Morgunblaðið - 04.02.2003, Page 12

Morgunblaðið - 04.02.2003, Page 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ FRJÁLSI fjárfestingarbankinn skil- aði 483 milljóna króna hagnaði á síð- asta ári, sem er 5% aukning frá fyrra ári. Fyrir skatta jókst hagnaðurinn um 23% og nam 583 milljónum króna í fyrra. Arðsemi eigin fjár breyttist lítið milli ára, nam 22,1% í fyrra, en 22,3% árið áður. Vaxtatekjur drógust saman um 18% og vaxtagjöld um 41%. Hreinar vaxtatekjur nær tvöfölduðust milli ára og vaxtamunur hækkaði úr 3,3% í 4,6%. Í rekstraráætlun þessa árs er gert ráð fyrir að vaxtamunurinn lækki um hálft prósent í ár. Kostnaðarhlutfall lækkar Rekstrartekjur drógust saman um 69% milli ára og námu 163 milljónum króna í fyrra. Mesta breytingin fólst í meira en hálfs milljarðs króna sölu- hagnaði árið 2001 ásamt því sem rúmlega eitt hundrað milljóna króna gengistap af annarri fjármálastarf- semi árið 2001 snerist í nokkurra milljóna króna gengishagnað í fyrra. Rekstrargjöld lækkuðu um 26% milli ára í 209 milljónir króna. Stærst- ur hluti breytingarinnar felst í 55 milljóna króna lækkun launakostnað- ar, en starfsmönnum fækkaði úr 36 að meðaltali árið 2001 í 22 að með- altali í fyrra. Miklar breytingar urðu á rekstri bankans á árinu, sem fólust meðal annars í því að eignastýringa- svið hans var selt. Kostnaðarhlutfall, þ.e. rekstrar- gjöld sem hlutfall af rekstrartekjum, lækkaði úr 32% í 24% milli ára. Framlag í afskriftareikning útlána lækkaði úr 120 milljónum króna í 70 milljónir króna, eða um 42%. Fram- lagið sem hlutfall af útlánum lækkaði úr 1,1% í 0,6%, en afskriftareikningur sem hlutfall af útlánum stóð í stað milli ára og nam 2,3% um síðustu ára- mót. Vanskil sem hlutfall af heildar- útlánum lækkuðu úr 1,2% í 1,1% milli ára. Útlán jukust um 5% Útlán jukust um 5% og námu 11,6 milljörðum króna um áramót. Heild- areignir jukust um 3% í 16,8 milljarða króna. Eigið fé jókst um 7% á tíma- bilinu og nam 2,4 milljörðum króna um áramót og eiginfjárhlutfall á CAD-grunni hækkaði milli ára úr 22% í 24%. Frjálsi fjárfestingarbankinn 483 milljóna króna hagnaður                                                !   " #   $      % &% %'      ()( "(#  "( )"  "!  ") "  $(   (( ""(   &% %  *  +,-.   %% %    % % / "0 1 ""01 " "0)1 ""0(1 ""       ("     !   GUÐJÓN Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, SBV, segir að markmiðið með þeirri vinnu sem nú eigi sér stað innan Evrópusambandsins sé að ná fram fullri samræmingu reglna á Evrópska efnahagssvæðinu, en eins og sagt var frá í gær hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagt fram tillögu um ýmsar breytingar á til- skipun um neytendalán. „Reglur sem um þetta gilda eru orðnar um 15 ára gamlar og þær eru mjög ólíkar milli landa, svo það er mjög já- kvætt að vinna að endurskoðun á þeim. Mark- aðsaðilar, þar á meðal hér heima, eru mjög ánægðir með að verið sé að vinna að þessari samræmingu,“ segir Guðjón. Hann segir að einstök ákvæði í drögunum eins og þau líti út í dag bendi hins vegar til að ekki sé búið að hugsa málið alveg til enda. Ýmis ákvæði séu þess eðlis að hætta sé á að þau muni hamla þróun á fjármálamarkaði og minnka vöruframboð til neytenda. „Dæmi um það er til dæmis að finna í 14. grein draganna þar sem veruleg takmörkun eða jafnvel bann á að verða við lánum með breytilegum vöxtum, en slík lán eru mikið notuð á Norðurlöndum, samanber kjörvaxtakerfið hér heima. Með slíkri reglu væri verið að draga úr þjónustu og fara nokkur ár aftur í tímann. Fyrir fjármála- fyrirtækin og viðskiptamenn þeirra væri vissu- lega slæmt ef reglur takmörkuðu það vöru- framboð sem hægt væri að bjóða upp á,“ segir Guðjón. Lengri bið eftir láni Um reglu um að hægt sé að hætta við lán- töku innan 14 daga frá því lán var tekið segir hann að reglan sé ef til vill ekki stórmál, en þó hafi verið bent á að 14 dagar séu fulllangur tími og 7 dagar væru ef til vill eðlilegri frestur. Þar fyrir utan gerist ekkert annað en það að við- skiptavinurinn þurfi að bíða lengur eftir að fá lánið. „Fjármálamarkaðurinn hér á landi er mjög skilvirkur og það er mikil nálægð við við- skiptavini og bankarnir þekkja þá mjög vel,“ segir Guðjón. „Neytendalán ganga mjög hratt fyrir sig hér og þetta ákvæði myndi ekki hindra það. Ef þetta ákvæði væri í gildi myndi lánastofnunin hins vegar þurfa að taka þá áhættu að viðskiptavinurinn kæmi eftir nokkra daga og endurgreiddi lánið. Þetta hefði líklega sáralítil áhrif á lánsviðskipti hér heima og er ekkert sem fyrirtækin hafa miklar áhyggjur af. Þó væri ekki gott ef nýjar reglur drægju úr skilvirkni fyrir viðskiptavininn.“ Guðjón segir að ákvæði um greiðslumat og ábyrga útlánastarfsemi muni líklega ekki breyta miklu, því greiðslumat fari fram nú þeg- ar. Oftast sé lánað út frá viðskiptasögu og sé lánað til nýs viðskiptavinar hafi lánafyrirtæki vaðið yfirleitt fyrir neðan sig og geti þá óskað eftir því að viðkomandi viðskiptavinur sýni sér- stakt yfirlit yfir skuldastöðu hjá öðrum fjár- málafyrirtækjum. Helstu áhyggjurnar sem menn hafi af ákvæðinu eins og það liggi fyrir í drögunum sé að verði reglan sett muni hún tefja ferlið, eins og stundum sé hætta á með regluverk Evrópusambandsins. Hærri kostnaður Varðandi þessa reglu sé þó eitt sem menn geri sérstaka athugasemd við, en það sé að inni í henni séu nokkurs konar refsiákvæði ef fjár- málastofnun láni viðskiptavini sem ekki stend- ur undir láninu. Fjármálastofnun geti aldrei vitað með fullri vissu hvort lánið fáist endur- greitt, því það geti alltaf eitthvað komið upp á. Það sé þess vegna býsna langt gengið og þjóni tæplega því markmiði sem lagt sé af stað með að setja slíka reglu. Menn vonist því til að breyting verði á þessu. Spurður að því hvaða áhrif þessar reglur muni hafa á kostnaðinn í bankakerfinu segir Guðjón að eins og þær líti út nú muni þessi auknu skilyrði kalla á aukna vinnu og þar með aukinn kostnað, sem fari væntanlega út í verð- lagið. Þess vegna leggi fjármálafyrirtæki áherslu á að reglurnar verði það skilvirkar að þær muni ekki leiða til aukins kostnaðar og þau bindi vonir við að breytingar í þá átt muni ná fram að ganga. Framkvæmdastjóri SBV um breytingar á evrópskum reglum um neytendalán Jákvætt að end- urskoða reglur Ákvæði gætu hamlað þróun á fjármálamarkaði HAGNAÐUR Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf., HRESK, nam ríflega 1.010 milljónum króna eft- ir skatta á árinu 2002. Árið 2001 var hagnaður fyrirtækisins 156 milljónir króna. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld (EBITDA) nam 1.254 milljónum króna eða 33,03% af vergum rekstrartekjum, miðað við 1.280 milljónir eða 34,02% árið 2001. EBITDA-hagnaður var svipað- ur árið áður, eða 1.280 milljónir króna. Þá voru fjármagnsliðir hins vegar neikvæðir um 750 milljónir, en voru nú jákvæðir um ríflega 530 milljónir króna. Í til- kynningu frá HRESK segir að þessi munur skýrist fyrst og fremst af styrkingu krónunnar á milli ára. Í tilkynningunni segir að rekstrarniðurstaða ársins sé í takt við áætlanir félagsins. Veltufjárhlutfall lækkar Afskriftir ársins námu rúmum 542 milljónum og hækkuðu um 139 milljónir á milli ára, en til sérstakrar 100 milljóna króna aukaafskriftar kom á skipastóli félagsins. Veltufé frá rekstri nam 1.043 milljónum og handbært fé frá rekstri jókst um 156 milljónir milli ára; úr 728 milljónum í 884 milljónir. Fjárfestingahreyfingar voru 1.188 milljónir á árinu, en uppistaða þeirra var kaup á 47,48% hlut í Tanga hf. á Vopna- firði. Eigið fé félagsins nemur nú 2.251 milljón eða 32,87% af heild- areignum, og hækkar um tæp 10% milli ára. Veltufjárhlutfall félagsins lækkar hins vegar úr 1,00 í 0,9. Innra virði hlutafjár hækkar úr 3,08 í 5,13. Í tilkynningu HRESK segir að mjög góður árangur hafi náðst í veiðum uppsjávarfisks á árinu. Afli skipa félagsins var ríflega 171 þúsund tonn. Mjöl- og lýs- isvinnsla félagsins tók við 172 þúsund tonnum, sem er metmót- taka íslenskrar verksmiðju á einu ári. Veidd voru 2.138 tonn af bol- fiski og 1.126 tonn af rækju. Öllu hráefni var landað í eigin vinnslu. „Verð afurða félagsins var að flestu leyti hagstætt á árinu fyrir utan verð rækjuafurða sem fór hríðlækkandi samfara lækkandi gengi sölumyntar. Tilraunir í þorskeldi, er hófust á árinu, hafa gengið vel og er stefnt að eflingu þeirrar starfsemi á næstu miss- erum,“ segir í tilkynningunni. Kvótastaða styrkist á árinu „Niðurstaða tímabilsins er í takt við áætlanir félagsins en gert var ráð fyrir 33% framlegð í endurskoðaðri rekstraráætlun um mitt árið. Félagið hefur gert framvirkan samning um kaup á Hópi ehf. og Strýthóli ehf. í Grindavík er miðast við 1. sept- ember 2003. Við kaupin á fyr- irtækjunum mun kvótastaða fé- lagsins styrkjast um 1.357 þorskígildistonn – aðallega í bol- fiski. Áætlað er að kaupin verði að hluta til fjármögnuð með hluta- fjáraukningu í félaginu, en fyr- irhugað er að leggja tillögu þar að lútandi fyrir næsta aðalfund félagsins. Rekstraráætlun ársins gerir ráð fyrir nokkrum sam- drætti í vergum rekstrartekjum, einkum vegna lokunar rækju- vinnslu félagsins og styrkingar íslensku krónunnar,“ segir í frétt frá HRESK. HRESK með rúman milljarð í hagnað     "#$ % "   2 2             %%        %%              &% %'  %     &"$#'(  $)*  '      *  &% %  *  3 4% %*  (#! ""  $(  (  $"(!    "" #   ( 0# ("0#1 0( (!( ")(  $   5  (   (( !)   " 0 ""01 (0 )     ("      STJÓRNENDUR Hugvits, með stuðningi hóps fjárfesta, hafa gert samning um að kaupa Hugvit af GoPro Landsteinum Group. Sigurður Smári Gylfason, fram- kvæmdastjóri Íslenska hugbúnaðar- sjóðsins, sem á eftir viðskiptin 38% í GoPro, segir að salan sé liður í fjár- hagslegri endurskipulagningu GoPro. Eftir samninginn er starfsemi GoPro Landsteina í eftirtöldum fé- lögum: Landsteinum á Íslandi, Navi- Plus, Landsteinum í Hollandi, Þekk- ingu, Landsteinum CI á Jersey og Alpha Landsteinum í Englandi. Í tilkynningu frá ÍSHUG segir að áætlanir fyrrnefndra félaga geri ráð fyrir 1.050 milljóna króna veltu á árinu 2003 og um 130 milljóna króna EBITDA-framlegð, þ.e. hagnaði fyr- ir afskriftir og fjármagnsliði. Ólafur Daðason, framkvæmda- stjóri Hugvits, vill ekki á þessu stigi gefa upp hverjir kaupi félagið, en segir þó að þar sé um að ræða lyk- ilstarfsmenn og fjárfesta sem stutt hafi félagið. Hann segir að um gott fjárfestingartækifæri hafi verið að ræða. Stjórnendur kaupa Hugvit af GoPro FEÐGARNIR Jón Ólafsson, stjórn-arformaður Norðurljósa, og Kristján Jónsson hafa tekið að sér rekstur og stjórnun enska þjónustufyrirtækis- ins Room Service Deliveries Limi- ted. Kristján verður framkvæmda- stjóri fyrirtækisins en Jón stjórnarformaður. Room Service var stofnað fyrir 10 árum en fyrir fáum árum lenti það í rekstrarerfiðleikum og hafði verið lýst gjaldþrota. Nýir fjárfestar, m.a. breska ráðgjafarfyrirtækið Catalyst Media Management, hafa keypt fé- lagið úr gjaldþroti og lagt um 1 millj- ón sterlingspunda, eða um 127 millj- ónir króna, í rekstur þess. Hjá fyrirtækinu starfa á annað hundrað manns. Room Service býður upp á hverskonar heimsendingarþjónustu í Lundúnum. Það gefur m.a. út bækl- inga í helstu hverfum borgarinnar þar sem boðið er upp á heimsend- ingu af matseðlum þekktra veitinga- húsa. Eins býður fyrirtækið upp á heim- sendingu frá þvottahúsum borgar- innar. Meginstarfsemi félagsins felst hins vegar í veisluþjónustu fyrir banka, tryggingafélög, lögfræði- skrifstofur og endurskoðunarfyrir- tæki. Í fréttatilkynningu frá fyrir- tækinu kemur fram að rekstur þess verði óbreyttur fyrst um sinn en ýmsum nýjungum verði hrint í fram- kvæmd á þessu ári. Taka að sér stjórn- un heimsendinga  Halldór Haf- steinsson hefur ver- ið ráðinn fjár- málastjóri Flugfélagsins Atl- anta hf. frá og með 1. febrúar. Hann tekur við starfi Arn- ars Þórissonar, fjár- málastjóra og að- stoðarforstjóra, sem hætti hjá félaginu um áramót. Ekki verður ráðið í stöðu aðstoðarfor- stjóra. Halldór er 32 ára og vann hjá fé- laginu á árunum 1996–1999 sem fjár- reiðustjóri. Síðan hefur hann verið hlutabréfamiðlari hjá Kaupþingi, fjár- málastjóri hjá Línu.Neti og MD- flugfélaginu. Nýr fjármála- stjóri hjá Atlanta Halldór Hafsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.