Morgunblaðið - 04.02.2003, Side 31
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 31
Gripið & greitt ehf. er leiðandi
birgðaverslun með um 1.000 millj.
króna veltu á ári.
Við leitum að
framkvæmdastjóra
Óskum að ráða framkvæmdastjóra til
starfa hjá Gripið & greitt.
Umsóknir óskast sendar til Hagvangs merktar „Gripið & greitt“ fyrir 7. febrúar nk.
Upplýsingar veita Þórir Þorvarðarsong og Ari Eyberg.
Netföng:thorir@hagvangur.is og ari@hagvangur.is
Menntun og hæfniskröfur
Leitað er að kraftmiklum einstaklingi með góðan skilning
á verslunarrekstri og fjármálum.
Háskólamenntum og/eða haldgóð reynsla af
stjórnunarstörfum er æskileg.
Skógarhlíð 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • Bréfasími 520 4701 • www.hagvangur.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Sjálfstæðisfélögin
í Garðabæ
Fundur
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins til Alþingis
í Suðvesturkjördæmi boða til fundar á Garða-
torgi 7 í dag, þriðjudaginn 4. febrúar, kl. 20.
Dagskrá:
1. Frambjóðendur kjördæmisins reifa
stjórnmálaviðhorfið.
2. Kosningabaráttan framund-
an.
3. Önnur mál.
Allir velkomnir
kaffi á könnunni.
Stjórnir fulltrúaráðsins
og sjálfstæðisfélaganna.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Eimskip — Opið útboð
VSÓ Ráðgjöf, fyrir hönd Eimskips sem verk-
kaupa, óskar eftir tilboðum í að innrétta frysti-
geymslu og byggja við Óseyrarskála í Hafnar-
firði.
Helstu stærðir eru:
Frystiklefaeiningar 1.900 m²
Viðbygging 500 m²
Útboðsgögn verða afhent hjá VSÓ ráðgjöf,
Borgartúni 20, 105 Reykjavík, gegn 5.000 króna
skilatryggingu. Gögn verða til afhendingar frá
og með hádegi þriðjudaginn 4. febrúar.
Tilboðum skal skila á sama stað eigi síðar en
kl. 11.00 mánudaginn 17. febrúar, merktum:
Óseyrarskáli
Innrétting á frystigeymslu og viðbygging
TILBOÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Ingibjörg Þeng-
ilsdóttir, Erla Alexanders-
dóttir og Garðar Björgvins-
son michael-miðill starfa hjá
félaginu og bjóða félagsmönn-
um og öðrum upp á einkatíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—
18. Utan þess tíma er einnig
hægt að skilja eftir skilaboð á
símsvara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
KENNSLA
www.nudd.is
FÉLAGSLÍF
EDDA 6003020419 III
FJÖLNIR 6003020419 II
HLÍN 6003020419 VI
I.O.O.F.Rb.4 1522048-8½.I.*
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Ásgeir SH 150, skrnr. 0950, þingl. eig. Sjóferðir Sigurjóns ehf., gerð-
arbeiðandi Byggðastofnun, mánudaginn 10. febrúar 2003 kl. 11.00.
Brautarholt 12, neðri hæð, Snæfellsbæ, þingl. eig. Sigríður Guðlaug
Halldórsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Landsbanki
Íslands hf., aðalstöðv., mánudaginn 10 . febrúar 2003 kl. 15.00.
Grundarbraut 4, Snæfellsbæ, þingl. eig. Nóntindur ehf., gerðarbeið-
endur Snæfellsbær, Tryggingamiðstöðin hf. og Verkiðn ehf., mánu-
daginn 10. febrúar 2003 kl. 14.30.
Hábrekka 18, Snæfellsbæ, þingl. eig. Jóhannes Ingi Ragnarsson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Íslandsbanki hf., Landsbanki
Íslands hf., höðuðst. og Lífeyrissjóðir Bankastræti 7, mánudaginn
10. febrúar 2003 kl. 13.
Naustabúð 8, Snæfellsbæ, þingl. eig. Dís Aðalsteinsdóttir, gerðar-
beiðandi Landsbanki Íslands hf., aðalst., mánudaginn 10. febrúar
2003 kl. 15.30.
Snoppuvegur 6, ein. 17, hl. Snæfellsbæ, þingl. eig. Sjófugl ehf.,
gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf., höfuðst., mánudaginn 10.
febrúar 2003 kl. 13.30.
Stekkjarholt 1, Snæfellsbæ, þingl. eig. Þórunn Laufey Sigurðardóttir,
gerðarbeiðendur AX hugbúnaðarhús hf., Fiskmarkaður Íslands hf.,
Greiðslumiðlun hf., Húsasmiðjan hf., Íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóður
sjómanna, Lífeyrissjóður verslunarmanna og Snæfellsbær, mánu-
daginn 10. febrúar 2003 kl. 14.00.
Sýslumaður Snæfellinga,
3. febrúar 2003.
NAUÐUNGARSALA
ATVINNA
mbl.is
bus í Prjónastofunni Sólinni, Ægi Ó.
Ægis í Deleríum búbónis, Bjarna á
Sjöundá í Svartfugli, titilhlutverkið í
Jóni Arasyni og Þórð í Stalín er ekki
hér.
Skopgáfa hans blómstraði í ótal
hlutverkum, ekki síst í skringilegum
og skemmtilegum körlum í íslensku
leikritunum: Jóni bónda í Gullna
hliðinu, Jóni hreppstjóra í Sjálf-
stæðu fólki og Albjarti í Syni skóar-
ans og dóttur bakarans. Ótalin eru
hér öll hans fjölmörgu hlutverk í út-
varpi, sjónvarpi og kvikmyndum.
Rúrik dró úr leik eftir að hann fór
á eftirlaun en lék þónokkur hlutverk
í Þjóðleikhúsinu eftir það, m.a. föður
brúðarinnar í Blóðbrullaupi, Hreiðar
gamla í Gauragangi og sjoppueig-
andann Doxa í West Side Story. Síð-
asta hlutverk hans var faðir Júlíu í
Sönnum karlmanni, sem hann lék
1995.
Rúrik Haraldsson var einn mátt-
arstólpanna í sveit íslenskra leikara
áratugum saman. Hann var fyrir-
mynd þeirra, sem á eftir komu og
hann varð einn ástsælasti leikari
þjóðarinnar. Sjálfur var hann ein-
staklega hlýr og skemmtilegur í
samvinnu, hláturmildur, hress og
opinn í viðmóti. Eins og ég kynntist
honum, bæði sem leikstjóri og sam-
starfsmaður, var hann ætíð jákvæð-
ur og viljugur – vann best undir
sterku aðhaldi og jafnvel aga; það
var kannski ekki tilviljun, að mörg
eftirminnilegustu hlutverk sín vann
hann undir handleiðslu okkar sterk-
ustu leikstjóra eða erlendra stórleik-
stjóra.
Hann átti við nokkur veikindi að
stríða síðustu árin en lét það eftir
sér að ferðast til Bandaríkjanna til
að heimsækja dóttur sína og afkom-
endur og var sú ferð honum afar
mikils virði. Síðustu árin var hann
hættur að leika á sviði en hann kom
á frumsýningar til okkar í leikhúsið,
alltaf jafnhress og ótrúlega ern fram
til hinstu stundar. Það var alltaf
skemmtilegt að hitta hann, skiptast
á fréttum og rifja upp gömlu dagana
hans í leikhúsinu.
Við sem áttum því láni að fagna að
starfa með honum minnumst hans
sem eins mesta leikara samtíðarinn-
ar. Það voru forréttindi að fá að
kynnast honum og starfa með hon-
um. Fyrir hönd okkar hjóna og sam-
starfsfólks Rúriks í Þjóðleikhúsinu
sendi ég fjölskyldu hans okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. Minningin
um þennan mikla listamann mun lifa
og halda áfram að hvetja okkur til
dáða.
Stefán Baldursson.
Félag íslenskra leikara kveður
með söknuði góðan félaga, Rúrik
Haraldsson. Rúrik var glæsimenni
og heimsborgari í fasi, enda hafði
hann eftir leiklistarnám hjá Lárusi
Pálssyni, þá rétt um tvítugt, lagt
land undir fót til að halda áfram að
mennta sig í list sinni í stórborginni
London. Rúrik var sannur sjentil-
maður, hlýr og elskulegur og kunni
þá kúnst að segja frá á hófstilltan,
spaugilegan hátt.
Á leiksviði naut þessi fágun Rú-
riks sín vel og ein fyrsta minning
mín um ógleymanlegan leik hans er
sá ósvikni breski herra Higgins sem
hann skóp á sviði Þjóðleikhússins í
May fair lady árið 1962. Skömmu
síðar minnist ég þess hvernig hann
glansaði á móti Herdísi Þorvalds-
dóttur í sjarmörnum og töffaranum
Billy Jack í söngleiknum Táningaást
og ekki síður sem hinn gáfaði Quent-
in í Eftir syndafallið, leikriti Arthur
Miller um hjónaband þeirra Marilyn
Monroe. Margt annað mætti nefna
frá löngum ferli Rúriks í leikhúsinu,
en sérstaklega verð ég þó að minn-
ast á stórbrotna túlkun hans á Lé
konungi árið 1977. Rúrik var virkur í
félagsmálum leikara á árum áður og
var m.a. ritari stjórnar FÍL árið
1956 og gegndi því embætti í eitt og
hálft ár. Hann hafði alla tíð áhuga á
réttindamálum leikara og leitaði
stundum til okkar sem störfum fyrir
félagið með ýmis málefni og fyrir-
spurnir, en stundum bara til að
spjalla og spekúlera. Þegar ég átti
erindi við Rúrik var nokkuð víst að
fleira yrði á dagskrá en launa- og
réttindamálin því hann og hin glæsi-
lega eiginkona hans Anna Sæbjörns-
dóttir, sem látin er fyrir nokkrum
árum, fylgdust vel með málefnum
líðandi stundar og höfðu ákveðnar
skoðanir bæði á mönnum og málefn-
um. Þeirra samverustunda er nú
ljúft að minnast.
Félag íslenskra leikara sendir
innilegar samúðarkveðjur börnum
Rúriks og Önnu, þeim Birni, Haraldi
Steini og Ragnheiði og fjölskyldum
þeirra.
Edda Þórarinsdóttir,
formaður FÍL.
Fleiri minningargreinar
um Rúrik Haraldsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.