Morgunblaðið - 03.01.2003, Side 45
dag þegar við krakkarnir opnuðum
páskaeggin. Og ef það var einhver
moli sem við borðuðum ekki viss-
um við að þú gast tekið á móti hon-
um og meira til, já, það var alltaf
passað upp á að þú fengir nóg. Þér
þótti mjög vænt um þegar fjöl-
skyldan kom saman. Þú þurftir
alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni.
Við gætum endalaust haldið
áfram að rifja upp minningar um
þig og munum geyma þær að eilífu
í hug okkar og hjarta.
Elsku afi, við kveðjum þig með
söknuði.
Þín barnabörn,
Jón Halldór, Sigríður Ella,
Eggert Sigurður og Ingólfur.
Elsku afi minn. Ég vil þakka þér
fyrir allar stundirnar sem við átt-
um saman. Ég vildi óska að þær
hefðu orðið fleiri, en Guð vildi endi-
lega fá þig til sín í himnaríki.
Þú varst besti afi sem til var og
þú varst alltaf rosalega góður og
öllum þótti mjög vænt um þig. Ég
trúi því ekki enn að þú sért látinn
og ég sakna þín mjög. Ég mun
aldrei gleyma þér og ég veit að þú
munt heldur aldrei gleyma okkur.
Mér finnst mjög erfitt að missa þig
því ég hef þekkt þig alla ævi og á
þeim tíma varstu alltaf svo góður
og elskulegur og hlóst alltaf að vit-
leysunni í mér en þú varst veikur
og núna ertu á betri stað þar sem
þér er batnað.
En þú munt ávallt lifa í hjörtum
okkar og ég veit að þú passar okk-
ur uns við hittumst á ný en þá í
himnaríki.
Ástarkveðjur.
Þitt barnabarn
Jóhanna Sigríður.
Elsku afi. Ég elska þig, og ég vil
fá þig en þú kemst ekki því þú ert
engill hjá Guði. Ég veit þú saknar
mín, ég elska þig rosa mikið.
Amma saknar þín. Ég ætla að
passa ömmu fyrir þig því þú ert
svo góður.
Þín afastelpa
Lovísa Ósk.
Í dag verður kvaddur hinstu
kveðju mágur minn Eggert Sig-
urðsson.
Eggert eða Eddi eins og hann
var alltaf kallaður fór í stóran upp-
skurð síðastliðið vor og tókst hon-
um að ná sér mjög vel eftir þann
uppskurð og var byrjaður að vinna
og allt lék í lyndi, allir héldu að
hann ætlaði að ná sér að fullu, þeg-
ar hann fékk flensu og var lagður
inn á spítala aftur. Þessi barátta
gekk ekki upp hjá Edda mínum og
lést hann þriðja í jólum.
Eddi var harður af sér og kvart-
aði aldrei og var alltaf ákveðinn í
að berjast fram á síðustu stundu
og sigrast á þessum veikindum.
Eddi ólst upp í Sandgerði og
vann alls konar vinnu og er haft
eftir vinnufélaga hans að duglegri
og skemmtilegri vinnufélaga væri
erfitt að finna, alltaf stutt í glensið,
enda orðheppinn mjög.
Það voru ófáar stundirnar, sem
hann eyddi við að hjálpa mér og
fleirum við að smíða, mála eða
pípuleggja, það var alveg sama
hvað hann var beðinn að gera, allt-
af var hann tilbúinn að leggja sitt
af mörkum og það með glöðu geði.
Við munum öll sakna þín mikið,
Eddi minn, og Prins hundurinn
ykkar, sem þú varst vanur að
ganga með á hverjum degi, hætti
að sækja inniskóna þína daginn
sem þú fórst frá okkur, en hann er
nú mikil huggun þeirra sem eftir
lifa, því í honum er eftir lítill hluti
af þér og sleikir hann tárin af
hvörmum fjölskyldunnar.
Eddi var mikill fjölskyldumaður
og var ávallt heima til reiðu fyrir
alla er á honum þurftu að halda.
Ég vil þakka allar samveru-
stundirnar í gegnum árin, hvort
sem var í vinnu eða leik, þú varst
alltaf hrókur alls fagnaðar er kom-
ið var saman að skemmta sér og
oft var sungið „heim í Búðardal“
og „sautjándi júní“.
Elsku Ella, Guðrún, Lúlli,
Jenný, Helga og fjölskyldur, missir
ykkar er mikill og biðjum við góð-
an guð að styrkja ykkur öll í sorg
ykkar.
Ragnar og fjölskylda.
Það er svo sárt að þurfa að
kveðja góðan og yndislegan vin
eins og þig, elsku Eddi. Í huga
okkar togast á sorg og söknuður en
einnig gleði og þakklæti fyrir að
hafa fengið að kynnast þér sem
alltaf varst svo skapgóður og mikill
spaugari. Alltaf tókstu okkur opn-
um örmum og bauðst okkur vel-
komin inn á þitt heimili er við
heimsóttum vinkonu okkar, dóttur
þína hana Jenný er hún bjó hjá
ykkur. Alltaf var kaffi á könnunni
og stundum erfitt að sjá út hvern
hann Siggi var í raun að heim-
sækja því mikill vinskapur mynd-
aðist fljótt milli ykkar Sigga. Þið
sátuð í eldhúsinu og spjölluðuð um
allt milli himins og jarðar en þó að-
allega um eitthvað tengt bílum. Já,
okkur leið alltaf vel í návist þinni
og Ellu. Minningarnar eru margar
og erfitt að lýsa með orðum hvaða
mann þú hafðir að geyma en of-
arlega í huga okkar núna er hvað
það var alltaf létt yfir þér og hvað
þú varst barngóður. Góður við þín
eigin barnabörn sem þú elskaðir og
vildir allt fyrir gera og ekki varstu
síðri við dætur okkar sem þú vildir
endilega að kölluðu þig afa Edda.
Mikill sælkeri varstu líka, elsku
Eddi, og var oft hlegið að því hvað
þú varst útsjónarsamur að næla
þér í súkkulaðimola eða annað góð-
gæti. Oft var súkkulaðið búið upp í
skáp þegar fara átti að nota það og
þá lást þú oftast undir grun, búinn
að næla þér í bita og bita og bros-
andi skildir þú síðan ekkert í því
hvað þetta væri fljótt að klárast.
Eddi, þú sem alltaf vildir hafa
eitthvað fyrir stafni hvort sem þú
varst að þrífa bílinn sem þú hugs-
aðir mjög vel um, varst úti að
labba með hann Prins þinn sem þú
gerðir á hverjum degi, rúntaðir á
bílasölurnar eða kíktir í kaffi til
Sigga á verkstæðið, þá gerðir þú
alltaf allt svo yfirvegaður og með
bros á vör. Já, Eddi, lífið er svo
sannarlega fullt af óvæntum uppá-
komum og má segja að þetta ár
sem nú senn er á enda sé merki um
það, margt óútreiknanlegt búið að
gerast sem enginn skilur og getur
útskýrt. En fyrir rétt rúmum mán-
uði síðan var ykkur sendur lítill
ljósgeisli sem einmitt verður
skírður á afmælisdaginn þinn nk.
og ég veit að þessi litla prinsessa
sem hún Helga litla barnið þitt á,
mun hjálpa Ellu þinni og öllum
hinum mikið í þessari miklu sorg.
Eddi, nú færð þú að hitta marga
aftur sem langt er síðan þú kvaddir
og ert nú sjálfsagt búinn að vefja
hann Nonna þinn örmum, en elsku
Eddi, minningarnar um þig eru svo
margar og þín verður sárt saknað
en minningar um góðan mann
munu lifa áfram í hjörtum okkar
og fyrir það þökkum við.
Elsku Ella, Jenný, Gunni, Helga,
Bragi, Guðrún, Stjáni, Lúlli, Agnes
og fjölskyldur. Missir ykkar er
mikill og við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð. Megi Guð gefa
ykkur styrk í ykkar miklu sorg.
Elsku Eddi, takk fyrir samfylgd-
ina.
Rannveig og Sigurður Kr.
Elsku Eddi, ekki grunaði okkur
að tíminn sem eftir væri yrði eins
stuttur og raun ber vitni. Okkur
langar að minnast þín þar sem þú
varst maður sem ekki fór mikið
fyrir en var svo gott að hafa í
kringum sig.
Þær voru góðar stundirnar þeg-
ar fjölskyldan hittist og ekki eyði-
lagði það, þegar verið var að
drekka „Bragakaffið“ sem þú varst
örlátur að bjóða upp á og var þá
mikið hlegið og gert að gamni sínu.
Ekki má gleyma því að þegar við
systurnar þurftum að láta mála hjá
okkur varstu boðinn og búinn að
hjálpa til og lést ekki þitt eftir
liggja, hvort sem var uppi í Græn-
ási hjá Helgu eða á Hringbrautinni
hjá Önnu. Þegar verið var að mála
verkstæðið talaðir þú um að þér
fyndist erfitt að hafa ekki heilsu til
að hjálpa til en við vitum hvar hug-
ur þinn var. Elsku Eddi, okkur
langar að þakka þér samfylgdina.
Gæfan verði með þér á nýja staðn-
um.
Elsku Ella, Guðrún, Lúlli,
Jenný, Helga og fjölskyldur ykkar,
Guð gefi ykkur styrk í ykkar stóru
sorg. Við erum með ykkur í huga
okkar.
Helga, Steina og Anna
Ragnarsdætur.
Þegar ég kveð vinnufélaga minn
Eggert Sigurðsson hinstu kveðju
með þessum fáu orðum þjóta minn-
ingarnar frá samverunni í vinnunni
sl. 15 ár upp í hugann hver af ann-
arri. Eddi eins og hann var kall-
aður af þeim sem þekktu hann var
afskaplega þægilegur í allri um-
gengni, góður vinnufélagi, ávallt
léttur í lund og hress og fann
gjarnan spaugilegar hliðar á mál-
efnum líðandi stundar. Ófáar sögur
sagði hann okkur frá því þegar
hann var yngri og átti heima í
Sandgerði, þegar hann var bílstjóri
hjá Miðnesi eða þegar hann var í
málningunni. Edda þótti gaman að
íslenskum söngtextum og átti það
til að syngja einn eða með okkur
nokkrar línur, ef við heyrðum
sungið í útvarpinu lög eins og 17.
júní eða Undir bláhimni. Hann var,
vægt til orða tekið, ósérhlífinn
maður, duglegur og alltaf tilbúinn
að rétta vinnufélögum sínum hjálp-
arhönd. Hann veiktist skyndilega í
apríl sl., öllum að óvörum, kom til
vinnu í nóvember en veiktist aftur.
Minningin stendur eftir um besta
vinnufélaga sem ég hef haft.
Eddi minn, nú hefurðu fengið
lausn frá erfiðum veikindum, guð
geymi þig.
Aðstandendum færi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Ingþór Karlsson.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 45
MINNINGAR
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG BÁRA ÓLAFSDÓTTIR,
Frostafold 2,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju mánu-
daginn 6. janúar kl. 13.30.
Sigurmundur Guðmundsson, Guðfinna Elsa Haraldsdóttir,
Sigríður Svansdóttir, Gunnlaugur Ragnarsson
og barnabörn.
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
LARS TRANBERGS JAKOBSSONAR,
Snorrabraut 33,
Reykjavík,
fer fram frá Laugarneskirkju í dag, föstudaginn
3. janúar kl. 15.00.
Árni Jakob Larsson, Guðbjörg Magnúsdóttir,
Sveinn Björgvin Larsson, Þórunn Hjartardóttir,
Gunnar Larsson,
Valdís Sigrún Larsdóttir, Valgeir Berg Steindórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur maðurinn minn, stjúpfaðir, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANNES KRISTJÁNSSON
bóndi,
frá Ytri-Hjarðardal,
Hlíf II,
Ísafirði,
verður jarðsunginn frá Holtskirkju
laugardaginn 4. janúar kl. 14.
Ingibjörg Jóhannesdóttir,
Eiríkur Ásgeirsson, Guðný Þorvaldsdóttir,
Kristján Jóhannesson, Guðrún Jónsdóttir,
Elín Jóhannesdóttir, Gísli Þorsteinsson
Helga Jóhannesdóttir, Arnór Jósefsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR BEN SIGURÐARDÓTTUR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði.
Sigurgeir Gíslason,
Gísli Sigurgeirsson, Hjördís Þorsteinsdóttir,
Marín Sigurgeirsdóttir, Konráð Pálmason,
Jenný Sigurgeirsdóttir,
Sigfríður Sigurgeirsdóttir, Torfi Smári Traustason,
Egill Þór Sigurgeirsson,
Sigurgeir Ari Sigurgeirsson,
Soffía Katrín Sigurgeirsdóttir, Grétar Þór Hilmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir og tengdamóðir,
ANNA BJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Hvannstóði,
Borgarfirði eystra,
verður jarðsungin frá Bakkagerðiskirkju laugar-
daginn 4. janúar kl. 14.00. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á slysavarnardeildina
Sveinunga á Borgarfirði.
Sveinn Bjarnason
Geirlaug Sveinsdóttir, Sveinn Jóhannsson,
Ágústa Sveinsdóttir, Helgi Eyjólfsson,
Karl Sveinsson, Margrét Bragadóttir,
Bóthildur Sveinsdóttir, Bernard Gerritsma,
Bjarni Sveinsson,
Jón Sveinsson
Ingibjörg Sveinsdóttir,
Guðrún Hvönn Sveinsdóttir,
Skúli Sveinsson,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Látið minninguna lifa um ókomna tíð á gardur.is!
upplýsingar í síma 585 2700 eða hjá útfararstjórum.
gardur.is
Minningarkort
Minningar- og
styrktarsjóðs
hjartasjúklinga
Sími 552 5744
Gíró- og kreditkortaþjónusta
LANDSSAMTÖK
HJARTASJÚKLINGA
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
.
1
2
7
0
.9
7