Morgunblaðið - 04.02.2003, Page 36

Morgunblaðið - 04.02.2003, Page 36
GRAHAM Taylor, knattspyrnustjóri Aston Villa, er enn sannfærðari en áður um að félag sitt verði að kaupa Jóhannes Karl Guðjónsson af Real Betis eftir frammistöðu hans í 3:0 sig- urleiknum gegn Blackburn á sunnu- daginn. Hann setur nú mikla pressu á stjórnarmann félagsins, Doug Ellis, að reiða fram fé til kaupanna. Jóhannes hefur nú leikið tvo leiki með Villa í úrvalsdeildinni, skorað eitt mark og lagt annað upp, og staðið sig mjög vel í stöðu varnartengiliðs. „Hann hefur aðeins spilað tvo leiki en ég er sannfærður um að hann er þess virði að við kaupum hann. Það Taylor setur pressu á stjórn Villa vilja eflaust fleiri krækja í hann ef hann heldur áfram á þessari braut. Áhangendur Villa hafa nú tvívegis risið úr sætum til að hylla hann og það hjálpar honum að festa sig í sessi,“ sagði Taylor í gær. Jóhannes Karl var í gær valinn í lið vikunnar hjá netmiðlinum Soccernet. ÍÞRÓTTIR 36 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ALLUR hugbúnaður og gagnagrunnur Heimsmeist- aramótsins í handknattleik var hannaður af kínversku fyr- irtæki og hafa starfsmenn þess séð um að slá inn töl- fræði, gang leiksins og hvaðan af vellinum mörkin í leikjum HM eru skoruð. Hinsvegar er ljóst að skil- greiningar á hvaða mörk eru skoruð úr hraðaupphlaupi hef- ur vafist fyrir mönnum hér í Portúgal því ekkert samræmi er á milli keppnisstaða hvað þetta varðar. Króatar léku í fyrsta sinn til úr-slita á HM árið 1995 er keppnin fór fram á Íslandi. Aðspurður sagði Guðmundur að hann hefði fylgst með leikjunum sem áhugamaður um íþróttina og auðvitað sem fagmaður. „Ég get ekki annað en hrifist með þegar svona hlutir gerast. Króatar léku með hjartanu og höfðu meiri vilja en Þjóðverjar, svo einfalt er það.“ Guðmundur játti því að hann hefði leitt hugann að þessu augna- bliki, þegar sigurliðið á HM hampar gullstyttunni, stund sem allir hand- knattleiksmenn þrá að upplifa og var Guðmundur á því að íslenskt landslið ætti möguleika á að upplifa slíka stund, fyrr eða síðar. „Ég sat og horfði á undanúrslitaleikina sem og leikina um bronsið og gullið sem aðdáandi heillandi íþróttar sem virð- ist vera í mikilli sókn,“ sagði Guð- mundur fyrir utan Atlantico-höllina að loknum úrslitaleik Þjóðverja og Króata. „Úrslit leiksins komu mér ekki á óvart þar sem lið Króatíu hafði meiri vilja til þess að ná settu marki. Það er bara mjög einfalt að þau lið sem mæta til leiks með viljann að vopni hafa oftar en ekki betur og það sýndi sig í úrslitaleiknum,“ sagði Guð- mundur og var inntur eftir því hvað honum fyndist um að mæta Áströl- um, Grænlendingum og Katar í riðlakeppni á heimsmeistaramóti. Of mörg slök lið í riðlakeppninni „Fyrirkomulagið á þessu móti er í raun ekki frábrugðið því sem gerist í knattspyrnu. Þjóðir vinna sér rétt til þátttöku, sumar þeirra eru vissulega veikar og það er mitt mat að þær hafi verið of margar að þessu sinni. Það má skoða hvort það sé nóg að hafa 16 lið sem leika til úrslita á heimsmeist- aramóti í stað þess að hafa þau 24. Markmið Alþjóðahandknattleiks- sambandsins, IHF, er að nota HM til þess að kynna íþróttina og kynna sitt starf, en það er mitt mat að HM í handknattleik eigi aðeins að vera vettvangur fyrir bestu lið heimsins hverju sinni,“ sagði þjálfarinn og kvartaði ekki undan skipulagi keppninnar að öðru leyti. „Það fór ágætlega um okkur, margt var gert á síðustu stundu en hótelin voru ágæt og maturinn líka. Það þýðir lítið að vera að velta sér upp úr þessum hlut- um þar sem hlutirnir eru einfaldlega framkvæmdir í dag á þennan hátt í Portúgal og við gátum litlu breytt þegar við mættum til leiks.“ Eftir harða rimmu við Þjóðverja um efsta sætið í riðlakeppninni í Vis- eu hélt íslenska liðið til Caminha með tvö stig í farteskinu og lék gegn Pól- verjum og Spánverjum í milliriðli. „Það var gríðarlega mikilvægt að leggja Pólverjana að velli þrátt fyrir að við byrjuðum illa gegn þeim. Gegn Spánverjum lentum við undir og það kostaði mikla orku að minnka mun- inn gegn þeim. Því miður tókst ekki að vinna. Margir spurðu mig hvort við hefðum ekki átt að gera margt öðruvísi í þeim leik þar sem svo margt hefði farið úrskeiðis. Ég er ekki sammála því þar sem við vorum að leika gegn einu af bestu liðum í heimi. Það voru í raun smáatriði sem fóru úrskeiðis í varnarleiknum í þeim leik. Leikaðferð okkar gekk í heild upp með ágætum en það vantaði herslumuninn,“ sagði Guðmundur og bætti því við að Spánverjar hefðu í raun getað endað sem heimsmeist- arar að þessu sinni, svo jöfn væru þau lið sem léku til undanúrslita í keppninni. Svíar enduðu í efsta sæti í sínum riðli en fengu samt sem áður ekkert stig með sér í milliriðilinn og voru margir á því að fyrirkomulagið í keppninni væri ósanngjarnt. Þegar upp var staðið hefði sjálfsmark frá Svíum í lokaleik þeirra gegn Dönum skilað liðinu betri stöðu. Sáttur við keppnis- fyrirkomulagið Guðmundur var hins vegar sáttur við þær breytingar sem gerðar voru á mótinu þrátt fyrir að lið eins og Sví- ar hefðu lent illa í því að þessu sinni. „Menn þurfa að vera á tánum í öllum leikjum á slíku móti, helst vinna alla leiki til þess að vera öruggir. Að mínu mati kom þessi breyting ágæt- lega út.“ Það vakti athygli þeirra sem sáu til íslenska liðsins á HM hve heitt var í kolunum á varamannabekk liðsins, menn létu oftar en ekki skapið hlaupa með sig í gönur, sendu fé- lögum sínum tóninn og á stundum fannst mönnum ástandið vera eld- fimt. Guðmundur hafði ekki miklar áhyggjur af þessu og benti á lið Kró- atíu sem fagnaði titlinum skömmu áður. „Það var engin lognmolla á bekknum hjá því liði. Við sem stönd- um að íslenska liðinu vitum að það þarf að vera viss stemmning í liðinu ef við eigum að leggja sterk lið að velli. Þannig erum við þar sem við er- um ekki með bestu leikmennina í hverri stöðu en sem lið getum við náð langt og unnið hvaða lið sem er. Það er því okkar styrkur þegar við erum í miklum ham og ég hef ekki áhyggjur af því þegar menn eru æstir. Það væri meira áhyggjuefni ef menn sýndu ekki lit í leikjunum og væru daufir. Hins vegar er ljóst að við vor- um að pirra okkur á hlutum sem við vildum ná en náðum ekki, en sá pirr- ingur var ekki alvarlegur og ristir grunnt.“ Vinstri vængurinn var daufur Flest lið sem íslenska liðið mætti á HM að þessu sinni lögðu áherslu á að stöðva Ólaf Stefánsson í sóknarleikn- um og oft og tíðum bar hann íslenska liðið á herðum sér þegar í sóknina var komið. Guðmundur var samt sem áður ánægður með hvernig íslenska liðið leysti úr þeim vandamálum sem skapast þegar Ólafur er tekinn föst- um tökum. „Mér fannst við leysa þetta vandamál mjög vel þegar ég lít til baka yfir þessa leiki. Handknatt- leikurinn sem við leikum undir þeim kringumstæðum verður kannski ekki áferðarfallegur þar sem búið er að klippa út annan vænginn. Sókn- arleikurinn verður stirðari og erfið- ari en eins og áður segir fannst mér við leysa þessa hluti vel. Sem dæmi skoruðum við 18 mörk í fyrri hálfleik gegn Þjóðverjum í riðlakeppninni þar sem þeir tóku Ólaf úr umferð. Pólverjar reyndu ekki að taka hann úr umferð og ekki heldur Spánverjar þannig að við leystum þetta vel.“ Guðmundur var sammála því að það væri ekki óeðlilegt að einn besti handknattleiksmaður heims bæri uppi sóknarleik íslenska liðsins. „Við njótum þess að hafa þennan frábæra leikmann og félaga. En það er alveg ljóst að við verðum að miða framtíð- arskipulag okkar og undirbúning við að það verði fleiri leikmenn sem geta létt á hans hlutverki í sóknarleikn- um. Í þessari keppni er það stað- reynd að það hefði mátt koma meira út úr skyttunum sem léku á vinstri vængnum.“ Skorum minna úr hraðaupphlaupum Hraðaupphlaupin hafa verið lykil- atriði í velgengni íslenska landsliðs- ins og þá sérstaklega á EM í Svíþjóð en í þessari keppni var þessi hluti leiksins ekki eins áberandi hjá ís- lenska liðinu. „Við náðum ekki að skora eins mikið úr hraðaupphlaup- um og á EM. Þar spilar varnarleik- urinn stórt hlutverk þar sem við lék- um vörnina ekki eins vel og á EM. Við sóttum hins vegar í okkur veðrið þegar leið á keppnina en gegn Spán- ÞRÁTT fyrir að Norðmenn eigi ekki lið í úrslitum Heimsmeist- arakeppninnar í handknattleik er stór hópur norskra þjálfara og starfsmanna handknattleiks- sambands þeirra í Lissabon að fylgjast með gangi mála á HM auk þess sem þjálfararáðstefna er haldin á vegum IHF, Al- þjóðahandknattleikssambands- ins. Íslendingurinn Þórir Her- geirsson er einn af sjö þjálfurum norska handknatt- leikssambandsins sem staddir eru í Lissabon en hann er að- stoðarþjálfari kvennalandsliðs- ins. Að auki eru rúmlega 20 aðrir þjálfarar frá norskum fé- lagsliðum í karla- og kvenna- flokki. Norðmenn fylgdust með Hugbún- aður á HM frá Kína „Við vorum ótrúlega nálægt því að leika um verðlaun á HM,“ segir Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari „Við spjöllum saman eftir að sigurliðið er búið að hampa gullstyttunni,“ sagði Guð- mundur Þórður Guðmundsson, þjálfari ís- lenska landsliðsins í handknatteik, við Sigurð Elvar Þórólfsson í Lissabon á sunnudag, en þann dag gekk mikið á í hand- knattleiksheiminum. Íslenska liðið tryggði sér sæti á næstu Ólympíuleikum og Króatar lögðu „þýska stálið“ að velli í mögnuðum úr- slitaleik og tryggðu sér gullið í fyrsta sinn. „Læt mig dreyma um að lyfta gullstyttunni“ Morgunblaðið/RAX Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari, brosandi eftir viðureignina við Júgóslavíu, ásamt nokkrum leikmanna sinna – Guðjón Valur Sigurðsson, Dagur Sigurðssson, Sigurður Bjarnason, Ólafur Stefánsson og Róbert Sighvatsson. Jóhannes Karl Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.