarde fjármála mundsson og Björgólfur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.