Morgunblaðið - 07.02.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 36. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Popp
og kók
Nýr tónlistarþáttur að byrja á
SkjáEinum Fólk 55
Grafísk hönnun hefur ýmsa snertifleti
við líf landsmanna Daglegt líf B4
Gleðidagur á
Snæfellsnesi
Flaggað þegar fréttist af
stofnun framhaldsskólans 6
Hönnunar-
verðlaun
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær Árna
Johnsen, fyrrverandi alþingismann, í
tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt,
rangar skýrslur til yfirvalda, mútu-
þægni og umboðssvik í opinberu
starfi. Refsingin er níu mánuðum
þyngri en Árni hlaut í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Hæstiréttur dæmdi
hann fyrir fjögur ákæruatriði sem
hann var sýknaður af í héraðsdómi.
Gísli Hafliði Guðmundsson, þáver-
andi starfsmaður Þjóðleikhúskjallar-
ans, var í Hæstarétti sakfelldur fyrir
mútugreiðslur til Árna og fyrir þátt
sinn í að gefa út tvo tilhæfulausa
reikninga sem byggingarnefnd Þjóð-
leikhússins greiddi en hann hafði ver-
ið sýknaður í héraði. Refsingarnar
eru ekki skilorðsbundnar.
Sýknudómar yfir öðrum sakborn-
ingum voru staðfestir, þeim Birni
Kristmanni Leifssyni, Stefáni Axel
Stefánssyni og Tómasi Tómassyni.
Ákæran gegn Árna Johnsen var í
27 liðum. Hann játaði brot sín í 12
ákæruliðum en fyrir Hæstarétti dró
hann til baka játningar í tveimur
þeirra og sagði þær byggðar á mis-
skilningi. Hæstiréttur taldi á hinn
bóginn að ekkert hefði komið fram
sem sýndi að játningarnar hefðu verið
gerðar fyrir mistök. Var niðurstaða
héraðsdóms um sakfellingu í þessum
12 ákæruliðum því staðfest. Líkt og í
héraði var Árni sakfelldur fyrir sex
ákæruliði til viðbótar.
Fjögur atriði til viðbótar
Hæstiréttur sneri hins vegar við
sakarmati í fjórum ákæruliðum sem
héraðsdómur hafði sýknað hann af.
Var hann fundinn sekur um að hafa
dregið sér tvær jólaljósaseríur, timb-
ur, þéttiull og aðrar byggingavörur.
Einnig fyrir að misnota sér aðstöðu
sína til að samþykkja tvo tilhæfulausa
reikninga sem byggingarnefnd Þjóð-
leikhússins greiddi.
Andvirði þess sem Árni var sak-
felldur í héraði fyrir að draga sér nam
um 3,2 milljónum, en auk þess var
hann sakfelldur fyrir fleiri brot. Þá
hafði hann þegar endurgreitt stærst-
an hluta fjárhæðarinnar. Í Hæstarétti
er hann að auki sakfelldur fyrir að
draga sér um 217.000 krónur, um-
boðsvikin nema um 170.000 krónum
og hann er dæmdur fyrir tilraun til að
draga sér byggingarvörur að andvirði
einnar milljónar króna.
Við ákvörðun refsingar yfir Árna
var m.a. litið til þess að Árni var sak-
felldur fyrir fleiri atriði en í héraði.
Jafnframt að hann lét af starfi alþing-
ismanns vegna málsins og gekkst
greiðlega við hluta þeirra sakargifta
sem hann var borinn.
Gísli Hafliði Guðmundsson var
dæmdur í þriggja mánaða fangelsi
fyrir hlutdeild í útgáfu þessara til-
hæfulausu reikninga og einnig fyrir
að greiða Árna, sem formanni bygg-
ingarnefndar, 650.000 krónur í mútur
fyrir að samþykkja 3,1 milljón króna
reikning vegna ýmissa lagfæringa á
húsnæði veitingahússins.
Árna var gert að greiða sakar-
kostnað og tæplega 1,2 milljónir í
málsvarnar- og réttargæslulaun.
Refsing Árna Johnsens
þyngd um níu mánuði
Hæstiréttur 4 /28
Í FYRSTU opinberu ummælum sín-
um frá því Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, rakti fyrir
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
röksemdir Bandaríkjastjórnar fyrir
því að Írakar væru ekki að afvopnast
eins og þeir hefðu skuldbundið sig
til, sagði George W. Bush Banda-
ríkjaforseti í gærkvöld að leiðtogar
heimsins „mættu hvergi hvika“
gagnvart Saddam Hussein Íraksfor-
seta. „Leiknum er lokið,“ lýsti Bush
yfir; „Saddam Hussein verður stöðv-
aður.“
Tíðindum þótti sæta að Bush
hreyfði því í ávarpi sínu í fyrsta sinn
að Bandaríkjastjórn myndi styðja að
öryggisráð SÞ afgreiddi nýja álykt-
un um Íraksmál, en aðeins að því til-
skildu að Írakar afvopnuðust sann-
anlega. „Öryggisráðið má hvergi
hvika frá þessum kröfum þegar ein-
ræðisherra gengur gegn þeim og
hefur þær að háði,“ sagði Bush.
Mikið veltur á Bagdad-
heimsókn Blix og ElBaradeis
Á fundi með utanríkismálanefnd
öldungadeildar Bandaríkjaþings í
gær sagði Powell að Íraksmálið yrði
leitt til lykta „innan vikna“ og það
„með einum eða öðrum hætti“. Hann
sagði að lykillinn að því að fá örygg-
isráð SÞ til að styðja afstöðu Banda-
ríkjamanna væri kominn undir því
hvað kæmi út úr heimsókn yfir-
manna vopnaeftirlits SÞ, Hans Blix
og Mohammad ElBaradei, til Bag-
dad nú um helgina.
Atlantshafsbandalaginu (NATO)
tókst ekki að ná saman um afstöðu
til þess hvað gera skuli í Íraksmálinu
á fundi í höfuðstöðvunum í Brussel í
gær, en unnið hefur verið að því í
meira en þrjár vikur að koma sam-
an sameiginlegri ályktun. Robert-
son lávarður, framkvæmdastjóri
NATO, sagði eftir þennan átaka-
fund í gær að Frakkar, Þjóðverjar
og Belgar hefðu frest fram á mánu-
dag til að ákveða hvort þeir hygðust
hætta að standa í vegi fyrir því að
virkja áætlun um varnarskuldbind-
ingar NATO til handa Tyrkjum,
sem þessum þremur þjóðum hefur
þótt ótímabært.
Tyrkneska þingið samþykkti í
gær ályktun um að heimila banda-
ríska hernum að endurbæta tyrk-
neska herflugvelli til notkunar í
hugsanlegum stríðsátökum í Írak.
Reuters
George W. Bush Bandaríkjaforseti við flutning ávarps síns um Íraksmál í Hvíta húsinu í gær.
Bush segir „leik lokið“
Powell telur Íraksmálið verða leitt til lykta „innan vikna“
Washington, Brussel, Ankara, Bagdad. AP, AFP.
Viðbrögð/16–17
ÞAÐ þykir til merkis um að Írakar
vilji sýnast samstarfsfúsari við
vopnaeftirlitsmenn SÞ að hátt-
settur fulltrúi Íraksstjórnar, for-
setaráðgjafinn Amer al-Saadi,
skýrði frá því í gær að einn íraskur
vopnasérfræðingur hefði gefið sig
fram til að ræða við eftirlitsmenn.
Slík viðtöl, án nærveru fulltrúa
Íraksstjórnar, eru ein meginkrafa
eftirlitsmanna sem Írakar hafa
fram að þessu ekki viljað verða við.
Hiro Ueki, talsmaður SÞ, staðfesti
að í gærkvöld hefði íraskur líffræð-
ingur mætt til yfirheyrslu. Þessar
fréttir bárust skömmu eftir að Hans
Blix varaði Íraksstjórn við því að
hún hefði eina viku til að sýna stór-
bættan samstarfsvilja við vopnaeft-
irlitsmenn. Lagði Blix sérstaka
áherzlu á kröfuna um að eftirlits-
menn fengju að eiga lokaða fundi
með íröskum vísindamönnum. Blix
gaf til kynna að kæmu Írakar ekki
betur til móts við vopnaeftirlits-
menn yrði erfitt að gefa Írökum já-
kvæða umsögn er hann gefur ör-
yggisráði SÞ skýrslu í næstu viku.
Sérfræðingur yfirheyrður
Bagdad. AP.
BANDARÍSK stjórnvöld hafa „öflug áform
um viðbrögð við hvers konar óvissuþáttum“
í tengslum við Norður-Kóreu, þar á meðal
hernaðaraðgerðir, að því er talsmaður
Hvíta hússins skýrði frá í gær, í kjölfar her-
skárra yfirlýsinga frá stjórnvöldum í
Pyongyang og gagnrýni úr röðum demó-
krata á Bandaríkjaþingi á forgangsröðun
ríkisstjórnar George W. Bush forseta í ut-
anríkismálum.
Ari Fleischer, talsmaður Bandaríkjafor-
seta, sagði sannarlega ástæðu til að hafa
áhyggjur vegna þeirra yfirlýsinga sem
norður-kóreskir ráðamenn létu frá sér fara
í gær um að fyrirbyggjandi árásir á kjarn-
orkustöðvar þeirra gætu leitt til „algjörs
stríðs“ og að „bandarísku heimsvaldasinn-
arnir“ gætu sjálfir átt von á að vera beittir
fyrirbyggjandi árásum af hálfu N-Kóreu.
Fleischer ítrekaði að Bush forseti væri
þeirrar skoðunar að deiluna megi leysa með
friðsamlegum hætti.
„Svona tal skaðar aðeins Norður-Kóreu,“
sem stendur frammi fyrir einangrun frá al-
þjóðasamfélaginu, sagði talsmaðurinn.
AP
Norður-kóreskir rútubílstjórar sýna gest-
um að sunnan „sameiningarfánann“ í Kos-
ung á landamærum Kóreuríkjanna í gær.
Bandaríkja-
menn við
öllu búnir
Norður-Kóreumenn/15
Washington. AP.