Morgunblaðið - 03.01.2003, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
TÍSKUVERSLUNINNI TopShop í
Lækjargötu verður lokað og hefur
starfsfólki verslunarinnar þegar ver-
ið sagt upp störfum.
Fyrsta TopShop-verslunin var
opnuð á Íslandi 15. mars árið 2000
við Lækjargötu í Reykjavík eftir
miklar endurbætur á húsnæðinu þar
sem Nýja bíó var áður. Verslunin
hlaut m.a. verðlaun Þróunarfélags
miðborgarinnar árið 2000 fyrir að
stuðla að þróun og uppbyggingu í
miðborginni. Þá var verslunin önnur
söluhæsta verslun TopShop-versl-
anakeðjunnar fyrsta mánuðinn eftir
að hún var opnuð.
Á haustmánuðum 2001 var opnuð
TopShop-verslun í Smáralind í
Kópavogi en verslanirnar eru í eigu
Baugs-Ísland. Að sögn Sigrúnar
Andersen, framkvæmdastjóra Top-
Shop, hefur reksturinn í Lækjargötu
ekki staðið undir sér og því hefur
verið ákveðið að loka þeirri verslun.
Hún segir að mikil breyting hafi orð-
ið á rekstri verslunarinnar í Lækj-
argötu eftir að Smáralind var opnuð
og ekkert bendi til að það muni
breytast. Hún gerir ráð fyrir að
versluninni verði lokað að loknum
útsölum um miðjan febrúar.
Fjórum fastráðnum starfsmönn-
um verslunarinnar hefur verið sagt
upp störfum en Sigrún segir að laus-
ráðnu starfsfólki verði gefinn kostur
á að hefja störf í TopShop-verslun-
inni í Smáralind. Hún segir ekki ljóst
hvaða starfsemi verði í húsnæðinu í
Lækjargötu í framtíðinni.
TopShop
í Lækjar-
götu lokað
ÓLAFUR Stefánsson, handknattleiks-
maður hjá Magdeburg í Þýskalandi, var í
gær kjörinn íþróttamaður ársins 2002 af
Samtökum íþróttafréttamanna, en þetta
var í 47. sinn sem samtökin kjósa íþrótta-
mann ársins.
Ólafur hafði fáheyrða yfirburði, fékk
410 stig af 420 mögulegum.
Annar var sundkappinn Örn Arnarson
með 183 stig og Jón Arnar Magnússon
tugþrautarkappi þriðji með 157 stig. Alls
hlutu 22 íþróttamenn stig í kjörinu að
þessu sinni.
Ólafur hafði á orði eftir að kjörinu
hafði verið lýst að sér hefði oftast liðið
betur á árinu. „Mér leið miklu betur í
leikjum ársins en núna,“ sagði hann í við-
tali strax eftir að hann hafði tekið við
styttunni sem nafnbótinni fylgir. „Verð-
laun eru hættuleg í eðli sínu en sem bet-
ur fer eru flestir íþróttamenn þannig
gerðir að þeir nýta sér þau á jákvæðan
hátt. Ef það er gert hvetja verðlaun
menn til dáða og þessi gera það jafn-
framt sem þau sýna mér að ég hef gert
eitthvað af viti í handboltanum á liðnu
ári,“ sagði Ólafur.
Morgunblaðið/Sverrir
Íþróttamaður ársins 2002
Yfirburðir
hjá Ólafi
Stefánssyni
Verðlaun/C1
GALLI í genum, sem hafa áhrif á
kransæðasjúkdóma, getur varið
fólk gegn slíkum sjúkdómum svo
fremi sem það reykir ekki. Reyki
það hins vegar veldur gallinn auk-
inni áhættu á sjúkdómunum og
dánartíðni vegna þeirra. Þetta er
meðal niðurstaðna nýrrar íslenskr-
ar rannsóknar sem fjallað verður
um á ráðstefnu um rannsóknir í
læknadeild, tannlæknadeild og
lyfjafræðideild Háskóla Íslands, en
hún hefst í dag.
Rannsóknin gekk þannig fyrir sig
að safnað var sýnum úr 406 ein-
staklingum sem komu á bráðamót-
töku Landspítala – háskólasjúkra-
húss með brjóstverk sem
aðalkvörtun. Af þeim voru 280 með
kransæðasjúkdóm en afgangurinn
myndaði viðmiðunarhóp. Guðmund-
ur Jóhann Arason hjá Rannsókn-
arstofu í ónæmisfræði mun halda
erindi um rannsóknina á ráðstefn-
unni í dag og segir hann að um tvö
gen, C4a og C4b, sé að ræða sem
séu í raun þau fyrstu sem greind
hafi verið sem hafi skýr áhrif á
kransæðasjúkdóma hjá langflestu
fólki.
„Gallar í þessum genum eru al-
gengir þannig að u.þ.b. helmingur
fólks er með galla í öðru hvoru
þeirra,“ segir hann. „Hingað til hef-
ur ekki verið skilið hvers vegna það
er svona algengt að menn hafi galla
í þessu geni og menn hafa spáð því
að það geti verið vegna þess að í
sumum tilfellum geti verið hagstætt
að hafa lítið magn af þessum galla í
þessum genum.“
Hann segir að ungverskar nið-
urstöður hafi áður bent til þessa, að
gallinn gæti varið fólk fyrir krans-
æðasjúkdómum. „Nú erum við bún-
ir að staðfesta þessar niðurstöður
fyrir Íslendinga og færa þær miklu
lengra þannig að við sjáum núna
hvers vegna þessir gallar geta varið
okkur. Það kemur einnig mjög
skýrt í ljós að ef þessi gen eru göll-
uð þá vernda þau alla þá sem ekki
reykja fyrir sjúkdómnum þannig að
menn fá síður kransæðasjúkdóm og
hjartaáfall og lifa líka lengur eftir
hjartaáfall. En ef menn hins vegar
reykja snýst þetta alveg við. Þá
veldur gallinn aukinni áhættu og
menn deyja langtum frekar.“
Ellefta ráðstefnan
á þessu sviði
Rannsóknin er sem fyrr segir
meðal fjölmargra sem kynntar
verða á ráðstefnunni sem stendur í
dag og á morgun. Þetta er ellefta
ráðstefnan um rannsóknir í lækna-
deild Háskóla Íslands en slík ráð-
stefna var haldin fyrst árið 1981.
Þetta er hins vegar í fyrsta sinn
sem ráðstefnan er haldin í sam-
vinnu við tannlæknadeild og lyfja-
fræðideild skólans og er það ný-
skipuð vísindanefnd þessara þriggja
deilda sem sér um framkvæmd ráð-
stefnunnar.
Genagalli ver reyklausa
gegn kransæðasjúkdómum
Ráðstefna um rannsóknir í lækna-,
tannlækna- og lyfjafræðideildum HÍ
GENGIÐ var frá sölu á 45,8%
hlut í Landsbanka Íslands fyrir
12,3 milljarða króna til Samsonar
ehf. á gamlársdag. Í samningnum
er m.a. kveðið á um að kaupverð
geti lækkað um allt að 700 millj-
ónir króna við endurmat á tiltekn-
um eignaliðum bankans sem fram
á að fara í október. Gengi hluta-
bréfanna í viðskiptunum er 3,90
krónur á hlut m.v. samninginn en
gæti lækkað niður í um 3,70 krón-
ur á hlut gefi endurmatið tilefni til
lækkunar.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, kveðst afar
ánægður með að tekist hafi að
ganga frá sölu Landsbankans og
telur að bæði kaupendur og selj-
endur geti vel við unað. „Hafa ber
í huga að á liðnu ári hefur engin
stór sala eða samruni á bönkum
tekist á Norðurlöndum,“ segir
Halldór. Í flestum tilvikum hafi
strandað á því með hvaða hætti
meta ætti verðmæti fyrirtækj-
anna. Sú leið sem farin hafi verið
við sölu Landsbankans sé afar
farsæl í ljósi þess ástands sem nú
ríkir á mörkuðum.
Góð lausn á áherslumun
Að sögn Halldórs er endur-
skoðunarákvæðið góð lausn á
áherslumun sem var um mat á
verðmæti bankans. Hann bendir
á að mat á tilteknum liðum efna-
hagsreiknings geti verið mjög
mismunandi við núverandi að-
stæður á fjármálamörkuðum.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, segir að
ástæða hafi þótt til að taka að ein-
hverju leyti tillit til þeirra skoð-
ana sem komu fram hjá Samson-
armönnum í þessu máli. Samson
setti ennfremur það skilyrði að
væntanlegum kaupendum Bún-
aðarbankans verði ekki boðin
betri kjör í þeim viðskiptum en
samningurinn um Landsbanka-
kaupin kvæði á um.
Að sögn talsmanns Samsonar
hafa viðræðurnar mótað einka-
væðingarferlið og því telji þeir
óeðlilegt að þeir sem á eftir komi
geti hagnast meira á því en Sam-
son. Ráðherra segist ekki telja
þetta ákvæði vera stórmál og tel-
ur að það muni engu breyta fyrir
saminga um sölu Búnaðarbanka.
Bankastjóri Landsbankans ánægður með söluna
Stærsta norræna
bankasalan í fyrra
Landsbankasalan/34
FLESTAR verslanir nýttu gærdaginn til vöru-
talningar og meðal annarra áttu starfsmenn
Ótrúlegu búðarinnar, sem ljósmyndari blaðsins
hitti í gær, ærið verk fyrir höndum enda hreint
ótrúlega margir hlutir sem þar þurfti að telja.
Útsölur hófust í stöku verslun í gær og var víða
handagangur í öskjunni. Búist er við að útsölu-
verslun hefjist hins vegar að fullu í dag í mið-
borg Reykjavíkur og verslunarmiðstöðvunum
tveimur, Smáralind og Kringlunni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Vörutalningu lokið – útsölur hafnar
„ANNAÐHVORT er látið eins
og ég sé ekki til eða að talað er
niður til mín,“ segir Einar Er-
lendsson, 26 ára nýstúdent, um
fordóma sem ennþá endur-
speglast í viðmóti fólks á öllum
aldri, lítt menntaðs sem mennt-
aðs, gagnvart fötluðum.
„Það er mjög algengt að fólki
finnist það þurfa að koma öðru-
vísi fram við fatlaða en aðra og
þá er komið fram við mann eins
og maður sé eilífðarbarn,“ segir
Einar, sem fæddist með svo-
kallaða CP-fötlun, en nafnið er
dregið af Cerebral Palsy, sem
þýtt hefur verið sem heilalöm-
un. Hérlendis fæðast árlega um
tíu börn með sjúkdóminn, sem
á rætur að rekja í miðtauga-
kerfinu, en grunneinkenni hans
er hreyfihömlun.
Einar, sem hefur verið í
hjólastól frá 18 ára aldri, telur
ekki nóg að aðgengi sé gott fyr-
ir fatlaða, viðhorfin þurfi líka að
batna.
Ekkert
eilífðar-
barn
Hreyfihömlun/B6