Morgunblaðið - 03.01.2003, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 55
DAGBÓK
Kínversk leikfimi - Wushu art (Kung fu)
Einnig er boðið uppá
varanlega förðun 20% afsl.
Heilsudrekinn
Kínversk heilsulind
Ármúla 17a Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
Hugræn teygjuleikfimi
Gong Fa
Tai Chi
Sjálfsvörn
Wushu art fyrir börn
Wushu art fyrir unglinga og fullorðna
(kennarinn er prófessor í Wushu art)
Einnig kínversk heilsumeðferð
Dekurdagar
30% afsl. af gren-
ningarmeðferð
Orka Lækningar Heimspeki
Hóptímar - Einkatímar
Enskuskóli Erlu Ara
auglýsir enskunám í Hafnarfirði
Skráning stendur yfir í síma 891 7576.
Sjá nánar um starfsemi skólans á www.simnet.is/erlaara
Í sumar verður sem fyrr boðið upp á námsferðir til Englands
10 getustig.
Sérgrein: Almennar skurðlækningar
Tímapantanir daglega frá kl. 9-17
Hef opnað læknastofu
Fritz H. Berndsen
Domus Medica • Egilsgötu 3 • 101 Reykjavík
sími 563 1053
ÞÓRÐUR Sigurðsson og
Gísli Þórarinsson unnu jóla-
mót Bridsfélags Reykjavík-
ur, sem fram fór á sunnu-
daginn og er haldið til
minningar um Hörð Þórðar-
son, fyrsta formann BR.
Þátttaka var góð, eða 61 par.
Spiluð voru 44 spil, fjögur á
milli para, og raðað eftir
stöðu (monrad). Þórður og
Gísli sigu hægt upp töfluna
og náðu efsta sætinu í fyrsta
sinn í síðustu umferð. Hér er
spil úr næstsíðustu umferð,
þar sem sigurvegararnir
mættu Ásmundi Pálssyni og
Guðmundi P. Arnarsyni:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ K86
♥ 3
♦ KD7
♣DG7643
Vestur Austur
♠ 43 ♠ D52
♥ KG10 ♥ 962
♦ Á109854 ♦ G32
♣109 ♣ÁK82
Suður
♠ ÁG1097
♥ ÁD8754
♦ 6
♣5
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Þórður Ásmundur Gísli
-- -- Pass 1 hjarta
2 tíglar 3 grönd Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Besta vörnin er að trompa
út, en dálkahöfundur lagði
niður tígulás og skipti svo
yfir í lauftíu í öðrum slag.
Ásmundur reyndi að taka
tvo slagi á lauf, en Gísli
trompaði síðara laufið og var
nú kominn í aðstöðu til að
taka átta slagi á trompið.
Hann tók hjartaás og stakk
hjarta. Hirti svo slagina sína
á KD í tígli og trompaði lauf
smátt heima. Trompaði
hjarta smátt og lauf til baka,
síðan aftur hjartakóng og
lauf um hæl með gosanum.
Spaðaásinn var ellefti slag-
urinn.
Til eru ýmsar leiðir til að
halda sagnhafa í 10 slögum
og Gísli og Þórður uppskáru
vel fyrir spilið, fengu 47 stig
af 58 mögulegum.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð skyldurækin,
heiðarleg og traust.
Mikilvægum tímabilum
í lífum ykkar er að ljúka.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur þörf fyrir spennu og
því er líklegt að þú daðrir eða
rífist við vini þína í dag. Það
er skemmtilegra að daðra.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Dagurinn hentar vel til að
koma hlutunum á hreint við
maka og nána vini. Segðu það
sem þér býr í brjósti. Þú hef-
ur hugrekki til að standa á
rétti þínum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Samstarfsmenn ykkar eru al-
gerlega óútreiknanlegir í dag
og gætu átt það til að hella
sér yfir ykkur. Reynið að
vera þolinmóð og heillandi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gættu vel að börnunum í
kringum þig. Það eru óvenju-
miklar líkur á að þau verði
fyrir óhöppum í dag. Var-
kárni getur komið í veg fyrir
slys.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Skapsveiflur einhvers í fjöl-
skyldunni skapa óþægilega
spennu á heimilinu. Mundu
að reiði skilar engum árangri.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Dagurinn hentar vel til að
prófa eitthvað nýtt. Þú laðast
að því sem er óvenjulegt og
listrænt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Farið gætilega í fjármálum í
dag. Það er hætt við að þið
kaupið eitthvað í fljótfærni.
Spyrjið ykkur að því hvort
þið þurfið raunverulega á
hlutunum að halda.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú átt áhugaverðan dag í
vændum. Þú hefur mikla
orku og það mun annaðhvort
leiða til deilna eða óvenju
skemmtilegra samræðna.
Fólk á ekki eftir að gleyma
samtölum ykkar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú getur komist að óvæntum
leyndarmálum í dag. Gættu
þess að fara vel með þær upp-
lýsingar sem þú kemst yfir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gættu þess að sýna ekki vin-
um þínum yfirgang í dag. Ef
þú gengur fram af þeim munu
þeir svara þér fullum hálsi.
Reyndu að sýna tillitssemi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Óvæntar fréttir frá yfirboð-
ara þínum hafa mikil áhrif á
þig í dag. Þú ert óvenju upp-
reisnar- og þrætugjarn.
Gættu þess að hugsa áður en
þú talar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Óvænt tækifæri eða breyt-
ingar sem tengjast ferðalög-
um, menntun eða útgáfu-
starfsemi gætu komið upp í
dag. Verið tilbúin til að grípa
tækifærin.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4
4. e5 c5 5. Bd2 Re7 6. dxc5
Bxc5 7. Ra4 Bb6 8. Dg4 0-0
9. Rxb6 Dxb6 10. 0-0-0 Rbc6
11. Rf3 f6 12. exf6 Hxf6 13.
Dh5 e5
Staðan kom upp í móti
sem haldið var í Baden-Bad-
en 1996 þar sem
Sergei Movsesjan
hafði hvítt gegn
Stefan Kindermann.
14. Rxe5! Hf5 15.
Bg5 g6 svartur yrði
mát eftir 15... Hxe5
16. De8# og eftir
15... Rxe5 16. De8+
yrði hvítur sælu peði
yfir. Í framhaldinu
fórnar hvítur drottn-
ingunni en fær yfir-
burðatafl í staðinn.
16. Rxc6! gxh5 17.
Rxe7+ Kf7 18. Rxf5
Bxf5 19. Bd3 Dg6
20. h4 He8 21. Bxf5 Dxf5
22. Hh3 Dd7 23. Hf3+ Kg8
24. b3 Dc6 25. Be3 He4 26.
Hf5 d4 27. Bxd4 He2 28.
Hc5 De4 29. Hd3 Df4+ 30.
Kb2 Dxh4 31. Hc7 He6 32.
Bc3 He7 33. Hg3+ Kf8 34.
Hf3+ Ke8 35. Hxe7+ og
svartur gafst upp enda taflið
koltapað bæði eftir 35...
Kxe7 36. Bf6+ og 35... Dxe7
36. He3.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
YOURCENAR FYRIR MUNN
HADRÍANUSAR:
Lífið er hestur, ég held fast í tauminn
það fer hrollur um báða, ég reyni að temj’ann.
Hann er stolt mitt og von og vitund um drauminn.
Ég verð samt að tukt’ann berj’ann og lemj’ann
ef hann er þrjózkur og staður við strauminn.
En stundum verð ég að ró’ann og hemj’ann.
Matthías Johannessen
Árnað heilla
90 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 3. jan-
úar, er níræð Bergþóra Þor-
steinsdóttir, húsmóðir,
Drápuhlíð 5, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er Ingv-
ar G. Jónsson. Þau taka á
móti gestum í dag kl. 17–20 í
Kiwanishúsinu á Engjateig
11, Reykjavík.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 3. jan-
úar, verður fimmtugur
Höskuldur Einarsson,
stöðvarstjóri slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins. Af
því tilefni taka hann og eig-
inkona hans, Sigríður R.
Ólafsdóttir, á móti ættingj-
um og vinum í sal Lögreglu-
félagsins, Brautarholti 30,
frá kl. 20–23
60 ára afmæli. Í dag,föstudaginn 3. jan-
úar, verður sextug Krist-
jana Eiðsdóttir, Leynis-
braut 10, Grindavík. Eigin-
maður hennar er Jón Guð-
mundsson, pípulagninga-
meistari. Þau taka á móti
ættingjum og vinum á heim-
ili sínu laugardaginn 4. jan-
úar kl. 18.
Ljósmynd/Nýmynd
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 2. febrúar 2002 í
Breiðholtskirkju af sr. Sig-
urjóni Á. Eyjólfssyni þau
María Kolbrún Gísladóttir
og Stefán Björnsson. Heim-
ili þeirra er í Víkurbakka 12,
Reykjavík.
90 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 3. jan-
úar, er níræður Ólafur
Þórðarson húsgagnabólstr-
ari, Stórholti 19, Reykjavík.
Ólafur og eiginkona hans
taka á móti ættingjum og
vinum í dag, afmælisdaginn,
í veislusal KR-heimilisins,
Frostaskjóli 2, kl. 17–19.
Hreppamenn spila
einmenning
Nýlega spiluðu Hreppamenn
topp 16 einmenning sem er árleg
keppni hjá þeim. Lokastaða efstu
einstaklinga varð þessi:
Guðmundur Böðvarsson 105
Margrét Runólfsdóttir 104
Jóhannes Sigmundsson 104
Gunnar Marteinsson 101
Loftur Þorsteinsson 97
Ólafur B. Schram 97
Bjarni H. Ansnes 96
Viðar Gunngeirsson 92
Karl Gunnlaugsson 91
Bridsdeild
Sjálfsbjargar
Mánudaginn 9. des. lauk 3
kvölda jólatvímenningi. Spilað var
á 10 borðum. Í efstu sætum urðu
eftirfarandi:
N-S:
Ólafur Oddsson - Meyvant Meyvantsson
746
Eyjólfur Jónsson - Ingólfur Ágústsson
723
Stefán Sigurvaldason - Einar Bjarnason
695
A-V:
Jón Jóhannsson - Jón Bergþórsson 728
Sig. R. Steingrímsson - Karl Karlsson 727
Ólafur Ingvarsson - Zharioh 709
Við hefjum spilamennsku á nýja
árinu 13. janúar kl. 19 með eins
kvölds tvímenningi.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Við hefjum starfið á nýju ári
með eins kvölds tvímenningi
mánudaginn 6. janúar 2003 kl.
19.30. Rauðvín í verðlaun fyrir
bestu skor bæði í N/S og A/V.
Mánudaginn 13. jan. er fyrir-
hugað að fara af stað með „Að-
alsveitakeppni 2003“.
Þessi áætlun stendur ef þátt-
taka verður, að mati spilastjóra,
viðunandi, sem er 12 sveitir lág-
mark, helst óskum við þess að
sveitirnar verði miklu fleiri.
Spilastjóri er Ísak Örn Sigurðs-
son.
Spilað er í Síðumúla 37 öll
mánudagskvöld kl. 19.30. Skráning
á spilastað, ef mætt er stundvís-
lega. Þátttaka er öllum heimil.
Gleðilegt nýtt ár.
Brids
í Borgarnesi
Um helgina fer fram árleg
bridshátíð Vesturlands. Spilaður
er bæði tvímenningur og sveita-
keppni.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson