Morgunblaðið - 07.02.2003, Side 53

Morgunblaðið - 07.02.2003, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003 53  ÓHT Rás 2 KRINGLAN EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5 og 8. B. I. 16. Sýnd kl. 5, 8 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10. Náðu þeim í bíó í dag. í mynd eftir Steven Spielberg. KRINGLAN ÁLFABAKKI KEFLAVÍK Sýnd kl. 4, 6 og 8. Sýnd kl. 5. ísl. tal. / Sýnd kl. 6. enskt tal. Fjölskyldudagar á morgun og sunnudag Ekki missa af þeim! Radíó X SV MBL HK DV Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 4. ÁLFABAKKI / KRINGLAN Sjúklegasta grínmynd ársins er komin í bíó. kl. 6 og 8. / kl. 6, 8, og 10. / kl. 6 og 8. Kvikmyndir.is Radíó X ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10. ALMENN FORSÝNING ÁLFABAKKI/KRINGLAN/AKUREYRI ÁLFABAKKI KRINGLANÁLFABAKKI / Almenn forsýnd kl. 10. Sýnd kl. 4 Ísl tal. / Sýnd kl. 4. Ísl. tal. / Sýnd kl. 6. Ísl. tal. ÁLFABAKKI KEFLAVÍK AKUREYRI SÝNINGIN Lýsir: Jón bóndi Bjarnason - Mannakyn og meiri fræði var opnuð í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu um helgina. Á sýningunni getur að líta myndir Jóns bónda Bjarnasonar og ýmissa annarra myndskreyta, og skiptast verkin í nokkra efnisflokka, sem gerð er grein fyrir í sýningarsölunum. Einnig er flutt hljóðlistaverkið Hvísl skrifarans eftir Sjón og Hilmar Örn Hilmarsson á sýningunni. Lýsir er heitið á verkefni sem sett var á stofn með það að markmiði að búa til gagnagrunn um myndlist í íslenskum handritum en að verkefninu standa Árnastofnun og Listasafn Reykjavíkur. Morgunblaðið/Jim Smart Hákon Skúlason, sýningarstjórinn Ásrún Kristjánsdóttir og Eiríkur Þorláksson. Opnun í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu Saga jafngömul þjóðinni Michael Jackson segir að framleið- endur heimildarmyndarinnar Living With Michael Jackson, sem Sjón- varpið sýndi í gærkvöld, hafi svikið sig. Jack- son hefur þurft að sæta harðri gagn- rýni eftir að hann greindi frá því í heimildarmynd- inni að hann deildi reglulega rúmi með börnum. Talið er að um 14 milljónir manna hafi séð heimildarmyndina þegar hún var sýnd í Bretlandi á þriðjudag. Martin Bashir, sem tók frægt viðtal við Díönu prinsessu, þar sem hún greindi frá brestum í hjónabandi hennar og Karls Bretaprins árið 1995, gerði myndina um Jackson. Bashir mun hafa varið átta mánuðum við gerð heimildarmyndarinnar, tek- ið upp fjölmörg viðtöl við hann og eytt tíma á búgarði söngvarans í Kaliforníu. Í heimildarmyndinni greinir Jackson m.a. frá lýtaaðgerð- um sem hann hefur látið gera á sér og dálæti sitt á börnum. Jackson sá myndina á miðvikudag og er óánægður með hvernig hann kem- ur fyrir sjónir. Hann hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist aldrei geta skaðað börn: „Ég treysti Martin Bashir og hleypti honum inn í líf mitt og fjölskyldu minnar, því ég vildi að sannleikurinn kæmi í ljós.“ Þá segir hann: „Ég er undrandi á því að blaðamaður skuli stofna starfs- heiðri sínum í hættu með því að svíkja mig með þessum hætti.“    Þau virðast eiga sérdeilis vel saman, ungmennin snoppufríðu í stúlkna- bandinu Atomic Kitten og stráka- bandinu Westlife, Bryan McFadd- en er kvæntur og á tvö börn með Kerry Katona, fyrrum liðsmanni Kettlinganna og nú hafa þau op- inberað samband sitt, Liz McLaron sem enn er í Ato- mic Kitten og Kian Egan, félagi Bryans í Westlife. Talsmaður þeirra segir að eftir að hafa verið vinir í langan tíma sé ástin nú farin að blómstra milli þeirra. Kian er til- tölulega nýhættur með Jessicu Forsman á meðan Liz hefur verið laus og liðug síðan hún hætti með Lee Ryan úr Blue. Hún var þar að auki trúlofuð æskuástinni sinni í fimm ár.    Chris Martin ku eiga þann draum heitastan að ganga að eiga hana Gwyneth Paltrow sína. Vinir segja hann meira en til í að festa ráð sitt og stofna fjöl- skyldu enda hafi hann löngum öf- undað þá vini sína sem slíka blessun hefðu hlotið. Martin á aðeins eitt annað alvar- legt samband að baki og er víst lítið fyrir að hoppa úr einu bólinu í annað. Paltrow hefur á hinn bóginn átt í lengri samböndum við þrjá kunna Hollywood-hjarta- knúsara, Brad Pitt, Ben Affleck og Luke Wilson.    Sveitapoppstjarnan LeAnne Rimes er á batavegi eftir að ölvaður öku- maður ók á bifreið hennar. Rimes var lánsöm og hlaut einungis minniháttar áverka, skurði og marbletti. Bíllinn hennar er hins vegar gjörónýtur. Ölvaði ökumaðurinn rakst á bíl Rim- es er hann rauk yfir á rauðu ljósi. FÓLK Ífréttum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.