Morgunblaðið - 12.01.2003, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 21
Hreyfigreining ehf.
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
Sími: 511-1575
greining@hreyfigreining.is
www.hreyfigreining.is
NÁMSAÐSTOÐ
svo þú getir náð þér á strik í náminu
Nemendaþjónustan sf.
s. 557 9233
www.namsadstod.is
Kæri 10. bekkingur!
Viltu ráða því í hvaða framhaldsskóla þú ferð næsta
haust? Til þess þarftu að taka a.m.k. 4 samræmd próf og
fá góðar einkunnir því skólarnir munu velja nemendur eftir
einkunnum. Takirðu ekki prófin verður þér hugsanlega
boðið að fara á almenna braut en það seinkar námi þínu
um eitt til tvö ár með tilheyrandi kostnaði.
Ef þú ert tilbúin(n) að taka á málunum fyrir
vorið þá bjóðum við þér
VIKUBLAÐIÐ Fréttir og Fjölsýn í
Vestmannaeyjum stóð fyrir kjöri
manna ársins í byrjun þessa árs. Það
kom fáum á óvart í Vestmanna-
eyjum að þeir mágar, Haraldur
Gíslason og Gunnlaugur Ólafsson,
skyldu hljóta sæmdarheitið Eyja-
menn ársins 2002 af Fréttum og
Fjölsýn. Í lok ársins var upplýst að
stór hlutur í Vinnslustöðinni í Vest-
mannaeyjum væri til sölu og brugð-
ust þeir skjótt við og keyptu. Talið
er af heimamönnum að þeir félagar
öðrum fremur hafi tryggt það að
ráðandi meirihluti í Vinnslustöðinni
verði áfram á hendi Eyjamanna.
Hlynur Stefánsson knatt-
spyrnumaður fékk viðurkenningu
fyrir framlag sitt til íþróttamála.
Hlynur á að baki 20 ára farsælan
knattspyrnuferil með ÍBV, landslið-
inu og sænska félaginu Örebro.
Fyrirtæki ársins var kjörið Berg-
ur-Huginn, en félagið á að baki 30
ára farsælan feril og var m.a. það
fyrirtæki á Íslandi sem greiddi
hæstu meðallaun á árinu 2001.
Framkvæmdastjóri Bergs-Hugins
er Magnús Kristinsson.
Björgunarafrek ársins var þegar
þremur mönnum var bjargað úr
sjávarháska við Elliðaey sl. sumar.
Bátur þeirra fór á hliðina og þrír
menn lentu í sjónum, einn komst í
land en tveir gátu enga björg sér
veitt. Þeir aðilar sem heiðraðir voru
fyrir þessa björgun voru Þórarinn
Sigurðsson sem hringdi eftir aðstoð,
og formaður Björgunarfélags Vest-
mannaeyja, Adólf Þórsson.
Þá fékk Eygló Harðardóttir blóm-
vönd fyrir vasklega framgöngu við
að koma fyrirtækinu Þorskur á
þurru landi á legg.
Morgunblaðið/Sigurgeir
F.v. Þórarinn Sigurðsson, Adólf Þórsson, formaður Björgunarfélags Vest-
mannaeyja, Eygló Harðardóttir frá Þorski á þurru landi, Lóa Skarphéð-
insdóttir og Þóra Magnúsdóttir frá Bergi-Hugin, Hlynur Stefánsson knatt-
spyrnumaður og Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar, sem tók við verðlaununum fyrir Gunnlaug Ólafsson
og Harald Gíslason, menn ársins.
Kaupendur
Vinnslustöðv-
arinnar Eyja-
menn ársins