Morgunblaðið - 31.01.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 31.01.2003, Blaðsíða 49
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2003 49 Hafið Með Hafinu er komið fram verk sem ber því vitni að íslenskt listafólk hafi náð full- komnum tökum á hinu alþjóðlega tungu- máli kvikmyndalistarinnar. (H.J.) Háskólabíó. Lord of the Rings: The Twin Towers: Hringa- dróttinssaga: Tveggja turna tal Millikafli stórvirkis Tolkiens og Jacksons gnæfir yfir aðrar myndir ársins, mikilfeng- leg sagnagáfa þeirra skapar eitt magnað- asta ævintýri kvikmyndasögunnar. Ósvikin epík um hugrekki, vináttu og drenglyndi. (S.V.) Laugarásbíó, Smárabíó. Harry Potter og leyniklefinn Harry og félagar eru komnir aftur í mynd fullri af frábærum karakterum, ótrúlegum aðstæðum, spennu og hryllingi. Gaman, gaman! (H.L.) ½ Sambíóin. 8 Mile (8 mílur) Þegar á heildina er litið er það hversu ein- föld meginfléttan er, en hún snýst í raun um þátttöku rapparans í einni keppni, bæði helsti kostur og galli myndarinnar. Þannig tekst að halda sögunni á raunsæis- legu sviði en á sama tíma er sigursagan teygð dálítið á langinn. (H.J.)  Háskólabíó, Sambíóin, Laugarásbíó. Gullplánetan Skemmtilegar og frumlegar persónur í geggjuðu umhverfi þeysast um himingeim- inn í spennandi og dramtískri leit að gulli. Fyrir alla fjölskylduna. (H.L.)  Sambíóin, Háskólabíó, Laugarásbíó Sex is Comedy (Kynlíf er grín) Líkt og fyrri myndir leikstjórans Breillat, for- vitnileg, ástríðufull, heimspekileg og jafnvel enn persónulegri. Mynd innan myndar þar sem verið er að fjalla um mannlegar til- finningar og eðli, einkum kynhvötina, frá nýstárlegu sjónarhorni. (S.V.)  Háskólabíó Die Another Day (Deyðu annan dag) Fulllöng Bond mynd þar sem hasarinn ræður ríkjum og húmorinn er kominn í hring. Ágætasta afþreying fyrir fólk í góðu skapi og með smekk fyrir fallegu fólki. (H.L.) ½ Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó, Borg- arbíó Akureyri. The Banger Sisters (Grúppíurnar) Tvær frábærar leikkonur halda lífinu í gam- anmynd um miðaldra konur sem eyddu bestu árunum sem hjásvæfur poppara. 20 árum síðar hefur margt breyst. (S.V.) ½ Regnboginn. Analyze That (Aftur í meðferð) Framhaldsmyndin á sína spretti, og er það iðulega vegna þess hversu vel aðalleik- urunum tekst að fylla upp í tómlegt hand- ritið. (H.L.) Sambíóin, Háskólabíó Jackass: The Movie (Kjánaprik: Kvikmyndin) Botnlaus kjánaskapur og fífldirfska eru drifkrafturinn á bak við þessa kvikmynd, sem er óneitanlega sprenghlægileg í 50% tilfella. Ekki alvitlaus, þegar menn ná að halda sig innan lágkúrumarkanna. (H.J.) Sambíóin Juwanna Man (Ingiríður Eygló) Körfuboltakappi klæðist kvenfötum og heldur áfram í kvennaliði þegar hann er rekinn úr NBA. Mun skárra en það hljómar. (S.V.) Sambíóin Once Upon a Time in the Midlands (Eitt sinn í Miðlöndunum) Úrvali breskra leikara tekst ekki að gera fyndna mynd, þar sem stefnuleysi og van- virðing fyrir persónunum ráða ríkjum. Dramað virkar rétt undir lok og brand- ararnir eru allt of fáir fyrir gamanmynd. Vonbrigði. (H.L.) Háskólabíó The Transporter (Flutningsmaðurinn) Sólskinið í Suður-Frakklandi, vel skipulögð átakatriði og eltingaleikir eru ljósu punkt- arnir í annars myrkri meðalmennsku. (S.V.) Smárabíó. Half Past Dead (Darraðardans) Seagal er orðinn gamall og feitur, en þrá- ast við í sama hlutverkinu einn áratuginn í viðbót. Góður hraði, þunnur söguþráður og gloppóttur, endalaus slagsmál og dynjandi rapptónlist einkenna hola mynd. (H.L.) Regnboginn The Hot Chick (Aðalpæjan) Hér glímir Rob Schneider við enn eina ónáttúruna, síðast var hann dýr í mannslík- ama, nú unglingsstúlka í líkama loðins og ófrýnilegs karlmanns. Groddahúmorinn veður hér uppi, en hittir sjaldan í mark. (H.J.) ½ Sambíóin BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn „Seagal er orðinn gamall og feitur, en þráast við í sama hlutverkinu einn áratuginn í viðbót,“ segir um nýjasta verk Stevens Seagals.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.