Morgunblaðið - 07.02.2003, Side 17

Morgunblaðið - 07.02.2003, Side 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003 17 Hlaðhömrum 1 • Grafarvogi sími 577 4949 Næs Glæsilegir árshátíðarkjólar skór - veski Opnunartími miðvikudag kl. 14-18 fimmtudag kl. 14-18 og 20-22 föstudag kl. 14-18 • laugardag kl. 11-14 TÚRBÍNU- ÞJÓNUSTA Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík Sími: 577 4500 • www.velaland velaland@velaland.is d es ig n. is 2 00 3 RÁÐAMENN varnarmála í Banda- ríkjunum hafa stóraukið viðbúnað- inn á Persaflóasvæðinu og embætt- ismenn segja líklegt að tvö eða þrjú flugmóðurskip verði send þangað á næstu dögum. Þrjú flugmóðurskip eru fyrir á svæðinu og eitt er á leiðinni þangað. Herinn er tilbúinn að senda þangað tvö flugmóðurskip til viðbótar og hugsanlega það þriðja ef þörf þykir, að sögn embættismannanna. Um það bil 113.000 bandarískir hermenn eru nú á Persaflóasvæðinu og um 50.000 þeirra eru í Kúveit. Gert er ráð fyrir því að alls verði 150.000 bandarískir hermenn á svæðinu eftir viku. Sjö herskip komu á Persaflóa- svæðið í vikunni með um 7.000 land- gönguliða og sjö skip til viðbótar með svipaðan fjölda hermanna eru á leiðinni þangað. Háttsettur embættismaður í bandaríska varnarmálaráðuneytinu segir að sjóherinn verði með sex eða sjö flugmóðurskip á svæðinu fyrir lok mánaðarins. Margir telja að Bandaríkjaher verði ekki tilbúinn að hefja innrás í Írak fyrr en í fyrsta lagi um miðjan mánuðinn en heimildarmenn AP- fréttastofunnar segja að ef til vill þurfi hann tvær eða fleiri vikur í við- bót til að undirbúa aðgerðirnar. Lík- legt er að yfir 200.000 bandarískir hermenn verði á svæðinu í byrjun mars. Tvær varnarlínur umhverfis Bagdad Hermálasérfræðingar, sem fylgj- ast með viðbúnaði Íraka, segja að þeir séu að skipuleggja tvær varn- arlínur umhverfis írösku höfuðborg- ina, Bagdad. Þeir eru einnig að efla varnir nokkurra annarra mikilvægra borga. Ennfremur hafa komið fram vís- bendingar um að verið sé að þjálfa íraska hermenn í borgarhernaði og að þeir eigi að berjast á götunum í borgaralegum klæðnaði, þannig að ógjörningur verði fyrir innrásarher- inn að greina hermenn frá óbreytt- um borgurum. Talið er að í fastaher Íraka séu um 389.000 manns og að þeir eigi allt að 2.600 skriðdreka, 3.700 önnur bryn- varin farartæki, 2.400 stórskotavopn og 300 herflugvélar. Þá er áætlað að þeir eigi 850 tæki til að skjóta flug- skeytum á flugvélar og um 3.000 loft- varnabyssur. Bandaríkin í óða önn við að styrkja herafla sinn á Persaflóasvæðinu Fjöldi hermanna sennilega kominn í 150.000 eftir viku Reuters Bandarískir hermenn í eyðimörk í norðanverðu Kúveit. Um 50.000 banda- rískir hermenn eru nú í landinu vegna hugsanlegrar innrásar í Írak. Washington. AP. Sex eða sjö flugmóðurskip verða lík- lega á svæðinu fyrir lok mánaðarins OSAMA bin Laden, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna al- Qaeda, er líklega á lífi og í fel- um í Afganistan. Kom þetta fram hjá Pervez Musharraf, forseta Pakistans, í Moskvu í gær. Hefur hann átt viðræður við rúss- nesk stjórn- völd í þrjá daga en hélt heim í gær. Mush- arraf sagði, að pakistanska leyniþjónustan hefði talið, að bin Laden væri látinn, en síðan hefðu komið fram vísbendingar um, að hann væri á lífi. Þvertók hann fyrir, að bin Laden væri í Pakistan, og því líklegast, að hann væri enn í Afganistan. Aðgerðir í vaxtamálum EVRÓPSKI seðlabankinn gerði enga breytingu á almenn- um vöxtum í gær og hafa þeir því verið óbreyttir í tvo mánuði. Því er þó spáð að gengishækk- un evrunnar og erfiðleikar í efnahagslífinu muni boða nýja vaxtalækkun með vorinu. Meg- invextir eru nú 2,75%. Eng- landsbanki ákvað hins vegar sína fyrstu vaxtalækkun í 14 mánuði og lækkaði þá úr 4% í 3,75%. Talið er, að samdráttur í ýmsum framleiðslugreinum hafi ráðið hér mestu. STUTT Bin Laden á lífi? Osama bin Laden LÖGREGLAN í Bretlandi réðst til atlögu gegn meintum hryðju- verkamönnum í fjórum borgum í gær og voru sjö handteknir, sex karlar og ein kona. Í Þýskalandi voru sömuleiðis þrír íslamskir harðlínumenn handteknir og eru þeir grunaðir um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk. Lögreglan í Bretlandi vildi ekki veita miklar upplýsingar um fólkið sem var handtekið í gær, en það var handtekin á grundvelli laga er miða að því að ráða niðurlögum hryðjuverkahópa. Tveir voru handteknir í Edinborg í Skotlandi og einn maður og ein kona voru handtekin í Glasgow. Þá var einn handtekinn í borginni Manchester og tveir í London. Í síðasta mán- uði fann lögreglan rísín, sem er stórhættulegt eitur, við húsleit í London og voru nokkrir hand- teknir í kjölfar þess fundar. Einn lögreglumaður féll í þeim aðgerð- um. Tengsl við al-Qaeda Mennirnir sem handteknir voru í Þýskalandi eru allir leiðtogar ísl- amistahreyfinga í borgunum Mind- en og Münster í vesturhluta lands- ins. Þeir eru grunaðir um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk gegn bandarískum skotmörkum í Þýskalandi árið 2001 og snemma árs 2002. Einn hinna handteknu er sagður hafa haft tengsl við sellu al- Qaeda-hryðjuverkasamtakanna sem á sínum tíma hafði höf- uðstöðvar í Hamborg. Talið er að þrír mannanna, sem tóku þátt í árásunum á Bandaríkin 11. sept- ember 2001, hafi komið úr Ham- borgarsellunni. Meintir hryðju- verkamenn handteknir London, Frankfurt. AFP. EINN æðsti lífvörður Saddams Husseins, forseta Íraks, hefur flúið land og er nú í Ísrael. Hefur hann veitt miklar upplýsingar um leynilega vopnaframleiðslu Íraka og meðal annars vegna þeirra telja Bandaríkjamenn sig hafa nægar sannanir fyrir brotum Íraka á ályktunum Sameinuðu þjóðanna. Var skýrt frá þessu í ástralska blaðinu The Herald Sun fyrir fáum dögum. Abu Hamdi Mahmoud hefur látið Ísraelum í té upplýs- ingar um ýmsa staði, sem vopnaeftirlitsmenn SÞ hafa ekki skoðað hingað til. Meðal þeirra eru neðanjarðar- efnaverksmiðja í Bagdad; samsetningarverksmiðja fyrir Scud-flaugar frá Norður-Kóreu og tvö neðanjarðarbyrgi fyrir efnavopn í eyðimörkinni í vesturhluta landsins. Hef- ur blaðið það eftir William Tierney, fyrrverandi vopna- eftirlitsmanni, að upplýsingarnar frá Mahmoud séu „sannkallað sprengiefni“. „Fari eftirlitsmennirnir á þessa staði, þá er búið með Saddam,“ sagði Tierney. „Innri hringurinn“ Mahmoud var í sérsveit, sem gætir Saddams og er kölluð „Innri hringurinn“. Var hann sjálfur kallaður „Hliðvörðurinn“ og sást oft á myndum með Saddam, stóð þá jafnan fyrir aftan stólinn, sem forsetinn sat á. The Herald Sun segir, að Ariel Sharon, forsætisráð- herra Ísraels, hafi aðeins deilt upplýsingunum frá Mahmoud með bandarísku og bresku leyniþjónustunni og haft er eftir ónefndum aðstoðarmanni Sharons, að hann hyggist nota upplýsingarnar til að sannfæra evr- ópska leiðtoga um, að ekki sé um annað að ræða en ráðast gegn Saddam. Meðal þess, sem hefur komið fram í yfirheyrslum yfir Mahmoud, er þetta: „Gereyðingarvopn Saddams eru einnig falin í ganga- kerfi, djúpt undir holræsakerfinu í Bagdad, og í neð- anjarðargöngum í Ouja, norður af Tikrit. Voru þau grafin fyrir fimm árum með aðstoð kínverskra verkfræðinga. Inngangurinn er í húsi í Tikrit, á heimili frændfólks Saddams, og í meira en hálfrar mílu fjarlægð frá göng- unum.“ Mahmoud segist hafa verið í þeim hópi, sem næstur komst Saddam: „Mjög fáir fá að koma nálægt honum. Margar sjónvarpsmyndanna, sem sýndar eru af honum, eru gamlar og yfirleitt talar hann ekki við menn nema í síma og hringir þá sjálfur. Ef þeir þurfa að ná í hann aft- ur vegna upplýsinga, sem hann hefur beðið um, verða þeir að koma þeim til sona hans eða Tariq Aziz, aðstoð- arforsætisráðherra. Allir, sem standa nærri Saddam, hafa lykilorð til að þeir geti haft samband við „Ytri hringinn“ en þeir komast þó aldrei nær forsetanum en að „Innri hringnum“. Það er jafnvel leitað á Tariq Aziz svo öruggt sé, að hann sé ekki vopnaður,“ sagði Mahmoud. Eins og gangandi vopnabúr Haft er eftir Mahmoud, að Saddam viti, að margir vilji hann feigan og hafi ótti hans vaxið mjög er Uday, syni hans, var sýnt banatilræði 1996. Meðal annars þess vegna sé Saddam eins og gangandi vopnabúr enda treysti hann engum, ekki einu sinni „Innri hringnum“. Það var Mossad, ísraelska leyniþjónustan, sem hjálp- aði Mahmoud við að komast úr landi og var það í samn- ingum, að fjölskyldu hans yrði líka komið burt. Einn helsti lífvörður Saddams sagður hafa flúið til Ísraels Efnavopn falin í djúpum neðanjarðargöngum Reuters Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna ganga fram- hjá mynd af Saddam Hussein Íraksforseta í Bagdad. Myndir af honum eru á hverju strái um allt landið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.